Morgunblaðið - 02.04.2022, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 02.04.2022, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2022 Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is Fékk bíllinn ekki skoðun? Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl Sameinuð gæði BJB-Mótorstilling þjónustar flesta þætti endurskoðunar á sanngjörnu verði og að auki förum við með bílinn þinn í endurskoðun, þér að kostnaðarlausu. Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Í vestrænum nútíma samfél- ögum erum við konur og lík- amar okkar að hegða okkur í daglegu lífi eftir hormónam- unstri karla. Mjög margt af því sem okkur finnst eðlilegt að gera fer kannski ekkert svo vel með okkur, til dæmis það sem kallað er að vera duglegar. Líkami okkar kvenna er ekki „gallaður“, hann er bara ekki hannaður fyrir allt það sem gengur á í nútímasamfélagi,“ segir Ingeborg Andersen grasalæknir sem hefur mikinn áhuga á kvenlíkamanum, hormónakerfinu og kvensjúkdómum. „Því miður er mikil vanþekking meðal almennings og í heilbrigðis- kerfinu þegar kemur að líkama kvenna, enda hefur hann verið rann- sakaður miklu minna en líkami karla. Kvenlíkaminn er talinn óútreikn- anlegur og of flókinn,“ segir Inge- borg sem heldur námskeið um kvennaheilsu, svo konur geti skilið af hverju þær eru eins og þær eru, og hvers vegna þeim líður svona eða hinsegin. „Þessi skekkja byrjar strax í grunnskóla þegar við þurfum að vakna á sama tíma á hverjum morgni og borða það sama, hreyfa okkur á sama hátt og svo framvegis. Með öðr- um orðum lifum við konur ekki í takt við það sem er að gerast í líkama okkar hverju sinni. Við hegðum lífi okkar ekki eftir hringrás hormóna- kerfis okkar heldur eftir línulegum kröfum samfélagsins. Konur gefa ekki pláss þeirri eðlilegu hringrás sem á sér stað í hverjum mánuði í kvenlíkama og jafnvel í árinu og sól- arhringnum. Við þurfum að snúa þessu við og virða aftur náttúrulegar hringrásir sem búa í kvenlík- amanum, þá förum við að framleiða hormónana okkar á réttum tíma og okkur fer að líða betur. Vegna þessa vestræna lífsmunsturs sem tekur ekki tillit til hringrásanna þá fram- leiða margar konur ýmist of mikið eða of lítið af áveðnum hormónum. Líkaminn bregst við þessu lífs- munstri sem áreiti, hann fer að fram- leiða meira af óæskilegum horm- ónum en minna af hormónum sem við viljum meira af. Þetta veldur alls konar kvillum, til dæmis fyrir- tíðaspennu, minnkun frjósemi og sjúkdómum eins og endómetríósu og fjölblöðrueggjastokkaheilkenni. Flestu af þessu er hægt að snúa við, konur þurfa ekki að sætta sig við öll þessu neikvæðu einkenni og vanlíð- an. Þær geta tekið stjórn og gert þetta sjálfar, að breyta.“ Matur er byggingarefni Ingeborg segist á námskeiðun- um m.a. fræða um tíðahringinn og hvað öll þessi hormón gera. „Hvers vegna þau eru mikilvæg og hvernig við getum hjálpað líkam- anum að framleiða nægilega mikið af einhverjum hormónum og losa sig við önnur. Hjálpa hringrásinni til að komast aftur í stand. Ekkert eitt svar er til við því hvernig við gerum það, en mjög margt kemur inn í þetta, til dæmis að hlusta á líkama okkar, virða hann og gefa honum það rými sem hann þarf, vera sveigjan- legri í lífsstílnum okkar. Hvað við borðum skiptir afar miklu máli og við þurfum að skoða hvort við erum að borða næringu sem við þurfum til að framleiða allt sem líkaminn er að gera. Erum við að borða almenni- legan alvörumat? Ég segi: Borðum það sem vex í kringum okkur í nær- umhverfinu, bæði dýraafurðir og plöntuafurðir, og nóg af þeim, því þetta eru meðal annars byggingar- efni hormóna okkar. Að takmarka fæðutegundir sem við borðum eða of- keyra okkur, það myndar stress- hormón og þá fer líkaminn í sparnað- arástand, sem er öfugt við frjósemisástand, til dæmis.“ Ykkur konum mun líða illa Ingeborg minnir á að í gegnum tíðina hefur verið tekið lítið mark á ýmsum einkennum sem hrjá konur og tengjast þeirra hormónabúskap. „Konum er sagt að þetta sé partur af því að vera kona. Okkur er kennt frá unga aldri að okkur muni líða illa, að það verði túrverkir í kringum blæðingar í hverjum mán- uði og alls konar önnur vanlíðan. Við erum fæstar að spyrja okkur hvers vegna, fyrr en það er komið á alvar- legt stig og við þurfum að leita okkur hjálpar. Þá fá konur oft samt þau svör að allt hjá þeim sé eðlilegt. Það þarf að dýpka hvernig greining fer fram og bæta skilning á af hverju hin ýmsu einkenni koma fram, ekki horfa á þau sem eitthvað sem hægt er að setja plástur á. Öll þessi einkenni sem tengjast hormónum kvenna eru viðvörunarbjöllur, líkaminn er þann- ig að tjá sig,“ segir Ingeborg og bæt- ir við að þetta snúist líka um hug- arfar og viðmót. „Til dæmis er oft hlegið að og gert lítið úr tilfinningasveiflum kvenna og viðkvæmni í fyrirtíða- spennu, þær raunverulegu tilfinn- ingar eru slegnar út af borðinu sem ómarktækar, af því þær eru tengdar blæðingum. Konur eiga ekki að sætta sig við þetta viðhorf og viðbrögð og þessu þarf að breyta. Auðvitað er al- veg eðlilegt að konur séu viðkvæmar á þessum tíma mánaðar, en það versnar ef við gefum okkur ekki rými til að finna fyrir og skoða þessar til- finningar.“ Læknirinn og faðirinn studdi Ingeborg er með BS-gráðu frá University of Westminster í London í vestrænum grasalækningum. Hún Dugar ekki að setja plástur „Ég vildi að ég hefði vitað á mínum unglingsárum meira um hvernig við konur getum lifað í takti við hormónabúskap líkama okkar. Þessa hringrás sem hefur svo mikil áhrif á margt hjá okkur, þreytu, geðs- lag, verki, magavesen, óreglulegar blæðingar, sykur- löngun og fleira. Með betri þekkingu förum við að tengja saman það sem við héldum að væri algjörlega ótengt hormónakerfinu okkar og sjáum heildarmynd- ina,“ segir Ingeborg Andersen grasalæknir. Ingeborg Ekki er hægt að hjálpa neinum með því einu að gefa jurtir, það þarf að taka þetta heildrænt. Jurtir Mannkynið hefur notast við grasalækningar frá fornu fari. segist hafa ákveðið að læra grasa- lækningar af því það kallaði mikið á hana. „Þetta var það sem hafði virkaði fyrir mig þegar venjuleg lyf virkuðu ekki. Mannkynið hefur notast við grasalækningar frá fornu fari og þetta tengir okkur aftur betur við náttúruna. Í mínum huga eru þetta ekki valkvæðar lækningar heldur upprunalegar lækningar. Ég tvinna mínar meðferðir saman með alls- konar lífsstílsráðgjöf, því það er ekki hægt að hjálpa neinum með því einu að gefa jurtir, það þarf að gera miklu meira og taka þetta heildrænt. Margir samspilandi þættir hafa áhrif,“ segir Ingeborg sem er eins og nafnið gefur til kynna, hálfnorsk. „Pabbi minn er norskur heim- ilislæknir og hann hvatti mig til að fara í grasalækningar. Hann er einn af mínum helstu stuðningsmönnum í þessu enda er hann sjálfur að hluta til á þessari braut. Heillavænlegast hlýtur að vera þegar læknisaðferðir vinna saman frekar en að þær séu hver í sínu horni.“ Næsta námskeið hjá Ingeborg um kvenlíkamann verður 23. og 24. apríl. Þar munu konur kynnast líkamstungumálinu og kafað verðu í hormónakerfið. Þær læra leiðir til að vera ekki með stjórn á horm- ónakerfinu, heldur að blómstra með því. Hægt er að nálgast Inge- borg á netfanginu callunaher- bs@gmail.com, á Facebook: Ingeborg Andersen, eða á instagram: ingeborgandersen Á vef Fuglaverndar, fuglavernd.is, var nýlega birt nokkuð um ketti og fugla, í ljósi þess að nú er vorið að koma og blessaðir fuglarnir: „Dagurinn er orðinn lengri en nóttin og vorið skríður hægt áfram. Farfuglar eru farnir að koma til landins og það styttist í að loftin fyllast af söng friðlara og ungatísti úr hreiðrum. Í kjölfarið fylgir aukin veiði katta. Fuglavernd hefur í nokkur ár selt kattakraga en kannanir hafa sýnt að kragarnir virka betur heldur en bjöll- ur á hálsólum til að vara fugla við aðvífandi hættu; köttur. Sýnt hefur verið fram á að þegar kettir fengu kraga þá fækkaði skipt- unum þegar þeir komu heim með bráð. Flestum köttum virðist vera alveg sama þó að kraga sé bætt við utan um hálsól þeirra. Á heimasíðu Fuglaverndar má lesa ýmislegt um veiðar katta.“ Vorið er komið og Fuglavernd selur litríka kraga á ketti til að vara fugla við nálægð þeirra Kragar á köttum fækka bráð sem borin er heim Morgunblaðið/Ásdís Veiðikló Hann Gullbrandur er frekur til fugla en kraginn fældi bráð frá.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.