Vesturbæjarblaðið - Dec 2021, Page 10
Bruninn á Bræðraborgarstíg
1 í júní 2020 er flestum í fersku
minni. Um harmleik var að
ræða þar sem þrír einstaklingar
létust eftir að kveikt var í
húsinu. Marek Moszczynski
einn íbúa hússins var ákærður
og dæmdur fyrir þrjú manndráp
og tíu manndrápstilraunir með
íkveikjunni. Þetta er versti
eldsvoði sem orðið hefur hér
á landi á síðari árum. Húsið
við Bræðraborgarstíg eða öllu
heldur það sem eftir var af því
hefur verið rifið og unnið er að
áætlunum um uppbyggingu.
Þetta er ekki fyrsti eldsvoðinn
sem hefur orðið á þessum stað. Í
frétt í Alþýðublaðinu í nóv em ber
árið 1926 var sagt frá eldi í bök
un ar kjall ara Sveins Hjart ar sonar
á Bræðra borg ar stíg 1. Í fréttinni
sagði að log að hafði í kassa dóti og
lausu timbri milli bök un arofns ins
og útveggjar. Þar hefur eld ur inn
náð að kom ast að veggn um. Þar
hafi skot færi frá Jóhanni Ólafs syni
& Co. Verið geymd til þurrkunar
og sum þeirra hafi sprungið.
Í fréttinni kemur einnig fram að
fljótt hafi tekist að slökkva eldinn
og engum orðið meint af. Íbúum
hafi þó verið brugð ið.
Otti skipasmiður
byggði húsið
Bræðra borg ar stígur varð til
seint á þar síðustu öld. Götunnar
er fyrst getið í mann tali árið 1885
og þegar á fyrstu árum tutt ug ustu
aldar fékk hann á sig þá mynd
sem hann hefur enn í dag. Otti
Guð munds son skipasmiður úr
Eng ey byggði Bræðraborgarstíg
1 sem fjöl skyldu hús. Húsið
stóð á horninu við Vest ur götu í
rúma heila öld þar til það stóð
í ljósum logum á júnídegi fyrir
einu og hálfu ári.
Starfsemi jókst og íbúum
fjölgaði
Sveinn Hjart ar son og Stein unn
Sig urð ar dótt ir festu kaup á húsinu
á árinu 1910. Áður hafði verið þar
bakarí sem Árni Jónsson bakari
opnaði á Bræðrabogarstígnum
en það varð ekki langlíft. Sveinn
og Steinunn settu þá á stofn bak
arí og ráku um ára tuga skeið á
jarðhæð inni. Árið 1909 var Otti
skipa smiður enn skráður til
heimilis að Bræðra borg ar stíg 1
sam kvæmt Bæj ar skrá Reykja víkur
en flutti á Stýri manna stíg. Í mann
tal inu árið 1910 eru bæði Sveinn
og Stein unn skráð þar til heim ilis
sem og í bæj ar skránni árið 1915
auk fimm ann arra. Nokkrum árum
síðar eru íbú arnir orðnir fjórt án
og árið 1929 eru þeir sagðir tólf.
Himnaríki á jörð
Stein unn og Sveinn voru þekkt
fólk í Reykja vík og lögðu sín lóð
að fram þróun borgarinnar. Sveinn
var einn stofn enda Rúg brauðs
gerð ar innar og tók þátt í tog ara út
gerð. Stein unn var fædd í Hlíð ar
hús um einum Hlíðarhúsabæjanna
neðst við Vesturgötuna. Hún er
talin fyrst kvenna á Íslandi til að
læra að aka bíl sem og meðal
þeirra fyrstu til að stunda lax
veiði. Stein unn missti tvær
systur sínar úr spönsku veik inni
og tóku hún og Sveinn fjögur af
börnum þeirra í fóstur og önnur
börn systr anna áttu ætíð athvarf
hjá þeim. Áður höfðu þau ætt
leitt eina stúlku og auk þess átti
Sveinn son frá fyrra sam bandi.
Einn fóst ur son ur inn sagði síðar
að hann hefði upplifað heimili
þeirra sem „himna ríki á jörð u“.
Otti féll af smíðapalli,
Sveinn dó úr bráðum
veikindum og Steinunn
lést í bílslysi
Mikil umsvif voru í bakaríinu
hjá Sveini og Steinunni á þeirra
tíma mælikvarða. Bakað var á
hverjum degi og fyrir utan íbú
ana í Vest ur bænum voru skip
og sjúkra stofn anir meðal helstu
við skipta vina. Auk rekst urs bak
arís ins stund uðu þau hjón búskap
að Lauga landi og Breiða bóli og
seldu mjólk frá búun um. Sveinn
varð þó ekki langlífur. Hann féll
frá eftir skammvinn veikindi
snemma á fimmta áratug liðinna
aldar. Steinunn ekkja hans bað þá
fólk er vildi minnast hans að láta
það renna til Barnaspítalasjóðs
Hringsins í stað blómakaupa.
Dauða bæði Otta skipasmiðs og
Stein unnar bar að með snöggum
hætti. Í apr íl mán uði árið 1920 féll
Otti niður af smíða palli í báta
smíða stöð sinni og beið bana af
aðeins sex tug ur að aldri. Stein unn
lést í bílslysi í Kaup manna höfn
árið 1961 þá 74 ára að aldri.
Guðmundur Ágústsson
Guðmundur Ágústsson rak
Sveinsbakarí um langt skeið.
Guðmundur missti móður sína
í spönsku veikinni 1918 og var
þá tekinn í fóstur af Steinunni
Sigurðardóttur, móðursystur
sinni og Sveini Hjartarsyni,
bakarameistara. Hann lærði
bakaraiðn hjá Sveini og tók við
rekstri Sveinsbakarís fyrst ásamt
öðrum, en rak það síðan einn
allt til ársins 1980. Guðmundur
var einnig góður skákmaður
og gekk um tvítugt í Taflfélag
Reykjavíkur. Hann fór að tefla
fyrir alvöru en frá þeim tíma og
var hann nátengdur skáklífinu
í Reykjavík. Telja má víst að
Guðmundur hafi tekið bakteríuna
af Eggert Gilfer, en Eggert var
bróðir Þórarins Guðmundssonar,
tengdaföður Guðmundar. Árið
1938 vann Guðmundur sig upp í
meistaraflokk. Starfsárið 1941 til
1942 var Guðmundur formaður
Taflfélags Reykjavíkur.
Hjörtur Hjartarson
Hjört ur Hjartarson sem var einn
af yngri bræðrum Sveins opn
aði nýlendu vöru verslun í pakk
hús inu við hús hans á Bræðra
borg ar stígnum árið 1926 og rak
hana allt til árs ins 1982 eða í yfir
hálfa öld. Tómas Ó. Jóhanns son
rak þar einnig búð og árin 1924
og 25 aug lýsti hann marg vís
legan varn ing og slag orð versl
un ar innar var „Veit sá bezst
sem reyn ir“ Löngu síðar var þar
rekin raf tækja verslun þar sem
fram sýnin réði ríkj um. Seldi til
dæmis sjónvarpstæki af gerðinni
Tandberg sem voru algeng á
fyrstu árum sjónvarpsútsendinga
hér á landi.
Sorgarsaga leikskóla
Um tíma var leikskólinn 101
starfræktur á Bræðraborgarstíg
1. Leikskólinn var einkarekinn og
komst í fréttir eftir að orðrómur
um að börn væru beitt harðræði
varð heyrum kunnur. Í fram
hald inu af því lét þáverandi
eig andi hússins loka leik skól
an um sem síðar var tekinn til
gjaldþrotaskipta.
Útleiga, ungt fólk og
ömurlegur endir
Um svipað leyti var sótt um að
inn rétta litlar stúd íó í búðir í hús
inu og leigja ferða mönnum yfir
sum arið og náms fólki yfir vet ur
inn. Þær hugmyndir strönduðu
á ákvörðun umhverf is og skipu
lags ráðs Reykjavíkurborgar sem
lagðist gegn þeim. Síðustu árin
var húsið þó leigt út að mestu
sem einstaklingsherbergi. Leigj
endur komu og fóru. Oft var um
ungt fólk að ræða sem hingað var
komið lengra að en sveita fólkið
sem flutti á möl ina við upp haf
síð ustu ald ar. En til gang ur inn var
þó sá sami. Að búa sér til betra
líf. Það voru ungir leigjendur af
erlendum uppruna sem létu lífið í
brunanum 2020.
10 Vesturbæjarblaðið DESEMBER 2021
Litrík saga
en ömurlegur
endir Bræðraborgarstígur 1 eins og húsið leit út á fyrri árum.
Bræðraborgarstígur 1
Bræðraborgarstígur 1 í júní 2020. Slökkviliðsmenn berjast við eldinn.
Otti Guðmundsson skipasmiður
byggði Bræðraborgarstíg 1.
www.gilbert.is