Morgunblaðið - 02.04.2022, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2022
Til sölu einbýlishús á einni hæð með bílskúr við Hamragerði, Akureyri. Birt heildarstærð er
167,2 fm. Húsið er í mjög góðu ástandi og mikið endurnýjað. Falleg lóð og sérlega góð
staðsetning. Húsið er til afhendingar við kaupsamning.
Óskað er eftir tilboðum í eignina.
Ármúla 21, 108 Reykjavík | sími 533 4040 | kjoreign@kjoreign.is | www.kjoreign.is
HAMRAGERÐI, AKUREYRI
Allar upplýsingar gefur
Dan Wiium
lögm. og lögg. fasteignasali
Í síma 896-4013 eða
dan@kjoreign.is
Sigurður Már Jónsson blaðamað-
ur ræðir stöðu fjölmiðla og rík-
isstuðning við þá í nýlegum pistli á
mbl.is. Þar bendir
hann á að í lögum sé
kveðið á um „þak á
greiðslur þannig að
stærstu miðlarnir
taki ekki til sín of
hátt hlutfall. Síðan
hefur Fjölmiðla-
nefnd, sem sér um
útgreiðslu styrkj-
anna, haft vinnulag sem einnig lækk-
ar greiðslu til stærstu fjölmiðlanna.“
- - -
Þá nefnir hann að stærstu einka-
reknu fjölmiðlafyrirtækin reki
langfjölmennustu ritstjórnirnar og
sinni umfangsmikilli og fjölbreyttri
fréttaþjónustu. Þá segir hann að í
„uppflettingum á tímarit.is hafa þeir
yfirburði þegar fólk leitar heimilda,
sérstaklega Morgunblaðið. Það er
því eðlilegt að þessir stærstu miðlar
taki obbann af styrkjunum til sín.
Það er ekki trúverðugt þegar miðlar
sem fyrst og fremst birta skoðana-
efni og það með stopulum hætti eru
að reyna að sópa meiru af þessu fjár-
magni til sín þó að það megi hafa
skilning á vilja þeirra til þess.“
- - -
Þetta eru athyglisverðar ábend-
ingar sem eiga mikið erindi í
umræðuna. Annað sem ætti erindi í
umræðuna og þingmenn ættu að
skoða þegar þeir ræða hvernig kök-
unni sé skipt er hlutfall ríkisstyrks-
ins af umfangi starfsemi hvers mið-
ils. Eðlilegt væri til að mynda að
ræða hversu hátt hlutfall ríkis-
styrkurinn er af heildarlaunum
starfsmanna miðlanna. Er eðlilegt
að mikill munur sé þar á eftir miðl-
um?
- - -
Eru blaðmenn minni miðla meira
virði en blaðamenn stærri
miðla? Þeir sem vilja þak á styrki og
að jafnvel sé gengið lengra í mis-
skiptingunni en nú er gert hljóta að
telja að svo sé.
Sigurður Már
Jónsson
Mismikilvægir
blaðamenn?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Úrkoma hefur verið mjög mikil, sér-
staklega um landið sunnan- og vest-
anvert. Svo virðist sem þetta verði
úrkomusamasti vetur sem vitað er
um í Reykjavík.
Þetta segir Trausti Jónsson
veðurfræðingur í pistli á Mogga-
blogginu, þegar hann gerir upp
„veðurstofuveturinn“, sem nær yfir
mánuðina desember-mars, að báð-
um meðtöldum. Landsmenn þurfa
enn að bíða eftir sumardeginum
fyrsta, sem er 21. apríl í ár.
„Þegar þetta er skrifað (30. mars)
hefur vetrarúrkoman mælst 558
millimetrar, um 15 mm meiri en vet-
urinn 1920 til 1921, en hann kemur í
öðru sæti. Þá var mælt við Skóla-
vörðustíg,“ segir Trausti.
„Að vísu mældi Jón Þorsteinsson
landlæknir heldur meiri úrkomu
veturna 1829 til 1830 (579 mm í Nesi
við Seltjörn) og 1841 til 1842 (594
mm við þar sem síðar var Ránargata
í Reykjavík). Þessar fornu mælingar
eru trúverðugar, ekki síst vegna
þess að mjög þurrt var líka aðra vet-
ur á þessum tíma. En mælitækin
voru önnur og samanburður ekki al-
veg fullnægjandi. Samanburðar-
tilraunir hafa ekki verið gerðar.“
Veturinn sem er að líða hefur verið
heldur illviðrasamur. Sérstaklega
kaflinn frá áramótum fram yfir miðj-
an mars, bætir Trausti við. Hvert ill-
viðrið á fætur öðru gekk yfir landið
með samgöngutruflunum og foktjóni.
Erfiðleikar voru líka til sjávarins,
gæftir slæmar og sjór úfinn. Desem-
ber var hins vegar hægviðrasamur
og tíminn frá miðjum mars hefur í
raun verið hagstæður. sisi@mbl.is
Blautasti veturinn í sögu mælinga
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Úrkoma Erlendir ferðamenn vel
dúðaðir á göngu við Hörpu.
Nýtt strætóskýli var sett upp við
Suðurströnd á Seltjarnarnesi í vik-
unni. Ekkert skýli hefur verið við
strætóstoppistöðina fyrir neðan
Sundlaug Seltjarnarness í rúm tvö ár.
Gamla skýlið fauk um koll í óveðri
sem gekk yfir landið í febrúar árið
2020.
Gamla skýlið var beint fyrir neðan
hina vinsælu sundlaug bæjarins,
heilsugæslustöðina og líkamsrækt-
arstöðina World Class. Þar hafa far-
þegar strætó mátt bíða eftir vagn-
inum án skjóls í rúm tvö ár. Ekki var
hægt að koma nútímaútgáfu af
strætóskýli með LED-auglýs-
ingaskilti fyrir á fyrri staðnum og því
tafðist verkið.
Á endanum var ákveðið að færa
stoppistöðina um set og var nýja skýl-
ið reist skammt undan, fyrir neðan
Vivaldi-völlinn. Það þótti hentugur
staður enda gott pláss í kring og góð-
ar göngutengingar yfir Suðurströnd
og upp að sundlauginni og annarri
þjónustu þar í kring. hdm@mbl.is
Nýtt strætóskýli
eftir tveggja ára bið
- Gamla skýlið fauk í óveðri - Flutt um set
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skýli Fólk sem sækir Sundlaug Seltjarnarness, World Class og aðra þjón-
ustu getur nú skýlt sér fyrir veðri og vindum meðan það bíður eftir strætó.