Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 25.04.2022, Page 11

Morgunblaðið - 25.04.2022, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. APRÍL 2022 Blöndulína 3 Umhverfismats- skýrsla Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | landsnet@landsnet.is | www.landsnet.is Við erum lykilinnviður þjóðarinnar og allt okkar starf snýst um að miðla orku sem drífur áfram lífsgæði og sköpunarkraft samfélagsins til framtíðar. Við leggjum áherslu á virðingu, samvinnu og ábyrgð. Við erum framsækið þekkingarfyrirtæki sem býður kraftmiklu starfsfólki spennandi verkefni við aðstæður þar sem umhyggja, jafnrétti og öryggi eru í fyrirrúmi. Fram undan er opið hús þar sem lagðar verða fram upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum vegna Blöndulínu 3, sem mun liggja milli Blöndustöðvar og Akureyrar. Línuleiðin er innan fimm sveitarfélaga, Akureyrar- bæjar, Hörgársveitar, Akrahrepps, Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Húnavatnshrepps. Markmið framkvæmdarinnar er að bæta orku- nýtingu, auka flutningsgetu og tryggja stöðugleika raforkukerfisins á Norður- og Austurlandi. Fram- kvæmdin hefur einnig þýðingu fyrir flutningskerfi landsins í heild þar sem um er að ræða mikilvægan hlekk í styrkingu tengsla milli sterkari hluta kerfisins á suðvesturhorninu og veikari hluta þess á Austurlandi. Umhverfismatsskýrslan er aðgengileg á vefsíðum Skipulagsstofnunar, Landsnets og Mannvits til 13. maí 2022. Að auki liggur umhverfismatsskýrslan frammi til kynningar á eftirtöldum stöðum: Í ráðhúsi Akureyrarbæjar, á skrifstofum Hörgár- sveitar, Akrahrepps, Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Húnavatnshrepps og hjá Skipulagsstofnun. Öllum er velkomið að koma á framfæri umsögnum um umhverfismatið og skal senda þær til Skipulags- stofnunar, Borgartúni 7b, eða á skipulag@skipulag.is. Opið hús vegna mats á umhverfisáhrifum Hafðu áhrif – taktu þátt í samtalinu Opinn fundur Reykjavík, veitingastaðnum Nauthól þriðjudaginn 26. apríl 16.00 – 18.30 Verið velkomin Miðflokkurinn í Reykjavík ætlar að stöðva skuldasöfnun borgarinnar og ná tökum á rekstrinum. Einnig að bæta umferðarflæði og öryggi án borgarlínu og án innviðagjalda. Þá ætlar flokkurinn að ráðast í gagngera endurskoðun á starfs- mannamálum borgarinnar, ein- falda reksturinn í Ráðhúsinu og selja eignir sem eru í samkeppni á markaði. Þetta er meðal stefnumála flokksins, sem kynnt voru sl. föstu- dag um leið og ný kosningavefsíða Miðflokksins í Reykjavík var opnuð, xmreykjavik.is. Helsta slagorð flokksins er X-Meiri borg. Ómar Már Jónsson, oddviti Miðflokksins í borginni, og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður flokksins, opnuðu vefinn og kynntu helstu stefnumálin. Miðflokkurinn ætlar jafnframt að endurmeta öll „gæluverkefni“ borgarinnar, setja öll stærri verk- efni í útboð og verja lögbundna þjónustu við íbúa og fyrirtæki. Þá telja Miðflokksmenn að Reykjavík- urflugvöllur verði áfram á sínum stað í Vatnsmýrinni. Fimmtán milljarða aukning á launakostnaði Flokkurinn bendir á að starfs- mannafjöldi Reykjavíkurbogar hafi aukist um 2 þúsund manns á núver- andi kjörtíma og launakostaður aukist um 15 milljarða króna. „Setjum ráðningarstopp á borg- ina sem leiðir af sér náttúrulega fækkun starfsmanna. Við ætlum að fara í heildarendurskoðun á starfs- mannastefnu borgarinnar með það að markmiði að lækka launakostn- að m.a. með fækkun starfsmanna í stjórnsýslunni en án þess þó að skerða lögbundna þjónustu borg- arinnar,“ segir m.a. í stefnuskrá Miðflokksins. Þá vill flokkurinn endurskoða reglur og málsmeðferð skipulags- og byggingaryfirvalda til að ein- falda kerfið, draga úr flækjustigi og óþarfa töfum. Á sama tíma verði afgreiðslu mála flýtt og biðtími styttur. Vilja ná tökum á skuldunum - Miðflokkurinn kynnir stefnu sína Miðflokkurinn Sigmundur Davíð formaður og Ómar Már Jónsson. „Það hefur gengið í raun ótrúlega vel að koma körlunum í gang aftur. Við æfðum vel í fyrrahaust þó að við værum ekki með tónleika þá, það kom sér vel núna,“ segir Stefán R. Gíslason, stjórnandi Karlakórs- ins Heimis í Skagafirði, en kórinn stígur á svið í menningarhúsinu Miðgarði nk. fimmtudagskvöld. Kórónuveirufaraldurinn hefur komið í veg fyrir tónleikahald hjá Heimi, líkt og mörgum öðrum kór- um landsins, og biðin því meira en tvö ár. Tónleikar kórsins eru hluti af dagskrá Sæluviku Skagfirðinga, sem sett var á Sauðárkróki í gær. Á dagskránni verða innlend og erlend kórlög og í forföllum Thom- as R. Higgerson leikur Valmar Väljaots á píanóið. Thomas hefur verið undirleikari Heimismanna í 31 ár og aldrei misst af tónleikum fyrr en nú. Fjölbreytt dagskrá er á Sæluviku að vanda. Leikfélag Sauðárkróks frumsýndi í Bifröst í gærkvöldi gamanleikritið Nei ráðherra, eftir Ray Cooney, í leikstjórn Jóels Sæ- mundssonar. Fyrirhugaðar eru alls sex sýningar til 6. maí. Kvennakórinn Sóldís var með tónleika í Miðgarði í gærkvöldi þar sem aðgangur var ókeypis. Í kvöld er kirkjukvöld í Sauðárkrókskirkju þar sem kirkjukórinn syngur undir stjórn Rögnvaldar Valbergssonar. Alla Sæluvikuna er Sólon, félag myndlistarfólks í Skagafirði og ná- grenni, með sýningu í Gúttó er nefnist Litbrigði samfélags. Nánari upplýsingar um dagskrá Sæluviku er á vefnum saeluvika.is. Tveggja ára bið eftir Heimi Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Heimismenn Kórinn á tónleikum í Hörpu fyrir fimm árum. - Sæluvikutónleikar í Miðgarði í Skagafirði á fimmtudag 2022

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.