Morgunblaðið - 09.04.2022, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 09.04.2022, Blaðsíða 27
UMRÆÐAN 27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2022 Tjarnabakki 8, 260 Reykjanesbæ Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is Um er að ræða mjög rúmgóða 4ra til 5ja herbergja íbúð á 2 hæð með sérinngangi í 14 íbúða húsi. Vel staðsett eign, stutt í leikskóla og Akurskóla Jóhannes Ellertsson Löggiltur fasteignasali s. 864 9677 Júlíus M Steinþórsson Löggiltur fasteignasali s. 899 0555 Bjarni Fannar Bjarnason Aðstoðamaður fasteignasala s. 773 0397 Verð 53.000.000 Birt stærð 123,8 m2 A lþjóðlega Reykjavíkur- skákmótið hefur verið haldið síðan 1964 og fagn- ar því brátt 60 ára afmæli sínu. Mótið í ár ber nafn aðalstyrkt- araðilans og heitir nú Kvika Reykja- vík Open. Keppendur eru 245 talsins og verða tefldar níu umferðir. Eftir þriðju umferð sem fram fór á fimmtudaginn voru tveir skákmenn efstir með fullt hús, Bandaríkjamað- urinn Hans Moke Niemann og Pól- verjinn Lukasz Jarmula. Síðan kom 31 skákmaður með 2½ vinning, þar af níu Íslendingar: Jóhann Hjartar- son, Hjörvar Steinn Grétarsson, Héðinn Steingrímsson, Vignir Vatnar Stefánsson, Bragi Þorfinns- son, Haraldur Haraldsson, Gunnar Erik Guðmundsson, Jóhann Arnar Finnsson og Hrund Hauksdóttir. Við ættum að geta búist við að okkar bestu menn geti blandað sér í baráttuna um sigurinn og frammi- staða ungu mannanna, Gunnars Eriks og Jóhanns Arnar, ásamt árangri Hrundar, er einfaldlega vís- bending um góðan efnivið meðal yngri þátttakenda okkar. Enn skal á það minnt að Reykja- víkurskákmótin eru fyrsti alþjóðlegi viðburðurinn sem ber nafn höfuð- borgarinnar. Fram til 1980 var mótið lokað, þ.e. allir tefldu við alla en árið 1982 var mótið „opnað“. Það er áreiðanlega margt sem togar í; góð umgjörð og skipulagning, glæsileg húsakynni Hörpu og sérstakur andi þessa móts sem á sér langa og merka sögu. Evrópumót einstaklinga sem lauk í Slóveníu á dögunum útilokaði þátt- töku margra sterkra skákmanna, einnig okkar manna, Guðmundar Kjartanssonar og Hannesar Hlífars Stefánssonar. Það eru svo indverskir skákmenn sem tylla sér í flest efstu sætin hvað skákstig varðar. Rameshbabu Praggnanandhaa og Baskar Adhiban fara þar fremstir og eins og oft áður mætir indverska skákdrottningin Tania Sachdev til leiks. Svo eru þarna meistarar á borð við Simon Williams sem nýtur mikilla vinsælda fyrir myndbönd sem yngri menn okkar horfa mikið á. Frá stríðshrjáðri Úkraínu kemur Oleg Romanishin sem tefldi hér fyrst árið 2004 og aflaði sér mikilla vinsælda. Það er ekki auðvelt að velja úr mörgum skemmtilegu viðureignum en hví ekki að gefa ungum manni sviðið, sem lagði mun stigahærri andstæðing snarlega að velli: Kvika Reykjavíkurskákmót 2022; 3. umferð: Gunnar Erik Guðmundsson – Jan-Louis Wchtrup Tarrasch-vörn 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 d5 4. cxd5 Rxd5 5. e4 Rxc3 6. bxc3 c5 7. Rf3 cxd4 8. cxd4 Bb4+ 9. Bd2 Bxd2+ 10. Dxd2 O-O 11. Be2 b6 12. O-O Bb7 13. Df4 Rd7 14. e5 Hc8 15. Hac1 Rb8 16. Hfd1 Hxc1 17. Hxc1 Rc6 18. Bd3 Rb4 19. Be4 Biskupsfórn á h7 væri glapræði, 19. Bxh7+?? Kxh7 20. Rg5+ Kg8! 21. Dh4 Be4! og svartur vinnur. 19. … Bxe4 20. Dxe4 Dd7? Gunnar vann ekki þessa skák vegna nákvæmrar byrjunartafl- mennsku því svartur gat hirt peðið á a2 sér að meinalausu. Bæði hér og fyrr í skákinni hefði verið gott að skjóta inn leiknum h7-h6. Nú fær hvítur sóknarfæri. 21. Rg5! g6 22. Dh4 h5 23. Re4 Rd5 24. g4 Dd8 25. Dh3 hxg4? Annar ónákvæmur leikur. Hann gat leikið 25. … Kg7 til að svara 26. gxh5 með 26. … Hh8. 26. Dh6! Þessi leikur kom Þjóðverjanum í opna skjöldu. Hann er gjörsamlega varnarlaus. 26. … f6 27. Dxg6+ Kh8 28. Dh5+ Kg7 29. Dxg4+ Kh6 30. Dh4+ Kg6 31. Dg4+ Kh6 32. Kh1! Opnar g-línuna fyrir hrókinn. 32. … Hg8 33. Dh4+ Kg6 34. Hg1+ Kf5 35. Rd6+ – og svartur gafst upp. Íslendingar byrja vel í Hörpu Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/Ómar Óskarsson Tímamót Hans Christian Dahl er fyrsti Grænlendingurinn sem teflir á Reykjavíkurskákmóti. Einar Farestveit fæddist 9. apríl 1911 á jörðinni Farestveit í Modalen á Hörðalandi í Noregi. For- eldrar hans voru Knut Knutsen Farestveit, óðalsbóndi á jörðinni Farestveit, og Anna Olavsdóttir Farestveit, fædd í Övre Helland í Modalen. Jörðin Farestveit hef- ur verið í eign sömu ættar síðan 1746 er Botne- Ola kvæntist ekkjunni Önnu Sjurdóttur, sem sat þá jörðina. Jörðin kemur við sögu í Eglu, en Egill Skalla- Grímsson mun hafa haft nætur- stað þar er hann var á leið á kon- ungsfund. Einar hóf nám í Alþýðuskól- anum í Fana utan við Björg- vin eftir barna- skólagöngu. Hugur hans stefndi til há- skólanáms í lög- fræði en vegna fátæktar hóf hann nám við K. Nerheims Handelsskole í Molde það- an sem hann lauk verslunarnámi. Einar kom til Íslands 1933, ráðinn til að leiðbeina við uppsetningu á refabúum og kenna meðferð við refarækt. Hann varð síðar framkvæmdastjóri skinna- sölu Loðdýraræktarfélags Íslands. Árið 1941 réðst hann til starfa hjá G. Helgason & Melsted hf. og gerð- ist framkvæmdastjóri þess félags. Þá var hann jafn- framt framkvæmdastjóri Pan Am á Íslandi. Árið 1964 stofnaði hann eigið fyrirtæki, Einar Farestveit & Co. hf., sem hann starfaði við til dauða- dags. Einar var einn af stofnendum Tollvörugeymsl- unnar hf. og sat í stjórn hennar um árabil. Eiginkona Einars var Guðrún Sigurðardóttir frá Hvammstanga, f. 1915, d. 1996. Þau eignuðust sex börn. Einar og Guðrún stofnuðu árið 1991 sjóð, Gudrun og Einar Farestveits Fond. Þessi sjóður var stofnaður til að verðlauna og styrkja íslenska grunnskóla- og framhaldsskólanema sem vilja leggja stund á nám í norsku. Einar var einn af frumkvöðlum félags Noregsvina hér á landi, Normannslaget. Hann tók mikinn þátt í skógræktarstarfi í Heiðmörk. Fyrir störf sín að sam- skiptum Íslands og Noregs var hann sæmdur riddara- tign St. Olavs-orðunnar af 1. gráðu. Einar Farestveit lést 14. ágúst 1994. Merkir Íslendingar Einar Farestveit Faðir fyrirgef þeim Guð faðir, fyrirgef þeim sem festu son þinn á kross af heift, með hatursins keim, þá hræsni’ og Júdasar koss. Svo grimm, með gremju í hug þau grættu’ og smánuðu hann, af vonsku vísuðu’ á bug þeim vilja’ er til með þeim fann. Guð faðir, fyrirgef þeim sem fylgja illskunnar slóð. Til bjargar helsjúkum heim rann heilagt frelsarans blóð, hann þoldi þrautir og kvöl, var þjáður okkur í hag. Öll neyð, öll níðsla, allt böl var neglt á krossinn þann dag. Guð, faðir, fyrirgef þeim sem flytja lyginnar mál af snilld. Með tungunum tveim þau tala’ en ræðan er hál. Þau ljúga þögul af list og líta undan ef þarf en þannig krossfesta Krist og kasta rýrð á hans starf. Guð faðir, fyrirgef þeim sem finnst þau sjálf vera best, með skýrum hneykslunarhreim oft hiklaust tjá sig um flest, þau geti’ ei gert öðrum mein, svo góð og umburðarlynd, af ljótu löstunum hrein og laus við galla og synd. Guð faðir, fyrirgef þeim sem fara’ ei kærleikans leið, jafnt hér sem úti um heim þau hunsa annarra neyð. Og Jesús, gefðu þeim grið sem gorta’ af líferni’ og trú. – Þú veist að „þau“ erum við og vonin eina ert þú. Ó, Jesús, miskunna mér á minni kolröngu leið því ef ég afneita þér mun aftur herða’ að mér neyð. Mér nægir náð þín, Guðs son, hún nærir sál, veitir hlíf. Í þjáning þinni er von, í þínum dauða er líf. Ólafur Jóhannsson hagyrðingur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.