Skessuhorn - 29.07.2022, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 2022 21
Grundarfjörður –
fimmtudagur 21.-23. júlí
Bæjarhátíðin Á góðri stundu í
Grundarfirði fer fram um helgina.
Rif – föstudagurinn 22. júlí
Systurnar Ey verða með tónleika í
Frystiklefanum klukkan 20:30.
Ólafsvík –
föstudagurinn 22.-24. júlí
Hinseginhátíð Vesturlands verður
haldin í Ólafsvík með hátíðardag-
skrá sem sjá má nánar auglýsingu
hér í blaðinu.
Reykholt –
föstudagurinn 22.-24. júlí
Klassíska tónlistarhátíðin Reyk-
holtshátíð fer fram í Reykholts-
kirkju í Borgarfirði. Sjá nánar aug-
lýsingu hér í blaðinu.
Grundarfjörður –
laugardagurinn 23. júlí
Ball á bryggjunni með Stefáni
Hilmarssyni, Gunna Óla, Unni
Birnu og hljómsveit.
Akranes – laugardagur 23. júlí
Kári og Sindri eigast við í 3. deild
karla í knattspyrnu í Akraneshöll-
inni og hefst leikurinn klukkan 14.
Ólafsvík – laugardagur 23. júlí
Reynir Hellissandi leikur á móti
Herði í A riðli 4. deildar karla í
knattspyrnu og hefst viðureignin
klukkan 17.
Hvalfjarðarsveit – sunnudagur-
inn 24. júlí
Sumartónleikar Hallgrímskirkju
í Saurbæ íslensk lög í flamenco
búningi með Tríó Flamenco. Tríó-
ið skipa þeir Reynir Hauksson, Ein-
ar Scheving og Birgir Steinn Theo-
dórsson og hefjast tónleikarnir
klukkan 16.
Akranes – mánudagur 25. júlí
ÍA mætir Fram í Bestu deild karla
í knattspyrnu á Akranesvelli og
hefst leikurinn klukkan 19.15.
Borgarnes – mánudagur 25. júlí
Skallagrímur fær Kríu í heimsókn
á Skallagrímsvöll í A riðli 4. deildar
karla í knattspyrnu og hefjast leik-
ar klukkan 20.
Hjón með 2 börn óska eftir
leiguhúsnæði í sveit
Sælt veri fólkið. Við erum hjón
með 2 börn að leita að húsnæði í
sveitinni. Póstnúmer 311, 320 og
342 koma sterklega til greina og
mögulega 356. Vinsamlegast haf-
ið samband í tölvupósti r1114@
protonmail.com
Á döfinni
Markaðstorg
Vesturlands
Smáauglýsingar
LEIGUMARKAÐUR
Getir þú barn
þá birtist það
hér, þ.e.a.s .
barnið!
WWW.SKESSUHORN.IS
Nýfæddir Vestlendingar
11. júlí. Drengur. Þyngd: 3.736 gr.
Lengd: 49 cm. Foreldrar: Eydís
Anna Kristófersdóttir og Steinþór
Logi Arnarsson, Dölum. Ljósmóðir:
Sigríður Berglind Birgisdóttir.
Erró, sem heitir réttu nafni Guð-
mundur Guðmundsson, er fædd-
ur í Ólafsvík 1932 og fagnaði 90
ára afmæli sínu í gær, 19. júlí. Erró
er tvímælalaust einn af þekktustu
samtímalistamönnum Íslendinga,
var í fararbroddi evrópsku framúr-
stefnunnar á sjöunda áratugnum
og hefur lagt sitt af mörkum til
evrópskar málaralistar. Árið 1989
gaf Erró Listasafni Reykjavíkur
um 2000 af verkum sínum og hef-
ur verið opnuð vefsíða með mynd-
um af þeim. Fyrst málaði Erró
undir listamannsnafninu Ferró en
var gert að breyta því. Faðir hans
var listamaðurinn Guðmundur frá
Miðdal sem var allt í senn; teiknari,
grafíklistamaður, málari, mynd-
höggvari, ljósmyndari, kvikmynda-
gerðarmaður, rithöfundur og fjall-
göngumaður. Erró á einn hálfbróð-
ur, Ara Trausta Guðmundsson, sem
er þekktur jarðfræðingur og rithöf-
undur og fv. alþingismaður.
Fram kemur á FB síðu Snæfells-
bæjar að sýningar á verkum Errós
eigi sér orðið fastan sess í Hafnar-
húsinu í Reykjavík en þar stendur
nú yfir stórsýningin Erró: Sprengi-
kraftur mynda. Þetta er umfangs-
mesta sýning sem sett hefur verið
upp á verkum listamannsins hér-
lendis og felur í sér meira en 300
listaverk af ýmsum gerðum sem
sett eru upp í öllu Hafnarhúsinu.
Sýningin stendur yfir til 29. sept-
ember næstkomandi.
vaks
Erró átti 90 ára afmæli í gær. Ljósm. af FB síðu Snæfellsbæjar
Listamaðurinn Erró 90 ára
16. júlí. Drengur. Þyngd: 3.670 cm.
Lengd: 51,5 cm. Foreldrar: Karen
Lorena Racedo De La Rosa og
Julio C. Fernandez De La Rosa,
Stykkishólmi. Ljósmóðir: G. Erna
Valentínusardóttir.
13. júlí. Stúlka. Þyngd: 3.554 gr.
Lengd: 51 cm. Foreldrar: Friðrikka
Árný Rafnsdóttir og Matt hías
Matthíasson, Mosfellsbæ. Ljós-
móðir: Hafdís Rúnarsdóttir.