Morgunblaðið - 09.04.2022, Síða 36
36 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2022
✝
Sigrún Gunn-
arsdóttir fædd-
ist í Reykjavík 14.
júní 1954. Hún lést
á hjartadeild Land-
spítalans 16. mars
2022.
Foreldrar Sig-
rúnar voru þau
Gunnar Pétursson
verslunarmaður, f.
6. júlí 1926, d. 21.
ágúst 1983 og Sig-
rún Guðbjarnadóttir hár-
greiðslukona, f. 26. nóvember
1926, d. 18. september 1982.
Systir Sigrúnar var Sigríður
Halldóra, f. 3. febrúar 1951, d.
Evu, f. 13. nóvember 2013 og Re-
bekku Ástu, f. 23. mars 2017.
Eiginmaður Sigrúnar er Jón
Kristján Johnsen, f. 17. október
1956, og sonur þeirra er Lárus
Kristján, f. 23. janúar 1992.
Sigrún ólst upp í Reykjavík.
Að loknum grunnskóla lá leiðin í
Kvennaskólann og síðar í MR og
Háskóla Íslands þaðan sem hún
útskrifaðist með BS-gráðu í jarð-
fræði. Sigrún kenndi við Mennta-
skólann í Kópavogi, Kvennaskól-
ann og Fjölbrautaskólann í
Ármúla. Hún starfaði um árabil
hjá SKÝRR og Veðurstofunni og
lauk starfsævinni hjá ÍSOR. Þá
var hún meðfram öðrum störfum
formaður Tourette-samtakanna
í um það bil áratug. Meðal
áhugamála hennar var bridge og
lestur góðra bóka auk fé-
lagsstarfa.
Útför Sigrúnar fór fram í
kyrrþey að hennar ósk.
29. nóvember 2019
og börn hennar eru
Gunnar Skúli Guð-
jónsson, Sigrún
Másdóttir/
Vöggsdóttir, Ólafía
Björg Másdóttir og
María Másdóttir.
Synir Sigrúnar
eru tveir: Hrólfur
Sigurðsson, f. 1.
september 1977,
maki Sigurlaug
Mjöll Jónasdóttir, f. 4. apríl 1984.
Hrólfur á tvo syni úr fyrra sam-
bandi, Bjart, f. 19. febrúar 2002
og Teit, f. 21. júlí 2004, og tvær
dætur með Sigurlaugu, Rakel
Elsku Sigrún eða Rúna frænka
mín og móðursystir mín er farin
frá okkur allt of snemma. Hún var
mér einstaklega kær og var ég
skírð Sigrún í höfuðið á henni og
ömmu minni. Upplifði ég stundum
eins og ég væri dóttir hennar.
Þrátt fyrir að hún hafi átt við
margskonar erfið veikindi að
stríða frá því að hún var ung að
aldri þá var hún einstaklega sterk
og dugleg. Hún vildi yfirleitt lítið
tala um veikindin sín og sinnti hún
bæði vinnu sinni og sínu fólki alltaf
af alúð. Sérstaklega fann maður
alltaf hversu mikið strákarnir
hennar og barnabörnin áttu stór-
an hlut í hjarta hennar og hún
naut þess mikið að segja mér frá
barnbörnunum sínum. Stórfjöl-
skyldan var henni einnig alltaf
kær og var hún ávallt í sambandi
við gamlar frænkur og fræddi hún
mig sérstaklega um þær og hvar
þær voru staddar í lífinu.
Rúna var jarðfræðingur að
mennt og vann sem kerfisfræðing-
ur síðastliðin ár. Rúna var einstak-
lega nákvæm í öllum sínum vinnu-
brögðum og það kom sér mjög vel
fyrir mig þegar hún las yfir verk-
efni mín í háskólanum og sérstak-
lega nýkláraða mastersritgerð.
Hún setti sig vel inn í hvert verk-
efni þrátt fyrir að þau væru alls
ekki innan hennar áhugasviðs,
voru það vinnubrögðin sem hún
lagði alla áherslu á. Þrátt fyrir að
við værum ekki alltaf endilega
sammála komumst við alltaf að
góðri niðurstöðu. Rúna starfaði
einnig við kennslu í nokkur ár og
veit ég að nemendur hennar voru
heppnir með hana sem kennara,
sérstaklega í stærðfræði sem var
hennar sérsvið. Allir innan fjöl-
skyldunnar vissu hversu greiðvik-
in hún var og þegar Rúna hafði
lesið yfir verkefni eða sinnt ann-
arskonar málum sem kröfðust ná-
kvæmnisvinnu gat maður treyst
því að hlutirnir væru vel gerðir.
Samband systranna var hjart-
næmt og náið alla tíð þar sem þrjú
ár voru á milli þeirra í aldri, þó
voru þær ólíkar að mörgu leyti en
báðar mjög nákvæmar í öllum
vinnubrögðum. Ekki er lengra
síðan en rúm tvö ár að elskuleg
móðir mín Sigríður kvaddi okkur
og sinnti Rúna móður okkar
systkinanna einstaklega vel í
hennar erfiðu veikindum fram á
síðasta dag. Vorum við systkinin
henni afar þakklát og áttu þær
systur góðan tíma saman.
Mamma hafði alla tíð einstaklega
gaman af því að elda góðan mat
fyrir þær systur, okkur börnin sín
og einnig vini.
Rúna eignaðist margar góðar
vinkonur í gegnum tíðina og hluta
af þeim hafði hún kynnst ung og
voru þær stór hluti af hennar lífi
alla tíð þrátt fyrir að nokkrar búi
víðs vegar um heiminn. Rúna
hafði áhuga á að heimsækja
spennandi staði á landinu okkar
og minnist ég þess þegar Stefán
maður minn fór með hana að
skoða eldgosið í Eyjafjallajökli
þar sem eldgos eiga sér ekki stað á
hverjum degi. Stefán hafði ekki
síður gaman af og fékk nákvæma
og skemmtilega fræðslu frá jarð-
fræðingnum.
Kæra Rúna mín, nú veit ég að
elsku mamma tekur vel á móti þér
ásamt ömmu og afa og litla fjöl-
skyldan sameinast. Kæri Nonni,
Lalli, Hrólfur, Silla og börn, ég
votta ykkur innilega samúð og
megi góðar minningar um sterkan
gimstein geymast í hjarta okkar.
Þín kæra frænka,
Sigrún systurdóttir.
Frænka mín og vinkona Sigrún
Gunnarsdóttir er látin.
Dauðinn er óvæginn og birtist
þegar hans er síst von. Hann kem-
ur manni í opna skjöldu, kemur
aftan að manni. Getur það verið að
hún Rúna mín elskuleg sé horfin á
braut? Ég reyni að halda henni
nálægt mér með því að minnast
hennar í örfáum orðum.
Hnyttin og skemmtileg var hún
í tilsvörum, fljót að hugsa og fljót
að greina hismið frá kjarnanum.
Eldklár. Hún var gædd ríku skop-
skyni og kryddaði jafnan frásögn
sína með laumulegum og fyndnum
athugasemdum. Brosti sposk í
kampinn en gerði um leið óspart
grín að sjálfri sér. „Geggjaður
húmoristi“ voru orð dóttur minnar
þegar hún minntist hennar nú á
dögunum.
Oft drógust samtöl okkar á
langinn, litríkar umræður fóru á
flug sem stundum virtust engan
enda ætla að taka. Það var alltaf
gefandi að vera í návist hennar og
hlusta á hana ryðja upp úr sér alls
kyns fróðleik um menn og málefni.
Ekki var síðra að rifja saman upp
sólríkar stundir æskuáranna hjá
afa í Kjarri. Ömmu á Sjafnó.
Lífið lagði Sigrúnu óvenjuerfið
verkefni á herðar. Allt frá blautu
barnsbeini mátti hún þola sífelldar
sjúkrahúsinnlagnir og illvígir
sjúkdómar herjuðu sleitulaust á líf
hennar og limi. Alla tíð. En aldrei
lét hún neinn bilbug á sér finna,
Kjarkurinn og þrautseigjan voru
óþrjótandi.
Hún var haldin ómældri fróð-
leiksfýsn og varð sérfræðingur í
ýmsum málum á ólíkum sviðum,
þar á meðal sálfræðilegum og fé-
lagslegum greiningum. Það var
óborganlegt að fá að vera þátttak-
andi í pælingum hennar.
Hennar sérgrein var að vísu
jarðfræði en stuttu eftir að jarð-
fræðináminu lauk, venti hún
kvæði sínu í kross og gerðist upp á
sitt einsdæmi tölvuséní og forrit-
ari löngu áður en nokkur vissi
hvað hugtökin tölva eða forritun
þýddu. Á starfsferlinum vann hún
hjá virtum innlendum og erlend-
um náttúruvísindastofnunum og
var höfundur ómetanlegra gagna-
grunna í þágu vísinda og fram-
fara.
En síðast og ekki síst var hún
vakin og sofin yfir velferð fjöl-
skyldu sinnar. Hún var alltum-
lykjandi.
Blessuð sé minning Sigrúnar
Gunnarsdóttur
Ég sendi Jóni og Lalla, Hrólfi,
Sillu og barnabörnunum mínar
dýpstu samúðarkveðjur.
Svava Björnsdóttir.
Ég kveð æskuvinkonu mína,
Sigrúnu, með söknuði. Þrátt fyrir
óravegalengd á milli okkar á full-
orðinsárunum hélst vinátta okkar í
meira en hálfa öld.
Þegar við höfðum tækifæri til
að hittast var hún ætíð glöð og
bjartsýn, þrátt fyrir að hún hafi oft
þurft að glíma við veikindi og áföll í
gegnum árin. Hún gerði alltaf lítið
úr sínum erfiðleikum en var sjálf
alltaf reiðubúin að bjóða sig fram
til að aðstoða aðra; hvort sem það
voru fjölskyldumeðlimir, vinir eða
félagasamtök.
Sigrún var heilsteypt persóna,
gáfuð, íhugul og varfærin. Henni
voru oft falin ábyrgðarverkefni,
sérstaklega í þágu Tourette-sam-
takanna, þar sem hún vann mikil-
vægt starf.
Margir leituðu til Sigrúnar með
ritgerðir eða greinar sem þurfti að
yfirfara. Hún var fær við lagfær-
ingar á texta, hvort sem hann var á
íslensku eða ensku, og gerði það
alltaf með glöðu geði. Hún var sér-
lega vel ritfær og átti ég því láni að
fagna að fá frá henni handskrifuð
bréf í mörg ár, áður en tölvupóstar
urðu algengir. Ég á þau enn.
Sigrún var jarðfræðingur að
mennt og vann lengi á Veðurstofu
Íslands. Einnig vann hún í mörg ár
hjá ÍSOR og hafði nýlega lokið þar
störfum.
Vandvirkni og heiðarleiki voru
Sigrúnu í blóð borin. Þessir eig-
inleikar sýndu sig í öllu sem hún
tók sér fyrir hendur. Hún fór sér
að engu óðslega, en vann sín verk-
efni af alúð og nákvæmni.
Það var mér mikil ánægja að
Sigrún heimsótti mig til Ástralíu í
apríl 2015. Við áttum þá marga
góða daga saman og fórum í dags-
ferðir. Minningin er mér dýrmæt.
Hún kom gagngert til að fara á
ráðstefnu Alþjóðajarðhitasam-
bandsins, sem haldin var í Melbo-
urne, ásamt nokkrum starfsfélög-
um frá ÍSOR og öðru fagfólki frá
Íslandi. Þar hélt Sigrún, meðal
annarra, fyrirlestur.
Eftir ráðstefnuna fór hún í
langt ferðalag inn í miðja Ástralíu;
á slóðir frumbyggjanna. Hún fór
m.a. til Alice Springs og sá hinn
fræga „monolith“ Uluru (öðru
nafni Ayers Rock). Þetta var tals-
vert ævintýri og hún hafði frá
mörgu skemmtilegu að segja úr
þessari ferð.
Síðast skrifuðum við hvor ann-
arri fyrir 3-4 vikum. Ekki óraði
mig fyrir því að það væri í síðasta
sinn. Lífið er óútreiknanlegt.
Blessuð sé minning Rúnu minn-
ar.
Ég votta Nonna, Lárusi, Hrólfi
og fjölskyldu innilega samúð mína.
Ingibjörg Árnadóttir,
Melbourne, Ástralíu.
Sigrún bjó á hæðinni fyrir neð-
an mömmu í um 30 ár en mamma
lést háöldruð fyrir tveim mánuð-
um eftir stutta sjúkrahúsdvöl. Þó
það væri um 25 ára aldursmunur á
þeim urðu þær góðar vinkonur
sem hjálpuðust að í gegnum lífið,
hvor á sinn hátt eftir því sem hin
þarfnaðist. Þær ræddu um sín
hjartans mál og voru til staðar
hvor fyrir aðra. Sigrún var
mömmu svo mikilvæg að mamma
gat ekki hugsað sér að flytja úr
húsinu. Ekkert viðvik var of stórt
fyrir Sigrúnu. Sigrún var okkur
fjölskyldunni sérstaklega mikil-
væg síðustu árin eftir að heilsu
mömmu hrakaði. Við vissum að
Sigrún fylgdist líka með henni og
hjálpaði og vorum henni þakklát
fyrir það. Nonni maður Sigrúnar
átti líka sín sérstöku hjálparsvið,
alltaf viljugur og góður við hana.
Ég kveð góða konu með þökk fyrir
samfylgdina. Takk Sigrún fyrir að
passa upp á mömmu mína, veita
henni umhyggju og öryggi. Ég
samhryggist ykkur, Nonni, Lalli
og Hrólfur, vegna missis ykkar.
Hildur Magnúsdóttir.
Það kom sem reiðarslag að
heyra að Sigrún Gunnarsdóttir,
kær skólasystir okkar úr MR og
vinkona til 50 ára, hefði látist eftir
skammvinn veikindi einungis 67
ára gömul. Sigrún, sem alltaf stóð
keik gegnum lífið og sigraðist á
mörgum stórum áföllum sem yfir
hana dundu á lífsleiðinni, varð að
lokum að lúta í lægra haldi á gjör-
gæslu LSH þann 16. mars síðast-
liðinn.
Við vinkonurnar höfum haldið
sambandi frá því í menntaskóla,
spiluðum reglulega bridds auk
þess sem vegir okkar lágu saman
bæði gegnum vinnu og börnin
okkar, en allar áttum við börn á
svipuðum aldri og fylgdumst sam-
an með þeim vaxa úr grasi. Sigrún
var vel gefin, áræðin og seig. Hún
sýndi mikið úthald í öllum sínum
erfiðleikum og ætíð var stutt í
húmorinn. Hún var félagslynd,
hélt góðu sambandi við vini sína
og fjölskyldu, sýndi öllu áhuga og
umhyggjusemi og var mikill sögu-
maður.
Eftir að börnin okkar urðu eldri
voru okkar helstu samverustundir
tengdar briddsspilamennskunni,
sem með tímanum urðu samt ein-
ungis átylla til að hittast því sam-
ræðurnar og sögurnar náðu yfir-
höndinni. Oft náðist varla að spila
meira en eitt spil á kvöldi, hvað þá
einn hring. Þar naut Sigrún sín og
við höfðum allar gaman af þessum
kvöldstundum. Við minnumst
einnig sumarbústaðaferða, sam-
eiginlegra hádegisverða og matar-
boða þar sem sagðar voru sögur
og spáð og spekúlerað í lífinu og
tilverunni.
Sigrún menntaði sig sem jarð-
fræðingur en vann mestan sinn
tíma í verkefnum tengdum forrit-
un og gagnagrunnum auk þess að
kenna raungreinar í menntaskóla.
Hún tók virkan þátt í félagsmálum
og sat í stjórnum ýmissa félaga-
samtaka svo sem Tourette-sam-
takanna og BUGL.
Við kveðjum með söknuði kæra
vinkonu og minnumst um leið
allra góðu samverustundanna sem
við áttum með henni. Sigrúnu varð
ekki margra lífdaga auðið en eftir
situr þakklæti fyrir áratugalanga
vináttu eða eins og segir í ljóði
Starra í Garði:
Hversvegna er leiknum lokið?
Ég leita en finn ekki svar.
Ég finn hjá mér þörf til að þakka
þetta sem eitt sinn var.
(Starri í Garði)
Sendum Nonna, Hrólfi, Lárusi,
Ragnheiði og barnabörnum Sig-
rúnar innilegar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Sigrúnar.
Hólmfríður, Ingibjörg og
Salvör.
Við ótímabært fráfall Sigrúnar
Gunnarsdóttur viljum við minnast
hennar nokkrum orðum. Sigrún
vinkona okkar var glæsileg kona,
fluggreind, kurteis og skemmti-
leg. Hún var vel lesin, fjölfróð um
menn og málefni, forvitin og
áhugasöm um ótalmargt. Hún
hafði oft sterkar skoðanir en hafði
þá kynnt sér mál til hlítar frá ýms-
um hliðum og álit hennar hafði
alltaf mikið vægi. Sigrún var ákaf-
lega vandvirk í því sem hún tók sér
fyrir hendur, hvort sem það voru
rannsóknir á sviði jarðfræði, berg-
greiningar, kennsla og fræðslu-
störf eða gagnagrunnshönnun.
Hún hafði sterka réttlætiskennd
og lét sig varða hagsmuni ýmissa
hópa eða einstaklinga sem hún
taldi brotið á. Sigrún starfaði um
árabil fyrir Tourette-samtökin,
meðal annars sem formaður. Þá
tók hún þátt í að þýða mikilvægt
fræðsluefni á vegum samtakanna.
Sólveig kynntist Sigrúnu í jarð-
fræðinámi við Háskóla Íslands og
naut þess að vinna með henni í
jarðfræðiferðum og verkefnum og
auk þess luku þær kennsluréttind-
um á svipuðum tíma. Þær settu
svo af stað bridgeklúbb fyrir tæp-
um fjórum áratugum með fleiri
konum til að halda vinskapnum
áfram eftir námið og bættist þá
Ingibjörg fljótlega í hópinn. Spila-
klúbburinn hittist reglulega fyrstu
áratugina og var mikið spilað en
líka spjallað og spáð í hlutina. Varð
vinskapurinn æ nánari með tím-
anum þegar við kynntumst betur.
Sigrún var oft þreytt eftir langan
vinnudag og heilsan var því miður
ekki alltaf upp á það besta þó hún
væri síst af öllu að kvarta við okk-
ur. En hún var kankvís og mikill
samræðusnillingur. Hún gat
stundum verið dálítið hvatvís en
klók í sögnum. Alræmd sögn í
hópnum var svokölluð „Gústu-
sögn“ Sigrúnar eða þrjú grönd
þegar allir aðrir höfðu opnað á
passi. Andstæðingar Sigrúnar do-
bluðu þá yfirleitt til refsingar en
þeim til armæðu vannst samning-
urinn ótrúlega oft.
Sigrún tók marga unglinga í
aukatíma í stærðfræði og fleiri
greinum. Einnig las hún yfir rit-
gerðir háskólanema enda vel máli
farin og með mjög gott vald á ís-
lensku og ensku. Hún bar mikla
umhyggju fyrir vandamönnum og
vinum. Það kom gleðisvipur á
hana þegar hún minntist á ömmu-
börnin sín sem hún var mjög stolt
af.
Við kveðjum kæra vinkonu með
sárum trega og sendum fjölskyldu
hennar innilegar samúðarkveðjur.
Guð geymi Sigrúnu okkar.
Ingibjörg og Sólveig.
Sigrún
Gunnarsdóttir
Leiðir okkar
Magnúsar lágu sam-
an á haustdögum ár-
ið 1979. Þá sótti
hann um stöðu
deildarstjóra á vinnustofum sem
reknar höfðu verið á Vistheimilinu
Sólborg um nokkurt skeið. Und-
irritaður var þá framkvæmda-
stjóri heimilisins. Vinnustofunum
var ætlað að veita hluta íbúanna
Magnús Andrés
Jónsson
✝
Magnús
Andrés Jóns-
son fæddist 22.
október 1933. Hann
lést 24. mars 2022.
Útför Magnúsar fór
fram 5. apríl 2022.
og íbúum sambýla
vinnuþjálfun. Starf-
semi þeirra þótti
hafa tekist nokkuð
vel en verkefnin
voru einhæf og véla-
kostur takmarkaður.
Tilgangurinn með
ráðningu Magnúsar
var m.a. sá að fela
honum að afla nýrra
verkefna, auka fjöl-
breytni þeirra og
tryggja starfseminni traustari
rekstrargrundvöll. Magnús sinnti
því hlutverki ötullega og fljótlega
vöknuðu hugmyndir meðal yfir-
manna heimilisins um að hefja
undirbúning að stofnun verndaðs
vinnustaðar sem tæki við hlut-
verki vinnustofanna. Stjórn heim-
ilisins var því samsinna og fékk
hugmyndin alls staðar góðar und-
irtektir, þar á meðal hjá stjórn-
völdum, sem var forsenda þess að
þoka málum áfram. Ákveðið var
að byggja 600 fermetra hús yfir
starfsemina í tveimur áföngum.
Fyrri áfanganum lauk haustið
1981 og hófst starfsemi í húsinu þá
strax.
Magnús tók við forstöðu þessa
nýja vinnustaðar. Það var honum
og samstarfsfólki hans í Iðjulundi
(nafn hins nýja vinnustaðar) þó
nokkur áskorun. Á ótrúlega
skömmum tíma tókst að finna
honum fjölbreytt verkefni sem
hentuðu vel og auka við vélakost í
þeim tilgangi að nýta tækni til að
vinna flóknari þætti í framleiðslu-
ferlinu. Þannig urðu til verkefni
fyrir getuminni skjólstæðinga
Iðjulundar eins og við frágang,
pökkun o.fl. Það skipti svo ekki
minnstu máli að flestum þeirra
sem sóttu vinnu til staðarins þótti
það nokkur upphefð og það jók
þeim kjark og færni að sækja
vinnu út fyrir heimili sitt. Eitt
verkefni skal sérstaklega nefnt í
þessu samhengi en það var lóða-
sláttur fyrir húsfélög og fyrirtæki.
Þá lærðu þó nokkrir úr hópi
þeirra fötluðu að aka sláttutrak-
torum og skiluðu verki sínu með
sóma. Það vakti mikla athygli
meðal almennings og gerði hópinn
sýnilegan.
Nú þegar komið er að leiðarlok-
um vil ég þakka Magnúsi fyrir góð
kynni og samfylgd til margra ára.
Hann ásamt samstarfsfólki sínu
lagði sitt af mörkum til að bæta
kjör þeirra sem þroskaheftir töld-
ust. Hafi þau öll bestu þakkir fyr-
ir. Um leið vottum við Elsa ekkju
hans, Guðrúnu H. Gunnarsdóttur,
og fjölskyldu okkar innilegustu
samúð.
Bjarni Kristjánsson.
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Allur arður af þjónustunni rennur til reksturs kirkjugarðanna
Útfararþjónusta í yfir 70 ár
Við tökum vel á móti ástvinum
í hlýlegu og fallegu umhverfi