Morgunblaðið - 09.04.2022, Síða 30

Morgunblaðið - 09.04.2022, Síða 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2022 ✝ Alfreð Elías Sveinbjörnsson fæddist að bænum Á í Unadal í Skagafirði 26. apr- íl 1924. Hann lést á Sjúkrahúsi Vest- mannaeyja 19. mars 2022. Foreldrar hans voru Sveinbjörn Sigurður Svein- björnsson, f. 27. maí 1893, d. 27. júlí 1990, og Jóhanna Símonardóttir, f. 21. október 1899, d. 11. desember 1988. Systkini hans eru: Anna Hallfríður, f. 28. ágúst 1921, d. 18. apríl 2017, Marín, f. 1. apríl 1923, d. 2. mars 2018, Sig- urlaug, f. 19. september 1927, Sigurður Bjarni, f. 28. ágúst 1935, d. 18. apríl 2002, Guðrún, f. 24. október 1937, og Ásdís Hulda, f. 8. mars 1940. Alfreð ólst upp að Á í Una- dal til 1934 að hann flytur að Ljótsstöðum með foreldrum sínum og systkinum. Þann 26. ágúst 1956 kvænist Alfreð Ingi- björgu Bryngeirsdóttur, f. 6. október 1925, d. 2. júní 2002. Foreldrar hennar voru Bryn- Kristjánsdóttur. Börn þeirra; Ásgeir Davíð, Ólöf, Björk og Kristjana. Barnabörn þeirra eru tvö. 4) Jóhanna, f. 29.10. 1965, gift Ólafi Tý Guðjónssyni. Börn þeirra; Eva, Bjartur Týr og Ólafur Freyr og eiga þau eitt barnabarn. Ingibjörg og Alfreð ólu upp sonarson sinn frá tveggja ára aldri, fóst- ursoninn 5) Alfreð Elías, f. 12.8. 1976, kvæntur Berglindi Friðriksdóttur og eiga þau þrjú börn. Fyrir átti Ingibjörg 6) Bryngeir, f. 27.7. 1945, kvænt- ur Ástu Margréti Krist- insdóttur. Börn þeirra; Eyja, Ingibjörg og Nanna. Barna- börnin eru tvö. 7) Lovísa Guð- rún, f. 5.9. 1946, d. 16.1. 1980, gift Þresti Bjarnasyni, f. 23.8. 1945, d. 15.11. 2000. Börn þeirra eru Heimir og Jónína. Barnabörnin eru fimm og barnabarnabörnin þrjú. Alfreð vann hefðbundin sveitastörf og verkamannavinnu framan af ævinni. Alfreð lærði pípulögn hjá Sigursteini Marinóssyni 1964-1968 og starfaði við þá iðn hjá Miðstöðinni í Vest- mannaeyjum og síðar í Grinda- vík sem sjálfstæður pípulagningameistari, þar til að hann lét af störfum sökum ald- urs. Útför Alfreðs fer fram frá Landakirkju í dag, 9. apríl 2022, og hefst athöfnin klukk- an 13. geir Torfason, f. 26. september 1895, d. 9. maí 1939, og Lovísa Gísladóttir, f. 18. júní 1895, d. 30. mars 1979. Heimili Alfreðs og Ingi- bjargar var að Gerði í Vest- mannaeyjum fram að gosi, en þá misstu þau hús sitt. Þau settust að í Grindavík, í Norðurvör 5 og áttu þar heimili til 2001 er þau flytja að Strembugötu 4 í Vest- mannaeyjum. Heimili Alfreðs síðastliðin tvö ár var að Eyja- hrauni 1f. Börn þeirra eru: 1) Jóhann Þórir, f. 22.9. 1957, kvæntur Ingibjörgu Áslaugs- dóttur. Börn þeirra eru Alfreð Elías, Magnús Örn, Ragnar Daði og Áslaugur Andri. Barnabörn þeirra eru níu. 2) Sveinbjörn Símon Alfreðsson, f. 7.11. 1960, kvæntur Gunnhildi Björgvinsdóttur. Börn þeirra; Inga Björg, Sara og Emil Daði. Barnabörnin eru átta. 3) Sig- urður Björn, f. 25.8. 1962, kvæntur Margréti Elísabet Ég er svo lánsöm að hafa átt góðan pabba sem bar hag minn og minna fyrir brjósti og ég fékk að hafa lengi hjá mér. Pabbi var sveitastrákur úr Skagafirði sem kom á vertíð til Eyja og hitti hana mömmu mína. Þau stigu lífsdansinn saman og börnin fæddust eitt af öðru. Mamma og pabbi bjuggu í Eyjum fram að eldgosinu 1973 en þá fór fjölskyldan til Grinda- víkur. Næg atvinna var fyrir pípulagningameistara í Grinda- vík og ílengdist fjölskyldan þar. Á uppvaxtarárum mínum vann pabbi mikið og átti lítinn frítíma. Það var þó alltaf skotist norður í Skagafjörðinn fagra á sumrin til að hitta ættingja. Stundum út í Eyjar í lundaveiði eða á Þjóðhá- tíð. Pabbi og mamma flytja aftur til Eyja 2001 en þá var heilsa mömmu orðin léleg en hún lést 2002. Pabbi bjó sér fallegt heimili á Strembugötu 4, snyrtimennska einkenndi pabba og allir hlutir áttu sinn stað. Hann lét gamlan draum ræt- ast og fékk sér gróðurhús, fyrst eitt og síðan dugði ekkert minna en tvö. Hann ræktaði sumarblóm og matjurtir með góðum árangri. Lánið hans pabba var að fá að vera með nokkrar ær hjá Guð- jóni á Látrum og Önnu Svölu en með þeim og pabba tókst einstök vinátta. Sveitastrákurinn hafði engu gleymt og naut sín að stússa í kringum sauðfé. Pabbi var mikið með okkur Óla Tý og strákunum okkar Bjarti Tý og Óla Frey, hann kom í hádeginu, sá til þess að strák- arnir fengju sér eitthvað að borða og svo skutlaði hann í skól- ann, íþróttahúsið og á æfingar. Hann hjálpaði til við heimalær- dóminn, mætti á fótboltaleiki, skákmót og sýndi öllu sem þeir voru að sýsla mikinn áhuga. Kom á kvöldin og borðaði með okkur, við grínuðumst stundum með það að við þyrftum ekki klukku, pabbi var klukkan okkar. Pabbi var líka minnið okkar, þegar ein- hverjar upplýsingar vantaði þá var viðkvæðið „hann afi man þetta“. Pabbi var víðlesinn, stál- minnugur og ákaflega fróður um menn og málefni. Hann kunni mikið af lausavísum og sögum, hvort sem það var vorjafndægur eða haustjafndægur þá kunni hann vísu. Strákarnir mínir fóru í vinnu- skóla til afa, þar lærðu þeir að hugsa um garðinn, slá, reyta, planta blómum, skrapa og mála og annað tilfallandi. Þegar pabbi keyrði ekki lengur snerist dæmið við. Þeir fóru að skutla honum og sækja. Pabbi naut þess að vera í samneyti við unga fólkið. Þjóðhá- tíð skipar stóran sess í lífi fjöl- skyldunnar og Alli afi var alltaf með. Strákarnir mínir og vinir þeirra í búningafjöri og almennu sprelli, það líkaði pabba. Sagði oft við þá að unga fólkið ætti að vaka lengi og skemmta sér, það væri nægur tími til að sofa og hvíla sig þegar árin færðust yfir. Þegar heilsan fór að gefa sig sýndi pabbi mikið æðruleysi, þrautseigju og dugnað. Verst fannst honum að missa lestrar- sjónina. Pabba fannst netið hið mesta undur og átti oft skemmti- leg myndsamtöl við strákana okkar, Ólöfu Rögnu og litla Al- freð Tý sem sýndi afa langa allt það nýjasta sem hann kunni. Elsku pabbi minn, takk fyrir allt sem þú varst mér og mínum, minning lifir. Dóttir þín, Jóhanna. Alfreð Elías Sveinbjörnsson tengdafaðir er látinn, rétt tæp- lega hundrað ára gamall. Alli var Skagfirðingur að uppruna og hélt því jafnan hátt á lofti og hann var Vestmannaeyingur eft- ir sextíu ára búsetu. Hann átti einnig svo ótalmargar hliðar, hann var laghentur iðnaðarmað- ur, bóndi og blómaunnandi og svo ótalmargt annað. Hann er uppalinn í sveitinni í Skagafirði en flutti upp úr tvítugu, vann ým- is störf víða um land þar til hann lenti úti í Eyjum 1949. Þar fann hann eiginkonu sína, Ingibjörgu Bryngeirsdóttur. Alli lærði pípu- lagningar en í kjölfar Heimaeyj- argossins 1973 flutti hann ásamt fjölskyldu til Grindavíkur. Þegar ég og Jóhanna, dóttir Alfreðs og Ingibjargar, fórum að draga okk- ur saman þá voru fyrstu kynni mín af tilvonandi tengdaforeldr- um eftirminnileg. Ég ætlaði að læðast til að hitta Jóhönnu en þá sátu hjónin í stofunni og biðu eft- ir þessum strák úr Eyjum. Þau voru ekkert nema elskulegheitin og spurðu frétta úr Eyjum, af mönnum sem þau þekktu, tíðar- fari og gæftum almennt. Þau sögðu mér einnig frá svo ótal- mörgu úr Eyjum frá því fyrir gos. Þau voru eiginlega að segja frá „Veröld sem var“ og það mátti finna hve sterk sú veröld var í lífi þeirra. Þegar ég fyrsta vorið kom síðan með nýorpin egg úr björgunum í Eyjum, lunda um mitt sumar og súlu að hausti þá þóttist ég vera nokkuð öruggur um að flutningur Jóhönnu til mín út í Eyjar yrði fyrirgefinn. Enda kom það á daginn og líklega hef- ur það átt stóran þátt í að þau fluttu einnig út til Eyja þegar ár- in færðust yfir og starfsævinni lauk. Því miður var Ingibjörg orðin lasin þegar þau fluttu aftur 2001 en hún lést 2002. Alfreð er af þeirri kynslóð sem þurfti að hafa eitthvað fyrir stafni. Ég og Sigurður sonur hans reistum gróðurhús við litla húsið hans á Strembugötu 4. Alli hafi óskap- lega gaman af blómarækt og hafði, eins og sagt er, græna fingur. Þetta var engan veginn nóg og segja má að allt árið hafið verið sett upp í vinnulotur því um það bil sem blómaræktin var klár hvert ár þá var komið að sauð- burði. Í einhverju bríaríi hafði ég spurt Guðjón Jónsson frá Látr- um hvort hann vildi ekki leyfa honum Alla að hafa tvær gimbr- ar í fjárhúsunum. Guðjón jánkaði þessu og í kjölfarið tókst með þeim yndislegur vinskapur og þau hjónin Gaui og Anna Svala hafa alla tíð verið Alla afar kær. Hann fann sér einnig hlutverk þegar drengirnir mínir voru að alast upp, var til staðar í hádeg- ishléi, skutlaðist með þá og réð þá sem vinnumenn í sumarstörf. Það enginn vafi í mínum huga að hjá afa sínum lærðu drengirnir vinnubrögð og vinnulag sem end- ast mun þeim allt lífið. Alfreð missti aldrei áhugann á líðandi stundu. Við ræddum gæði rafbíla einhverju sinni og hann segir: „Ef ég væri nú bara áttræður þá myndi ég fá mér rafbíl.“ Þetta varð eins konar frasi hjá fjöl- skyldunni eftir það: „Ja, ef ég væri nú bara áttræður.“ Þá má ekki gleyma því hversu innilega ánægður hann var með nafna sinn Alfreð Tý en á milli þeirra voru 96 ár. Hann var barna- barnabarn númer 27. Hafðu þökk fyrir allt og allt kæri Alli. Ólafur Týr Guðjónsson. Elsku tengdapabbi er fallinn frá á 98. aldursári sínu og langar mig með örfáum orðum að minn- ast hans. Þegar ég kom inn í fjöl- skylduna fyrir 30 árum var mér og dóttur minni svo sannarlega tekið með opnum örmum og hlýju. Allar götur síðan hefur hann fylgst vel með okkur og öll- um sínum afkomendum með miklum áhuga og gleði allt fram á síðasta dag, enda minnisgóður með afbrigðum. Mun svo sann- arlega geyma í hjarta mínu allar góðu og fallegu samverustund- irnar okkar. Takk fyrir allt, elsku besti, og bið að heilsa í sumar- landið. Öllu er skapað að skilja er skín á himinsins ljós, jafnt eikin hin forna fellur sem fegursta heimsins rós. (Þorvaldur Sæmundsson.) Þín tengdadóttir, Margrét Elsabet. Þótt elsku afi sé farinn frá okkur er ennþá svo margt sem við getum lært af honum. Eitt af því sem mér fannst einkenna afa og mig langar að tileinka mér er hvað hann var alltaf hreinn og beinn og sat aldrei á skoðunum sinum. Það sem einkenndi afa hins vegar allra mest var hversu mik- ill fjölskyldumaður hann var. Hann fylgdist svo vel með okkur öllum og vissi hvað allir voru að aðhafast í lífinu. Afi var til dæmis einn af fáum í fjölskyldunni sem mundu frá fyrsta degi hvað nám- ið sem ég var í héti, það vafðist fyrir sumum fyrstu árin … en aldrei elsku afa. Eitt af því síðasta sem afi sagði við mig þegar ég var hjá honum uppi á spítala var „ég hefði ekki getað beðið um betri börn“ og mér finnst það lýsa afa i hnotskurn. Hugsandi um fjöl- skylduna sína fram á síðustu stundu. Elsku besti Alli afi, takk fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum, allt það sem þú hefur gef- ið af þér og kennt okkur. Ég veit að Imba amma hefur tekið vel á móti þér í sumarlandinu góða. Kristjana Sigurðardóttir. Alli afi var ekki bara ljúfur og skemmtilegur heldur líka stór- merkilegur maður. Fæddur fyrir nærri því heilli öld en skildi mann samt oft best. Þótt við höf- um ekki komið inn í líf hvort ann- ars fyrr en seinna þá leið mér alltaf eins og hann væri einn af mínum helstu stuðningsmönn- um, hvort sem var í leik eða starfi. Eitt sinn verða allir menn að deyja eftir bjartan daginn kemur nótt. Ég harma það, en samt ég verð að segja að sumarið líður allt of fljótt. Takk fyrir stuðninginn, kaffi- bollana og allt hitt. Ástar- og saknaðarkveðja, Ólöf Ragnarsdóttir. Alfreð Elías Sveinbjörnsson Stapahrauni 5, Hafnarfirði Sími: 565 9775 www.uth.is - uth@uth.is Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Kristín 699 0512 Ástkær systir okkar og frænka, LILJA SIGURÐARDÓTTIR frá Kirkjubóli, Mosdal, Arnarfirði, áður Laugarnesvegi 76, lést á Droplaugarstöðum laugardaginn 2. apríl. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 12. apríl klukkan 13. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Droplaugarstaða fyrir hlýja og góða umönnun. Fyrir hönd aðstandenda, Sigurjón M. Sigurðsson Kristinn Sigurðsson Jóna Kristjana Kristinsdóttir Sigurður Kristinsson Óskar Kristinsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, FANNEY INGIBJÖRG SÆBJÖRNSDÓTTIR, Eyja í Tungu, Suðurgötu 17-21, Sandgerði, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, föstudaginn 1. apríl. Útförin fer fram frá Sandgerðiskirkju miðvikudaginn 13. apríl klukkan 13. Edda Jóhannsdóttir Dagur Ingimundarson Sigurður Þ. Jóhannsson Árný Viggósdóttir Ásta Sæbjörg Jóhannsdóttir Guðmundur Sveinsson Ingibjörn Jóhannsson Ragnhildur Vilhjálmsdóttir Sesselja Jóhannsdóttir Örn Högnason Hulda Ósk Jóhannsdóttir Sólrún Henriksdóttir Óskar F. Jóhannsson Bjarney Finnbogadóttir Svanhvít S. Jóhannsdóttir Jón Kristjánsson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, TRYGGVI HELGASON flugmaður, lést í Albuquerque, Nýju-Mexíkó, USA, fimmtudaginn 31. mars. Helgi Tryggvason Janice Tryggvason Guðlaug Inga Tryggvadóttir Valur Fannar Svandís Tryggva Petreud. Sigurjón Már Manfreðsson Tryggvi Pétur Tryggvason Jonna Lilly Ingveldur Tryggva Petreud. Anna Bryndís Tryggvadóttir Hallgrímur Þórhallsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, AGNES JÓHANNSDÓTTIR, er látin. Jarðarförin verður auglýst síðar. Soffía Haraldsdóttir Ásdís Haraldsdóttir Jóhann Haraldsson Sveinn Haraldsson Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, JÓN SIGFÚSSON, Hraunsvegi 15, Ytri-Njarðvík, lést á Hrafnistu Nesvöllum mánudaginn 4. apríl. Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkur- kirkju þriðjudaginn 12. apríl klukkan 13. Fjölskyldan vill koma á framfæri þökkum til starfsfólks Nesvalla fyrir kærleiksríka umönnun. Erna Sigríður Einarsdóttir Tryggvi Daníel Jónsson Ingibjörg Jónsdóttir Ásgeir Eyþórsson Anna María Jónsdóttir Emil Hafsteinsson barnabörn, barnabarnabarn og aðrir ástvinir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.