Morgunblaðið - 09.04.2022, Blaðsíða 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2022
✝
Alfreð Elías
Sveinbjörnsson
fæddist að bænum
Á í Unadal í
Skagafirði 26. apr-
íl 1924. Hann lést
á Sjúkrahúsi Vest-
mannaeyja 19.
mars 2022.
Foreldrar hans
voru Sveinbjörn
Sigurður Svein-
björnsson, f. 27.
maí 1893, d. 27. júlí 1990, og
Jóhanna Símonardóttir, f. 21.
október 1899, d. 11. desember
1988. Systkini hans eru: Anna
Hallfríður, f. 28. ágúst 1921, d.
18. apríl 2017, Marín, f. 1. apríl
1923, d. 2. mars 2018, Sig-
urlaug, f. 19. september 1927,
Sigurður Bjarni, f. 28. ágúst
1935, d. 18. apríl 2002, Guðrún,
f. 24. október 1937, og Ásdís
Hulda, f. 8. mars 1940.
Alfreð ólst upp að Á í Una-
dal til 1934 að hann flytur að
Ljótsstöðum með foreldrum
sínum og systkinum. Þann 26.
ágúst 1956 kvænist Alfreð Ingi-
björgu Bryngeirsdóttur, f. 6.
október 1925, d. 2. júní 2002.
Foreldrar hennar voru Bryn-
Kristjánsdóttur. Börn þeirra;
Ásgeir Davíð, Ólöf, Björk og
Kristjana. Barnabörn þeirra
eru tvö. 4) Jóhanna, f. 29.10.
1965, gift Ólafi Tý Guðjónssyni.
Börn þeirra; Eva, Bjartur Týr
og Ólafur Freyr og eiga þau
eitt barnabarn. Ingibjörg og
Alfreð ólu upp sonarson sinn
frá tveggja ára aldri, fóst-
ursoninn 5) Alfreð Elías, f.
12.8. 1976, kvæntur Berglindi
Friðriksdóttur og eiga þau þrjú
börn. Fyrir átti Ingibjörg 6)
Bryngeir, f. 27.7. 1945, kvænt-
ur Ástu Margréti Krist-
insdóttur. Börn þeirra; Eyja,
Ingibjörg og Nanna. Barna-
börnin eru tvö. 7) Lovísa Guð-
rún, f. 5.9. 1946, d. 16.1. 1980,
gift Þresti Bjarnasyni, f. 23.8.
1945, d. 15.11. 2000. Börn
þeirra eru Heimir og Jónína.
Barnabörnin eru fimm og
barnabarnabörnin þrjú. Alfreð
vann hefðbundin sveitastörf og
verkamannavinnu framan af
ævinni. Alfreð lærði pípulögn
hjá Sigursteini Marinóssyni
1964-1968 og starfaði við þá
iðn hjá Miðstöðinni í Vest-
mannaeyjum og síðar í Grinda-
vík sem sjálfstæður
pípulagningameistari, þar til að
hann lét af störfum sökum ald-
urs.
Útför Alfreðs fer fram frá
Landakirkju í dag, 9. apríl
2022, og hefst athöfnin klukk-
an 13.
geir Torfason, f.
26. september
1895, d. 9. maí
1939, og Lovísa
Gísladóttir, f. 18.
júní 1895, d. 30.
mars 1979. Heimili
Alfreðs og Ingi-
bjargar var að
Gerði í Vest-
mannaeyjum fram
að gosi, en þá
misstu þau hús
sitt. Þau settust að í Grindavík,
í Norðurvör 5 og áttu þar
heimili til 2001 er þau flytja að
Strembugötu 4 í Vest-
mannaeyjum. Heimili Alfreðs
síðastliðin tvö ár var að Eyja-
hrauni 1f. Börn þeirra eru: 1)
Jóhann Þórir, f. 22.9. 1957,
kvæntur Ingibjörgu Áslaugs-
dóttur. Börn þeirra eru Alfreð
Elías, Magnús Örn, Ragnar
Daði og Áslaugur Andri.
Barnabörn þeirra eru níu. 2)
Sveinbjörn Símon Alfreðsson, f.
7.11. 1960, kvæntur Gunnhildi
Björgvinsdóttur. Börn þeirra;
Inga Björg, Sara og Emil Daði.
Barnabörnin eru átta. 3) Sig-
urður Björn, f. 25.8. 1962,
kvæntur Margréti Elísabet
Ég er svo lánsöm að hafa átt
góðan pabba sem bar hag minn
og minna fyrir brjósti og ég fékk
að hafa lengi hjá mér. Pabbi var
sveitastrákur úr Skagafirði sem
kom á vertíð til Eyja og hitti
hana mömmu mína. Þau stigu
lífsdansinn saman og börnin
fæddust eitt af öðru.
Mamma og pabbi bjuggu í
Eyjum fram að eldgosinu 1973
en þá fór fjölskyldan til Grinda-
víkur. Næg atvinna var fyrir
pípulagningameistara í Grinda-
vík og ílengdist fjölskyldan þar.
Á uppvaxtarárum mínum vann
pabbi mikið og átti lítinn frítíma.
Það var þó alltaf skotist norður í
Skagafjörðinn fagra á sumrin til
að hitta ættingja. Stundum út í
Eyjar í lundaveiði eða á Þjóðhá-
tíð. Pabbi og mamma flytja aftur
til Eyja 2001 en þá var heilsa
mömmu orðin léleg en hún lést
2002. Pabbi bjó sér fallegt heimili
á Strembugötu 4, snyrtimennska
einkenndi pabba og allir hlutir
áttu sinn stað.
Hann lét gamlan draum ræt-
ast og fékk sér gróðurhús, fyrst
eitt og síðan dugði ekkert minna
en tvö. Hann ræktaði sumarblóm
og matjurtir með góðum árangri.
Lánið hans pabba var að fá að
vera með nokkrar ær hjá Guð-
jóni á Látrum og Önnu Svölu en
með þeim og pabba tókst einstök
vinátta. Sveitastrákurinn hafði
engu gleymt og naut sín að
stússa í kringum sauðfé.
Pabbi var mikið með okkur
Óla Tý og strákunum okkar
Bjarti Tý og Óla Frey, hann kom
í hádeginu, sá til þess að strák-
arnir fengju sér eitthvað að
borða og svo skutlaði hann í skól-
ann, íþróttahúsið og á æfingar.
Hann hjálpaði til við heimalær-
dóminn, mætti á fótboltaleiki,
skákmót og sýndi öllu sem þeir
voru að sýsla mikinn áhuga. Kom
á kvöldin og borðaði með okkur,
við grínuðumst stundum með
það að við þyrftum ekki klukku,
pabbi var klukkan okkar. Pabbi
var líka minnið okkar, þegar ein-
hverjar upplýsingar vantaði þá
var viðkvæðið „hann afi man
þetta“. Pabbi var víðlesinn, stál-
minnugur og ákaflega fróður um
menn og málefni. Hann kunni
mikið af lausavísum og sögum,
hvort sem það var vorjafndægur
eða haustjafndægur þá kunni
hann vísu.
Strákarnir mínir fóru í vinnu-
skóla til afa, þar lærðu þeir að
hugsa um garðinn, slá, reyta,
planta blómum, skrapa og mála
og annað tilfallandi. Þegar pabbi
keyrði ekki lengur snerist dæmið
við. Þeir fóru að skutla honum og
sækja. Pabbi naut þess að vera í
samneyti við unga fólkið. Þjóðhá-
tíð skipar stóran sess í lífi fjöl-
skyldunnar og Alli afi var alltaf
með. Strákarnir mínir og vinir
þeirra í búningafjöri og almennu
sprelli, það líkaði pabba. Sagði
oft við þá að unga fólkið ætti að
vaka lengi og skemmta sér, það
væri nægur tími til að sofa og
hvíla sig þegar árin færðust yfir.
Þegar heilsan fór að gefa sig
sýndi pabbi mikið æðruleysi,
þrautseigju og dugnað. Verst
fannst honum að missa lestrar-
sjónina. Pabba fannst netið hið
mesta undur og átti oft skemmti-
leg myndsamtöl við strákana
okkar, Ólöfu Rögnu og litla Al-
freð Tý sem sýndi afa langa allt
það nýjasta sem hann kunni.
Elsku pabbi minn, takk fyrir allt
sem þú varst mér og mínum,
minning lifir.
Dóttir þín,
Jóhanna.
Alfreð Elías Sveinbjörnsson
tengdafaðir er látinn, rétt tæp-
lega hundrað ára gamall. Alli var
Skagfirðingur að uppruna og
hélt því jafnan hátt á lofti og
hann var Vestmannaeyingur eft-
ir sextíu ára búsetu. Hann átti
einnig svo ótalmargar hliðar,
hann var laghentur iðnaðarmað-
ur, bóndi og blómaunnandi og
svo ótalmargt annað. Hann er
uppalinn í sveitinni í Skagafirði
en flutti upp úr tvítugu, vann ým-
is störf víða um land þar til hann
lenti úti í Eyjum 1949. Þar fann
hann eiginkonu sína, Ingibjörgu
Bryngeirsdóttur. Alli lærði pípu-
lagningar en í kjölfar Heimaeyj-
argossins 1973 flutti hann ásamt
fjölskyldu til Grindavíkur. Þegar
ég og Jóhanna, dóttir Alfreðs og
Ingibjargar, fórum að draga okk-
ur saman þá voru fyrstu kynni
mín af tilvonandi tengdaforeldr-
um eftirminnileg. Ég ætlaði að
læðast til að hitta Jóhönnu en þá
sátu hjónin í stofunni og biðu eft-
ir þessum strák úr Eyjum. Þau
voru ekkert nema elskulegheitin
og spurðu frétta úr Eyjum, af
mönnum sem þau þekktu, tíðar-
fari og gæftum almennt. Þau
sögðu mér einnig frá svo ótal-
mörgu úr Eyjum frá því fyrir
gos. Þau voru eiginlega að segja
frá „Veröld sem var“ og það
mátti finna hve sterk sú veröld
var í lífi þeirra. Þegar ég fyrsta
vorið kom síðan með nýorpin egg
úr björgunum í Eyjum, lunda um
mitt sumar og súlu að hausti þá
þóttist ég vera nokkuð öruggur
um að flutningur Jóhönnu til mín
út í Eyjar yrði fyrirgefinn. Enda
kom það á daginn og líklega hef-
ur það átt stóran þátt í að þau
fluttu einnig út til Eyja þegar ár-
in færðust yfir og starfsævinni
lauk. Því miður var Ingibjörg
orðin lasin þegar þau fluttu aftur
2001 en hún lést 2002. Alfreð er
af þeirri kynslóð sem þurfti að
hafa eitthvað fyrir stafni. Ég og
Sigurður sonur hans reistum
gróðurhús við litla húsið hans á
Strembugötu 4. Alli hafi óskap-
lega gaman af blómarækt og
hafði, eins og sagt er, græna
fingur. Þetta var engan veginn
nóg og segja má að allt árið hafið
verið sett upp í vinnulotur því um
það bil sem blómaræktin var klár
hvert ár þá var komið að sauð-
burði. Í einhverju bríaríi hafði ég
spurt Guðjón Jónsson frá Látr-
um hvort hann vildi ekki leyfa
honum Alla að hafa tvær gimbr-
ar í fjárhúsunum. Guðjón jánkaði
þessu og í kjölfarið tókst með
þeim yndislegur vinskapur og
þau hjónin Gaui og Anna Svala
hafa alla tíð verið Alla afar kær.
Hann fann sér einnig hlutverk
þegar drengirnir mínir voru að
alast upp, var til staðar í hádeg-
ishléi, skutlaðist með þá og réð
þá sem vinnumenn í sumarstörf.
Það enginn vafi í mínum huga að
hjá afa sínum lærðu drengirnir
vinnubrögð og vinnulag sem end-
ast mun þeim allt lífið. Alfreð
missti aldrei áhugann á líðandi
stundu. Við ræddum gæði rafbíla
einhverju sinni og hann segir:
„Ef ég væri nú bara áttræður þá
myndi ég fá mér rafbíl.“ Þetta
varð eins konar frasi hjá fjöl-
skyldunni eftir það: „Ja, ef ég
væri nú bara áttræður.“ Þá má
ekki gleyma því hversu innilega
ánægður hann var með nafna
sinn Alfreð Tý en á milli þeirra
voru 96 ár. Hann var barna-
barnabarn númer 27. Hafðu
þökk fyrir allt og allt kæri Alli.
Ólafur Týr Guðjónsson.
Elsku tengdapabbi er fallinn
frá á 98. aldursári sínu og langar
mig með örfáum orðum að minn-
ast hans. Þegar ég kom inn í fjöl-
skylduna fyrir 30 árum var mér
og dóttur minni svo sannarlega
tekið með opnum örmum og
hlýju. Allar götur síðan hefur
hann fylgst vel með okkur og öll-
um sínum afkomendum með
miklum áhuga og gleði allt fram
á síðasta dag, enda minnisgóður
með afbrigðum. Mun svo sann-
arlega geyma í hjarta mínu allar
góðu og fallegu samverustund-
irnar okkar. Takk fyrir allt, elsku
besti, og bið að heilsa í sumar-
landið.
Öllu er skapað að skilja
er skín á himinsins ljós,
jafnt eikin hin forna fellur
sem fegursta heimsins rós.
(Þorvaldur Sæmundsson.)
Þín tengdadóttir,
Margrét Elsabet.
Þótt elsku afi sé farinn frá
okkur er ennþá svo margt sem
við getum lært af honum. Eitt af
því sem mér fannst einkenna afa
og mig langar að tileinka mér er
hvað hann var alltaf hreinn og
beinn og sat aldrei á skoðunum
sinum.
Það sem einkenndi afa hins
vegar allra mest var hversu mik-
ill fjölskyldumaður hann var.
Hann fylgdist svo vel með okkur
öllum og vissi hvað allir voru að
aðhafast í lífinu. Afi var til dæmis
einn af fáum í fjölskyldunni sem
mundu frá fyrsta degi hvað nám-
ið sem ég var í héti, það vafðist
fyrir sumum fyrstu árin … en
aldrei elsku afa.
Eitt af því síðasta sem afi
sagði við mig þegar ég var hjá
honum uppi á spítala var „ég
hefði ekki getað beðið um betri
börn“ og mér finnst það lýsa afa i
hnotskurn. Hugsandi um fjöl-
skylduna sína fram á síðustu
stundu.
Elsku besti Alli afi, takk fyrir
allar góðu stundirnar sem við
áttum, allt það sem þú hefur gef-
ið af þér og kennt okkur. Ég veit
að Imba amma hefur tekið vel á
móti þér í sumarlandinu góða.
Kristjana Sigurðardóttir.
Alli afi var ekki bara ljúfur og
skemmtilegur heldur líka stór-
merkilegur maður. Fæddur fyrir
nærri því heilli öld en skildi
mann samt oft best. Þótt við höf-
um ekki komið inn í líf hvort ann-
ars fyrr en seinna þá leið mér
alltaf eins og hann væri einn af
mínum helstu stuðningsmönn-
um, hvort sem var í leik eða
starfi.
Eitt sinn verða allir menn að deyja
eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það, en samt ég verð að
segja
að sumarið líður allt of fljótt.
Takk fyrir stuðninginn, kaffi-
bollana og allt hitt. Ástar- og
saknaðarkveðja,
Ólöf Ragnarsdóttir.
Alfreð Elías
Sveinbjörnsson
Stapahrauni 5, Hafnarfirði
Sími: 565 9775
www.uth.is - uth@uth.is
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Kristín
699 0512
Ástkær systir okkar og frænka,
LILJA SIGURÐARDÓTTIR
frá Kirkjubóli, Mosdal, Arnarfirði,
áður Laugarnesvegi 76,
lést á Droplaugarstöðum laugardaginn
2. apríl. Útför hennar fer fram frá
Fossvogskirkju þriðjudaginn 12. apríl klukkan 13.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Droplaugarstaða fyrir hlýja og
góða umönnun.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigurjón M. Sigurðsson
Kristinn Sigurðsson
Jóna Kristjana Kristinsdóttir
Sigurður Kristinsson
Óskar Kristinsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
FANNEY INGIBJÖRG
SÆBJÖRNSDÓTTIR,
Eyja í Tungu,
Suðurgötu 17-21,
Sandgerði,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja,
föstudaginn 1. apríl. Útförin fer fram frá Sandgerðiskirkju
miðvikudaginn 13. apríl klukkan 13.
Edda Jóhannsdóttir Dagur Ingimundarson
Sigurður Þ. Jóhannsson Árný Viggósdóttir
Ásta Sæbjörg Jóhannsdóttir Guðmundur Sveinsson
Ingibjörn Jóhannsson Ragnhildur Vilhjálmsdóttir
Sesselja Jóhannsdóttir Örn Högnason
Hulda Ósk Jóhannsdóttir
Sólrún Henriksdóttir
Óskar F. Jóhannsson Bjarney Finnbogadóttir
Svanhvít S. Jóhannsdóttir Jón Kristjánsson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
TRYGGVI HELGASON
flugmaður,
lést í Albuquerque, Nýju-Mexíkó, USA,
fimmtudaginn 31. mars.
Helgi Tryggvason Janice Tryggvason
Guðlaug Inga Tryggvadóttir Valur Fannar
Svandís Tryggva Petreud. Sigurjón Már Manfreðsson
Tryggvi Pétur Tryggvason Jonna Lilly
Ingveldur Tryggva Petreud.
Anna Bryndís Tryggvadóttir Hallgrímur Þórhallsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar,
AGNES JÓHANNSDÓTTIR,
er látin.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Soffía Haraldsdóttir
Ásdís Haraldsdóttir
Jóhann Haraldsson
Sveinn Haraldsson
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, langafi og bróðir,
JÓN SIGFÚSSON,
Hraunsvegi 15, Ytri-Njarðvík,
lést á Hrafnistu Nesvöllum mánudaginn
4. apríl. Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkur-
kirkju þriðjudaginn 12. apríl klukkan 13.
Fjölskyldan vill koma á framfæri þökkum til starfsfólks Nesvalla
fyrir kærleiksríka umönnun.
Erna Sigríður Einarsdóttir
Tryggvi Daníel Jónsson
Ingibjörg Jónsdóttir Ásgeir Eyþórsson
Anna María Jónsdóttir Emil Hafsteinsson
barnabörn, barnabarnabarn
og aðrir ástvinir