Morgunblaðið - 09.04.2022, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 09.04.2022, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2022 Ferðafélag Íslands | Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S. 568 2533 | www.fi.is Sumarleyfisferðir Ferðafélags Íslands Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Það er árvisst að menn tali um mikla þorskgengd þegar kemur að hrygningartíma þorsks,“ sagði Ein- ar Hjörleifsson, sjávarlíffræðingur á botnsjávarsviði Hafrannsóknastofn- ununar. Starfssvið hans snýr að stofnmati þorsks og aflareglum. Pétur Pétursson, skipstjóri á Bárði SH, sagði í Morgunblaðinu í gær að það hefði verið mokveiði á þorski í Breiðafirði og allt í kringum landið. Hann kvaðst trúa því að í Breiðafirði væri ein milljón tonna af þorski og kvaðst byggja það mat á 40 ára reynslu. „Við getum verið sammála um það, ég og skipstjórinn, að hrygning- arstofninn er örugglega nálægt sögulegu hámarki miðað við síðustu fjörutíu ár. Okkur greinir kannski meira á um hvað er mikið af þorski í Breiðafirði,“ sagði Einar. Samkvæmt mati Hafrannsókna- stofnunar er heildarstofn þorsks á Íslandsmiðum um 950 þúsund tonn af fjögurra ára þorski og eldri. Þorskurinn verður kynþroska 7-8 ára gamall og var hrygningarstofn- inn metinn vera um 360 þúsund tonn í byrjun síðasta árs. Þorskur hrygnir að segja má hringinn í kringum land- ið, en langmest fyrir Suður- og Vesturlandi. Þorskgengd hefur aukist frá ár- unum 2009-2010 og náði stofninn há- marki á árunum 2015-2017 eða þar um bil, að sögn Einars. Þorskstofn- inn var metinn stærstur árið 2016 þegar matið sagði stofn fjögurra ára þorsks og eldri vera um 1.200 þús- und tonn. Einar segir að nú standi yfir stofn- úttekt á þorski þar sem öll þessi mál verða skoðuð. Ráðgjöf er væntanleg um miðjan júní. Netarall og hrygningarstopp Netarall hófst 29. mars og tóku sex bátar þátt í því. Niðurstöður liggja ekki fyrir. Allur fiskurinn er lengdarmældur og hluti aflans er einnig aldursgreindur. Greining á aldri tekur langan tíma, enda er um nokkuð gamlan fisk að ræða og marga aldurshringi í kvörnunum. Hrygningarstopp, þegar þorskur, skarkoli, blálanga og steinbítur eru friðuð á hrygningartíma á tilteknum svæðum, er gert í apríl. Misjafnt er eftir svæðum hvenær hrygningar- stoppið hefst og hvenær því lýkur. Hrygningarstofn nærri hámarki - Um 950 þúsund tonn af þorski, 4 ára og eldri, eru nú á Íslandsmiðum samkvæmt mati Hafrannsókna- stofnunar - Hrygningarstofn þorsksins var metinn vera um 360 þúsund tonn í byrjun síðasta árs Morgunblaðið/Hari Afli Vel hefur veiðst af þorski víða við landið að undanförnu. Byrjað er að klæða nýbyggingu Landsbankans í Austurhöfn. Húsið er klætt með íslensku blágrýti, stuðlabergi, sem kemur úr Hrepp- hólanámu í Hrunamannahreppi. Það eru Íslenskir aðalverktakar sem sjá um fullnaðarfrágang húss- ins. ÞG verk sá um uppsteypu húss- ins. Stefnt er að því að bankinn flytji starfsemi sína í nýja húsið fyr- ir árslok. Eins og fram hefur komið í frétt- um hefur Stjórnarráðið lýst yfir áhuga á því að kaupa svokallað Norðurhús nýbyggingarinnar. Við- ræður við Stjórnarráðið um kaup á Norðurhúsi standa yfir og ganga vel, að sögn Rúnars Pálmasonar, upplýsingafulltrúa bankans. „Það er vilji af beggja hálfu til að vinna málið eins hratt og kostur er en það liggur ekki fyrir á þessari stundu hvenær þeim verður lokið,“ segir Rúnar. Ef kaupin ganga eftir mun vera áformað að utanríkis- ráðuneytið flytji í húsið. sisi@mbl.is Morgunblaðið/sisi Framkvæmdir við nýja Landsbankahúsið eru í fullum gangi Bankinn klæddur stuðlabergi Ingvar Stef- ánsson viðskipta- fræðingur hefur verið ráðinn framkvæmda- stjóri Kirkju- garða Reykjavík- urprófastsdæma (KGRP) frá og með 1. maí. Hann tekur við af Þór- steini Ragnars- syni sem hefur verið forstjóri í rúm 26 ár. Ingvar var framkvæmdastjóri fjármála hjá Orkuveitu Reykjavík- ur 2011-2021, staðgengill forstjóra um tíma og sat í framkvæmda- stjórn. Áður var hann m.a. útibús- stjóri hjá Íslandsbanka og fram- kvæmdastjóri Fjármögnunar Íslandsbanka. Hann kenndi hjá Við- skiptaháskólanum á Bifröst og var forstöðumaður fyrirtækjasviðs Olíufélagsins ehf. (N1) en þar áður starfsmannastjóri Olíufélagsins. Umsóknarfrestur um starfið rann út 15. febrúar sl. og bárust 17 umsóknir. Hagvangur aðstoðaði KGRP í ráðningarferlinu. gudni@mbl.is Ingvar til Kirkju- garða Reykjavíkur- prófastsdæma Ingvar Stefánsson Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Embættismenn úr forsætisráðu- neytinu hafa verið að funda með fulltrúum ýmissa stofnana ríkisins, Skaftárhrepps og annarra hags- munaaðila um fyrirkomulag vatna- veitinga út í Eldhraun og vatns- stöðu í Grenlæk. Verið er að fara yfir mögulegar aðgerðir á svæðinu og meta fýsileika þeirra, samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu. Deilur hafa lengi verið um veit- ingu vatns úr Skaftá út í Eldhraun þar sem það rennur að lokum í Grenlæk og fleiri vatnsföll í Skaft- árhreppi. Þessum vatnaveitingum er stýrt. Lækurinn þornað upp Grenlækur er ein af þekktustu sjóbirtingsám landsins. Vegna þess að ekki er veitt nógu miklu vatni um hraunið hefur hann þornað nokkrum sinnum upp á undanförnum árum, meðal annars 2008, 2016 og loks í júní á síðasta ári. Sviðsstjóri hjá Hafrannsóknastofnun sagði eftir at- hugun á Grenlæk í fyrra að vatns- leysið væri umhverfisslys. Voru efstu 11 kílómetrar lækjarins nánast þurr- ir, vatn sat aðeins eftir í pollum sem ekki flæddi á milli. Á þurra svæðinu eru einmitt ein helstu hrygningar- og uppeldissvæði sjóbirtings sem einkennir lindarlækinn og töldu sér- fræðingar Hafró að stofninn hefði orðið illa úti. Taldi Hafrannsóknastofnun að finna þyrfti leiðir sem til frambúðar tryggðu háa grunnvatnsstöðu í hrauninu svo vatnsrennsli til lind- arvatna verði nægt til að viðhalda vatnsrennsli og því ríkulega lífríki og fiskgengd sem þar er að finna. Forsætisráðuneytið kemur að málinu sem samræmingaraðili, samkvæmt upplýsingum þaðan, vegna þess að málið snertir málefni fleiri en eins ráðuneytis. Það hefur verið í vinnslu þar síðan fyrir ára- mót. Auk Hafrannsóknastofnunar eru það Landgræðslan, Vegagerðin og fleiri stofnanir sem láta málið til sín taka. Sandra Brá Jóhannsdóttir sveit- arstjóri segir að verið sé að leita leiða sem allar þær stofnanir sem koma að málinu geta sætt sig við. Kallað hafi verið eftir tillögum frá öllum. Ekki sé komin niðurstaða. Segir hún að beðið sé tillagna for- sætisráðuneytisins. Forsætisráðuneytið leit- ar lausna um Grenlæk - Umhverfisslys hafa orðið vegna vatnsleysis Grenlækur Lækurinn þornaði upp á 11 km kafla í fyrra og stóðu aðeins eftir stöku pollar. Vatni er stýrt út í hraunið þaðan sem það rennur í lækinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.