Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 25.04.2022, Side 1

Morgunblaðið - 25.04.2022, Side 1
M Á N U D A G U R 2 5. A P R Í L 2 0 2 2 .Stofnað 1913 . 95. tölublað . 110. árgangur . SKAGAMENN VÖLTUÐU YFIR VÍKINGA BETRI EN ALLT KAFFIÐ AUGU FÓLKS AÐ OPNAST FYRIR REYKJANESINU Á HEIMA-HÁTÍÐINNI 29 NÝ BÓK UM GÖNGULEIÐIR 10STUÐ OG STEMNING 26 Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Fjárlaganefnd Alþingis átti að funda opinberlega um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka, ásamt framkvæmda- stjóra og stjórnarformanni banka- sýslu ríkisins í dag, en þeim fundi var seint í gærkvöldi frestað fram á mið- vikudag, þar sem bankasýsla ríkisins hafði ekki náð að klára minnisblað um söluna. Þetta staðfestir Bryndís Haraldsdóttir þingmaður Sjálfstæð- isflokksins, sem kveðst jafnframt gáttuð á þessari málavöxtu. „Ég er mjög hissa á þessari framgöngu bankasýslunnar. Þetta er eiginlega óásættanlegt með öllu,“ segir Bryn- dís. Fjárlaganefnd hefur óskað eftir svörum við spurningum í 19 tölulið- um en séu stafliðir taldir með telja þær á fimmta tug. Er þar spurt með- al annars um hvernig hafi verið stað- ið að vali söluaðila á hlutabréfum rík- issjóðs í Íslandsbanka, hvers vegna innlendir söluaðilar hafi verið fimm talsins og hvernig samið hafi verið um þóknun til þeirra aðila. Þá var því velt upp hver vitneskja fjármálaráðherra hafi verið um áætl- aðan kostnað og möguleg frávik. Jón Gunnar Jónsson forstjóri bankasýslunnar gaf ekki kost á við- tali þegar Morgunblaðið leitaði eftir því í gærkvöldi. »2 Bryndís hissa á seina- gangi bankasýslunnar - Bankasýslan ekki tilbúin með svör við spurningum nefndar Morgunblaðið/Sigurður Bogi Alþingi Nefndin hefur óskað eftir upplýsingum frá bankasýslunni. Urður Egilsdóttir urdur@mbl.is Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, telur mikilvægt að börn kynnist Íslendingasögunum fyrr á aðgengilegan hátt. „Þannig að við séum búin að þróa væntumþykju gagnvart sögunni okkar,“ segir hún og nefnir að það geti reynst ung- mennum erfitt að kynnast Íslend- ingasögunum á efsta stigi grunn- skóla án þess að þekkja til þeirra. „Við finnum að íslenskan er að verða alltaf meiri og meiri áskorun vegna efnis sem er á ensku. Því eigum við sem þjóð að hugsa hvað við getum gert í þessu nýja umhverfi.“ Lilja hvetur því bókaútgef- endur til þess að endursegja Ís- lendingasög- urnar og gera þær aðgengi- legri. „Þótt við gerum þær að- gengilegri þá er- um við ekki að gefa afslátt af menningararfinum. Við erum frek- ar að dýpka skilningin á honum,“ segir hún og bætir við að einnig sé mikilvægt að nýta aðra miðla til þess að ná til ungs fólks, svo sem tölvuleiki. »2 Kynna Íslendinga- sögurnar fyrr Lilja Dögg Alfreðsdóttir - Verði aðgengilegri fyrir unga fólkið Tveir mánuðir voru í gær liðnir frá því Vladimír Pútín Rússlandsforseti skipaði her sínum að ráð- ast inn í Úkraínu, þann 24. febrúar. Rússneskar hersveitir höfðu þá dvalið við landamæri Úkra- ínu áður en þær réðust inn í landið úr norðri, austri og suðri. Páskahátíð rétttrúnaðarkirkjunnar stendur nú yfir, eins og sjá má á þessari mynd sem tekin var í þorpinu Líman í Austur-Úkraínu í gær. Áfram mátti heyra í loftárásum í fjarska, á með- an athöfnin fór fram. Staðfest er að minnst átta hafi látist í árásum Rússa á hafnarborgina Ódessa á laugardag. Um hundrað þúsund manns eru enn innlyksa í borginni Maríupol, sem Rúss- ar hafa setið um nær frá því innrásin hófst. Seldu hergögn sem líklega nýtast nú Á laugardag var greint frá því að Frakkland og Þýskaland seldu Rússum hergögn fyrir tæp- lega 300 milljónir bandaríkjadala þrátt fyrir við- skiptabann á árunum 2015 til 2020. Líklegt þykir að vopnin séu nú í notkun í stríðinu. Evrópusam- bandið neyddist í mánuðinum til að loka glufu í lögunum sem gerði þjóðum kleift að senda her- gögn til Rússlands. Það var ekki fyrr en 8. apríl em glufunni var lokað og var það gert vegna vaxandi óánægju Eystrasaltsríkjanna og ríkja í Austur-Evrópu. Yfirvöld í Úkraínu kölluðu í gær eftir friðarviðræðum við Rússa, fyrir utan Asovstal-stálverksmiðjuna þar sem úkraínskir hermenn og almennir borgarar dvelja nú. AFP Þriðji mánuður stríðsins hafinn í Úkraínu MFundar með Bandaríkjamönnum » 13 og 14 _ Vonast er til að framkvæmdir hefjist á næsta ári, við nýja gufu- aflsvirkjun sem á að rísa á Folalda- hálsi við Hengilssvæðið. Unnið hefur verið að undirbún- ingi virkjunarinnar í nokkur ár, en miðað er við að virkjunin muni skila allt að 3,9 megavöttum. Skipulags- stofnun hefur staðfest breytingu á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafn- ingshrepps sem gerir ráð fyrir iðn- aðarsvæði á fyrirhuguðum virkj- unarstað. Reiknað er með að sumarhúsa- hverfi á staðnum geti orðið sjálf- bært að öllu leyti, með heitt og kalt vatn auk raforku. Þá hefst skóg- rækt á landinu í sumar. »6 Morgunblaðið/Árni Sæberg Gufuaflsvirkjun Lagt er upp með að nýja virkjunin skili allt að 3,9 megavöttum. Reisa virkjun fyrir sjálfbæra starfsemi _ Emmanuel Macron hlaut í gær endurkjör til Frakklandsfor- seta í forseta- kosningum landsins. Mun hann því gegna embættinu í önn- ur fimm ár. Mar- ine Le Pen leið- togi öfgahægri- sinna í Frakklandi sagði tap sitt í úrslitaeinvígi forsetakosninganna í Frakklandi þó vera „glæstan sigur“ fyrir sig og flokk sinn en sigur Mac- ron var naumari í ár en í síðustu kosningum, árið 2017. »13 Macron forseti í önnur fimm ár Emmanuel Macron

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.