Morgunblaðið - 02.04.2022, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2022
✝
Ása Stef-
ánsdóttir
fæddist 14. nóv-
ember 1935 í Nes-
kaupstað. Hún
andaðist á heimili
sínu 24. mars
2022.
Foreldrar henn-
ar voru Guðný
Guðnadóttir frá
Vindheimi í Norð-
firði, f. 27. desem-
ber 1908, d. 14. ágúst 1999, og
Stefán Eiríksson, f. á Krossa-
nesi við Reyðarfjörð 20. júlí
1905, d. 14. ágúst 1978. Ása
var næstelst af sjö systkinum,
elst er Aldís, f. 19. apríl 1934,
Guðni Þór, f. 14. febrúar 1943,
d. 2. júní 2008, Unnur Stef-
anía, f. 9. febrúar 1944, Stef-
án, f. 23. mars 1947, Eiríkur, f.
23. júní 1948, og Svanbjörn, f.
2. september 1952.
Ása giftist Stefáni Einari
Stefánssyni hinn 25. desember
1954. Foreldrar hans voru
Þóra Þórðardóttir, f. 27. ágúst
1904, d. 27. júlí 1932, og Stef-
án Ágúst Stefánsson, f. 6.
ágúst 1886, d. 6. janúar 1973.
Dætur Ásu og Einars eru: 1)
Bergþóra, f. 10. nóvember
1954, maki Elmar Halldórsson,
f. 18. júlí 1956 d. 24. júlí 2011.
2) Guðný, f. 31. mars 1957,
maki Per Ole Skarstad, f. 31.
júlí 1957, d. 2. október 1982. 3)
Þuríður, f. 28. júlí 1960, maki
Björn Kristjánsson, f. 3. júlí
1956. 4) Aldís Stefánsdóttir, f.
31. maí 1963, Maki
Rúnar Már Gunn-
arsson, f. 16. mars
1957. 5) Þóra Stef-
anía, f. 24. desem-
ber 1965, maki
Karl Gunnar Egg-
ertsson, f. 11. des-
ember 1962.
Barnabörnin eru
17, barnabarna-
börnin eru 35 og
barnabarna-
barnabörnin eru tvö.
Ása ólst upp í Neskaupstað í
faðmi stórfjölskyldunnar. Ása
og Einar byrjuðu sinn búskap í
Keflavík og Reykjavík. Þau
fluttu í Reykhólasveit 1961 og
fluttu svo til Búðardals 1964.
Ása og Einar stofnuðu þar
Raftækjaverslun Einars Stef-
ánssonar sem seinna var köll-
uð Ásubúð. Ása sá um versl-
unina óslitið til ársins 2003, þá
fluttu þau hjónin á hennar
heimaslóðir í Neskaupstað.
Ása var virk í kvenfélaginu og
leikfélaginu í Búðardal á sín-
um yngri árum. Hún var mikil
handavinnu- og saumakona
ásamt því að reka stórt heim-
ili. Ása og Einar reistu sér
sælureit í landi Foss í Hofs-
árdal.
Útför fer fram frá
Norðfjarðarkirkju í dag, 2.
apríl 2022, klukkan 13.
Streymt verður frá Norðfjarð-
arkirkju.
Hlekkur á streymi:
https://www.mbl.is/andlat
Með sorg í hjarta kveðjum
við þig, elsku mamma, um leið
viljum við þakka þér það vega-
nesti sem þú gafst okkur út í
lífið.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Minning þín lifir í hjörtum
okkar.
Bergþóra, Guðný, Þur-
íður, Aldís og Þóra.
Amma, elsku amma. Þín er
og verður sárt saknað.
Þú sem ein af mínum
stærstu fyrirmyndum, gafst
mér mikinn styrk og vitneskju
inn í lífið. Þú kenndir mér að
vera til staðar fyrir mitt fólk
og að nota minn innri styrk.
Ég leit alltaf svo upp til þín og
hef örugglega ekki sagt þér
nógu sterkt frá því hversu
mikið.
Ég gæti rifjað upp svo ótal
margar æskuminningar sem
munu fylgja mér ávallt en það
sem situr einna sterkast í mér
er hversu mikil þín innri feg-
urð og styrkur var.
Ég mun ávallt hugsa til þín
með gleði og ást í hjarta. Takk
fyrir að kenna mér að elska,
takk fyrir að kenna mér innri
styrk og að lífið sé ávallt háð
breytingum sem við tökumst á
við með jákvæðni í hjarta.
Ég gleðst yfir þínu lífi og
syrgi þitt andlát – en eins og
kemur fram í Spámanninum
eftir Kahlil Gibran þá segir:
Þeim mun dýpra sem sorgin
grefur í hjarta manns, þeim
mun meiri gleði getur það
rúmað.
Þú skildi eftir þig mikla
sorg amma við að hverfa á
brott en á sama tíma ást sem
hverfur aldrei.
Elska þig amma og við
sjáumst síðar.
Ása Dröfn.
Ása
Stefánsdóttir
- Fleiri minningargreinar
um Ásu Stefánsdóttur bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
Ástkær dóttir mín, móðir, vinkona,
tengdamóðir og amma,
SÓLRÚN ÓSK SIGURÐARDÓTTIR,
lést á líknardeild Landspítalans 26. mars.
Útförin fer fram frá Lindakirkju þriðjudaginn
12. apríl klukkan 13. Þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Ljósið.
Kærar þakkir til starfsfólks Landspítalans fyrir hlýja og góða
umönnun.
Svala Aðalsteinsdóttir
Þorgeir Lárus Árnason
Árný Árnadóttir Jens Jóhannsson
barnabörn og aðrir ástvinir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, dóttir,
amma, langamma og systir,
SVANBJÖRG CLAUSEN,
Sléttuvegi 27,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
miðvikudaginn 23. mars.
Útförin fer fram frá Guðríðarkirkju
fimmtudaginn 7. apríl klukkan 13.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu og hlýju.
Elín Björg Birgisdóttir Björn Kjartansson
Guðrún Hauksdóttir
Guðrún S. Einarsd. Clausen
barnabörn, barnabarnabörn og systkin
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og systir,
SIGURBJÖRT VIGDÍS BJÖRNSDÓTTIR
frá Breiðabólsstöðum á Álftanesi,
lést mánudaginn 28. mars á Hrafnistu í
Hafnarfirði.
Útförin auglýst síðar.
Ingibjörg Þórisdóttir
Helgi Þórisson
Dagbjartur Björnsson
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, amma og langamma,
SÓLVEIG JÓHANNA JÓNASDÓTTIR,
lést á Hrafnistu í Reykjavík 31. mars.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju
föstudaginn 8. apríl klukkan 13.
Hafsteinn Már Línbergsson
Sigrún Línbergsdóttir
Linda Alísa Meissner Ivan G. Pietronigro
Svava S. Svavarsdóttir Gunnar Örn Gunnarsson
og barnabarnabörn
Elskuleg móðir okkar,
ÓLÖF HJÖRLEIFSDÓTTIR,
lést 24. febrúar á hjúkrunarheimilinu Skjóli.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Skjóls fyrir góða umönnun.
Hjörleifur Hjörtþórsson
Rannveig Hjörtþórsdóttir
og barnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
SVEINN FREYR RÖGNVALDSSON,
múrarameistari og tæknifræðingur,
Furugerði 1, Reykjavík,
lést á Landspítalanum mánudaginn
28. mars. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn
8. apríl klukkan 10.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Elsa G. Eyfjörð Sveinsdóttir
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
SIGRÍÐUR H. ÓSKARSDÓTTIR,
Diddý,
Aðalgötu 5, Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
fimmtudaginn 24. mars. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju
föstudaginn 8. apríl klukkan 12.
Ólafía Lóa Bragadóttir Hilmar Símonarson
Freyr Bragason Sesselja Østerby
Óskar Guðfinnur Bragason Sigurbjörg Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
INGIBERGUR ÞÓR KRISTINSSON,
Vallargötu 21, Keflavík,
lést í faðmi fjölskyldunnar á heimili sínu
fimmtudaginn 24. mars.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 7. apríl
klukkan 13.
Guðrún Júlíusdóttir
Lárus Kristján Ingibergsson Amal El Idrissi
Kamilla Ingibergsdóttir
Ingi Þór Ingibergsson Anna Margrét Ólafsdóttir
og barnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
RUTH MARGRÉT FRIÐRIKSDÓTTIR,
Grænumörk 2, Selfossi,
lést á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Lundi
miðvikudaginn 30. mars.
Útför mun fara fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Hallfríður Dagmar Munsch Heinz Munsch
Friðrik Sölvi Þórarinsson Þórunn Óskarsdóttir
Júdith Jónsdóttir Sverrir Kristinsson
Guðmundur Jónsson Hildur Kristín Sveinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, afi og langafi,
ÞÓRIR INDRIÐASON,
lést á heimil sínu 26. mars.
Þórdís Ása Þórisdóttir
Sigvaldi Elís Þórisson
barnabörn og barnabarnabarn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
HULDA GUÐRÚN FILIPPUSDÓTTIR,
Hlaðbæ 18, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
þriðjudaginn 29. mars.
Útförin verður frá Árbæjarkirkju fimtudaginn 7. apríl klukkan 13.
Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar Landspítalans.
Guðrún Björnsdóttir
Kristín Björnsdóttir Magni Jónsson
Guðbjörg Árnadóttir Þráinn Örn Ásmundsson
Árni Þór Árnason Agneta Lindberg
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
BERGLJÓT HALLDÓRSDÓTTIR,
áður Haðalandi 1,
lést föstudaginn 1. apríl á hjúkrunarheimili
Hrafnistu Sléttuvegi.
Halldór Leifsson
Grétar Leifsson Anna Linda Aðalgeirsdóttir
Trausti Leifsson Guðbjörg Jónsdóttir
Ísleifur Leifsson Gróa Ásgeirsdóttir
Lárus Leifsson Fríða Mathiesen
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐRÚN EDDA JÚLÍUSDÓTTIR,
Furugrund 38, Akranesi,
lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á
Akranesi miðvikudaginn 23. mars.
Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 7. apríl
klukkan 13. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hjúkrunar- og
dvalarheimilisins Höfða fyrir hlýja og góða umönnun.
Streymt verður frá vef Akraneskirkju, www.akraneskirkja.is.
Hlekk á streymi má einnig nálgast á mbl.is/andlat.
Björgvin Hólm Hagalínsson
Ásdís Emilía Björgvinsdóttir Pétur Pétursson
Lára Hagalín Björgvinsdóttir Garðar Jónsson
Júlíus Björgvinsson Bergdís Saga Gunnarsdóttir
Jónas Björgvinsson Guðfinna Helgadóttir
ömmubörnin og langömmubörnin