Skessuhorn - 29.07.2022, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 2022 9
GAMLI-SKÓLI
SKÓLA-
STJÓRAHÚS
F
R
Ú
A
R
G
A
R
Ð
U
R
F
R
IS
B
ÍG
O
L
F HALLDÓRSFJÓS
SKEMMAN
KAFFIHÚS
GRUNNSKÓLI
LANDBÚNAÐARSAFN
JARÐRÆKTAR-
MIÐSTÖÐ
HVANNEYRI
PUB
ULLARSEL
LEIKFIMIHÚS
HVANNEYRAR-
HÁTÍÐ
6.ágúst kl. 13 - 17
#hvanneyrarhatid
nánar á facebook
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
2
Tillaga að deiliskipulagi
Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 10.
mars 2022 að auglýsa tillögu að Aðalskipulagi Dalabyggðar
2020-2032 ásamt umhverfismatsskýrslu skv. 31. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010 og 15. gr. laga um umhverfismat
framkvæmda og áætlana.
Óskað er umsagnar skv. 31. gr. skipulagslaga
nr. 123/2010.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn
kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Umsögnum skal
vinsamlegast skilað til skrifstofu Dalabyggðar að Miðbraut
11, Búðardal eða á netfang embættis skipulagsfulltrúa
sveitarfélagsins, skipulag@dalir.is.
Tillagan er aðgengileg hér: https://dalir.is/frettir/adalskipulag-
dalabyggdar-2020-2032, á heimasíðu Dalabyggðar og
Skipulagsstofnunar frá og með
15. júlí 2022 til og með 26.ágúst 2022.
Frestur til að skila inn athugasemdum er til og
með 26. ágúst 2022.
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Stór hópur íbúa og sumarhúsa-
eigenda í Hvalfjarðarveit hefur rit-
að nafn sitt á undirskriftalista þar
sem skorað er á sveitarstjórn Hval-
fjarðarsveitar og Skipulagsstofn-
un að hafna því að veita leyfi til að
setja upp vindmyllugarða á toppi
Brekkukambs í Hvalfirði. Arn-
finnur Jónasson er í hópi þeirra
sem standa að undirskriftasöfnun-
inni. Hann skrifar á FB síðu sína
að safnað sé undirskriftum gegn því
að Zephyr Iceland, sem er í eigu
norska fyrirtækisins Zephyr, reisi
8-12 vindmyllur á toppi Brekku-
kambs. „Þær gætu orðið allt að 250
metrar á hæð og sæjust um nán-
ast alla Hvalfjarðarsveit, í Kjós og
uppsveitum Borgarfjarðar. Þá sæj-
ust þær vel frá hæsta fossi landsins
Glym í Botnsdal og úr þjóðgarðin-
um á Þingvöllum,“ skrifar Arnfinn-
ur.
Með undirskrift er fólk hvatt til
að taka afstöðu með fólkinu, dýra-
lífinu og náttúrunni gegn vind-
myllugarðinum. „Við erum komin
með á sjötta hundrað undirskriftir á
netinu og síðan höfum við reynt að
heimsækja íbúa í Hvalfjarðarsveit
og fengið undirskriftir hjá þeim,“
skrifaði Arnfinnur á sunnudaginn,
en þá höfðu um 150 undirskriftir
safnast hjá íbúum.
Arnfinnur bendir á að lífsgæði
íbúa muni skerðast vegna hljóð-
mengunar og skuggavarps sem
hafa áhrif á heilsu manna, gangi
fyrirætlanir Zephyr Iceland eft-
ir. „Frá þeim stafar stöðugur niður
og hávaði sem verður mikið áreiti
og það er vel þekkt staðreynd að
hér í Hvalfirði bergmálar hljóð
langar leiðir í kyrru veðri. Nálægð
við vindmyllur hefur valdið því
erlendis að fasteignaverð lækk-
ar, hvort sem er heimili fólks eða
sumarhús og eignir verða mjög
erfiðar í endursölu. Ferðaþjónust-
an er orðin mjög mikilvæg grein í
Hvalfjarðarsveit og nábýli við vind-
myllugarð mun skaða ferðaþjón-
ustu í sveitarfélaginu en einnig í
Kjósinni þar sem er í gangi mikil
uppbygging í ferðaþjónustu. Vind-
myllurnar munu sjást frá mjög fjöl-
sóttum ferðamannastöðum eins
og fossinum Glym, Síldarmanna-
götum, Leggjabrjóti og Þingvöll-
um svo dæmi séu tekin. Það mun
sannarlega hafa neikvæð áhrif á
upplifun ferðamanna á þessum
vinsælu stöðum.“ Að lokum skrif-
ar Arnfinnur: „Stöndum saman og
mótmælum þessum fyrirætlunum
um að setja upp vindmyllugarð á
toppi Brekkukambs, þær eiga alls
ekki heima þar.“
mm
Mótmæla fyrirhuguðum
vindmyllugarði á Brekkukambi
Göngufólk á Brekkukambi við norðanverðan Hvalfjörð.