Morgunblaðið - 09.04.2022, Page 20
20 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2022
9. apríl 2022
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 129.17
Sterlingspund 168.96
Kanadadalur 102.89
Dönsk króna 18.957
Norsk króna 14.75
Sænsk króna 13.672
Svissn. franki 138.44
Japanskt jen 1.042
SDR 177.35
Evra 141.0
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 175.3983
« Ein af þeim af-
leiðingum sem inn-
rás Rússa í Úkraínu
hefur í för með sér
er að matvörur í
heiminum hafa
hækkað umtals-
vert. Meðal þeirra
matvara sem Úkra-
ína, sem er rík að
gróðursælum jarð-
vegi, framleiðir eru
sólblómaolía, maís
og hveiti. Þessar vörur hafa hækkað
nokkuð á heimsvísu þar sem rof hefur
orðið í framleiðslu og flutninga-
leiðum vegna stríðsins en það hafa
staðgengilsvörur einnig gert vegna auk-
innar eftirspurnar.
Matvælavísitala Sameinuðu þjóð-
anna hækkaði um 13% í mars, en vísi-
talan mælir allar helstu matvælateg-
undir. Matvæli á borð við grænmætis-
olíu, sykur, kjöt og kaffi hafa hækkað á
bilinu 5-20%. Þessar hækkanir skila sér
ekki strax út í verðlag á matvörum ein-
stakra landa, en gefa þó góða vísbend-
ingu um horfur á næstu misserum.
Matvælaverð hafði fyrir stríðið í
Úkraínu verið það hæsta í tíu ár skv.
fyrrnefndri vísitölu, sem á rætur að
rekja til minni uppskeru víða um heim
sl. 2-3 ár. Sú hækkun mun að öllum
líkindum halda áfram og á vef BBC
kemur fram að sérfræðingar telji að
matvöruverð muni hækka um að
minnsta kosti 15-20% á heimsvísu á
þessu ári.
Búast við 15-20%
hækkun á matvörum
Hækkun á hveiti
veldur hækkun á
öðrum matvælum.
STUTT
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Sprotafyrirtækið Tyme Wear sendi
í janúar frá sér fyrstu fullbúnu ein-
tökin af snjallfatnaði sem það hefur
þróað fyrir íþróttafólk. Búnaðurinn
er eingöngu til
sölu og afhend-
ingar í Banda-
ríkjunum en
stefnt er á Evr-
ópumarkað á
næsta ári.
Fatnaðurinn
er þróaður í sam-
starfi við afreks-
íþróttafólk, eins
og keppendur í
hjólreiðum,
hlaupum, þríþraut og skíðagöngu,
og gæti valdið straumhvörfum í
þjálfun að sögn Arnars Lárussonar
framkvæmdastjóra.
„Framtíðin í íþróttum felst í ein-
staklingsmiðaðri þjálfun þar sem
æfingar eru sérsniðnar að líkams-
ástandi hvers og eins,“ segir Arnar.
40-60 ára fólk
Uppistaðan í notendum kerfisins
er að sögn Arnars 40-60 ára fólk
sem er að reyna að bæta árangur
sinn í íþróttum. „Búnaðurinn hjálp-
ar fólki að fylgjast með þröskuldum
sínum sem aftur aðstoðar það við að
bæta heilsufar sitt,“ útskýrir Arnar.
Búnaður Tyme Wear er eins og
Arnar lýsir honum tæki sem mælir
líkamlegt þol út frá öndun. Skoðað
er hvernig hún bregst við líkamlegu
álagi. „Þetta byggist á þremur
þröskuldum sem tengjast því hvern-
ig líkaminn brennir kolvetnum og
fitu. Eftir því sem álagið á líkamann
eykst brennir hann meira af fitu
inni í vöðvunum sem er hagkvæm-
asti orkuforði líkamans. Þar erum
við öll með tveggja vikna forða.
Tæknin hjálpar þér að fylgjast með
hvernig þú nýtir þennan orkugjafa.
Fyrir íþróttafólk skiptir það gríðar-
legu máli að vita hversu vel þau
geta nýtt fituforða líkamans og
hversu langt hann getur spyrnt
þér.“
Nýtist sykursjúkum
En það eru ekki bara íþróttamenn
sem njóta góðs af hinni nýju tækni.
Hún kemur líka að gagni fyrir sykur-
sjúka. „Hjá sykursjúkum eru sömu
ferlar að verki nema á hinum enda
kúrfunnar. Vandamálið hjá sykursjúk-
um er meðal annars að fólk hættir að
geta brennt fituforðanum.“
Eftir því sem þátttaka almennings í
hvers konar íþróttum eykst hefur eft-
irspurnin eftir mælitækjum eins og
þessum aukist að sögn Arnars. „Menn
borga gjarnan tugi þúsunda fyrir eina
mælingu á rannsóknarstofu. Það má
segja að við séum að gera þessar mæl-
ingar aðgengilegar fyrir hvern sem er
á mun hagkvæmara verði.“
Nemi á treyju
Eins og Arnar útskýrir fær búnaður
Tyme Wear upplýsingar um öndunina
frá nema sem festur er á sérútbúna
treyju. Hjartsláttarupplýsingar frá
snjallúri eru einnig nýttar. „Við lesum
þetta gagnastreymi inn og mælum hve-
nær líkaminn skiptir úr fitubruna yfir í
kolvetnabruna. Fólk getur svo notað
upplýsingarnar við æfingar sínar.“
Síðar á þessu ári mun Tyme Wear
bjóða upp á samtímavinnslu gagna en í
dag þurfa notendur að taka sérstakt 15
mínútna próf heima hjá sér til að fá
fram niðurstöður.
Um framleiðsluhraða búnaðarins
segir Arnar að fyrsta framleiðslan hafi
innihaldið innan við þúsund vörur. „Við
erum að vinna í að skala upp fram-
leiðsluna þannig að við getum framleitt
nokkur þúsund eintök í hverri lotu.
Þetta er í raun mjög nýstárlegt verk-
efni. Þetta er eins og að framleiða iP-
hone-síma sem þarf að þola það að fara
hundrað sinnum í þvottavélina.“
Eingöngu áskrift
Salan fer öll fram í gegnum heima-
síðu Tyme Wear, tymewear.com, og
er um áskriftarfyrirkomulag að ræða.
„Þjónustan gengur út á að þú hefur
alltaf aðgang að þínum þröskuldum,
sem svo aftur hjálpar þér að stilla
æfingaálagið af.“
Hvað fjármögnun félagsins varðar
segir Arnar að Nýsköpunarsjóður at-
vinnulífsins sé meðal hluthafa auk
nokkurs hóps englafjárfesta.
Stefna á Evrópumarkað
með snjallfatnað 2023
Áreynsla Arnar segir framtíðina í íþróttum felast í einstaklingsmiðaðri
þjálfun þar sem æfingar eru sérsniðnar að líkamsástandi hvers og eins.
- Tyme Wear hefur þróað búnað sem fylgist með þröskuldum íþróttafólks
Arnar
Lárusson
Íslandsbanki hefur ákveðið, eftir ítar-
lega greiningu á starfsemi salatfram-
leiðandans VAXA, að flokka alla fjár-
mögnun fyrirtækisins sem græn lán.
Í tilkynningu frá VAXA kemur fram
að Íslandsbanki hafi verið helsti lán-
veitandi VAXA síðustu ár. Aukin
veiting grænna lána er eitt af sjálf-
bærnimarkmiðum Íslandsbanka en
VAXA þurfti að uppfylla þröngt skil-
greindan sjálfbærniramma bankans
sem nær til verkefna í umhverfis-
málum, sjálfbærra verkefna í sjávar-
útvegi og verkefna sem styðja við fé-
lagslega uppbyggingu.
„Við erum Íslandsbanka þakklát
fyrir að hafa trú á okkar sýn og við
hlökkum til að vinna áfram með þeim
að næstu stóru áföngum á leið okkar
að bjóða fólki betra grænmeti á
grænan og sjálfbæran hátt,“ segir
Andri Björn Gunnarsson, stofnandi
VAXA, í tilkynningunni.
VAXA er afurð á svonefndum lóð-
réttum landbúnaði, sem starfræktur
er af fyrirtækinu Hárækt ehf. Stærsti
hluthafi VAXA, með um 40 prósenta
hlut, er félag í eigu Björgólfs Thors
Björgólfssonar, Andra Sveinssonar
og Birgis Más Ragnarssonar, sem
oftast eru kenndir við fjárfesting-
arfélagið Novator.
Þórey G. Guðmundsdóttir var ný-
lega ráðin fjármálastjóri VAXA og
mun leiða uppbyggingu fjármálasviðs
félagsins. Hún var áður fram-
kvæmdastjóri fjármálasviðs Bláa
lónsins um árabil. Þar áður var Þórey
forstöðumaður hagdeildar Samskipa
og á árunum 2004 til 2011 var hún for-
stöðumaður fjármálasviðs Straums
fjárfestingarbanka.
Vistaskipti Þórey G. Guðmunds-
dóttir, nýr fjármálastjóri VAXA.
VAXA fær græna
fjármögnun
- Þórey kemur
frá Bláa lóninu sem
nýr fjármálastjóri
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (með Visa / Euro) í allt að 6 mánuði.
ESTRO Model 3042
L 164 cm Leður ct. 25 Verð 439.000,-
L 198 cm Leður ct. 25 Verð 489.000,-