Skessuhorn - 29.07.2022, Síða 15
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 2022 15
Falleg birkitré
til sölu
Ríta og Páll
Í Grenigerði
437-1664 / 849-4836
Bjarni Benediktsson fjármála- og
efnahagsráðherra hefur sett á lagg-
irnar starfshóp um einföldun á stofn-
anakerfi ríkisins. Markmiðið er að
halda áfram að bæta þjónustu, auka
skilvirkni, stuðla að sveigjanleika
í skipulagi og framþróun og auð-
velda stafræna þróun ríkisins. Í dag
eru A-hluta stofnanir íslenska ríkis-
ins tæplega 160 talsins. Við þá tölu
bætist á annan tug ríkisfyrirtækja í
B-hluta og C-hluta og á sjöunda tug
sjálfstæðra stjórnsýslunefnda. Rúm-
lega helmingur stofnana í A-hluta er
með færri en 50 starfsmenn og fjórð-
ungur með færri en 20 starfsmenn.
Um tveir þriðju stofnana velta undir
milljarði króna á ári.
„Talsverður árangur hefur náðst í
einföldun stofnanakerfis undanfarin
ár, en stofnanirnar voru 250 talsins
árið 1998 og 206 árið 2006. Þannig
var skattamálum t.a.m. áður sinnt
hjá á öðrum tug stofnana, en þau
eru nú öll á einum stað hjá Skattin-
um eftir að Embætti ríkisskattstjóra,
Skattrannsóknarstjóra ríkisins og
Tollstjóra voru sameinuð í eitt árin
2020 - 2021. Seðlabanki Íslands og
Fjármálaeftirlitið sameinuðust í eina
stofnun um áramótin 2020/2021
auk þess sem Nýsköpunarmiðstöð
Íslands hefur verið lögð niður og
verkefni færð annað. Húsnæðis- og
mannvirkjastofnun hefur tekið við
hlutverki Mannvirkjastofnunar og
Íbúðalánasjóðs, nokkrar stofnan-
ir sameinuðust í Samgöngustofu og
heilbrigðisumdæmi voru endurskil-
greind og stofnanir sameinaðar.
Talið er mikilvægt að halda áfram
að stuðla að sífellt betri, skilvirkari
og hagkvæmari opinberri þjónustu.
Ríkisendurskoðun birti í febrúar sl.
skýrslu um stofnanakerfi ríkisins, en
megintillaga hennar er að stjórn-
völd fylgi eftir og taki afstöðu til
framkominna tillagna um einföldun
stofnanakerfisins á undanförnum
áratug. Ber þar helst að nefna tillög-
ur verkefnisstjórnar um breytingar á
stofnanakerfi ríkisins frá 2015 sem
skipuð var fulltrúum allra ráðuneyta.
Ríkisstjórnin samþykkti í júní sl.
að fela fyrrnefndum starfshópi að
undirbúa og hrinda í framkvæmd
einföldun á stofnanakerfi ríkisins
með það að markmiði að það verði
burðugra, sveigjanlegra og hag-
kvæmara. Verkefnið verður unnið
undir forystu ráðherranefndar um
ríkisfjármál.
Hópurinn verður skipaður
aðstoðarmönnum fjármála- og efna-
hagsráðherra, forsætisráðherra og
innviðaráðherra, auk sérfræðinga úr
viðkomandi ráðuneytum. Ætlunin
er að verkefnið nái þvert á stjórnar-
ráðið og munu því aðstoðarmenn
og sérfræðingar úr þeim ráðuneyt-
um sem verkefnið snertir jafnframt
koma að vinnu hópsins. Fyrirhugað
er að hópurinn skili niðurstöðum í
haust,“ segir í tilkynningu frá ráðu-
neytinu.
mm
Síðastliðinn miðvikudag hófu þeir
Grétar Gústavsson og Karl Frið-
riksson för sína um Vestfirði á
dráttarvélum. Með akstrinum ætla
þeir að láta gott af sér leiða og safna
styrkjum fyrir Vináttu, forvarna-
verkefni Barnaheilla gegn ein-
elti. Skorað hafði verið á þá félaga
að klára hringferðina, en sumarið
2015 fóru þeir hringinn í kringum
landið að undanskildum Vestfjörð-
um. Eftir hringferðina gáfu þeir
út bókina Vinir Ferguson, hring-
ferð um landið gegn einelti og rann
salan á bókinni óskipt til styrktar
Vináttu.
Grétar og Karl hafa verið vinir í
um sextíu ár og kynntust í sveit, á
bænum Valdarási í Fitjadal. Þegar
Massey Ferguson 35X vélin kom
í sveitina var eins og Rolls Royce
væri kominn á hlaðið á bænum.
Þeir áttu sér þann draum í æsku að
aka um landið á þessari dráttarvél
og var það kveikjan að hringferð
þeirra félaga.
Líkt og í fyrra skiptið er megin-
markmið Grétars og Karls með ferð
sinni að styrkja Vináttu, forvarna-
verkefni Barnaheilla, sem beinist
að því að fyrirbyggja einelti gegn
börnum á leik- og grunnskólaaldri.
Unnið er með Vináttu í leik- og
grunnskólum auk frístundaheim-
ila um land allt, en verkefnið hefur
verið innleitt í yfir 65% allra leik-
skóla á landinu og um 30% grunn-
skóla. Blær, fjólublár bangsi, er
helsta táknmynd Vináttu og ferðast
bangsinn með félögunum.
Eins og fyrr segir lögðu þeir
félagarnir í hann frá Staðarskála
miðvikudaginn 13. júlí og verða
átta daga á leiðinni. Þeir munu
koma á endastöð á Hvanneyri í dag,
miðvikudaginn 20. Júlí.
Á vefsíðunni: https://www.
barnaheill.is/vinirferguson er
hægt að styrkja verkefnið eða
með því að senda SMS skilaboðin
,,Barnaheill“ í síma 1900, og gefa
1.900 kr til styrktar baráttunni
gegn einelti.
mm
Mörg mál voru samþykkt á loka-
metrum Alþingis fyrir sumarleyfi.
Eitt þeirra var sérstaklega miðað að
því að bæta stöðu þolenda heimilis-
ofbeldis. Skilnaðarferlið verð-
ur auðveldað fyrir fólk sem hef-
ur orðið fyrir ofbeldi af hálfu maka
síns eða býr á heimili þar sem barn
hefur verið beitt ofbeldi.
Það er Viðreisn sem hafði veg
og vanda að því að fá frumvarp
þetta samþykkt, endurfluttu mál
sem þingflokkurinn tók upp fyrir
þremur árum. Fram til þessa hafa
þolendur heimilisofbeldis aðeins
getað krafist lögskilnaðar án undan-
gengis skilnaðar að borði og sæng
ef maki þeirra gengst við ofbeldinu
og samþykkir skilnað á grundvelli
þess. Gildir þar einu þótt hann hafi
hlotið dóm fyrir ofbeldið sem hann
hefur beitt maka sinn.
Þegar lögin taka gildi munu
þolendur geta krafist lögskilnaðar
ef maki gengst við broti sínu eða
hefur hlotið dóm fyrir það, fyrir
liggja upplýsingar frá lögreglu sem
staðfesta útkall vegna heimilis-
ofbeldis, önnur gögn á borð við
áverkavottorð eða mat sálfræðings
benda til þess að það hjóna er
krefst skilnaðar, eða barn sem býr
hjá þeim, hafi mátt þola ofbeldi
af hálfu makans eða heildarmat á
aðstæðum og upplýsingum gefur af
öðrum ástæðum tilefni til þess að
ætla að það hjóna er krefst skiln-
aðar, eða barn sem býr hjá þeim,
hafi mátt þola ofbeldi af hálfu hins.
Þegar skilnaðar er krafist á þess-
um grundvelli fyrir dómi munu
þolendur jafnframt eiga rétt á sér-
stakri flýtimeðferð. Hér er um að
ræða verulegar réttarbætur fyrir
fólk í viðkvæmri stöðu. mm
Á fullri ferð á Ferguson til stuðnings Barnaheilla
Stefna að fækkun stofnana ríkisins
Þolendum heimilisofbeldis
auðveldað að fá skilnað