Skessuhorn - 29.07.2022, Síða 16
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 202216
Síðastliðinn sunnudag var Þjóða-
hátíð Vesturlands haldin á veitinga-
staðnum Nítjándu í Garðavöll-
um á Akranesi. Hátíðin hefur ver-
ið haldin reglulega, með covid-
hléi, undanfarin 16 ár. Markmið-
ið með hátíðinni er að sýna fjöl-
breytileika ólíkra þjóða og draga
úr kynþáttafordómum með því
að kynna fyrir Íslendingum mis-
munandi menningu með tónlist,
mat og dansi. Hátíðin var sem fyrr
haldin af Félagi nýrra Íslendinga
en Pauline McCarthy á Akranesi
hefur setið í formannssæti félags-
ins undanfarin 24 ár og skipulagt
hátíðina frá upphafi. Þetta var síð-
asta hátíðin undir hennar stjórn en
Malini Elavazhagan tekur nú við
formennsku. Ágætlega var mætt á
hátíðina og fín stemning eins og
sést á meðfylgjandi myndum.
mm/ Ljósm. ki.
Ungmennaráð Ungmennafélags
Íslands (UMFÍ) heldur í haust sína
þrettándu ungmennaráðsstefnu
sem nefnist Ungt fólk og lýðræði.
Ráðstefnan hefur verið haldin
árlega frá árinu 2009 og hefur því
fest sig í sessi á meðal mikilvægustu
viðburða fyrir ungt fólk á Íslandi.
Ráðstefnan í ár fer fram dagana 9.
til 11. september í Héraðsskólan-
um á Laugarvatni. Yfirskrift henn-
ar er Ungt fólk og lýðræði - Gleym
mér ey!
Fram kemur á heimasíðu UMFÍ
að ráðstefnan sé samræðuvettvang-
ur ungs fólks á aldrinum 16 til 25
ára. Markmið og tilgangur ráð-
stefnunnar er að efla lýðræðis-
lega þátttöku ungs fólks í leik og
starfi og gefa ungu fólki, verkfæri
og þjálfun til þess að auka áhrif í
þeirra nær samfélagi. Ungmenna-
ráð UMFÍ hefur veg og vanda að
ráðstefnunni.
Fjöldi þátttakenda er takmark-
aður og komast aðeins 80 þátttak-
endur að. Þátttökugjald er 15 þús-
und krónur fyrir hvern þátttak-
anda. Innifalið í gjaldinu eru ferðir,
uppihald og ráðstefnugögn. UMFÍ
styrkir 80% af ferðakostnaði. Skila
þarf inn kvittunum til þess að fá
styrk fyrir ferðakostnaði. Athygli er
vakin á því að viðburðurinn er með
öllu vímuefnalaus og á það líka við
um rafsígarettur.
Ekki þarf að vera í ungmennaráði
eða ákveðnu félagi til þess að koma.
Eins og áður sagði er ráðstefnan
fyrir öll ungmenni á aldrinum 16 -
25 ára. Skráning er hafin og stend-
ur hún til 31. ágúst 2022. Nánari
upplýsingar má finna inn á umfi.is.
vaks
Ánægjuvogin, sem unnin er af
Rannsóknum og greiningu (R&g)
fyrir Íþrótta- og Ólympíusam-
band Íslands (ÍSÍ) og Ungmenna-
félag Íslands (UMFÍ), kom nýver-
ið út. R&g hafa lagt spurningalista
fyrir nemendur í 8.-10. bekk allt frá
árinu 1992 undir nafninu „Ungt
fólk.“
Í frétt á heimasíðu ÍSÍ segir að ÍSÍ
og UMFÍ hafa fengið að setja inn í
spurningalistann nokkrar spurn-
ingar til að kanna ánægju þeirra
sem stunda íþróttir með íþrótta-
félagi, til dæmis um það hversu
ánægð/ánægður viðkomandi er
með íþróttafélagið, þjálfarann og
aðstöðuna og helstu áhersluatriði
þjálfarans í starfinu. Einnig eru
skoðuð tengsl íþróttaiðkunar við
aðra þætti eins og vímuefnaneyslu,
neyslu orkudrykkja, notkun
nikótínpúða, andlega og líkam-
lega heilsu, sjálfsmynd og svefn. Í
Ánægjuvoginni eru teknar saman
niðurstöður þeirra spurninga sem
tengdar eru íþróttum og íþrótta-
iðkun en þetta er í fjórða sinn sem
Ánægjuvogin er birt.
Kynning á Ánægjuvoginni fór
fram í húsakynnum UMFÍ síð-
asta þriðjudag, en Margrét Lilja
Guðmundsdóttir sérfræðing-
ur hjá R&g vann skýrsluna og sá
um kynninguna. Niðurstöðurn-
ar eru almennt mjög jákvæðar fyr-
ir íþróttahreyfinguna þó að sannar-
lega séu líka áskoranir til stað-
ar. Helstu áskoranir eru að gera
íþróttastarfið aðgengilegra fyr-
ir kynsegin ungmenni og að sinna
þörfum barna af erlendum uppruna
enn betur en nú er gert, en þátttaka
þessara hópa í íþróttastarfi er tals-
vert minni en í öðrum hópum.
Í máli Margrétar Lilju kom fram
að þátttaka í skipulögðu íþrótta-
starfi er besta forvörnin á Íslandi.
„Okkur hefur tekist að draga úr
neyslu vímuefna hjá börnum og
ungmennum og þar hafa íþrótt-
ir og allt skipulagt starf í rauninni
spilað mjög stórt hlutverk” seg-
ir Margrét Lilja. Hún segir jafn-
framt; „Við sjáum að börn sem eru
virk í skipulögðu starfi upplifa sig
hamingjusamari, upplifa andlega
og líkamlega heilsu sína betri og
upplifa sig síður einmana og þeim
líður þar af leiðandi betur. Börn og
ungmenni sem taka þátt í skipu-
lögðu íþróttastarfi eru síður líkleg
til að neyta vímuefna, nota nikótín-
púða og orkudrykki og þau sofa
betur, en börn og ungmenni sem
ekki taka þátt.“ Margrét Lilja seg-
ir að verðmæti niðurstöðu Ánægju-
vogarinnar felast í því að hún stað-
festir forvarnargildi og mikilvægi
skipulagðs íþróttastarfs.
ÍSÍ og UMFÍ hafa fengið í hend-
ur heildarskýrslu fyrir allt landið,
ásamt landshlutaskýrslum og stöðu
ákveðinna þátta hjá yfir 50 íþrótta-
félögum. Á næstunni fer fram
áframhaldandi kynning á niður-
stöðum Ánægjuvogarinnar.
Ef skoðað er í skýrslunni viðhorf
iðkenda til æfinga, þjálfara og
íþróttafélaga á Vesturlandi finnst
86% svarenda í 8. til 10. bekk vana-
lega gaman á æfingum, 82% er
ánægð/ur með íþróttafélagið sitt,
85% er ánægð(ur) með þjálfar-
ann sinn, aðeins færri eða 75% eru
ánægð með æfingaaðstöðu hjá sínu
félagi og þá eru 77% ánægð(ur)
með félagslífið í félaginu sínu.
Hægt er að skoða skýrsluna í
heild sinni á heimasíðu Íþrótta- og
Ólympíusambands Íslands, isi.is.
vaks
Íþróttastarfsemi mikilvæg fyrir lýðheilsu barna og ungmenna
Litrík Þjóðahátíð á Akranesi
Frá ráðstefnunni árið 2020. Skjáskot af vef umfi.is
Ungmennaráðstefnan
Ungt fólk og lýðræði