Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 25.04.2022, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 25.04.2022, Qupperneq 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. APRÍL 2022 Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10-17 kg Það er hins vegar ekki einfalt fyrir íslenskan almenning að verða sér út um Masago-bjórinn þar sem megnið af honum hefur verið sent til Spánar og einhver hluti til Japans vegna markaðssetningar loðnuafurða þar í landi. Öll von er þó ekki úti og voru tveir kassar sendir til veitingastað- arins Sushi Social auk þess sem örfáir lítrar verða í boði á bruggstofu brugghússins að Snorrabraut í Reykjavík í vikunni. RVK brewing co. hefur áður vakið athygli fyrir sérstaka bjórgerð. „Við öðluðumst heimsfrægð þegar við gerðum jólabjór með Ora-rauðkáli og grænum baunum. Við erum til í að prófa hluti en við gerum ekki vonda bjóra. Þetta þarf að vera gott.“ skemmtilegt og íslenskt, útskýrir Einar Örn spurður um tilurð bjórs- ins. Féll það í hlut Hjalta Einars- sonar bruggara að skapa meist- araverkið og var markmiðið við gerð bjórsins að finna eitthvað sem myndi passa við sjávarfangið sem boðið er upp á á básunum. Gerum ekki vonda bjóra En er þetta gott? „Þetta er mjög góður bjór, þótt þetta hljómi kannski endilega vel. Maður finnur ekkert fiskibragð af bjórnum,“ segir Einar Örn. Hann útskýrir að bjórinn sé í góðu jafnvægi, að 10 kíló af hrognum séu í 500 lítrum af bjór og að blóð- bergið kryddi bjórinn vægt. „Þetta er alveg frábær bjór.“ Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is „Þetta er líklega sjaldgæfasti bjór á Íslandi,“ segir Einar Örn Sig- urdórsson, einn eigenda RVK brew- ing co., um Masago-bjórinn sem er sérbruggaður fyrir Icelandic Asia og Útgerðarfélag Reykjavíkur (ÚR). Masago er heiti yfir mikilvæga afurð sem notuð er í sushigerð og er hún unnin úr loðnuhrognum, en í bjórnum eru einmitt loðnuhrogn ásamt ís- lensku blóðbergi. Í tilefni af sjávarútvegssýningunni í Barselóna á Spáni, Global Seafood Expo, sem hefst á morgun,vildu Ice- landic Asia og ÚR bjóða við- skiptavinum sínum upp á eitthvað Morgunblaðið/Árni Sæberg Sjaldgæfur Hjalti Einarsson, bruggari hjá RVK brewing co., með þær fáu dósi af Masago-bjór sem eftir eru. Loðnuhrognabjór á sýningu á Spáni - Sérbruggað fyrir íslensk sjávarútvegsfyrirtæki Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Með orkunni koma ýmis tækifæri til uppbyggingar sjálfbærrar starf- semi á jörðinni. Sumarhúsahverfið getur orðið sjálfbært að öllu leyti með heitt og kalt vatn og raforku. Svo eru ýmsar aðrar umhverfis- vænar hugmyndir sem við erum að þróa áfram með það í huga að orku- verkefnið heppnist,“ segir Halldór Ólafur Halldórsson viðskiptafræð- ingur sem á jörðina Krók í Grafn- ingi með félaga sínum. Vinna þeir að þróun lítillar jarðgufuvirkjunar á Folaldahálsi við Hengilssvæðið. Unnið hefur verið að undirbún- ingi virkjunarinnar í nokkur ár. Miðað er við gufuaflsvirkjun með allt að 3,9 MW uppsett afl. Sá áfangi hefur nú náðst að Skipulags- stofnun hefur staðfest breytingu á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafn- ingshrepps sem gerir ráð fyrir iðn- aðarsvæði á fyrirhuguðum virkjun- arstað. Munnmælasögur um orku Boruð var rannsóknarhola fyrir nokkrum árum og niðurstöður mæl- inga gefa góðar vonir um að hægt sé að afla nægrar gufu fyrir 3,9 MW virkjun. Halldór Ólafur segir að áfram verði haldið við rannsóknir og þróun. Bora þurfi meira. Vonast hann til að hægt verði að hefja framkvæmdir á næsta ári. Halldór Ólafur er ættaður frá Króki. Langafi hans, Guðmundur Jóhannesson, og langamma, Guð- rún Sæmundsdóttir, keyptu jörðina árið 1926 og þar fæddist amma hans. Hann hefur því taugar til jarðarinnar. Munnmælasögur voru í tíð langafa hans um að þar væri að finna orku í jörðu. „Þegar ég eign- aðist jörðina með félaga mínum var draumurinn að byggja upp starf- semi sem væri umhverfisvæn og sjálfri sér nóg með heitt og kalt vatn og rafmagn. Við höfum sett okkur umhverfisstefnu sem felur meðal annars í sér að stuðlað verð- ur að eflingu fuglalífs og bindingu kolefna,“ segir Halldór Ólafur. Hátt í 30 sumarhús eru á landinu og leyfi er til að fjölga þeim mikið. „Við höfum þegar endurheimt tugi hektara votlendis í samvinnu við Landgræðsluna. Skógrækt hefst í sumar með því að plantað verður í um 10 hektara lands og stefnt að skógi á liðlegum 33 hekt- urum,“ segir hann. Ýmis tækifæri opnast með orkunni Kortagrunnur: OpenStreetMap Folaldaháls Hveragerði Krókur Folaldaháls 1 HENGILL GRAFNINGUR R eykjad alu r G ræ n d alu r Fyrirhuguð gufuaflsvirkjun Krókur Jörðin er í Grafningi. Þar er nú sumarhúsabyggð. Virkjunin verður sunnarlega í landinu, á Folaldahálsi. - Einstaklingar vinna að 3,9 megavatta gufuaflsvirkjun í Grafningi - Sumarhúsahverfi verður sjálf- bært með heitt og kalt vatn og rafmagn - Unnið að endurheimt votlendis og skógrækt er að hefjast Fákur, hestamannafélag í Víðidaln- um í Reykjavík, átti í gær hundrað ára afmæli og var því fagnað á laugardag með reiðtúr um miðbæ Reykjavíkur og veglegri veislu um kvöldið. Margir ráku eflaust upp stór augu upp úr hádegi á laugardag þegar fjöldinn allur af fólki lagði leið sína um miðbæ Reykjavíkur á hestbaki. Um var að ræða fyrsta liðinn í hátíðarhöldum Fáks. Öll hestamannafélög í nágrenni við Fák voru þar saman komin og voru þar Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Sigurbjörn Bárðarson hestamaður, Guðni Halldórsson, formaður Landssambands hesta- manna, og Hjörtur Bergstaðsson, formaður Fáks, í broddi fylkingar. Hjörtur segir í samtali við Morg- unblaðið að hátíðarhöldin hafi gengið vel og skemmtunin hafi staðið fram á rauða nótt á fögnuði í Gullhömrum. Þá var Sigurbjörn Bárðarson heiðraður á fögnuðinum og gerður að heiðursfélaga Fáks. tomasarnar@mbl.is Aldarafmæli fagnað með reiðtúr - Hestar í miðbæ Reykjavíkur - Fögn- uður um kvöldið Riðið Reiðtúrinn vakti athygli með- al vegfarenda enda sjaldséð sjón.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.