Skessuhorn


Skessuhorn - 29.07.2022, Síða 6

Skessuhorn - 29.07.2022, Síða 6
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 20226 Féll af hestbaki SNÆFELLSNES: Síð- asta föstudagsmorgun féll 13 ára stúlka af hestbaki og rot- aðist en var að öðru leyti ómeidd. Um var að að ræða hóp ferðamanna frá Tékk- landi sem höfðu leigt sér hross til útreiða. Stúlkan var flutt á HVE á Akranesi og var útskrifuð síðar sama dag. -vaks Á hjóli í Hval- fjarðargöngum HVALFJ: Tilkynnt var um tvo hjólreiðamenn á ferð í Hvalfjarðargöngunum á laugardaginn. Lögreglan fór á staðinn og hitti mennina við norðurenda ganganna. Þeir sögðust ekki hafa orðið var- ir við skiltið um að hjólreið- ar væru bannaðar í göngun- um áður en þeir fóru í gegn en lofuðu að fylgjast betur með umferðarskiltum á leið sinni um landið. Lögreglan fylgdi mönnunum upp úr göngun- um en þeir voru nánast komn- ir alla leið þegar þeir voru stöðvaðir af lögreglu. -vaks Nýjar reglur varðandi strand- veiðar LANDIÐ: Eins og fram kom í síðasta Skessuhorni hefur Svandís Svavarsdóttir mat- vælaráðherra ákveðið að auka aflaheimildir í strandveið- um um 1.074 tonn af þorski. Einnig hefur ráðherra kom- ið á þeirri breytingu að Fiski- stofa mun fella strandveiði- leyfi úr gildi þegar strandveið- ar verða stöðvaðar síðar í sum- ar. Í því felst að heimilt verð- ur að stunda veiðar á grund- velli annarra veiðileyfa eftir að strandveiðitímabili lýkur. -mm Betra útlit í vatnsbúskapnum LANDIÐ: Eftir krefjandi vetur í vatnsbúskap vatnsafls- virkjana Landsvirkjunar hef- ur staðan nú batnað umtals- vert. Skortur á orku síðla vetr- ar varð meðal annars til þess að knýja þurfti loðnubræðslu með brennslu olíu. Í frétt Landsvirkjunar kemur fram að snjósöfnun vetrar hafi verið vel yfir meðallagi og tók snjó- bráð vorsins snemma við sér og skilaði sér vel í miðlunar- lónin. „Blöndulón og Þóris- vatn náðu lægstu stöðu seinni hluta mars og hófst söfnun fljótlega í kjölfarið og hefur haldist stöðug síðan. Hálslón náði lægstu stöðu um miðj- an maí og hefur söfnun verið rólegri þar en í öðrum mið- lunum Landsvirkjunar enda spilar jökulbráð þar stærri þátt í innrennsli ársins. Í síð- ari hluta júnímánaðar hefur hægst á söfnun þar til að jökul- bráð tekur við sér með hækk- andi hitastigi á hálendinu. Góðar líkur eru á að Blöndu- lón og Hálslón fyllist í ágúst en rétt undir helmingslíkur á að Þóris vatn fari á yfirfall fyrir sumarlok.“ -mm Maður fannst heill á húfi MÝRAR: Á sunnudaginn hóf Lögreglan á Vesturlandi eftir- grennslan að karlmanni sem hvarf frá heimili sínu á laugar- daginn. Síðast sást til ferða hans við Grenjar á Mýrum á laugar- dagskvöldið. Björgunarsveitir voru á tólfta tímanum á sunnu- dagskvöld kallaðar til leitar í nágrenni Brókarvatns. Skömmu eftir miðnætti fannst svo mað- urinn heill á húfi. Lögreglan vill koma á framfæri þökkum til allra sem tóku þátt í leitinni og til þeirra sem veittu ábendingar. -mm Kviknaði í jarðýtu BORGARFJ: Síðasta fimmtu- dagsmorgun var tilkynnt um að kviknað hefði í jarðýtu sunn- an við Þverholtsland á Mýr- um sem notuð var til að brjóta land til ræktunar. Viðbragðsað- ilar voru kallaðir til. Þegar lög- reglan kom á staðinn var búið að slökkva eldinn en kvikn- að hafði í vélarrúmi jarðýt- unnar. Jarðýtus tjórinn náði að bregðast við og slökkva eldinn með aðstoð annars gröfu- manns sem var að vinna þar rétt hjá. Slökkvilið Borgarbyggðar mætti einnig. Að sögn Bjarna Þorsteinssonar slökkviliðsstjóra gekk slökkvistarf greiðlega, en töluverðar skemmdir urðu á vél- og rafbúnaði ýtunnar. -vaks Tekinn í símanum við löggustöðina AKRANES: Ökumaður var tekinn síðasta laugardag við þá iðju að tala í símann á akstri og var hann á rúntinum á Þjóð- braut rétt utan við lögreglu- stöðina. Ekki kannski beint heppilegasti staðurinn til að vera í símanum og á ökumaður- inn von á 40 þúsund krónum í sekt fyrir athæfið. -vaks Listakonan Michelle Bird býr í Borgarnesi. Málverk eftir hana hef- ur verið valið til þess að vera í hópi fjölmargra listaverka sem send eru til tunglsins á vegum verkefnis- ins Lunar Codex. Michelle málaði verkið sem nú fer á ferðalag ásamt listamanninum Mike Albrow sem er búsettur í Sviss. Lunar Codex er verkefni sem sendir listaverk eftir listmálara, rithöfunda, tónlistarfólk og kvik- myndagerðarfólk til tunglsins í tímahylkjum. Michelle er fyrsta listakonan frá Íslandi sem tekur þátt í verkefninu og Mike annar listamaðurinn frá Sviss. Tímahylk- in eru þrjú talsins og munu koma til með að lenda á þremur mismun- andi stöðum á tunglinu. Tímahylk- in heita Peregrine, Nova og Polar- is. Listaverkið „Magdalena‘s Battle with the Boar“ eftir Michelle og Mike verður sent í Polaris, þriðja tímahylkinu ásamt 25.000 öðrum verkum frá 108 löndum. Fyrsta tímahylkið, Nova, mun leggja af stað í september 2022, Peregrine í lok árs 2022 og Polaris fyrripart ársins 2023. Samuel Peralta er maðurinn á bak við verkefnið en hann segir verkefnið hafa byrjað á tímabili Covid-19 til að dreifa von, en verkefnið vinnur hann í sam- vinnu við NASA. Hylkin eiga að vera uppgötvuð á tunglinu af næstu kynslóðum til að læra um okkar tíma svo gjörningurinn er í senn sögulegur og menningarlegur. sþ Sendir málverk til tunglsins Michelle Bird og Mike Albrow mála verkið sem mun vera sent til tunglsins í tímahylki á vegum verkefnisins Lunar Codex. Málverkið sem fer til tunglsins ber heitið Magdalena‘s Battle with the Boar.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.