Morgunblaðið - 09.04.2022, Blaðsíða 6
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fagnaðarfundir Sólveigu var fagnað þegar hún mætti á aðalfund í gær.
Sólveig Anna Jónsdóttir, fyrrver-
andi formaður Eflingar, sem sigr-
aði í stjórnarkjöri í stéttarfélag-
inu ásamt félögum sínum á
Baráttulistanum, tók formlega
við sem formaður á ný á aðal-
fundi Eflingar í gærkvöldi.
Þá tóku sjö aðrir af Baráttulist-
anum, sem Sólveig fór fyrir, sæti
í stjórn. Í millitíðinni sinnti Agni-
eszka Ewa Ziółkowska for-
mennsku en hún tekur nú við sem
varaformaður að nýju.
Ólöf Helga Adolfsdóttir, sem
varð varaformaður eftir afsögn
Sólveigar í vetur, varð aftur rit-
ari Eflingar í gærkvöldi. Báðar
eiga þær eitt ár eftir af stjórn-
arsetu sem kjörnir fulltrúar í
stjórn.
Fundurinn fór fram á Grand
hóteli í Reykjavík á Gullteigi og
hófst klukkan átta. Fyrir fundinn
sagðist Sólveig í samtali við
mbl.is reikna með að aðrir í
stjórn virtu umboð hennar.
Sólveig aftur tekin
við sem formaður
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2022
Atvinnuleysi á landinu var 4,9% í
mars og minnkaði úr 5,2% í febrúar.
Vinnumálastofnun (VMST) spáir því
að atvinnuleysi muni halda áfram að
dragast sama í yfirstandandi mánuði
og verða á bilinu 4,4 til 4,6%.
Að meðaltali fækkaði um 424 at-
vinnulausa í seinasta mánuði frá febr-
úar en í lok mars voru 9.608 einstak-
lingar skráðir atvinnulausir, 5.416
karlar og 4.192 konur.
Fækkun í ferðaþjónustu
Þetta kemur fram í mánaðar-
skýrslu VMST um stöðuna á vinnu-
markaði. Þar má einnig sjá að alls
voru 4.097 erlendir atvinnuleitendur
án atvinnu í lok mars og fækkaði þeim
um 288 frá febrúar. „Mesta hlutfalls-
lega fækkun atvinnulausra frá febr-
úar var í ferðatengdum atvinnugrein-
um eða um 11%. Í sérfræðiþjónustu
fækkaði um 8,6%, í ýmissi þjónustu-
starfsemi 6,3% og í byggingariðnaði
5,9%,“ segir í skýrslunni. Bent er á að
þessi fjöldi samsvarar um 10,5% at-
vinnuleysi meðal erlendra ríkisborg-
ara. Fram kemur að hlutfall þeirra á
atvinnuleysisskrá var tæp 43% í mars
og hefur það hlutfall hækkað úr 40%
frá seinasta sumri.
Atvinnuleysið hefur hvergi verið
meira um langa hríð en á Suðurnesj-
um en þar hefur atvinnulausum á
skrá þó fækkað á umliðnum mánuð-
um og mældist 8,6% atvinnuleysi á
svæðinu í seinasta mánuði en þar var
það 9,2% í febrúar. Næstmest var at-
vinnuleysið 5,1% á höfuðborgarsvæð-
inu.
„Atvinnuleysi minnkaði meira á
landsbyggðinni sem heild en á höfuð-
borgarsvæðinu eða um 0,4 prósentu-
stig og var 4,6% í mars. Á höfuðborg-
arsvæðinu minnkaði atvinnuleysi um
0,2 prósentustig og var 5,1% í mars.
Atvinnuleysi á landinu öllu minnkaði
um 0,3 prósentustig frá febrúar og
var 4,9% í mars,“ segir í samantekt
VMST.
Samtals voru 999 atvinnuleitendur
á aldrinum 18-24 ára án atvinnu í lok
mars. Hefur þeim fækkað um 58 frá
febrúarlokum en fækkað um 1.302 frá
mars 2021 þegar fjöldi atvinnulausra
á þessu aldursbili var 2.301.
3.260 hafa verið atvinnulausir
lengur en í tólf mánuði
Enn er stór sá hópur einstaklinga
sem hafa verið án atvinnu í langan
tíma. Höfðu alls 3.260 einstaklingar
verið án atvinnu í meira en tólf mán-
uði um seinustu mánaðamót. Þeim
fækkaði um 179 frá því í febrúar og
hefur fækkað mikið samanborið við
ástandið fyrir ári en í lok mars á sein-
asta ári höfðu alls 6.207 einstaklingar
verið án atvinnu í meira en eitt ár.
Hefur því langtímaatvinnulausum
fækkað umtalsvert eða um 2.947 milli
ára.
„Þeim sem hafa verið atvinnulausir
í 6-12 mánuði fjölgaði lítilsháttar frá
febrúar eða um 138 og voru 1.727 í lok
mars en 1.589 í lok febrúar. Í mars
2021 var þessi fjöldi hins vegar
7.440,“ segir í skýrslu VMST.
omfr@mbl.is
Atvinnuleysi á niðurleið um allt land
- Hlutfall erlendra ríkisborgara á atvinnuleysisskrá hefur hækkað úr 40% í fyrrasumar í tæp 43% í
mars - Vinnumálastofnun spáir því að atvinnuleysi á landinu verði á bilinu 4,4 til 4,6% í aprílmánuði
Morgunblaðið/Eggert
Við störf Auglýst voru 678 ný störf í vinnumiðlun hjá VMST í marsmánuði.
Dóra Ósk Halldórsdóttir
doraosk@mbl.is
Ný aðstaða fyrir þjónustu og starf-
semi Alzheimersamtakanna og
Parkinsonsamtakanna var síðdegis í
gær vígð á 3. hæð gamla St. Jósefs-
spítalans í Hafnarfirði. Þar hafa fé-
lagar í Oddfellowreglunni unnið
hörðum höndum síðan í ársbyrjun
2021 að endurgerð um 530 fermetra
húsnæðis, sem samtökin skipta með
sér. Framlag Oddfellow nemur um
180 milljónum króna og mun ganga
upp í leigu á húsnæðinu til næstu 15
ára. Viðstödd vígsluna voru Willum
Þór Þórsson heilbrigðisráðherra,
Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri,
fulltrúar Oddfellow og verktaka.
Fyrir um tveimur árum settist
Steindór Gunnlaugsson, formaður
stjórnar Styrktar- og líknarsjóðs
Oddfellowa, niður með með Vilborgu
Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra
Alzeimersamtakanna, og hug-
myndin fæddist um að stofna mið-
stöð fyrir fólk með heilabilunar-
sjúkdóma, sem væri í ætt við Ljósið
á Langholtsvegi. Rættist sú hug-
mynd með aðkomu Hafnarfjarðar-
bæjar, sem hafði stofnað Lífsgæða-
setrið á 2. hæð hússins. Seinna komu
Parkinsonsamtökin inn í myndina og
ákveðið var að endurgera alla 3.
hæðina. Húsnæði Alzheimer-
samtakanna nefnist Seiglan og Takt-
ur er heitið á aðstöðu Parkinson-
samtakanna. Öll verkstjórn
framkvæmda var í höndum Magn-
úsar Sædals Svavarssonar bygging-
armeistara og Péturs J. Haralds-
sonar húsasmíðameistara, félaga í
Oddfellow.
„Samstarfið hefur gengið mjög
vel,“ segir Steindór við Morgun-
blaðið en bærinn hefur komið til
móts við samtökin með því að hafa
enga leigu næstu 15 árin. „Okkur
fannst strax svo mikilvægt að fólk
með heilabilunarsjúkdóma ætti sér
stað þar sem það ætti möguleika á
auknum lífsgæðum. Það er hægt að
taka á móti mörgum á hverjum degi
og hugsað er sérstaklega til þess að
styðja við fólk sem greinist ungt.
Síðan verða Parkinsonsamtökin með
talþjálfun og gönguþjálfun og á
fyrstu hæðinni í Lífsgæðasetrinu er
íþróttaaðstaða. Svo fer 4. hæðin til
smærri fyrirtækja og einyrkja. Við
göngum afskaplega stolt frá þessu
verkefni,“ segir Steindór.
Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri
Hafnarfjarðar, segist afskaplega
ánægð með Lífsgæðasetrið. „Hafn-
arfjarðarbær keypti þetta sögu-
fræga og fallega hús af ríkinu árið
2017 en það hafði drabbast mikið
niður eftir að hafa staðið autt um
árabil. Ég er ákaflega stolt af því að
St. Jósefsspítala skuli hafa verið
bjargað með þessum hætti og það
hefur mikla þýðingu fyrir bæjarbúa
því flestir hafa miklar tilfinningar til
hússins og þeirrar góðu starfsemi
sem þar fór fram í áratugi,“ segir
Rósa og bætir við að samstarf
Hafnarfjarðarbæjar, Oddfellowregl-
unnar og Alzheimer- og Parkinson-
samtakanna sé einnig einstakt. Með
þessu þríhliða samstarfi hafi tekist
að endurnýja heila hæð í húsinu án
beins fjárframlags bæjarins.
„Við erum mjög þakklát fyrir að-
komu allra þeirra sem létu þetta tak-
ast,“ sagði Rósa í gær.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Opnun F.v.: Pétur J. Haraldsson Oddfellow, Vilborg Jónsdóttir Parkinsonsamtökunum, Guðmundur Eiríksson stór-
sír Oddfellow, Vilborg Gunnarsdóttir Alzheimersamtökunum og Steindór Gunnlaugsson frá Oddfellow.
Gleðidagur í Hafnarfirði
- Ný aðstaða í Lífsgæðasetri fyrir Alzheimersamtökin og
Parkinsonsamtökin - 180 milljóna framlag frá Oddfellow
Lífsgæðasetur St. Jósefsspítalinn í endurnýjun lífdaga að utan sem innan.
Síðasta keppniskvöld í meistara-
deild Líflands í hestaíþróttum var í
gærkvöldi. Keppnin fór fram í Ölf-
ushöllinni á Ingólfshvoli. Í tölti
sigraði
Jóhanna Margrét Snorraóttir á
Bárði frá Melabergi með ein-
kunnina 7,83 en fyrir lið Hestvits. Í
fljúgandi skeiði sigruðu hinn þaul-
reyndi skeiðknapi Konráð Valur
Sveinsson og Kjarkur frá Árbæj-
arháleigu II á tímanum 5,64.
Lið Hrímnis vann liðaplattann í
töltinu með 52,5 stig. Lið Topreiter
vann liðaplattann í fljúgandi skeiði
með 48,5 stig og sigraði einnig í
liðakeppninni þetta árið með 377,5
stig. Árni Björn vann einstaklings-
keppnina örugglega með 64,5 stig. Í
þriðja sæti varð Mette Mannseth
með 24 stig.
Árni vann ein-
staklingskeppni
- Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum
Ljósmynd/Louisa Lilja Hack
Hestaíþróttir Keppt var í Ölfushöll-
inni á Ingólfshvoli í deildinni.