Morgunblaðið - 02.04.2022, Síða 33

Morgunblaðið - 02.04.2022, Síða 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2022 ✝ Árni Arngarð- ur Halldórsson fæddist í Garði í Mývatnssveit 25. febrúar 1934. Hann lést á heimili sínu, Litlahvammi 8b, 24. mars 2022. Foreldrar hans voru hjónin Sigríð- ur Jónsdóttir, f. 1.6. 1906, d. 1.3. 1997, og Halldór Árna- son, f. 12.7. 1898, d. 28.7. 1979. Systur Árna eru Valgerður, f. 20.4. 1929, d. 25.4. 2000, Anna Guðný, f. 18.8. 1930, d. 2.10. 2013, Guðbjörg, f. 16.1. 1940, Hólmfríður, f. 21.6. 1945, og Arnþrúður, f. 30.5. 1947. Árni giftist 1. nóvember 1958 Guðbjörgu Jónínu Eyjólfs- dóttur, f. 20.8. 1930, frá Hrúta- felli. Foreldrar hennar voru Helga Ólafsdóttir, f. 11.3. 1901, d. 8.11. 1977, og Eyjólfur Þor- steinsson, f. 25.7. 1892, d. 17.9. 1973. Börn Árna og Guðbjargar eru: 1) Eyjólfur, f. 7.5. 1958, 1996, Sesselja Lóa Þöll, f. 28.10. 2013, Guðbrandur Arngarður, f. 20.2. 2015. Dóttir Árna er Guðrún Björk Hallbjörnsdóttir, f. 13.12. 1957, maki Helgi Gústafsson, f. 14.9. 1957. Börn Guðrúnar eru: Júlía Ýr Ómarsdóttir, f. 17.1. 1976, Laufey Mjöll Helgadóttir, f. 16.12. 1989, Kristinn Daníel Helgason, f. 21.10. 1992. Barnabarnabörn Árna eru alls 23. Árni ólst upp í Garði í Mý- vatnssveit og eftir hefðbundna barnaskólagöngu fór hann einn vetur í Laugaskóla. Árni kynnt- ist konu sinni, Guðbjörgu, þegar hann fór á vertíð til Vest- mannaeyja veturinn 1957 og tóku þau við búi foreldra hans. Auk sauðfjárbúskapar stundaði hann veiði og reykingu á sil- ungi. Þau voru bændur í Garði til ársins 2015 en síðustu árin dvöldu hjónin í Litlahvammi á Húsavík. Árni var ötull land- græðslumaður og árið 2003 hlaut hann Landgræðsluverð- launin fyrir starf sitt. Útför Árna fer fram í Skútu- staðakirkju í dag, 2. apríl 2022, og hefst athöfnin kl. 14. Athöfn- inni verður streymt á facebook- síðu Skútustaðaprestakalls. Hlekkur á streymi: https://www.mbl.is/andlat maki Sigurlaug Guðrún Stein- grímsdóttir, f. 24.2. 1959. Börn Eyjólfs eru Steingrímur Jónsson, f. 29.9. 1978, Guðbjörg, f. 6.5. 1979, Anna Vala, f. 10.8. 1982, Eyrún, f. 15.9. 1992. 2) Sigríður, f. 2.1. 1963, maki Óm- ar Magnússon f. 29.6. 1948. Börn Sigríðar: Árni Haukur Jóhannesson, f. 30.10. 1983, Ingibjörn Jóhannesson, f. 26.7. 1989, Helga Þóra Ó. Magn- ússon, f. 1.8. 1998. 3) Helga Þur- íður, f. 3.2. 1966, maki Einar Sölvi Friðbergsson, f. 31.8. 1948. Börn Helgu eru: Bergljót Abreu De La Cruz Friðbjarnardóttir, f. 3.7. 1986, Sigurður Ólafur Frið- bjarnarson, f. 19.12. 1987, Egg- ert Þórarinsson, f. 3.2. 1997, Ruth Þórarinsdóttir, f. 28.2. 1999. 4) Halldór, f. 7.5. 1970, maki Arnþrúður Dagsdóttir, f. 1.4. 1977. Börn Halldórs eru Sylvía, f. 21.3. 1993, Arna, f. 5.1. Mamma. Mig dreymdi svo skrítinn draum í nótt. Nú, hvað dreymdi þig? Mig dreymdi að það væri sagt við mig: Pabbi þinn er ekki pabbi þinn. Mamma segir lítið og við kveðj- umst. Það líða einhverjir dagar og mamma hringir í mig og bið- ur mig að koma til sín, það sé maður sem hana langar að kynna mig fyrir. Ég kem á þeim tíma sem okkur um semst. Inni í eldhúsi situr maður, hann er glæsilegur, rétt rúmlega fimm- tugur. Hár og þrekinn með mik- ið krullað hár og falleg augu. Ég kynni mig og við spjöllum saman og ég býðst til að skutla honum á Hótel Esju þar sem hann var á landsþingi Sjálfstæð- isflokksins. Seinna um daginn heyrumst við mamma og ég er forvitin um hver þessi maður sé. Þá minnist hún á drauminn og segir að þessi maður sé minn rétti faðir. Oft hef ég hugsað um þennan draum og var hann til að undirbúa mig fyrir það sem koma skyldi. Ég átti pabba sem ól mig upp við ást og kær- leik þótt hann vissi vel að hann ætti mig ekki og gaf mér nafnið sitt. Þarna fékk ég á einu bretti fjögur ný systkini sem ég hef átt fallegt samband við og mikill kærleikur ríkt á milli okkar. Þarna small eitthvað saman, púslið sem vantaði í púsluspilið. Þarna fann ég rætur mínar. Árni sagði seinna meir að ég væri svo lík í hans ætt að hann efaðist aldrei, og veit ég að hann og mamma voru búin að tala saman í nokkur ár og hann vildi fá að kynnast mér og er ég fegin að hún lét verða af því. Við hjónin vorum alltaf vel- komin að Garði til Árna og Guð- bjargar sem sér nú á eftir lífs- förunauti sínum. Við höfum átt margar yndislegar stundir og góðar minningar frá Garði í gegnum árin. Fyrir mér var Árni merki- legur maður á sinn hátt, sér- lundaður og fór sína leiðir, en hann var líka grúskari og eitt sinn sátum við systur, ég og Sigga, langt fram eftir í bjartri sumarnótt og talaði hann um Fjalla-Eyvind og lífshlaup hans og fannst margt merkilegt sem hann sagði. Í þessari sömu heimsókn fór hann með okkur hjónin ásamt systur í ferð í kringum Bláfjall og þá var ég viss um að ég kæmi ekki lifandi úr þeirri ferð. Snarhemlaði við bjargbrúnina til að dást að út- sýninu og keyrði svo nálægt að dekkin sleiktu brúnina og mikið var ég fegin er við komumst á jafnsléttu. Þá tók ekki betra við er hann sá rollu með lömbum og þurfti að kanna hver ætti, keyrt eins nálægt og hægt var upp í móti til að get séð markið og þá kom kíkirinn sér vel sem var alltaf í bílnum. Kíkirinn er enn í bílnum og við sóttum hann. Nú dvelur hann í sumarland- inu þar sem hann hittir þá sem hafa gengið á undan honum. það eru liðin 35 ár síðan ég hitti Árna pabba minn sem gaf mér stærstu gjöf sem hægt er að gefa, lífið sjálft. Hann kom á hárréttum tíma inn í líf mitt. það var gæfa að kynnast Eyj- ólfi, Sigríði, Helgu og Halldóri, þessum yndislegu manneskjum. Systkinum mínum sem hafa átt stórt pláss í mínu hjarta og fjöl- skyldum þeirra. Elsku Guðbjörg missir þinn er mikill. Við fjölskyldan send- um þér kærleik og ást. Þín dóttir, Guðrún Björk Hallbjörnsdóttir. Óvænt barst mér sú frétt að móðurbróðir minn, Árni Hall- dórsson, bóndi í Garði í Mý- vatnssveit, hefði látist, áttatíu og átta ára gamall. Ég á bara ljúfar og skemmtilegar minn- ingar frá þeim tíma sem ég fékk að dvelja sumarlangt í umsjá þeirra hjóna, Árna og Beggu. Byrjuðu sumarævintýri mín þegar ég var á sjöunda ári. Um leið og skóla sleppti þá var haldið til hárskerans og koll- urinn strípaður fyrir sumarið og ekki skertur aftur fyrr en kom- ið var aftur í höfuðstaðinn seint í ágúst. Þegar maður hugsar aftur til þessa tíma sem við frændur Halldór Árnason og Árni Laugdal áttum saman á þessum árum man maður ekk- ert annað en að það hafi verið sífelld blíða og skemmtilegt. Fengum við að taka þátt í þeim bústörfum sem sinna þurfti og aldrei man ég eftir því að Árni bóndi skipti skapi né að hann hefði ekki gaman af því að hafa þennan krakkaskara í kringum sig og fóstra. Sem auðvitað hefði ekki gengið upp nema fyr- ir matmóður okkar Guðbjörgu Eyjólfsdóttur, sem lifir mann sinn. Maturinn var fjölbreyttur, heimaslátrað og fiskur úr vatn- inu svo ekki sé minnst á and- areggin og hvað það annað sem náttúran gaf. Kaffibrauðið heimabakað af frú Beggu og alltaf nóg til. Einnig minnist ég margra ferða á vatnið til að vitja um netin. Var það þá oft að Árni bóndi vakti mann snemma morguns til koma með að vitja netanna í vatninu. Kom- ið heim með aflann og hann slægður og saltaður og látinn liggja þar til hægt var að koma honum í reykkofann góða sem Begga sá hvað mest um og síð- ar Halldór, nú bóndi í Garði. Dásamlegur reyktur mývatns- silungur sem hróður þeirra víða bar, enda ljúfmeti sem flestir kunnu að meta. Gestkvæmt var í Garði, sérstaklega meðan amma Sigríður lifði og oft komu ættingjar og vinir og dvöldu í Garði yfir lengri og skemmri tíma sem fyrir okkur krakkana var bara skemmtilegt og upp- lífgandi á allan hátt. Við leið- arlok er gott að minnast góðra stunda. Ég hef ekki verið nógu duglegur að vísitera mitt góða fólk í Mývatnssveit en alltaf hefur verið vel tekið á móti okk- ur þegar það hefur gerst og hef ég notið ríflegrar gestrisni þeirra systkina Halldórs og Helgu sem nú þar búa. Beggu, Eyjólfi, Siggu, Helgu, Halla og Guðrúnu votta ég dýpstu samúð mína. Minningar um góðar stundir hjá góðu fólki fylgja mér alltaf. Takk fyrir mig. Steinþór Jónsson. Árni Arngarður Halldórsson Útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR HELGADÓTTUR, alþingismanns og rithöfundar, Túngötu 43, Reykjavík, verður gerð frá Dómkirkjunni mánudaginn 11. apríl klukkan 14.00. Streymi má nálgast á streyma.is. Hlekk má einnig nálgast á mbl.is/andlat. Hörður Hauksson María Guðfinnsdóttir Þorvaldur Sverrisson Aðalheiður Ámundadóttir Helga Sverrisdóttir Bjarni Ármannsson Halla Sverrisdóttir Egill Axelsson barnabörn og langömmubörn Við þökkum auðsýnda samúð og vinarhug vegna fráfalls okkar ástkæra föður, afa og langafa, GUÐMUNDAR MATTHÍASSONAR frá Arnardal í Skutulsfirði. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Þökkum auðsýnda samúð við andlát móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, GUÐRÚNAR EYJÓLFSDÓTTUR, Aflagranda 40. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Litlu-Grundar, Hjúkrunarheimilinu Grund, fyrir einstaka umhyggju og hlýlegt viðmót. Brynjólfur Á. Guðbjörnsson Sigríður S. Halldórsdóttir Gunnar Þórólfsson Jóhanna Friðgeirsdóttir Elísabet Þórólfsdóttir Meyvant Þórólfsson Rósa Guðbjartsdóttir Bjarni Þ. Þórólfsson Hrefna S. Briem og ömmubörn Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma, langamma og langalangammma, HÓLMFRÍÐUR ÞÓRA GUÐJÓNSDÓTTIR, Hrafnistu við Brúnaveg, lést síðastliðinn sunnudag. Ragnar Friðriksson Þórhalla Snæþórsdóttir Sólveig Erla Ragnarsdóttir Jón Steinar Jónsson Hlynur Ívar Ragnarsson Vigdís Braga Gísladóttir og fjölskyldur Frændi okkar og vinur, GUÐMUNDUR VIGNIR VILHELMSSON frá Sævarlandi, síðast Barmahlíð 2 á Sauðárkróki, lést laugardaginn 26. mars á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki. Útför hans fer fram frá Sauðárkrókskirkju fimmtudaginn 7. apríl klukkan 14. Innilegar þakkir eru færðar starfsfólki á Sjúkrahúsinu á Sauðárkróki. Aðstandendur Elskuleg eiginkona mín og amma okkar, SIGRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR, Sléttuvegi 29, Reykjavík, lést á Hrafnistu við Sléttuveg þriðjudaginn 28. mars. Útför hennar fer fram frá Seljakirkju 8. apríl klukkan 13. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hrafnistu fyrir hlýja og góða umönnun. Kristján Sigtryggsson Aðalbjörg Skúladóttir Árni Kristinn Skúlason Halldóra Þórdís Skúladóttir Kristján Pálmi Ásmundsson Elsku pabbi, tengdapabbi, afi og langafi, BJARNI SNÆBJÖRNSSON, Eir hjúkrunarheimili, lést miðvikudaginn 23. mars. Bálför fór fram í kyrrþey. Ásta Margrét G. Bjarnadóttir Ingólfur Arnarson Bergdís Margretar Kristbjörn Þór Bjarnason Rannveig Rut Valdimarsdóttir Bergþóra Fjóla Bjarnadóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir, tengdafaðir og afi okkar, LEIFUR BJÖRNSSON læknir, lést að heimili sínu í Chicago, Illinois, BNA. Jarðarförin hefur farið fram. Árni Leifsson Ástríður V. Vigfúsdóttir Björn Leifsson Helga Leifsdóttir Edda Árnadóttir Edda Sigrún Fransdóttir Vigfús H. O. Árnason Leifur S. S. Árnason Tómas Orri Jónsson HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is Faðir minn, tengdafaðir, afi okkar og bróðir, SIGURÐUR JÓSEF BJÖRNSSON frá Hólum í Hjaltadal, sem lést mánudaginn 21. mars, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 4. apríl klukkan 13. Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug. Ari Björn Sigurðsson Rebekka Stefánsdóttir Ynja Mist Aradóttir, Óðinn Arason, Urður Aradóttir Ragnar Björnsson, Björn Friðrik Björnsson, Gunnhildur Björnsdóttir Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.