Morgunblaðið - 09.04.2022, Page 35
MINNINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2022
✝
Ásta Gunn-
arsdóttir fædd-
ist í Reykjavík 3.
febrúar 1944. Hún
lést á Sjúkrahúsinu
á Hvammstanga
22. mars 2022 eftir
langvarandi veik-
indi.
Foreldrar Ástu
voru Gunnar Sím-
onarson loft-
skeytamaður, f.
1923, d. 1953 og Elín Runólfs-
dóttir, húsmóðir og matráðs-
kona, f. 1926, d. 1997. Systkini
Ástu eru: Gunnar, fv. fasteigna-
sali, f. 1945, maki Valgerður
Jónsdóttir ritari, f. 1944, d.
1995; Björk, fv. fulltrúi, f. 1948,
maki Hrafn Björnsson húsa-
smiður, f. 1945, og Rúnar arki-
tekt, f. 1950, maki Helga Jens-
dóttir kennari, f. 1950.
Eiginmaður Ástu var Magnús
Guðmundsson kjötiðnaðar-
maður, f. 1934, en þau skildu.
Börn þeirra og barnabörn eru:
1) Elín Bára íslenskufræðingur,
f. 1962, maki Þorsteinn G. Indr-
iðason prófessor, f. 1959. Börn
þeirra: Lára Margrét sálfræð-
ingur, f. 1995 og Indriði Guð-
mundur rafvirki, f. 2000.
2) Guðrún Lára leikskóla-
stjóri, f. 1964. Fyrri maki:
Kristján Einar Þorvarðarson
sóknarprestur, f. 1957, d. 1999.
Sambýlismaður Unu, Árni Þór
Ragnarsson. Sonur þeirra: Þór,
f. 2021; Magnús Ingi fram-
kvæmdastjóri, f. 1992, sam-
býliskona Ingunn Fanney
Hauksdóttir. Sonur Magnúsar:
Guðmundur Reynir, f. 2009.
Dóttir Magnúsar og Ingunnar:
Emilía Dögg, f. 2019; Unnur
María ferðamálafræðingur, f.
1996, sambýlismaður Andri
Hrafn Ármannsson.
4) Ásta Margrét, starfar við
ferðaþjónustu, f. 1974, maki
Ralph P. Byrne verktaki, f.
1963, þau skildu. Sonur þeirra:
Noah framhaldsskólanemi, f.
2001.
Ásta tók gagnfræðapróf frá
Laugarnesskóla og stundaði
einnig nám við Hanna skolen,
gagnfræðaskóla í Danmörku.
Síðar lærði hún snyrtifræði og
vann við það fag á tímabili.
Ásta starfaði fyrst sem heima-
vinnandi húsmóðir en eftir það
vann hún við verslunarstörf,
lengst af í Kosta Boda-búðinni.
Eftir það starfaði hún við skrif-
stofustörf, fyrst á Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur og
síðar hjá kjötvinnslu Goða.
Ásta bjó lengi í Árbæjar-
hverfi og var mjög virk í fé-
lagsmálum þar. Hún starfaði
lengi fyrir kvenfélag Árbæjar-
kirkju og framfarafélagið í
hverfinu og einnig hverfafélag
sjálfstæðismanna í Árbæjar-
hverfi en hún var m.a. formað-
ur þess á tímabili.
Útförin fór fram í kyrrþey.
Seinni maki: Guðni
Þór Ólafsson
sóknarprestur, f.
1952. Sonur Guð-
rúnar og barna-
börn: Tómas Arn-
arson, fram-
kvæmdastjóri, f.
1981, maki
Pornphan Wongc-
han. Dætur þeirra:
Guðrún Lára, f.
2019 og óskírð, f.
2021. Börn og barnabörn Guð-
rúnar og Kristjáns Einars: Þor-
varður framkvæmdastjóri, f.
1989, maki Unnur Margrét Ing-
ólfsdóttir. Dóttir Unnar er Al-
dís Inga Hrannarsdóttir, f.
2006, en börn hennar og Þor-
varðar eru: Kristján Einar, f.
2012 og Edda Lára, f. 2017;
Kristrún hjúkrunarfræðingur,
f. 1991, sambýlismaður Patrek-
ur Patreksson, þau skildu. Syn-
ir þeirra: Tómas Eldur, f. 2017
og Kristján Eldur, f. 2020; Ást-
rós háskólanemi, f. 1993, sam-
býlismaður Arnar Freyr Geirs-
son.
3) Guðmundur fram-
kvæmdastjóri, f. 1966, maki
Lisbeth Thompson, f. 1961.
Börn þeirra og barnabörn: Una
Dögg verkefnastjóri, f. 1986.
Fyrri maki: Ómar Helenuson.
Dætur þeirra: Alexandra Líf, f.
2007 og Andrea Líf, f. 2011.
Það er margt hægt að segja
um hana mömmu og mikil ósköp
er erfitt að kveðja mömmu sína
og sjá á eftir henni. Í mínum
huga var hún stórbrotin kona. Ég
er þakklát fyrir þann tíma sem
við höfum gengið saman. Án
hennar væri ég ekki hér, hún
fæddi mig í þennan heim. Hún
var eins og íslensk veðrátta. Að
eðlisfari var hún glaðvær og hlát-
urmild umhyggjusöm og mátti
ekkert aumt sjá. Hún var ákveðin
og sagði hlutina hreint út og það
var ekki verið að setja hlutina í
neinn silkipappír. Hún var
skemmtileg, stuðpinni og hafði
gaman af að koma fólkinu sínu
saman. Hún átti sína erfiðu tíma
og var þá kvíðin og óörugg. Við
vorum ekki alltaf sammála, þann-
ig er lífið, en við fundum alltaf
lendingu. Hún var stórhuga kona
og fór það sem hún ætlaði sér.
Gjafmild var hún og vildi ávallt
gera vel við sína. Hún reyndist
mér vel allt mitt líf og var til stað-
ar þegar eitthvað var að gerast.
Hún var hjá mér þegar ég eign-
aðist mitt fyrsta barn og hennar
fyrsta barnabarn, hún handleiddi
hún mig í gegnum þann tíma og
ég fann ég til mikils öryggis með
hana mér við hlið. Hvatti mig til
náms og ég fann að það var henni
mikils virði að ég fór að hennar
ráði. Stóð eins og klettur mér við
hlið í veikindum Kristjáns Einars
og hlúði vel að börnum á þeim
tíma. Hún átti alltaf í einstöku
sambandi við minn barnahóp og
var þeim góð amma, góður vinur,
hún var alltaf svolítill unglingur í
sér og hún átti trúnað þeirra.
Hún hafði ótrúlegan lífsvilja og
bjó yfir mikilli þrautseigju þrátt
fyrir mikil veikindi. Hún kom
norður til okkar og dvaldi á Heil-
brigðisstofnun Hvammstanga
eða hjúkrunarheimili síðustu sjö
mánuði, hún vildi aldrei tala um
að hún væri á slíku heimili, sagði
bara að það þarf ekki að tala um
það. Það var gott að fá að fylgja
henni eftir síðustu mánuði lífs
hennar og hún var hæst ánægð
að barnabarnið hún Kristrún
hjúkraði henni þennan tíma, hún
elskaði það. Það sem einkenndi
hana mömmu var að hún var
glæsileg kona smart í sér og
gerði alla hluti vel hún var fag-
urkeri og sannkölluð listakona.
Ég hélt í hennar hendi þegar hún
kvaddi og ég kveð og þakka fyrir
samfylgdina og bið góðan Guð að
vaka yfir og allt um kring með ei-
lífri blessun sinni, eða eins og
mamma sagði Guð gefi þér góða
nótt. Þín dóttir
Guðrún Lára Magnúsdóttir.
…
Engu þarf að kvíða.
Nú kular úr opnum skörðum
og lækurinn hljóðnar í lautunum mér
að baki.
Engu þarf að kvíða, klárinn fetar sinn
veg, stefnir
inn í nóttina með stjörnu í enni.
(Hannes Pétursson)
Það er margs að minnast við
þessi tímamót nú þegar elskuleg
tengdamóðir mín Ásta Gunnars-
dóttir hefur kvatt þessa tilveru.
Ég minnist þess þegar Lára
Margrét kom í heiminn og Ásta
mætti upp á fæðingarstofu kort-
eri eftir fæðingu, sveiflaði sér inn
um dyrnar og spurði eftir nýju
barnabarni. Og svo tók hún bara
yfir stjórnina á stofunni sem var
ágætt. Þegar heim var komið
með frumburðinn í Garðastræti
hafði Ásta tekið þannig til í íbúð-
inni að maður gat speglað sig í
gólfum sem hafði ekki verið hægt
hingað til og íbúðin var sem ný þó
gömul væri.
Þannig var Ásta, þrældugleg
til allra verka meðan heilsan
leyfði og fús til þess að rétta sín-
um nánustu hjálparhönd beðin og
óumbeðin. Oft kom það fyrir að
maður var í basli með einhverja
hluti, hvort sem það var bíllinn
eða eitthvað í íbúðinni og kjörin
kröpp til viðgerða og viðhalds.
Um leið og Ásta heyrði af slíkum
hlutum var hún óðar komin í sím-
ann að tala við fólk sem maður
þekkti ekkert til og sem gat þá
leyst úr þessum málum en það
sýndi hversu vel tengd hún var
inn í þjóðfélagið á tímabili.
Ásta var líka einstök í kringum
börnin okkar og hún var alltaf til í
að hafa þau hjá sér. Mér fannst
oft sem henni liði betur meðal
barna en fullorðinna; börnin
skildu hana og dáðu og hún náði
sambandi við þau á einhvern sér-
stakan og fallegan hátt. Í ófáum
heimsóknum frá Noregi var alltaf
erfiðust stundin fyrir börnin að
skilja við ömmu Ástu. Þessum
sérstöku tengslum hélt hún allt
til loka þó fjarlægðir væru á milli.
Ásta var fædd lýðveldisárið
1944 og því kom það ef til vill af
sjálfu sér að hún væri sjálfstæð-
ismanneskja. Hún var í Sjálf-
stæðisflokknum og starfaði í
hverfafélagi flokksins í Árbæn-
um um árabil. Við áttum ágæt-
lega skap saman þótt við ættum
ekki pólitíska samleið. Hún lét
mig aldrei finna að hún væri
óánægð með mína afstöðu en í
raun féll sú afstaða hennar líka
vel að túlkun hennar á því að vera
sjálfstæðismanneskja. Sú túlkun
náði langt út yfir flokkinn og allt
það þref sem því fylgir. Hennar
túlkun var miklu fremur sú að
menn ættu að vera sjálfstæðir í
skoðunum og láta ekki deigan
síga hvað sem á dyndi.
Hin seinni ár bilaði heilsan
meir og meir með tíðum sjúkra-
húsheimsóknum. Ásta vildi vera
heima hjá sér þó hún hefði ekki
alltaf heilsu til þess og fékk því ef
til vill ekki notið þess besta sem
íslenskt heilbrigðiskerfi býður
upp á. Á endanum varð úr að hún
fluttist á sjúkrahúsið á Hvamms-
tanga og var þar nálægt Guðrúnu
Láru og fjölskyldu hennar. Þar
lifði hún sína hinstu daga við
góða umönnun.
Á þessari stundu vil ég minn-
ast tengdamóður minnar með
mikilli hlýju og þakklæti um leið
og ég votta aðstandendum samúð
mína. Enginn var betri en Ásta á
sínum bestu dögum og þannig vil
ég muna hana, í miðjum klíðum
að hjálpa sínum nánustu þegar
eitthvað bjátaði á.
Þorsteinn G. Indriðason.
Elsku amma mín!
Þú sem varst alltaf fyrst til að
bjóða fram hjálp þína sama
hvernig á stóð. Þú sem máttir
aldrei neitt aumt sjá.
Faðmur þinn var ávallt opinn
fyrir alla og þá sérstaklega okkur
barnabörnin. Öll þau hundruð
skipta sem við fengum öll að gista
hjá þér og alltaf var pláss fyrir
alla.
Spóla af vídeóleigunni, osta-
popp og saltstangir með ídýfu var
fastur liður.
Takk fyrir að vera alltaf til
staðar þrátt fyrir að hafa þurft að
synda á móti straumnum nánast
alla þína tíð. Þú hafðir þína djöfla
að draga en lífsviljinn og eljan
var með ólíkindum.
Það að sitja hjá þér þegar þú
tókst síðasta andardráttinn er
stund sem ég mun aldrei gleyma.
Takk amma mín fyrir að kenna
mér svo margt um lífið og takk
fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig.
Hvíldu í friði með þeim sem þú
hefur saknað heitt og beðið svo
lengi eftir að hitta á ný.
Þinn vinur,
Þorvarður.
Elsku amma Ásta. Þú varst
engin venjuleg amma, þú varst
frekar eins og besta vinkona okk-
ar og komst fram við okkur eins
og jafningja.
Minningarnar úr æsku eru
margar frá Hraunbæ 52 þar sem
við systur og frænkur vörðum
löngum stundum. Við sömdum
dansa, klæddum okkur upp í
gömul föt, sýndum leikrit, sung-
um og sömdum lög og þú varst
yfirleitt eini áhorfandinn sem
klappaðir okkur upp mörgum
sinnum og okkur leið eins og við
værum Hollywood-stjörnur.
Einnig fórum í búbblubað, þrif-
um stigaganginn og leigðum
spólur. Ávallt voru saltstangir og
vogaídýfa á kantinum. Yfirleitt
fengum við nákvæmlega þann
mat sem við vildum og uppistað-
an voru frosnar pizzur með kok-
teilsósu og kjúklingaleggir í BBQ
með hrísgrjónum og kók. Þetta
þótti okkur æðislegur matur og
ég tala nú ekki um Cocoa Puffs,
allt nammið og Sun Lolly. Amma
elskaði ömmubörnin og lang-
ömmubörnin sín heitt og vildi
vera með þeim öllum stundum og
allt fyrir þau gera, enda vorum
við oft tilbúnar á föstudögum og
ætluðum okkur að fara til henn-
ar.
Amma átti ekki auðvelt upp-
dráttar og hafði það áhrif á hana
allt hennar líf. Þetta gerði það að
verkum að hún gat verið erfið við
okkur sérstaklega eftir að við
vorum komnar á fullorðinsár.
Það voru ekki allir sem skildu
ömmu, eða vissu hennar sögu, en
við fundum djúpa tengingu við
hana sem er erfitt að lýsa með
orðum. Kannski hluti af henni
hafi verið föðurmissir okkar allra
sem skapaði þessa miklu teng-
ingu. En á fullorðinsárunum fór-
um við stundum einar eða saman
til ömmu og ætluðum bara að
kíkja í kaffi til hennar sem varði
langt fram á kvöld. Það var alltaf
svo gott að vera með ömmu.
Amma var líka okkar mesti og
besti stuðningsmaður, hvort sem
maður var á slæmum stað í lífinu
eða að standa sig vel þá var hún
alltaf svo stolt af okkur. Sama
hversu gömul amma varð þá var
hún alltaf jafn ung í anda, hún
sætti sig ekki við að vera orðin
gömul og fannst ekki passa að
taka þátt í starfinu sem var í boði
fyrir ellilífeyrisþegana. Hún vildi
bara vera með okkur, unga fólk-
inu og hafa gaman enda mesti
stuðboltinn.
Eftir nokkurra ára heilsuleysi
hjá ömmu fékkst hún til að fara
inn á sjúkrahúsið á Hvamms-
tanga þar sem ég, Kristrún, var
nýfarin að vinna sem hjúkrunar-
fræðingur. Það var jú aðalástæð-
an fyrir því að hún fékkst til að
leggjast þar inn. Enda hafði
draumur hennar alltaf verið að
eitthvert barnabarnið yrði læknir
eða hjúkrunarfræðingur og
myndi sinna henni í ellinni. Þarna
leið henni vel og samskipti henn-
ar við fjölskyldu urðu betri, hún
var loksins í öruggum höndum.
Hún fékk að kynnast barna-
barnabörnum sínum Tómasi Eldi
og Kristjáni Eldi sem henni þótti
dásamlegt. Það var núna fyrir
stuttu þegar Tómas (4 ára) sat
inni hjá henni og spjallaði um
heima og geima, að hann biður
móður sína vinsamlegast að fara
fram svo þau gætu átt sína stund.
Svona var hún amma, hún lét
manni líða eins og maður væri
einstakur og allt sem maður
sagði skipti höfuðmáli.
Takk amma fyrir allt, við elsk-
um þig og söknum þín.
Þínar uppáhalds,
Kristrún og Ástrós
Kristjánsdætur.
Amma mín, hún Ásta Gunn-
arsdóttir, var einstök kona.
Þegar ég loka augunum og
hugsa til ömmu kemur fyrst upp í
hugann ást hennar á litnum app-
elsínugulum, eða „orange“ eins
og hún kallaði hann. Kossarnir
hennar, sem voru aldrei styttri
en 15 sekúndur, einlæg faðmlög
sem létu allar áhyggjur hverfa og
óstöðvandi astmahlátursköstin
sem komu öllum í gott skap.
Hjá ömmu var maður alltaf
velkominn og ég elskaði að fara
til hennar og gista í Hraunbæn-
um á mínum æskuárum. Við
frænkurnar fengum að koma
saman og vera prinsessur heilu
helgarnar. Hún setti rúllur í hár-
ið á okkur, leyfði okkur að leika
með kjólana og hælana sína og
horfði svo á okkur fara með ótelj-
andi söng- og dansatriði. Kvöldin
enduðu svo oftast á því að við fór-
um allar saman upp í rúm hjá
ömmu þar sem við spjölluðum og
hlustuðum á útvarpið þar sem
kvöldgestir Jónasar Jónassonar
urðu oftast fyrir valinu.
Amma var alltaf minn dygg-
asti stuðningsmaður og það var
alveg sama hversu ómerkilegar
fréttir maður sagði henni af sér
þá fannst henni maður vera al-
gjört ofurmenni og hrósaði
manni í hástert. Amma var traust
og maður þurfti aldrei að skamm-
ast sín þegar maður klúðraði
hlutunum. Hún lét mann alltaf
finna að þetta yrði allt í góðu og
það væri í lagi að gera mistök.
Um síðustu jól fékk ég að sýna
ömmu sónarmynd af ófæddu
stelpunni minni. Hún var svo
ánægð með myndina af henni og
krafðist þess að fá að halda henni
til að sýna öllum sem kæmu í
heimsókn að hún væri sko að
verða amma aftur. Ég veit að
amma mun vaka yfir litlu stelp-
unni minni og passa hana.
Minningarnar eru ómetanleg-
ar og mun ég varðveita þær að
eilífu.
Ég sakna þín og veit að þú ert
komin á betri stað. Ég verð alltaf
þakklát fyrir það að amma mín
var amma Ásta.
Unnur María
Guðmundsdóttir.
Þegar ég var barn eyddi ég
sumarfríunum á Íslandi. Ég man
eftir því að hafa pakkað niður í
ferðatösku minnst viku fyrir
ferðalagið og að hafa hringt í
ömmu mörgum sinnum til þess
að fullvissa mig um að ég gæti
farið beint til hennar og fengið að
gista. Ég man líka eftir tilhlökk-
uninni og óþreyjunni á flugvell-
inum á leið til Íslands.
Amma gat svo auðveldlega
sett sig í inn í hugarheim okkar
barnanna. Hún var forvitin og
tók ríkan þátt í því sem við vorum
að gera hverju sinni. Hún vissi
nákvæmlega á hverju við hefðum
áhuga og sá til þess að þegar við
gistum hjá henni fengjum við að
upplifa allt það sem okkur þótti
best í þessum heimi. Og áhugi
ömmu á því sem maður var að
gera og upplifa hverju sinni
minnkaði ekkert þótt maður yrði
eldri. Það kom nefnilega í ljós að
amma hafði líka verið unglingur
eitt sinn svo hún skildi þetta allt
saman. Ætti maður í erfiðleikum
þá var amma betri en enginn og
það var gott að leita skjóls hjá
henni.
Við gátum talað um allt milli
himins og jarðar, þar á meðal um
uppáhaldslitina okkar og það fór
ekkert á milli mála að applelsínu-
gulur var hennar litur, það sást á
öllu í kringum hana. Í þau fjöl-
mörgu skipti sem ég hef verið í
heimsókn á Íslandi höfum við
barnabörnin spilað á spil við eld-
húsborðið hjá ömmu. Hún var
alltaf fjörug og skemmtileg og ég
held það séu ekki margir sem
geta talað við ömmu sína eins og
jafnaldra sinn. Og seturnar við
eldhúsborðið voru alltaf líflegar
og mikið hlegið.
Við amma höfum kannski oft-
ast talast við í síma gegnum árin.
Hún gaf sér alltaf góðan tíma til
að spjalla og var ekkert á því að
ljúka samtalinu. Það var gott til
þess að vita að það var alltaf
hægt að hringja í hana. Hún vildi
vita allt um líf mitt, það sem ég
hafði upplifað og fólkið sem ég
þekkti.
Elsku amma, þú hefur alltaf
verið stór partur af mér. Öll sam-
tölin og sá stuðningur sem þú
veittir mér var mér gríðarlega
mikilvægur. Þegar ég var lítil má
segja að þú hafir verið „lögfræð-
ingurinn“ í dómsmálinu: Það get-
ur ekkert komið í veg fyrir að við
getum skemmt okkur saman. Þú
varst alltaf minn helsti stuðn-
ingsmaður og ég mun halda
áfram að hugsa og tala til þín
þegar mér finnst ég þurfa á þér
að halda. Ég sé þig álengdar í sól-
setrinu, umvafin þínum lit.
Lára Margrét
Þorsteinsdóttir.
Ásta Gunnarsdóttir
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Óheimilt er að taka efni úr
minningargreinum til birt-
ingar í öðrum miðlum nema
að fengnu samþykki.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að
slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Minningargreinar
Sálm. 17.5-6
biblian.is
Skref mín eru örugg
á vegum þínum,
mér skrikar ekki
fótur. Ég hrópa til
þín því að þú svarar
mér, Guð,...