Morgunblaðið - 02.04.2022, Page 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2022
Rekstraraðili óskast að
Hótel Grími í Grímsbæ
Til leigu:
Tuttugu herbergja, 695 fermetra, gistihús/hótel á þriðju hæð.
Hótelið er fullbúið og getur leigst með húsgögnum og búnaði,
vefsíðu, vörumerki o.fl. Húsnæðið var innréttað 2017.
Nánari upplýsingar á reitir.is/hotel-grimur
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Lóðsbátur kom í gærmorgun inn til
Vestmannaeyja með stóra kví sem
ætluð er fyrir mjaldurssysturnar
Litlu-Hvít og Litlu-Grá. Kvíin var
sett saman í Þorlákshöfn, en dregin
þaðan til hafnar í Eyjum. Aðeins var
hægt að sigla austur á bóginn á 2,5
mílna hraða og miðaði ferð því hægt
en örugglega, enda var gott í sjó.
Kvínni var í gær komið fyrir til
bráðabirgða undir Heimakletti.
Mjaldrarnir tveir, sem komu til Ís-
lands vorið 2019 með flugi frá Japan,
eru nú í innanhússkeri á sýningu See
life trust í Eyjum. Þær eiga í fyllingu
tímans að fara í kvína, sem verður
komið fyrir í Klettsvík. Áður hafa
systurnar verið um skemmri tíma í
umönnunarlaug í víkinni.
Kví mjaldurssystra
er komin til Eyja
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Flutningar Kvíin dregin af tveimur bátum inn til hafnar í Eyjum í gærmorg-
un. Fyrirhöfnin var talsverð og vanda þurfti vel til allra verka.
- Litla-Hvít og Litla-Grá í Klettsvík
Margir féllu fyrir góðlátlegu gabbi
í tilefni 1. apríl í gær, líkt og lög
gera ráð fyrir. Til að mynda mátti
sjá nokkuð grunsamlega umferð í
kringum húsnæði Félags íslenskra
bifreiðaeigenda (FÍB) þar sem
aprílgabb Morgunblaðsins var frétt
af nýrri þjónustu félagsins í barátt-
unni við holur í malbiki á vegum
landsins.
Greint var frá því að FÍB aðstoð
væri komin með sérútbúinn bíl
með tækjum og búnaði til þess að
fylla í holuskemmdir á bundnu slit-
lagi.
Enn fremur kom fram í fréttinni
að efnið nýja væri sólgult á litinn
og ætti að auka enn frekar á vit-
und og aðgát ökumanna til að vera
viðbúnir við skemmdum. Efnið átti
síðan að vera til sýnis í skrifstofu
félagsins í gærmorgun. Ljóst er að
gult uppfyllingarefni hefur vakið
áhuga bílafólks þar sem umferð í
kringum skrifstofuna jókst nokkuð
í gærmorgun.
Morgunblaðið/Eggert
Aprílgabb FÍB-holufyllingarefnið gula.
Margir féllu fyrir
aprílgabbi og hlupu
Umferðin á Hringveginum í mars
jókst um 2,4 prósent samkvæmt
upplýsingum Vegagerðarinnar en
umferðin hafði dregist saman í jan-
úar og febrúar frá fyrra ári. „Mikil
aukning varð á mælisniði við Mýr-
dalssand sem bendir til aukningar
ferðamannaumferðar. Frá áramót-
um hefur umferðin þó dregist sam-
an um ríflega sex prósent frá því
sem hún var á sama tíma árið
2021,“ segir í frétt á vef Vegagerð-
arinnar. Örlítil umferðaraukning
varð hins vegar á höfuðborgar-
svæðinu í nýliðnum mánuði en frá
áramótum hefur hún dregist saman
miðað við sama tíma í fyrra.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Bílar Nú mælist allt að 4% samdráttur um-
ferðar á höfuðborgarsvæði frá áramótum.
Umferðin jókst
á Hringveginum
Verðlagsnefnd búvara hefur ákveð-
ið að hækka lágmarksverð mjólkur
til bænda um 6,6% og heildsöluverð
bæði mjólkur og mjólkurafurða um
4,47% og tók verðbreytingin gildi í
gær.
Hækkun á verði til neytenda mun
fylgja þessum hækkunum.
Ástæða hækkunar kaupverðs
mjólkur frá bændum er aukinn
kostnaður við framleiðslu og
vinnslu mjólkur frá því 1. desember
á síðsta ári, þegar Verðlagsnefnd
tók síðast ákvörðun um verðlagn-
ingu. Gjaldaliðir í verðlagsgrund-
velli kúabúa hafa hækkað um 6,6%
á tímabilinu og er þar líka tekið til-
lit til hækkunar á áburði. Einnig
hefur vinnslu- og dreifingarkostn-
aður hækkað um 2,14%.
Hækka í verði til
bænda og neytenda