Morgunblaðið - 02.04.2022, Qupperneq 16
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Lífrænn úrgangur og hliðarafurðir
eru orðnar enn mikilvægari auðlind-
ir en áður til áburðarnotkunar í ljósi
tvöföldunar á verði innflutts tilbúins
áburðar á milli ára. Því er vert að
nýta þessar auðlindir í auknum
mæli, að því er segir í nýrri skýrslu
frá Matís (matis.is). Hún heitir
Greining á magni lífrænna áburðar-
efna á Íslandi og tækifæri til auk-
innar nýtingar. Höfundar eru sér-
fræðingarnir Jónas Baldursson og
Eva Margrét Jónudóttir hjá Matís
og Magnús H. Jóhannsson, sviðs-
stjóri hjá Landgræðslunni. Verk-
efnið fékk styrk úr Markaðsáætlun
Rannís 2021.
Starfshópurinn kannaði leiðir til
að nýta staðbundnar lífrænar auð-
lindir, aukaafurðir úr ýmiss konar
framleiðslu og ferla til að framleiða
sjálfbæran áburð fyrir íslenskan
landbúnað og landgræðslu. Gerð var
úttekt á lífrænum úrgangi sem fellur
til á Íslandi, bæði út frá magni og
næringarsamsetningu.
Sömu næringarefnin
Langstærstur hluti akuryrkju í
dag notar tilbúinn áburð sem ekki er
alltaf framleiddur á umhverfis-
vænan hátt. Helstu næringarefnin í
honum eru nitur (N), fosfór (P), kalí
(K), kalk (Ca) og brennisteinn (S)
ásamt fjölmörgum snefilefnum. Líf-
rænn úrgangur inniheldur þessi
sömu næringarefni. Hann er þó ekki
besti áburður sem völ er á hvað
varðar styrk næringarefna eða
kostnað við nýtingu.
Niðurstöður greiningar gefa til
kynna að heildarmagn niturs, fos-
fórs og kalí (NPK næringarefna) í
lífrænum úrgangi sem fellur til á Ís-
landi séu í svipuðu magni og í inn-
fluttum tilbúnum áburði. Magn nit-
urs er þó töluvert lægra.
„Hvað varðar tækifæri til auk-
innar nýtingar ber helst að nefna
fiskeldisseyru, sláturúrgang og ali-
fuglaskít. Lífrænn úrgangur er oft-
ast vatnsríkur og styrkur næring-
arefna lágur. Því þarf meira magn
úrgangs með tilheyrandi flutnings-
kostnaði eða frekari vinnslu til að fá
svipuð áhrif og með innfluttum til-
búnum áburði,“ segir í skýrslunni.
Tækifæri til aukinnar nýtingar líf-
ræns úrgangs liggja víða. Með góð-
um vilja mætti nýta hann allan.
Vatnsinnihald, næringarinnihald og
sýkingarhætta setja nýtingunni
ákveðnar skorður hvað varðar
kostnað og umhverfisáhrif.
Lífrænn áburður fellur víða til
Skýrsluhöfundar gera grein fyrir
þeim tegundum lífræns úrgangs
sem leggja þarf áherslu á.
Fyrst er nefndur búfjárúrgangur
úr hefðbundnum búskap. Hann er að
miklu leyti nýttur heima á bæjum til
jarðræktar. Flest bendir til að nýt-
ingin sé góð, þótt erfitt sé að afla
gagna um hana. Þá er talið upp ali-
fugladrit sem er þurrara en annar
búfjárúrgangur. Mælingar sýndu að
þurrefni var 85% í hæsnaskít og um
67% í kjúklingaskít. „Hænsna- og
kjúklingaskítur er líka næring-
arríkur og hentar t.d. mjög vel í upp-
græðslu. Hann kemur mjög vel út í
samanburði við innfluttan tilbúinn
áburð, kostnaðarlega séð og hefur
nokkuð lægra kolefnisspor en tilbú-
inn áburður,“ segir í skýrslunni.
Nýting alifugladrits er því talin bæði
hagkvæm og umhverfisvæn og ætti
að nota allt sem til fellur til land-
græðslu eða landbúnaðar.
Fiskeldisseyra, það er mykja frá
eldisfiskum, er talin eiga mikla
möguleika til frekari nýtingar. Hún
er rík af nitri (N) og fosfór (P) en
fremur vatnsmikil, eðli málsins sam-
kvæmt. „Möguleikar til að auka nýt-
ingu hennar sem áburðar væru t.d.
að þurrka með jarðhita eða nýta
hana í nærumhverfi eldisstöðva til
að lágmarka flutningsvegalengd,“
Faldir fjársjóðir leynast í úrgangi
- Lífrænn úrgangur er orðinn fýsilegur kostur til áburðar - Verð á innfluttum tilbúnum áburði hef-
ur tvöfaldast á milli ára - Matís hefur kannað leiðir til að nýta staðbundnar lífrænar auðlindir
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Mykjudreifing Húsdýraáburður er lífrænn og hefur lengi verið notaður á tún. Lífrænn áburður leynist víðar og felast tækifæri í að nýta þá auðlind betur.
segir í skýrslunni. Þar er bent á að
með auknu fiskeldi og hertum kröf-
um um söfnun úrgangs muni magn
hans frá fiskeldi vaxa hratt.
Svínaskítur er líkt og fiskeldis-
seyra og kúamykja vatnsþynntur úr-
gangur. Í honum er mikið af næring-
arefnum og svínaeldi er mikið og fer
vaxandi. Vegna staðsetningar svína-
búa gæti þurft að flytja skítinn tals-
verðar vegalengdir til að nota hann
sem túnáburð og enn lengra sé hann
notaður til uppgræðslu. „Þrátt fyrir
þetta er svínaskítur fyrirtaks áburð-
ur sem ætti alltaf að fullnýta frekar
en að losa í sjóinn eða urða með öðr-
um hætti,“ segir í skýrslunni.
Nýta mætti skólp til áburðar
Þá benda skýrsluhöfundar á að
nýtingu næringarefna úr skólpi sé
mjög ábótavant hér á landi og nýting
lítil sem engin. Greiningar sýna þó
að í skólpi er mikið af næringar-
efnum sem geta nýst sem áburður.
Þó þarf að huga að mörgu varðandi
heilbrigðismál ef nota á efni úr
skólpi til áburðar og styrk efna eins
og örplasts og lyfjaleifa.
Seyra er ekki sérstaklega næring-
arrík í sjálfri sér en ef miklu magni
er dreift í einu nýtist hún ágætlega
sem áburður. Bent er á að við hönn-
un nýrra hverfa mætti gera ráð fyrir
nýtingu úrgangsefna við hönnun frá-
veitna. Ein slík aðferð hefur verið
reynd við Mývatn þar sem salernis-
úrgangi (svartvatni) er safnað með
tvöföldu lagnakerfi og söfnunartanki
utanhúss.
Kjötmjöl er fyrirtaks áburður og
hefur verið nýtt til landgræðslu og
skógræktar. Það hefur síður verið
nýtt til áburðar á tún vegna þess að
það er seinleyst og skilar sér betur í
uppskeru á öðru og þriðja ári eftir
dreifingu en því fyrsta.
Molta er ekki sterkur áburður og
þarf margfalt meira af henni en til-
búnum áburði til að ná svipuðum ár-
angri. Hár flutningskostnaður hefur
verið ein helsta hindrun þess að
bændur noti moltu til áburðar.
Molta er vannýtt hráefni og mætti
líklega nota hana víðar við ræktun,
að mati skýrsluhöfunda.
Jónas Baldursson sagði að vitað
sé um magn næringarefna í slógi og
fiskúrgangi, t.d. frá fiskeldi og fisk-
vinnslu. Hins vegar hafa ekki bein-
línis verið tækifæri til aukinnar nýt-
ingar á úrgangi frá fiskvinnslu til
áburðar þar eð þessi efni hafa al-
mennt verið nýtt í verðmætari af-
urðir.
Jónas Erlendsson, bóndi og fréttaritari Morgun-
blaðsins í Fagradal í Mýrdal, og Ragnhildur Jóns-
dóttir kona hans hafa lagt sig fram um að vera sem
mest sjálfbær. Heimarafstöð sér bænum fyrir raf-
magni og hleður m.a. fjölskyldubílinn sem búið er að
aka 120.000 km á heimafengnu rafmagni á sjö árum.
Auk sauðfjárræktar stunda þau bleikjueldi í vatn-
inu sem kemur frá rafstöðinni. Leyfi er til að ala þar
20 tonn af matfiski á ári. Bleikjunni er slátrað og hún
flökuð og reykt.
Jónas fór að safna afskurði og slógi frá verkuninni
í tanka, svonefnda bamba, fyrir um ári. Hver bambi
tekur um eitt tonn. Sumir setja maurasýru í til að úr-
gangurinn brotni hraðar niður, en Jónas hefur ekki
enn gert það. Bambarnir eru geymdir úti og þarf að
hræra í þeim til að efnin brotni hraðar niður. Jónas
reiknar með að fá þrjá bamba á ári af úrgangi.
„Þetta eru hellings verðmæti,“ segir Jónas. „Mér
skilst að allur lífrænn úrgangur sem er urðaður í
dag, þar á meðal það sem dælt er úr rotþróm, sé
meira en allur tilbúinn áburður sem keyptur er til
landsins. Það er alveg til þess vinnandi að gera eitt-
hvað úr þessu.“ Þegar líður á vorið ætlar Jónast að
setja úrganginn sem er tilbúinn i haugsugu og dreifa
honum á túnin. Affallið frá eldiskerjunum fer í safn-
tank og þar sest til úrgangur sem aðallega er bleikj-
umykja. Dæluþjónusta var vön að koma og sækja
þennan úrgang, um 6.000 lítra í hvert sinn.
„Síðast þegar eftirlitsmaður kom frá Umhverfis-
stofnun benti hann mér á að í bleikjumykjunni væru
mikil verðmæti og hana mætti nota á tún eða til upp-
græðslu. Fulltrúi frá heilbrigðiseftirlitinu sem kom
að líta eftir sagði það sama. Ég ætla því að nýta
þennan úrgang til áburðar. Mér er sagt að þetta sé
besti köfnunarefnisáburður sem hægt er að fá,“ seg-
Sjálfbærni í búskap í Fagradal
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Fullnýting Jónas bóndi hellir fiskslógi í bamba. Þar
brotnar það niður og verður að fyrirtaks áburði.
ir Jónas. Undanfarið hefur hann dreift á þriðja
hundrað tonnum af sauðataði á túnin. Auk þess þarf
hann eitthvað af tilbúnum áburði á túnin.
„Ef Íslendingar framleiddu þó ekki væri nema
köfnunarefnisáburð (N) úr loftinu þá er mikið af fos-
fór (P) og kalí (K) í húsdýraáburði. Köfnunarefnis-
framleiðsla myndi hjálpa mikið ef ekki fengist annar
áburður keyptur til landsins,“ segir Jónas.
16 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2022
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is |
Opið alla virka daga kl. 10-17
Passamyndir
Tímapantanir
í síma 568 0150
eða á rut@rut.is
Förum eftir öllum
sóttvarnartilmælum