Morgunblaðið - 02.04.2022, Page 18

Morgunblaðið - 02.04.2022, Page 18
18 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2022 Mest selda liðbætiefni á Íslandi. Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Þrettán nýir ærslabelgir verða sett- ir upp í borginni í sumar. Tveir í Grafarvogi, tveir í Háaleiti og Bú- stöðum, tveir í Árbæ og Norðlinga- holti, þrír í Breiðholti og einn í Grafarholti og Úlfarsárdal, Kjal- arnesi, Laugardal og Vesturbæ. Ærslabelgirnir eru þó aðeins brot af þeim rúmlega hundrað verk- efnum sem koma til framkvæmda á árinu 2022 í tengslum við verkefnið Hverfið mitt. Borgarráð heimilaði umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkur- borgar að bjóða út framkvæmd- irnar vegna verkefnisins. Áætlaður kostnaður vegna þessara 111 verk- efna er 850 milljónir króna. Áætl- aður framkvæmdatími er maí- desember 2022. Hér er um að ræða verkefni sem kosin voru til fram- kvæmda í rafrænni íbúakosningu á tímabilinu 30. september til 14. október 2021. sisi@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Gaman saman Ærslabelgurinn í Laugardal nýtur mikilla vinsælda hjá unga fólkinu. Þrettán ærslabelgir settir upp í borginni Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Góður gangur er í framkvæmdum við byggingu þjóðgarðsmiðstöðvar á Hellissandi. Ytra byrði hússins er að mestu frágengið og nú er innandyra verið að klæða veggi, stúka af rými og fleira. Verktakinn mun afhenda bygg- inguna í júní og þá flytjast gestamót- taka og skrifstofa Þjóðgarðsins Snæ- fellsjökuls þangað. Alls er byggingin um 700 fermetrar, og er reist eftir vinningstillögu Arkís – arkitekta. Vandað sé til sýningar Á næstunni verður myndaður starfshópur sem hafa mun með hönd- um að hanna og þróa sýningu sem verður í þjóðgarðsmiðstöðinni. Þar verður brugðið ljósi á sögu og stór- brotið umhverfið á Útnesinu, þar sem Snæfellsjökull gnæfir yfir. „Þetta er einstakt svæði sem er hægt að gera skil með ýmsu móti. Við viljum því vanda til sýningarinnar nýju, sem verður sem gátt inn á svæðið,“ segir Jón Björnsson þjóðgarðsvörður. Ýmsar hugmyndir eru uppi um sýningarþema, enda úr mörgu að velja á þessu sögufræga svæði sem hefur jafnframt verið skáldum og listamönnum innblástur frægra verka. Má þar nefna sögu Jules Ver- nes, Leyndardómar Snæfellsjökuls, Kristnihald undir Jökli eftir Halldór Laxnes, Bárðarsögu Snæfellsáss og fjölda teikninga og málverka. Miklir fjármunir og ný vídd Nýlega var skipað þjóðgarðsráð fyrir Þjóðgarðinn Snæfellsjökul. Þeim, sem skipaðir eru í ráðið, er ætl- að ráðgefandi hlutverk við stefnu og starf í samvinu við Umhverfisstofnun sem fer með stjórn þjóðgarðsins. Kristinn Jónasson bæjarstjóri hefur verið skipaður formaður ráðsins „Hér í Snæfellsbæ er sjávarútveg- urinn mikilvæg undirstaða, en við þurfum sannarlega meira til. Þar hef- ur mjög munað um starfsemi þjóð- garðsins sem stofnaður var fyrir rúmm 20 árum og hefur í raun skapað alveg nýja vídd á svæðinu. Með marg- víslegri uppbyggingu á vegum þjóð- garðsins hafa komið verulegir fjár- munir – sjálfsagt milljarðar króna – inn á svæðið jafnhliða því sem ferða- þjónustan hér hefur eflst og er orðin stór atvinnugrein,“ segir Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í Snæfellsbæ. Skapað meiri fjölbreytni Árlega er unnið að margvíslegum umhverfisbótum í þjóðgarðinum, stígagerð, bílastæðum og öðrum slík- um innviðum. Miða framkvæmdir meðal annars að því að hlífa landi en einnig að því að fá fólk til að staldra lengur við á svæðinu og njóta. Gestir þjóðgarðsins nú í mars voru rúmlega 12 þúsund, sem er um helmingur þess sem kom 2019, en verulega sló í bak- seglin með gestakomur á tímum kór- ónuveirunnar. Árið 2019 kom um hálf milljón gesta á svæðið – fólk sem gjarnan staldrar við í Snæfellsbæ og nýtur þar margvíslegrar þjónustu og viðurgjörnings. „Starfsemi þjóðgarðsins hefur leitt af sér meiri fjölbreytni í atvinnulífi hér. Þróunin hefur verið mjög jákvæð fyrir þetta samfélag – auk þess sem umhverfismálin með sjálfbærni að leiðarljósi eru nú orðin mál málanna,“ segir Kristinn bæjarstjóri. Þjóðgarðsmiðstöðin senn tilbúin Morgunblaðið/Sigurður Bogi Bygging Horft að þjóðgarðsmiðstöð til vesturs. Líkist stefni á skipi, sem er arkitektúr við hæfi því húsið er við haf. - Gestamóttaka verður opnuð í sumar - Snæfellsjökull gnæfir yfir - Sýning í hönnun - Innblástur listamanna - Þjóðgarðsráð skipað - Hálf milljón gesta árið 2019 - Meiri fjölbreytni í avinnulífinu Samræður Jón Björnsson þjóðgarðsvörður, til vinstri, og Kristinn Jónas- son, bæjarstjóri í Snæfellsbæ, sem er formaður nýskipaðs þjóðgarðsráðs. Snæfellsnes Jökullinn gnæfir yfir byggð og umhverfi yst á Nesinu og margir þykjast – sagt bæði í gamni og alvöru – kenna frá honum krafta.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.