Morgunblaðið - 09.04.2022, Page 14

Morgunblaðið - 09.04.2022, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2022 Við erum stolt fyrirtæki á 2022 SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR Morgunblaðið/Eggert Akranes Íbúar sveitarfélagsins eru tæplega 8.000 og mikil fjölgun er í kortunum samfara aukinni atvinnu- uppbyggingu. Tæki- færin virðast liggja við hvert fótmál á Skipaskaga. BAKSVIÐ Andrés Magnússon Stefán E. Stefánsson Mikil íbúafjölgun hefur átt sér stað á Akranesi síðustu árin og virðist ekkert lát þar á. Þegar ekið er inn í bæinn blasa við byggingarkranar og fjölbýlishús af fjölbreyttu tagi rísa í bænum. Mörg þeirra stutt á veg komin en önnur bíða þess að kom- ast í hendur nýrra eigenda innan tíðar. Bæjarfélagið hefur tekið meðvit- aða ákvörðun að byggja upp í loftið enda landlítið. Umkringt minni sveitarfélögum sem af ólíkum ástæðum hafa kosið að standa utan seilingar þegar sameiningar hafa verið ræddar og reyndar. Sævar Freyr Þráinsson hefur verið bæjarstjóri á Akranesi frá árinu 2017, var ráðinn til starfa af meirihluta Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar. Þegar nýr meirihluti Samfylkingar og Fram- sóknarflokks tók við völdum 2018 var umboðið við hann endurnýjað. „Ég gerði það upp við mig nýver- ið að mig langar til þess að halda áfram, þ.e. ef eftirspurn er eftir mínum kröftum,“ útskýrir Sævar en hann segir ekki minni uppgangs- tíma framu ndan en þann sem ríkt hefur síðustu árin og að það freisti sín mjög að fá að koma að þeim málum. Hann segir að tækifærin fram undan tengist bæði þeirri starfsemi sem atvinnulífið byggi nú þegar á en einnig sé stefnt að því að skjóta fleiri styrkum stoðum undir at- vinnulífið þar sem menntun og færni íbúanna nýtist sem best. Skuldastaðan góð Á árunum eftir bankahrun var fjárhagsstaða Akraness ekki upp á marga fiska og margt í viðhaldi bæjarins sem sat á hakanum. Stað- an nú er gjörbreytt og skulda- hlutföll með því lægra sem sést á landinu. Sævar Freyr segir stöðuna góða og að bærinn hafi m.a. safnað upp handbæru fé til þess að geta ráðist í framkvæmdir. Nú sé bærinn að auka skuldir sínar en það sé gert hóflega og kjörin sem bjóðist nú á markaði geri bænum kleift að greiða upp eldri og óhagstæðari lán og greiðslubyrðin muni ekki breyt- ast þótt skuldirnar aukist að nokkru marki. Sævar Freyr segir að Akranes eigi mikið inni þegar kemur að upp- byggingu ferðaþjónustu. Til dæmis er ekkert hótel í bænum en öflugir aðilar skoða nú möguleika á upp- byggingu slíkrar starfsemi. Þótt ferðaþjónustan sé ekki mjög sýnileg í bænum segir Sævar Freyr að greining á því atvinnuleysi sem kom upp í bænum í kjölfar kórónuveir- unnar hafi sýnt að fjöldi fólks hafi haft lifibrauð sitt af þeirri atvinnu- grein þótt atvinnan hafi verið sótt út fyrir bæjarmörkin. Hann segir forréttindi felast í því að eiga eftir að sækja fram í þessari atvinnugrein, eins og raunar mörg- um fleiri. Stór tækifæri í burðarliðnum - Íbúafjölgun á Akranesi - Fjárhagsstaða sveitarfélagsins sterk - Algjör umskipti orðið á innan við áratug - Búa sig undir enn frekari atvinnuuppbyggingu - Bæjarstjórinn vill halda áfram Heimamaður Sævar Freyr er borinn og barnfæddur Skagamaður. Hann hefur verið bæjarstjóri frá 2017 og hefur starfað með tveimur meirihlutum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.