Skessuhorn - 29.07.2022, Qupperneq 23
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 2022 23
Kylfingurinn Hafsteinn Gunnars-
son í Golfklúbbnum Leyni á Akra-
nesi upplifði ótrúlega viku á golf-
vellinum í vikunni sem leið. Á
mánudag fór hann holu í höggi á
18. holu á Garðavelli þegar hann
tók létta 8 á móti vindi, hátt bolta-
flug sem lenti um tvo metra frá
holu og rúllaði svo bara í. „Geggj-
að,“ eins og Hafsteinn lýsti þessu á
facebook. Hafsteinn skellti sér síð-
an í golf í blíðviðrinu á fimmtu-
daginn á Garðavelli og viti menn,
aftur fór hann holu í höggi! „Þetta
er auðvitað ótrúlegt en ég fór aftur
holu í höggi í dag! Núna var það á
8. holu á Garðavelli, 6 járn á móti
örlitlum vindi. Þetta er ekki hægt,“
sagði hann á FB síðu sinni.
Þegar Skessuhorn heyrði í
Hadda, eins og hann er yfirleitt
kallaður, var hann ennþá frekar hátt
uppi og ekki alveg að trúa þessu:
„Þetta er bara fáránlegt, maður var
bara að hugsa í bæði skiptin: „Er
þetta pottþétt í,“ en þetta er stór-
kostleg tilfinning. Maður trúði
þessu ekki alveg þarna í seinna
skiptið.“ Haddi hefur ekki farið
holu í höggi áður á golfferlinum en
hefur verið nálægt því tvisvar sirka
fimm sentímetra frá holu. Hvenær
á svo að fara þriðju holuna í höggi?
„Fyrsta sem ég ætla að gera er að
kaupa mér lottómiða fyrir kvöldið
og ætli maður taki ekki bara helgina
í það að ná holu í höggi, það yrði
eitthvað!“ segir hann og hlær.
Haddi er því orðinn tvöfaldur
félagsmaður í Einherjaklúbbnum
eftir vikuna en tveir félagsmenn
í Leyni hafa fyrr í sumar komist í
þennan eftirsótta félagsskap. Fyrst
var það Sveinbjörn Brandsson sem
sló draumahöggið á 3. braut um
miðjan maí og síðan Lárus Hjalte-
sted á 8. braut í byrjun júní. Það
eru því miklar líkur hjá golfurum ef
þeir fara í golf á Garðavelli að þeir
fari holu í höggi, það hefur sýnt sig
í sumar.
vaks
ÍA og Álftanes mættust á föstu-
dagskvöldið í 2. deild kvenna í
knattspyrnu og fór leikurinn fram
á Akranesvelli. Bryndís Rún Þór-
ólfsdóttir kom ÍA yfir á tólftu mín-
útu og þannig var staðan í hálfleik.
Unnur Ýr Haraldsdóttir bætti við
öðru marki fyrir ÍA í byrjun seinni
hálfleiks úr víti og var svo aftur á
ferðinni á 77. mínútu leiksins með
marki sem hún skoraði einnig af
vítapunktinum, lokastaðan 3-0.
ÍA er nú komið í fimmta sæti
deildarinnar með tólf stig eftir sex
leiki og næsti leikur liðsins er gegn
Gróttu sem er í öðru sæti ásamt
Völsungi og ÍR með 17 stig. Leik-
urinn verður á Vivaldivellinum á
Seltjarnarnesi næsta föstudag og
hefst klukkan 19.15.
vaks
Sunnudagurinn 24. apríl er dagur-
inn sem ÍA vann sinn eina leik
til þessa í Bestu deild karla í
knattspyrnu í sumar þegar þeir
lögðu Íslandsmeistara Víkings
3-0 á heimavelli. Síðan þá hafa
þeir gert fjögur jafntefli og tap-
að sjö leikjum í deildinni og stað-
an orðin virkilega erfið hjá liðinu
þegar níu leikir eru eftir í deildinni.
Á sunnudaginn komu Stjörnumenn
í heimsókn á Akranesvöll og unnu
öruggan sigur með þremur mörk-
um gegn engu. Emil Atlason kom
Stjörnunni yfir strax á fimmtu mín-
útu leiksins en mínútu síðar fékk
Kristian Lindberg dauðafæri fyr-
ir ÍA til að jafna metin þegar hann
fékk boltann á markteig en mark-
vörður Stjörnunnar gerði vel og
varði skot hans. Það var síðan rétt
áður en flautað var til hálfleiks að
gestirnir juku forskotið og þvílíkt
mark! Emil tók hælspyrnu við víta-
teig Skagamanna beint á Ólaf Karl
Finsen sem lyfti boltanum upp og
tók hjólhestaspyrnu beint upp í
fjærhornið, án efa flottasta mark
sumar sins hingað til. Staðan því 0-2
í hálfleik fyrir Stjörnuna og lítið
sem benti til þess að Skagamenn
gætu komið til baka í þeim seinni.
Skagamenn reyndu þó hvað þeir
gátu til að minnka muninn í seinni
hálfleik en fengu fá hættuleg færi og
það var síðan stundarfjórðungi fyr-
ir leikslok sem Stjörnumenn skor-
uðu þriðja og síðasta mark leiks-
ins þegar Ísak Andri Sigur geirsson
gerði vel einn á einn á móti mark-
manni ÍA og setti boltann auð-
veldlega í netið. Sannfærandi sig-
ur Stjörnumanna sem eru nú í
fjórða sæti en Skagamenn í tólfta
og neðsta sæti deildarinnar með
aðeins átta stig eins og ÍBV sem er
sæti ofar með betri markatölu.
Það er ljóst að margt þarf að
breytast svo að Skagamenn nái að
koma sér ofar í deildinni og það
virðist einfaldlega mjög lítið sjálfs-
traust í liðinu enda ekki unnið leik
í næstum þrjá mánuði. Jón Þór
Hauksson, þjálfari ÍA, hefur ekki
náð að bæta varnarleik liðsins frá
síðasta sumri að neinu marki og
sóknarleikur liðsins er í molum.
ÍA hefur aðeins skorað 13 mörk í
jafnmörgum leikjum í deildinni
í sumar og vantar tilfinnanlega
markaskorara en þeir eru víst ekki
margir á lausu. Enn er þó von
og afar mikilvægt að Skagamenn
nái að snúa slæmu gengi liðsins
við sem fyrst og nú er tíminn að
standa við bakið á liðinu og styðja
það í þessari erfiðu baráttu sem
framundan er.
Næsti leikur Skagamanna er
gegn Fram næsta mánudag á Akra-
nesvelli klukkan 19.15.
vaks
Reynir Hellissandi tók á móti
Árbæ í A riðli 4. deildar karla í
knattspyrnu á laugardaginn og fór
leikurinn fram á Ólafsvíkurvelli.
Árbær hafði tveggja marka forystu
í hálfleik og bætti við því þriðja
snemma í seinni hálfleik áður en
Brynjar Kristmundsson skoraði
fyrir Reynismenn mínútu síðar.
Árbær gerði síðan út um leikinn
með þremur mörkum þrátt fyrir að
vera einum leikmanni og forráða-
manni færri frá 70. mínútu, loka-
staðan 1-6 fyrir Árbæ.
Reynir hefur tapað öllum leikj-
um sínum til þessa í deildinni og
eru neðstir í riðlinum eins og gef-
ur að skilja. Næsti leikur Reynis er
gegn Herði Ísafirði næstkomandi
laugardag á Ólafsvíkurvelli og hefst
klukkan 17.
vaks
Víkingur tók á móti liði Ægis á
Ólafsvíkurvelli í 2. deild karla í
knattspyrnu á föstudagskvöldið
og vann öruggan sigur 5-2. Fyrsta
mark leiksins kom þó ekki fyrr en
á lokamínútu fyrri hálfleiks þegar
Mikael Hrafn Helgason kom
heimamönnum yfir og staðan í
hálfleik 1-0 fyrir Víking.
Það var aðeins meira fjör í
seinni hálfleik og mörkunum nán-
ast rigndi inn. Á 61. mínútu jafn-
aði Dimitrije Cokic fyrir Ægi en
Andri Þór Sólbergsson var snöggur
til og kom Víkingi aftur yfir mín-
útu síðar. Mitchell Reece kom Vík-
ingi í tveggja marka forystu rúm-
um tíu mínútum síðar og undir lok
leiksins bættu þeir Luis Romero
Jorge og Emmanuel Eli Keke við
tveimur mörkum fyrir Víking. Enn
var þó tími fyrir eitt mark og það
var fyrrnefndur Cokic sem skoraði
sárabótarmark í uppbótartíma fyr-
ir Ægi, lokastaðan 5-2 fyrir Víking.
Með sigrinum færðist Víking-
ur upp í áttunda sæti deildarinnar
og er með tólf stig eins og KF en
með betri markatölu. Víkingur er
nú sex stigum frá fallsæti en neðst
eru Magni Grenivík og Reynir
Sandgerði. Næsti leikur Víkings í
deildinni er næsta laugardag gegn
Völsungi á Húsavík og hefst klukk-
an 14. vaks
Nýverið óskaði karlalið
Vestra í körfuknattleik
eftir því við mótanefnd
KKÍ að fá að fara nið-
ur í 2. deild karla.
Mótanefnd leitaði þá til
ÍA, sem féll úr 1. deild
karla á nýliðinni leiktíð
og bauð þeim að taka
sæti í deildinni að nýju,
sem þeir þáðu. ÍA mun
því keppa í 1. deild karla
í stað Vestra á komandi
leiktíð, og Vestri tekur
sæti ÍA í 2. deild karla
fyrir keppnis tímabilið
2022-2023.
mm
Unnur Ýr skoraði tvö mörk úr vítum gegn Álftanesi. Ljósm. sas
Skagakonur unnu Álftanes
Skagamenn komnir í botnsæti
Bestu deildarinnar
Úr leik Stjörnunnar og ÍA fyrr í sumar. Ljósm. Lárus Árni Wöhler
Víkingur Ólafsvík með góðan sigur á Ægi
Hafsteinn kampakátur eftir seinni holu í höggi á fimmtudaginn.
Ljósm. af FB síðu Hafsteins
Fór holu í höggi
tvisvar í sömu vikunni
ÍA þiggur boð um að taka
þátt í fyrstu deild að nýju
Tíunda tapið í röð hjá Reyni