Morgunblaðið - 02.04.2022, Síða 16

Morgunblaðið - 02.04.2022, Síða 16
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Lífrænn úrgangur og hliðarafurðir eru orðnar enn mikilvægari auðlind- ir en áður til áburðarnotkunar í ljósi tvöföldunar á verði innflutts tilbúins áburðar á milli ára. Því er vert að nýta þessar auðlindir í auknum mæli, að því er segir í nýrri skýrslu frá Matís (matis.is). Hún heitir Greining á magni lífrænna áburðar- efna á Íslandi og tækifæri til auk- innar nýtingar. Höfundar eru sér- fræðingarnir Jónas Baldursson og Eva Margrét Jónudóttir hjá Matís og Magnús H. Jóhannsson, sviðs- stjóri hjá Landgræðslunni. Verk- efnið fékk styrk úr Markaðsáætlun Rannís 2021. Starfshópurinn kannaði leiðir til að nýta staðbundnar lífrænar auð- lindir, aukaafurðir úr ýmiss konar framleiðslu og ferla til að framleiða sjálfbæran áburð fyrir íslenskan landbúnað og landgræðslu. Gerð var úttekt á lífrænum úrgangi sem fellur til á Íslandi, bæði út frá magni og næringarsamsetningu. Sömu næringarefnin Langstærstur hluti akuryrkju í dag notar tilbúinn áburð sem ekki er alltaf framleiddur á umhverfis- vænan hátt. Helstu næringarefnin í honum eru nitur (N), fosfór (P), kalí (K), kalk (Ca) og brennisteinn (S) ásamt fjölmörgum snefilefnum. Líf- rænn úrgangur inniheldur þessi sömu næringarefni. Hann er þó ekki besti áburður sem völ er á hvað varðar styrk næringarefna eða kostnað við nýtingu. Niðurstöður greiningar gefa til kynna að heildarmagn niturs, fos- fórs og kalí (NPK næringarefna) í lífrænum úrgangi sem fellur til á Ís- landi séu í svipuðu magni og í inn- fluttum tilbúnum áburði. Magn nit- urs er þó töluvert lægra. „Hvað varðar tækifæri til auk- innar nýtingar ber helst að nefna fiskeldisseyru, sláturúrgang og ali- fuglaskít. Lífrænn úrgangur er oft- ast vatnsríkur og styrkur næring- arefna lágur. Því þarf meira magn úrgangs með tilheyrandi flutnings- kostnaði eða frekari vinnslu til að fá svipuð áhrif og með innfluttum til- búnum áburði,“ segir í skýrslunni. Tækifæri til aukinnar nýtingar líf- ræns úrgangs liggja víða. Með góð- um vilja mætti nýta hann allan. Vatnsinnihald, næringarinnihald og sýkingarhætta setja nýtingunni ákveðnar skorður hvað varðar kostnað og umhverfisáhrif. Lífrænn áburður fellur víða til Skýrsluhöfundar gera grein fyrir þeim tegundum lífræns úrgangs sem leggja þarf áherslu á. Fyrst er nefndur búfjárúrgangur úr hefðbundnum búskap. Hann er að miklu leyti nýttur heima á bæjum til jarðræktar. Flest bendir til að nýt- ingin sé góð, þótt erfitt sé að afla gagna um hana. Þá er talið upp ali- fugladrit sem er þurrara en annar búfjárúrgangur. Mælingar sýndu að þurrefni var 85% í hæsnaskít og um 67% í kjúklingaskít. „Hænsna- og kjúklingaskítur er líka næring- arríkur og hentar t.d. mjög vel í upp- græðslu. Hann kemur mjög vel út í samanburði við innfluttan tilbúinn áburð, kostnaðarlega séð og hefur nokkuð lægra kolefnisspor en tilbú- inn áburður,“ segir í skýrslunni. Nýting alifugladrits er því talin bæði hagkvæm og umhverfisvæn og ætti að nota allt sem til fellur til land- græðslu eða landbúnaðar. Fiskeldisseyra, það er mykja frá eldisfiskum, er talin eiga mikla möguleika til frekari nýtingar. Hún er rík af nitri (N) og fosfór (P) en fremur vatnsmikil, eðli málsins sam- kvæmt. „Möguleikar til að auka nýt- ingu hennar sem áburðar væru t.d. að þurrka með jarðhita eða nýta hana í nærumhverfi eldisstöðva til að lágmarka flutningsvegalengd,“ Faldir fjársjóðir leynast í úrgangi - Lífrænn úrgangur er orðinn fýsilegur kostur til áburðar - Verð á innfluttum tilbúnum áburði hef- ur tvöfaldast á milli ára - Matís hefur kannað leiðir til að nýta staðbundnar lífrænar auðlindir Morgunblaðið/Sigurður Bogi Mykjudreifing Húsdýraáburður er lífrænn og hefur lengi verið notaður á tún. Lífrænn áburður leynist víðar og felast tækifæri í að nýta þá auðlind betur. segir í skýrslunni. Þar er bent á að með auknu fiskeldi og hertum kröf- um um söfnun úrgangs muni magn hans frá fiskeldi vaxa hratt. Svínaskítur er líkt og fiskeldis- seyra og kúamykja vatnsþynntur úr- gangur. Í honum er mikið af næring- arefnum og svínaeldi er mikið og fer vaxandi. Vegna staðsetningar svína- búa gæti þurft að flytja skítinn tals- verðar vegalengdir til að nota hann sem túnáburð og enn lengra sé hann notaður til uppgræðslu. „Þrátt fyrir þetta er svínaskítur fyrirtaks áburð- ur sem ætti alltaf að fullnýta frekar en að losa í sjóinn eða urða með öðr- um hætti,“ segir í skýrslunni. Nýta mætti skólp til áburðar Þá benda skýrsluhöfundar á að nýtingu næringarefna úr skólpi sé mjög ábótavant hér á landi og nýting lítil sem engin. Greiningar sýna þó að í skólpi er mikið af næringar- efnum sem geta nýst sem áburður. Þó þarf að huga að mörgu varðandi heilbrigðismál ef nota á efni úr skólpi til áburðar og styrk efna eins og örplasts og lyfjaleifa. Seyra er ekki sérstaklega næring- arrík í sjálfri sér en ef miklu magni er dreift í einu nýtist hún ágætlega sem áburður. Bent er á að við hönn- un nýrra hverfa mætti gera ráð fyrir nýtingu úrgangsefna við hönnun frá- veitna. Ein slík aðferð hefur verið reynd við Mývatn þar sem salernis- úrgangi (svartvatni) er safnað með tvöföldu lagnakerfi og söfnunartanki utanhúss. Kjötmjöl er fyrirtaks áburður og hefur verið nýtt til landgræðslu og skógræktar. Það hefur síður verið nýtt til áburðar á tún vegna þess að það er seinleyst og skilar sér betur í uppskeru á öðru og þriðja ári eftir dreifingu en því fyrsta. Molta er ekki sterkur áburður og þarf margfalt meira af henni en til- búnum áburði til að ná svipuðum ár- angri. Hár flutningskostnaður hefur verið ein helsta hindrun þess að bændur noti moltu til áburðar. Molta er vannýtt hráefni og mætti líklega nota hana víðar við ræktun, að mati skýrsluhöfunda. Jónas Baldursson sagði að vitað sé um magn næringarefna í slógi og fiskúrgangi, t.d. frá fiskeldi og fisk- vinnslu. Hins vegar hafa ekki bein- línis verið tækifæri til aukinnar nýt- ingar á úrgangi frá fiskvinnslu til áburðar þar eð þessi efni hafa al- mennt verið nýtt í verðmætari af- urðir. Jónas Erlendsson, bóndi og fréttaritari Morgun- blaðsins í Fagradal í Mýrdal, og Ragnhildur Jóns- dóttir kona hans hafa lagt sig fram um að vera sem mest sjálfbær. Heimarafstöð sér bænum fyrir raf- magni og hleður m.a. fjölskyldubílinn sem búið er að aka 120.000 km á heimafengnu rafmagni á sjö árum. Auk sauðfjárræktar stunda þau bleikjueldi í vatn- inu sem kemur frá rafstöðinni. Leyfi er til að ala þar 20 tonn af matfiski á ári. Bleikjunni er slátrað og hún flökuð og reykt. Jónas fór að safna afskurði og slógi frá verkuninni í tanka, svonefnda bamba, fyrir um ári. Hver bambi tekur um eitt tonn. Sumir setja maurasýru í til að úr- gangurinn brotni hraðar niður, en Jónas hefur ekki enn gert það. Bambarnir eru geymdir úti og þarf að hræra í þeim til að efnin brotni hraðar niður. Jónas reiknar með að fá þrjá bamba á ári af úrgangi. „Þetta eru hellings verðmæti,“ segir Jónas. „Mér skilst að allur lífrænn úrgangur sem er urðaður í dag, þar á meðal það sem dælt er úr rotþróm, sé meira en allur tilbúinn áburður sem keyptur er til landsins. Það er alveg til þess vinnandi að gera eitt- hvað úr þessu.“ Þegar líður á vorið ætlar Jónast að setja úrganginn sem er tilbúinn i haugsugu og dreifa honum á túnin. Affallið frá eldiskerjunum fer í safn- tank og þar sest til úrgangur sem aðallega er bleikj- umykja. Dæluþjónusta var vön að koma og sækja þennan úrgang, um 6.000 lítra í hvert sinn. „Síðast þegar eftirlitsmaður kom frá Umhverfis- stofnun benti hann mér á að í bleikjumykjunni væru mikil verðmæti og hana mætti nota á tún eða til upp- græðslu. Fulltrúi frá heilbrigðiseftirlitinu sem kom að líta eftir sagði það sama. Ég ætla því að nýta þennan úrgang til áburðar. Mér er sagt að þetta sé besti köfnunarefnisáburður sem hægt er að fá,“ seg- Sjálfbærni í búskap í Fagradal Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Fullnýting Jónas bóndi hellir fiskslógi í bamba. Þar brotnar það niður og verður að fyrirtaks áburði. ir Jónas. Undanfarið hefur hann dreift á þriðja hundrað tonnum af sauðataði á túnin. Auk þess þarf hann eitthvað af tilbúnum áburði á túnin. „Ef Íslendingar framleiddu þó ekki væri nema köfnunarefnisáburð (N) úr loftinu þá er mikið af fos- fór (P) og kalí (K) í húsdýraáburði. Köfnunarefnis- framleiðsla myndi hjálpa mikið ef ekki fengist annar áburður keyptur til landsins,“ segir Jónas. 16 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2022 Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is | Opið alla virka daga kl. 10-17 Passamyndir Tímapantanir í síma 568 0150 eða á rut@rut.is Förum eftir öllum sóttvarnartilmælum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.