Morgunblaðið - 09.04.2022, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 09.04.2022, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2022 Borgarstjórn vísaði á dögunum tillögu Eyþórs Arnalds, borg- arfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, um að Orkuveitunni, OR, verði falið að skoða virkjunarmöguleika á starfs- svæði sínu til stjórn- ar OR. Inntur álits á þessu sagðist Bjarni Bjarnason, forstjóri OR, „vara stórlega við virkjanagræðgi“ og sagði „enga ástæðu til að hlaupa núna“. Hann sagði þó að fylgt væri „fullnýtingarstefnu“, nema hvað, og að vilji væri til að nýta virkjanir betur. - - - Vissulega er jákvætt að forstjór- inn sé ekki alfarið á móti orku- vinnslu, en í ljósi þess að skortur hefur verið á orku og að ekkert út- lit er fyrir að það breytist, nema síður sé, þá gefa viðbrögðin ekki góðar vonir um að OR verði hluti af lausn orkumála landsins. - - - Fyrir þinginu liggur nú frum- varp umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um að breyta lög- um um verndar- og orkunýting- aráætlun á þann veg að hægt verði að stækka virkjanir með það að markmiði að hraða framkvæmdum við að auka afkastagetu. - - - Þetta er jákvæð lagfæring á lög- unum, en dugar ekki til þegar fyrir liggur að lagaramminn um þessi mál hefur ítrekað verið mis- notaður til að koma í veg fyrir framkvæmdir. - - - Augljóst er að þörf er á viðhorfs- breytingu í þessum málaflokki sé alvara á bak við þau orð að Ís- land eigi að auka innlenda orku- notkun, og þó ekki væri nema til þess eins að tryggja nauðsynlega orku við núverandi skipan orku- mála. Þörf er á viðhorfsbreytingu STAKSTEINAR Til stendur að gera landfyllingar við Leiruveg á Akureyri. Tilgangurinn er að koma fyrir aðflugs- ljósum fyrir Akureyrarflugvöll til að uppfylla kröfur um bætt aðflugsskilyrði og flugöryggi. Vegna þessa hefur Akureyrarbær auglýst breytingu á deiliskipulagi að beiðni Isavia, sem rekur flugvöllinn. Skipulagssvæðið afmarkast af Leiruvegi til suð- urs og Drottningarbraut til vesturs. Tillagan gerir ráð fyrir að austast á skipulagssvæðinu verði bætt við landfyllingu út í sjó til suðurs og norðurs frá Leiruvegi. Landfyllingin mun ná tæplega 200 metra í norður frá Leiruvegi og verður um 0,5 hektarar að flatarmáli. Fyllingin verður afgirt og ekki ætluð almenningi. Aðflugsljós verða sett upp í átta ljósasamstæðum með 30 metra millibili. Þau verða 4,8 metra yfir miðlínu Leiruvegar þar sem þau verða hæst en lækka fjær veginum. Ljósin verða einungis kveikt meðan á aðflugi stendur og blikka ekki, heldur lýsa stöðugt. Fram kemur í auglýsingunni að með uppsetn- ingu búnaðarins aukist einnig öryggi í sam- göngum við landið í aðstæðum eins og voru í Eyja- fjallagosinu 2010. Þá gegndi Akureyrarflugvöllur mikilvægu hlutverki sem varaflugvöllur fyrir Keflavíkurflugvöll. Tillöguna er að finna á heima- síðu Akureyrarbæjar og er athugasemdafrestur til 10. apríl. sisi@mbl.is Aðflugsljós sett upp á landfyllingu Morgunblaðið/Árni Sæberg Vél í aðflugi Hin nýju aðflugsljós verða sett upp á landfyllingu við norðurenda flugbrautarinnar. Jóhann Már Maríus- son, verkfræðingur og fyrrverandi aðstoðar- forstjóri Landsvirkj- unar, er látinn, 86 ára að aldri. Jóhann Már var fæddur 16. nóvember 1935 í Reykjavík. For- eldrar hans voru Vig- dís Eyleif Eyjólfs- dóttir húsfreyja og Maríus Jóhannsson verkamaður. Jóhann Már var stúdent frá MR og stundaði að því búnu spænskunám á Spáni. Hann lauk fyrrihlutaprófi í verkfræði frá Há- skóla Íslands 1959 og síðan prófi í verkfræði frá Tækniskóla Danmerk- ur árið 1962. Að loknu námi starfaði hann sem verkfræðingur í Kaupmannahöfn og hjá Vita- og hafnarmálastjórn. Stofnaði og rak ásamt fleirum verk- fræðistofuna Hönnun hf. og var verkfræðingur hjá Rögnvaldi Þor- lákssyni. Jóhann Már kom beint að virkj- anaframkvæmdum árið 1966 þegar hann var eftirlitsverkfræingur við virkjun Þjórsár og fór í framhaldi af því til starfa hjá Landsvirkjun árið 1970, fyrst sem deildarverkfræðingur og síðan aðstoðaryfir- verkfræðingur og yfir- verkfræðingur frá 1977. Hann var ráðinn aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar árið 1983 og gegndi því starfi til starfsloka 2002. Hann sat í ýmsum nefndum í tengslum við starf sitt og var formaður Verkfræð- ingafélagsins 1994- 1995. Hann var gerður að heiðursfélaga Verkfræðinga- félagsins 2007. Hann skrifaði fjöl- margar greinar um orkumál. Hann var forseti Rotaryklúbbsins Reykja- vík-Austurbær 2002 til 2003. Jóhann Már var unnandi ljóða og birtust ljóð eftir hann í Lesbók Morgunblaðsins. Eftirlifandi kona hans er Sigrún Gísladóttir lyfjafræðingur. Þau eiga fjögur börn og tólf barnabörn. Börn þeirra eru Gísli Másson, framkvæmdastjóri hjá Íslenskri erfðagreiningu, Már Másson, pró- fessor í lyfjaefnafræði við Háskóla Íslands, Guðrún Másdóttir tölv- unarfræðingur og Vigdís Másdóttir víóluleikari. Andlát Jóhann Már Maríusson verkfræðingur Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.