Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 25.04.2022, Side 17

Morgunblaðið - 25.04.2022, Side 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. APRÍL 2022 ✝ Eva Sóley Rögnvalds- dóttir var fædd í Ólafsfirði þann 21. febrúar 1943. Hún lést þann 13. apríl 2022 í faðmi fjöl- skyldunnar á heim- ili sínu að Hömrum í Mosfellsbæ. For- eldrar hennar voru þau Auður Jóns- dóttir, f. 24. janúar 1904, d. 12. apríl 1974, og Rögn- valdur Þorleifsson f. 4. október 1903, d. 11. apríl 1984. Systur Evu eru Sesselja Rögnvalds- dóttir, f. 29. maí 1930, d. 2. októ- ber 1983, og Þórgunnur Rögn- valdsdóttir, f. 10. maí 1936, d. 6. desember 2020. Eftirlifandi maki Evu Sóleyjar er Magnús Sveins- son, f. 28 júlí. 1939. Börn þeirra eru Cecilía Magnúsdóttir, f. 7. desember 1972, maður hennar er Örn Arnarson f. 17. janúar 1966, þau eiga fjóra syni, þá Viktor Örn, Brynjar Magnús, Árna og Örn. Íris Magnúsdóttir, f. 8. september 1975, hún á tvö börn, þau Evu Sóleyju og Ægi. Sveinn Snorri Magnússon, f. 7. september 1979, kona hans er Elín Málmfríður Magn- úsdóttir, f. 19. ágúst 1981, þau eiga þrjú börn, Laufeyju Sigur- birnu, Magnús og Cecilíu Ólöfu. Börn Magnúsar frá fyrra hjóna- bandi eru Guðrún Magnúsdóttir, f. 14. maí 1958, d. 20. febrúar 1994, dætur hennar eru Katrín Dögg og Sigríður Amanda. Sig- urjón Magnússon, f. 26. október 1960, d. 24. júlí 2009. Útförin fer fram frá Bessa- staðakirkju í dag, 25. apríl 2022, klukkan 12. Elsku mamma mín. Það er ótrúlega sárt að geta ekki átt meiri tíma með þér, því all- ar stundir með þér voru yndisleg- ar. Lukkan mín var að eiga þig sem móður, því betri móður er ekki hægt að hugsa sér. Ótrúlega dugleg, vinnusöm, með ljúfa og hlýja nærveru sem fólk sóttist í að vera nálægt. Pínu prakkari og stutt í hlátur, glens og gleði. Þú hvattir mig alltaf til fara í allt skemmtilegt sem á vegi mínum varð, nýta öll tækifæri og njóta lífsins til hins ýtrasta. Þú varst alltaf til staðar fyrir mig og börnin mín. Varst alltaf svo glöð að sjá mig. Þú kenndir mér að sjá það fal- lega í öllu og öllum. Þú elskaðir form og liti náttúrunnar, liti him- insins og haustsins og það elska ég líka. Þú kvartaðir aldrei, það var bara alltaf allt yndislegt eða „alveg yndislegt“ eins og þú sagðir svo oft. Það eru endalausar minningar sem ég á um þig elsku mamma sem ég er svo þakklát fyrir, þú ert mín fyrirmynd í lífinu. Takk fyrir allt. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibj. Sig.) Elska þig að eilífu. Þín dóttir Cecilía. Elsku mamma mín hefur nú kvatt þennan heim. Það er svo sárt og erfitt að missa þig elsku besta mamma mín. Fallegri sálu var vart hægt að finna, þín fegurð bæði innan sem utan, skein ávallt svo fallega í þínum augum og fal- lega, ljúfa brosi. Ég er svo ein- staklega þakklát fyrir þann tíma sem ég fékk með þér, fyrir þína óendanlegu ást og umhyggju, tryggð, hlýju og ljúfleika. Þú varst svo einstök í alla staði og einkenndist alla þína tíð af já- kvæðni, hlýju, hjálpsemi og kær- leik í garð annarra og alltaf studdir þú mig í öllu, kenndir mér að elska, meta það sem ég hef og sjá það fallega og jákvæða í öllu. Í sorginni og söknuðinum finn ég styrk og hlýju í yndislegum minn- ingum um þig, ásamt þeirri til- hugsum um endurfund ykkar systra og fjölskyldu, þar sem þú hefur öðlast frið og ró. Ég veit þú dansar þar með þessum ljúfu englum sem tekið hafa á móti þér með mikilli ást og opnum örmum. Elsku mamma ég veit þér líður vel nú og að þú sækir mig með sama hætti þegar minn tími kem- ur. Þangað til mun ég með ást og sorg í hjarta, hugsa til þín í fal- legum landslögum, litum og nátt- úru, sem á minni leið munu birt- ast. Síðustu samtölin okkar einkenndust mikið af spjalli um fegurð náttúrunnar og litadýrð gróðurs og himins. Ég skynjaði þar eitthvað himneskt sem á kall- aði, þegar þú oftar en ekki lýstir fallegu útsýni með litadýrð og blómum í blómstrun. Það var róin og einlægnin i orðum þínum. Ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að vera þér við hlið og að fá að halda í hönd þína þegar þú kvadd- ir okkur. Elsku mamma, takk fyr- ir allt, ég elska þig af öllu hjarta. Til himnaríkis ég sendi, þér kveðju mamma mín. Á því virðist enginn endi, hve sárt ég sakna þín. Þú varst mín stoð og styrkur, þinn kraftur efldi minn hag. Þú fældir burtu allt myrkur, með hvatningu sérhvern dag. Nú tíminn liðið hefur, en samt ég sakna þín. Dag hvern þú kraft mér gefur, ég veit þú gætir mín. (Steinunn Valdimarsdóttir) Móðir mín var einnig mikið elskuð, kærleiksrík amma og var hún einmitt viðstödd fæðingu dóttur minnar, sem skírð varð í höfuð bestu manneskjunnar í mínu lífi, henni móður minni. Urðu þær nöfnur mjög nánar og brölluðu ýmislegt saman í gegn- um árin, bæði á Íslandi og í Dan- mörku. Fimm árum seinna eign- aðist ég son minn sem öðlaðist sama sterka kærleik, gleði og nærveru móður minnar. Mamma var þeim svo náin, einstaklega dýrmæt og mikilvæg manneskja, alveg eins og hún alltaf hefur reynst mér. Elsku mamma og amma, þú býrð alltaf í hjörtum okkar. Við elskum þig af öllu hjarta. Amma kær, ert horfin okkur hér, en hlýjar bjartar minningar streyma um hjörtu þau er heitast unnu þér, og hafa mest að þakka, muna og geyma. Þú varst amma yndisleg og góð, og allt hið besta gafst þú hverju sinni, þinn trausti faðmur okkur opinn stóð, og ungar sálir vafðir elsku þinni. Þú gættir okkar, glöð við undum hjá, þær góðu stundir blessun, amma kæra. Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá í hljóðri sorg og ástarþakkir færa. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Með ást og sorg í hjarta kveðj- um við um sinn. Þín Íris, Eva Sóley og Ægir. Núna er ein hjartahlýjasta manneskja sem ég hef kynnst fallin frá, mín elskulega tengda- mamma. Þegar ég kynntist Sveini tókstu mér og Laufeyju með opn- um örmum. Þú varðst strax amma hennar og gerðir allt fyrir okkur mæðgur til að okkur liði sem best hjá ykkur. Okkar á milli ríkti gagnkvæm virðing og ein- stök tengsl, enda datt ég í tengda- mömmu lukkupottinn þegar ég kynntist Sveini. Þú sást hluti sem aðrir sáu ekki og þykir mér óend- anlega vænt um það. Þegar ég var ólétt af Magga sótti ég mikið til þín, reyndar svo mikið að ég takmarkaði heim- sóknir mínar við annan hvern dag, bara svo ég væri ekki alla daga hjá þér. Það var svo gott að koma til þín, í öryggið og hlýjuna hjá þér. Þessa hlýju fundu allir sem kynntust þér og börnin okkar sóttu mikið í þig. Þú varst alltaf boðin og búin að aðstoða okkur. Þegar við bjuggum í Danmörku, vorum við mjög heppin að hafa ykkur þar líka og nálægt okkur og gerðum við ýmsa skemmtilega hluti saman. Þú varst mikill stuðningur við okkur og þar verð ég að nefna þegar þú fluttir til okkar, oftar en einu sinni, og hugsaðir um börnin á meðan ég var grasekkja og vann fram á nætur í ársuppgjöri eða í vinnu- ferðum, algjörlega ómetanlegt að hafa þig sem okkar bakland. Þegar við komum í heimsókn til þín í Danmörku bakaðirðu kleinur og eldaðir dýrindismat, það var alltaf eitthvað gott til hjá þér. Við áttum nokkur sameigin- leg áhugamál, fannst gaman að lesa ástarsögur sem við deildum gjarnan með hvor annarri og Cec, fara á loppemarkaði og svo má ekki gleyma hvítvíninu „okkar“. Elsku Eva, takk fyrir allt sem þú hefur verið mér og mínum. Þú varst sannkallaður engill. Hvíldu í friði Elín Málmfríður Magnúsdóttir. Þeir sem alist hafa upp í sjáv- arþorpi á landsbyggðinni þar sem nálægðin við náttúruöflin og mannlífið hafa mótað aðstæður allar skynja sífellt betur hvað um- hverfið og mannlífið þar hefur markað djúp spor í sálartetrið og myndað órjúfanleg tilfinninga- tengsl við fólkið og æskustöðv- arnar. Þegar ég minnist Evu Sól- eyjar frænku minnar og kærrar vinkonu leitar hugurinn til æsku- áranna í faðmi fjallanna háu, bröttu og tignarlegu við fjörðinn okkar, Ólafsfjörð. Umhverfið í firðinum, fegurð náttúrunnar og torvelt aðgengi, sem stappaði nærri einangrun, þjappaði okkur saman og var í senn leikvangur okkar í æsku og starfsvettvangur. Þá var ekki sjónvarp, engar tölv- ur eða samskiptamiðlar og bara ein útvarpsrás. Samt var alltaf nóg við að vera. Leikir komu í stað fjölmiðlanna og snemma var tekið til hendi í atvinnulífinu, enda nálægðin við sjóinn og lífs- björgina mikil. Aðeins tvö ár voru á milli okkar frændsystkinanna og áttum við sameiginlegt að vera yngst þriggja systkina sem voru okkur talsvert eldri. Það átti sinn þátt í að æsku- og mótunarárin í þessu einstaka samfélagi hnýttu tryggðarbönd sem aldrei slitnuðu þótt á stundum væri landfræðileg vík milli vina. Eva var skarpgreind, glaðvær og orðheppin en fór aldrei mikinn. Hún tranaði sér ekki fram en setti sitt mark á umræður og gleðskap með sinni hlýlegu framgöngu. Hún hafði sérlega hnyttna frá- sagnargáfu og átti til að leika sér með nöfn, orð og orðatiltæki og gefa þeim spaugilega merkingu. Hún var einstaklega skapgóð og jákvæð, skipti sjaldan ef nokkurn tímann skapi og hafði einstakt lag á að sjá atburði í spaugilegu ljósi. Nokkurt rof varð í samfundum okkar á menntaskólaárum Evu en endurnýjuðust af miklum krafti að þeim loknum. Þegar hún fór í Kennaraskólann flutti hún suður og leigði þá á fyrstu starfs- árum sínum sem kennari íbúð á horni Hringbrautar og Hofsvalla- götu í Reykjavík ásamt tveimur vinkonum úr MA. Þar varð fljótt samanstaður glaðværra vina og er margra ógleymanlegra stunda að minnast sem seint verða að fullu þakkaðar. Eva gekk ekki að öllu leyti heil til skógar á lífsleiðinni. Á unga aldri greindist hún með sykursýki sem fylgdi henni alla tíð. Hún tók þessum vágesti af æðruleysi svo sem henni var eðlislægt og lét hann ekki hamla starfi né einka- lífi. Trygglyndi hennar, skaphöfn og lyndiseinkunn gerðu hana að framúrskarandi kennara og upp- alanda. Hún bar mikla umhyggju fyrir nemendum sínum og var yndislegt að heyra hana tala um dúllurnar sínar í skólanum. En „dúllurnar“ hennar voru þó fyrst og fremst börnin hennar, tengda- börn, barnabörn og eiginmaður sem eiga nú við sáran söknuð að stríða. Megi Guð gefa þeim hugg- un í sorg sinni. Við Elísabet og Guðrún systir þökkum henni af alúð samfylgd og trygga vináttu og kveðjum hana með broti úr ljóði Lárusar bróður míns sem þekkti hana og systur hennar svo vel: Aldrei er undarlegt orð Hvað er aldrei? Aldrei hefur aðeins eina merkingu Liðnar stundir lifna aldrei aftur. En minningin lifir! Þórleifur Jónsson. Komið er að kveðjustund. Nú er hún Eva Sóley, hin ljúfa, góða vinkona okkar, farin yfir í sumarlandið þar sem hún syngur nú með sinni engilfögru rödd og spilar eflaust undir á gítar. Það er mjög sárt að kveðja hana en vista- skiptin voru óumflýjanleg, hún var orðin of veik. Þessi þrautseiga vinkona okkar með bjarta brosið kvartaði aldrei þrátt fyrir lang- varandi heilsubrest: „Nei nei, ég hef það gott,“ var viðkvæðið þeg- ar spurt var um heilsu hennar. Eva átti góða fjölskyldu og Magn- ús eiginmaður hennar og börnin þeirra þrjú sinntu henni af ástúð og umhyggju þar til yfir lauk. Eva var frá Ólafsfirði en við tvær kynntumst í miðskóladeild- inni í MA og tókum landspróf saman. Við urðum iðulega sam- ferða í skólann neðan af Oddeyri, vetrarveðrin voru oft válynd; hausinn í veðrið og áfram gakk, alltaf skóli hvernig sem viðraði, Eva vílaði ekkert fyrir sér. Skemmtilegast var þegar raf- magnslaust var vegna veðurs, þá var ball við kertaljós á sal skólans til að hægt væri að hafa auga með þeim sem bjuggu á heimavistinni. Við létum okkur ekki vanta og fórum með betri fötin í poka og höfðum fataskipti á gömlu vist- inni þar sem nokkrir skólafélagar bjuggu. Við lásum saman undir próf við ýmsar aðstæður, t.d. uppi á þaki á skúr – og vorum þá fyrst og fremst í sólbaði. Eva var mikil sunddrottning með afreksstig í sundi (hvalsmerkið) og hún var besti uppspilarinn í blakliði mið- skóladeildar sem varð blakmeist- ari skólans eitt árið. Síðan hófst hinn hefðbundni menntaskóli og þá fjölgaði svo um munar í vinahópnum. Skólaárin voru tími þroska og lífsgleði og þá var stofnað til ævilangrar vináttu við skólafélagana. Eva naut sín vel í hópnum, kát, glettin og trygglynd. Minningarnar eru margar og bjartar og þær spíg- spora með manni alla ævi. Meðal annars var stofnaður sauma- klúbburinn Flittige hænder og tavse munde (FHOTM) sem hef- ur haldið saman alla tíð og gert sér margt til skemmtunar og dægrastyttingar. Innan klúbbs- ins starfar svo Hannyrðaháskóli Hlínar (HHH). Eva var kennara- menntuð og eftir að farsælum kennsluferli lauk bjuggu þau hjón í Danmörku í allmörg ár. Þangað heimsóttum við þau og fengum konunglegar móttökur. Skóla- systur í Frakklandi voru líka sótt- ar heim og ekki má gleyma ferð- um okkar um allt land til að skoða bernskustöðvar skólasystranna og leita rótanna. Á hverju ári fer FHOTM í sumarbústað og þar er boðið upp á „kokdilli“, hátíðar- kvöldverð í glæsiklæðum og dans. Einnig er farið árlega á Maska að vestfirskum sið í furðufötum. Á meðan Eva bjó í Danmörku var kappkostað að hafa þessa við- burði þegar hún var stödd hér heima. Eva var hvers manns hug- ljúfi og gleðigjafi. Hennar mottó var: Lífsgleði njóttu svo lengi sem kostur er. Veistu ef þú vin átt þann er þú vel trúir og vill þú af honum gott geta. Geði skaltu við þann blanda og gjöfum skipta, fara að finna oft. (Úr Hávamálum) Við kveðjum þessa yndislegu og skemmtilegu vinkonu okkar með trega og sendum Magnúsi, börnum, barnabörnum og tengdabörnum innilegar samúð- arkveðjur. F.h. FHOTM, Karlína (Kalla) Malmquist. Eva Sóley Rögnvaldsdóttir Tengdafaðir minn til 48 ára, Skúli Sigurgeirsson, er látinn, 92 ára að aldri. Mér skildist á sögum sem hann sagði okkur að það hafi ekki verið mulið neitt sérstaklega undir hann á æsku- og unglings- árum, frekar en aðra. Hann fékk lömunarveiki á barnsaldri og var bæklaður á fæti, sem háði honum nokkuð allt hans líf. Hann vann alla sína stafsævi, 52 ár, hjá Iðnaðardeild Sam- Skúli Sigurgeirsson ✝ Skúli Sig- urgeirsson fæddist á Akureyri 27. júní 1929. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Lög- mannshlíð 14. apríl 2022. Útför hans fer fram frá Akureyr- arkirkju í dag, 25. apríl 2022, klukkan 13. bandsins í vefdeild- inni í gömlu verk- smiðjunum á Gleráreyrum. Einn- ig vann hann auka- vinnu við teppalögn hjá Dóra vini sínum slíp og Sigurði í Teppalandi og ef það dugði ekki tók hann næturvaktir í skip- um Eimskips þegar þau voru í höfn á Ak- ureyri. Aldrei heyrði ég hann hall- mæla nokkrum manni, þótt stund- um hafi verið þörf á. Veiði átti hug hans allan, lax- og silungsveiði, að maður tali ekki um trilluútgerðina, en hann átti trillur frá unga aldri. Marga veiði- túra fórum við saman í Eyja- farðará, Fnjóská, Skjálfandafljót og vestur á Skaga. Hann átti gamla verbúð niðri við dokkina við Slippinn í mörg ár en þegar þær voru rifnar um aldamótin byggð- um við saman ásamt öðrum fyrstu verbúðina niður á bakkanum við smábátahöfnina á Óseyri. Þaðan reri hann á Víkur-Geira meðan kraftar leyfðu. Síðustu þrjú-fjögur ár voru honum svolítið erfið. Sjónin dapr- aðist hratt og líkamlegur kraftur þvarr, en í huganum var hann allt- af að veiða og á sjó. Nokkrum dög- um fyrir andlátið bað hann dætur sínar að finna sjóstangirnar og veiðihjólin því hann ætlaði á sjó með góðum mönnum, alltaf sami hugurinn í þeim gamla. En nú hef- ur hann siglt í átt að Sumarland- inu og örugglega bundið trilluna við baujuna á Hörgárgrunninu og krakað þar í fiski. Svo siglir hann Víkur-Geira inn í Sumarlandið, þar bíður Didda eftir honum, búin að smyrja og hella upp á. Sigldu í friði gamli. Einar Ólafsson. Nú kveðjum við ástkæran afa okkar sem við vorum svo heppin að eiga lengi að. Afi var alveg ein- stakur, algjört gull af manni. Hann var okkur góð fyrirmynd, glaðlyndur, hlýr, rólegur og yfir- vegaður. Hann hafði ótal marga kosti sem við barnabörnin nutum góðs af og var það okkur mikil gjöf að fá að alast upp í kringum þau afa og ömmu. Afi var mikill húmoristi og kaus frekar að sjá það spaugilega í líf- inu. Því var mikið gantast og hleg- ið og oft voru góðar sögur og atvik rifjuð upp. Hann kom reglulega með fleygar setningar og sniðuga frasa sem við notum enn óspart. Afi hafði gaman af því að fylgjast með boltanum og var alltaf gaman að horfa á leik með honum. Hann var iðulega með góða tónlist á fón- inum, raulaði eða blístraði með og smitaði léttleika allt í kring. Afi vildi hafa sveiflu í lífinu og hélt því mikið upp á þau Louis Arms- trong, Ellu Fitzgerald og Frank Sinatra. Í verbúðinni ómuðu hins vegar íslensku sjómannalögin og stemningin eftir því. Veiðiferðir með afa voru toppurinn á tilver- unni frá því við vorum börn og eig- um við margar góðar minningar frá þeim ferðum. Nú hefur afi siglt út fjörðinn í hinsta sinn á fund ömmu og hugsum við með þakklæti og hlýju í hjarta til þeirra beggja. Hrafnhildur, Orri, Sigríður Ásta, Skúli og Margrét. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, vinkona, amma og langamma, EDDA LAUFEY PÁLSDÓTTIR, Fróðengi 1, Reykjavík, áður til heimilis að Hafnarbergi 16, Þorlákshöfn, lést á Landspítalanum við Hringbraut laugardaginn 16. apríl. Útförin fer fram frá Þorlákskirkju þriðjudaginn 26. apríl klukkan 13. Streymt verður frá útförinni á laef.is/edda-laufey-palsdottir. Hlekk á streymi má einnig nálgast á mbl.is/andlat. Laufey Elfa Svansdóttir Tor Ulset Páll Kristján Svansson Kristín Berglind Kristjánsd. Guðrún I. Svansdóttir Bjarni Jónsson Árni Vilhjálmsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.