Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 25.04.2022, Side 18

Morgunblaðið - 25.04.2022, Side 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. APRÍL 2022 ✝ Davíð Scheving Thorsteinsson fæddist 4. janúar 1930. Hann lést 8. apríl 2022. Foreldrar Davíðs voru hjónin Magnús Scheving Thor- steinsson, f. 4.10. 1893, d. 31.10. 1974, bankaútibússtjóri á Ísafirði og verk- smiðjueigandi, og Laura Scheving Thorsteinsson, f. Havstein, f. 22.10. 1903, d. 5.10. 1955, píanókennari. Systkini Davíðs eru: Gyða, f. 1930, d. 2018, Erla, f. 1936, d. 2017, og Gunnar Magnús, f. 1945. Hálfbróðir Davíðs samfeðra var Hilmar Foss, f. 1920, d. 2013. Fyrri kona Davíðs var Soffía Mathiesen, f. 3.8. 1930, d. 7.1. 1964, húsmóðir og kennari, dótt- ir Jóns Mathiesen, kaupmanns í Hafnarfirði, og konu hans, Jak- obínu Mathiesen, f. Petersen. Börn Davíðs og Soffíu eru: 1) Laura, f. 1954, hjúkrunarfræð- ingur, gift Magnúsi Pálssyni við- skiptafræðingi og dætur þeirra eru: Soffía, maki hennar er Sal- var Geir Guðgeirsson og dóttir þeirra er Embla Sóley; Björg, maki Tryggvi Þór Hilmarsson, börn Tryggva eru Lea Karítas og Logi Karl og Perla, maki hennar er Guðmundur Lúther Hall- grímsson. 2) Hrund, f. 1957, hjúkrunarfræðingur, gift Gunn- ari Ingimundarsyni viðskipta- fræðingi og börn þeirra eru Dav- isfræði við Háskóla Íslands. Hann hætti því námi ári síðar og tók til starfa í fyrirtæki föður síns sem þá hét Smjörlíki hf., síðar Smjör- líki-Sól hf. Þar starfaði hann til ársins 1995. Hann tók við rekstri fyrirtækisins 1964 þegar faðir hans lét af störfum. Davíð var formaður nefndar sem samdi reglur um starfshætti hlutafélaga á Íslandi, og þær regl- ur eru núna orðnar reglur Kaup- hallar Íslands. Hann sat í stjórn Félags íslenskra iðnrekenda 1968-1974, og var formaður 1974- 1982, sat í stjórn Vinnuveitenda- sambands Íslands, í fram- kvæmdastjórn Samtaka atvinnu- lífsins og varaformaður 1978-1990, formaður bankaráðs Iðnaðarbankans 1982-1989, vara- maður í bankaráði Landsbanka Íslands 1972-1980, varamaður í bankaráði Seðlabanka Íslands 1980-1993 og aðalmaður í stjórn bankans 1993-1998. Davíð sat í stjórn og var for- maður Rauða kross Íslands um árabil og sat í stjórn Minning- arsjóðs frú Stefaníu Guðmunds- dóttur 1984-2006. Davíð var for- maður ráðgjafarnefndar Íslands hjá EFTA, ræðismaður Írlands og síðar aðalræðismaður 1977-2018 og formaður Ræðismannafélags Íslands 2007-2018. Davíð var sæmdur fálkaorðunni árið 1982. Davíð lét sig þjóðfélagsmál varða og átti meðal annars sæti í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins. Árið 2009 fékk hann frels- isverðlaun SUS og í rökstuðningi með þeim sagði að hann hefði „allan starfsferil sinn farið ótroðnar slóðir í íslensku við- skiptalífi“. Útför Davíðs fer fram í Dóm- kirkjunni í Reykjavík í dag, 25. apríl 2022, klukkan 13. íð, eiginkona hans er Nína Björg Arn- björnsdóttir, og börn þeirra eru Kjartan, Kolbrún, Soffía Hrund og Gunnar Óli; Jakob; Soffía, maki Jón Dagur Þorsteinsson, og Magnús, maki Glódís Ylja Hilmarsdóttir. 3) Jón, f. 1963, stærðfræðingur, kvæntur Ragnheiði Harðardóttur lögfræðingi og börn þeirra eru Vera og Ari. Seinni kona Davíðs er Stefanía Svala Borg, f. 24.11. 1940, hús- móðir og læknaritari, dóttir Geirs Borg framkvæmdastjóra og konu hans Guðrúnar Ragnars Ólafs- sonar frá Akureyri. Börn Davíðs og Stefaníu eru: 1) Magnús, f. 1968, viðskiptafræð- ingur, kvæntur Þóreyju Eddu Heiðarsdóttur sálfræðingi og börn þeirra eru: Davíð, maki hans er Ásdís Brynja Ólafsdóttir og eiga þau dótturina Diljá; Hekla og Þór. 2) Guðrún, f. 1971, barna- læknir. Dóttir hennar er Eyrún Jóhannsdóttir. Faðir Eyrúnar er Jóhann Ragnar Guðmundsson, fyrrverandi sambýlismaður Guð- rúnar. 3) Stefanía, f. 1986, stærð- fræðingur. Sambýlismaður henn- ar er Jóhann Torfi Ólafsson sölustjóri og börn þeirra eru Tómas Torfi, Sólveig Svala og Jó- hann Jökull. Davíð lauk stúdentsprófi frá MR árið 1949 og hóf nám í lækn- Elsku pabbi minn, quo vadis, hvað geri ég nú? Frá því ég man fyrst eftir mér hefur þú verið klettur í tilveru minni, sem alltaf var hægt að treysta á. Það varst þú sem ég gat alltaf sótt ráð til, og þú varst aldrei, það ég man, ráðalaus. Þú sagðir oft að ekkert okkar á neitt nema það sem við höfum gefið af okkur til annarra. Pabbi minn, á þann mælikvarða ert þú sá allra ríkasti. Ævi mín hefur verið full af hamingju og ást sem að miklu leyti kemur frá þér, beint eða óbeint. Beint hvað snertir allt sem þú gafst mér af veraldlegum gæðum. Hitt, sem er þó miklu þýðingarmeira, hve mikið þú gafst mér af sjálfum þér, af tíma þínum og hve óþreytandi þú alltaf varst að tala við mig, útskýra og fræða og þau miklu og góðu áhrif, sem þú hafðir á mig, og reyndar alla sem þér kynntust, með fordæmi þínu. Ég vona að mér takist að vera mínum börnum, þó ekki væri nema brot af því sem þú hefur verið mér. Um þig pabbi minn má með sanni segja: Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Það er mér ósegjanlega erfitt að hugsa til þess að nú lifi ég í veruleika þar sem ég get ekki leitað til þín og talað við þig, faðmað þig og kysst – en ég held fast í það sem Winston Churchill sagði eitt sinn og þú sagðir mér: „Þetta er ekki endirinn, Þetta er ekki byrjunin á end- anum, Heldur er þetta endirinn á byrjuninni.“ Þangað til næst elsku pabbi minn. Steffí yngri. Stefanía. Mér er enn í fersku minni þegar ég hitti Davíð tengda- pabba fyrst. Á heimleið úr vinnu kom hann við niðri í MR og sótti Hrund. Ekki veit ég hvernig honum leist á síðhærða táning- inn sem var að eltast við dóttur hans. Við heilsuðumst og þrátt fyrir öran hjartslátt fann ég strax þessa hlýju nærveru sem einkenndi fas hans alla tíð. Kynni okkar Davíðs ná yfir hartnær hálfa öld og tengdust bæði leik og starfi. Með námi vann ég um hríð í Sól og síðar hjá Félagi íslenskra iðnrekenda. Þá voru umbrotatímar í íslensk- um iðnaði, fyrirtækin þurftu að búa sig undir aukna samkeppni. Skipulögð var ferð til Asíu í því skyni að kynna sér hvað önnur lönd væru að gera til að efla sinn iðnað. Einstök ferð og sérstak- lega gaman að ferðast með og kynnast Davíð við þessar að- stæður og sjá hversu mikillar virðingar hann naut meðal ferða- félaga og hvað hann gaf mikið af sér í ferðinni. Smjörlíki-Sól var vaxandi fyrirtæki og hann vakinn og sof- inn í því að finna leiðir til að efla það enn frekar með þróun nýrra vara og með því að taka upp ýmsar tækninýjungar. Einkum vakti athygli mína hversu vel hann var að sér um allt sem laut að virkni hvers kyns véla. Þessi áhugi hans á vélum og sjálfvirkni kom m.a. fram í því að hann vildi leita allra leiða til auðvelda sölu- mönnum að gera reikninga og losna við handavinnu. Við fórum saman á sýningu í Chicago til að finna slíkan búnað. Úr varð að hann festi kaup á vél- og hug- búnaði og fjármagnaði nauðsyn- legar breytingar til að uppfylla allar kröfur hérlendis. Sams kon- ar búnaður má nú teljast stað- albúnaður, en var nýjung hér- lendis á þeim tíma. Í sömu ferð kynntist ég líka enn betur tón- listaráhuga Davíðs. Hann leitaði uppi hvar væri spilaður alvöru- jazz og þangað var haldið. Þegar við nokkrir félagar ákváðum að stofna hugbúnaðar- fyrirtæki um miðjan 9. áratuginn ákváðum við að fá fjárfesta til liðs við okkur. Við leituðum til Davíðs, hann tók vel í það og stakk upp á fleirum. Á ýmsu gekk á fyrstu árum fyrirtækisins og þau voru mörg samtölin sem ég átti við Davíð um reksturinn. Hann gaf sér alltaf tíma, þrátt fyrir miklar annir, hlustaði vel og beindi manni í réttar áttir. Þessi hollráð voru mér reynslulitlum mikils virði. Heilindi og traust voru Davíð í blóð borin. Það kom vel fram þegar hann vann að samninga- málum fyrir vinnuveitendur á sínum tíma. Hann ávann sér traust og vináttu forystumanna verklýðsfélaganna og annarra á vinstri væng stjórnmálanna. Ferð okkar með þeim Steffí til Windsor fyrir þremur árum til Davíðs og fjölskyldu er eftir- minnileg og kemur upp í hugann við þessi tímamót og dýrmætt að hafa átt þá daga saman. Davíð naut sín einstaklega vel á þess- um sögufræga stað, rifjaði upp söguna og stríðið, sem hann hafði mikinn áhuga á og var hon- um ofarlega í huga í seinni tíð. Hann slakaði vel á, skoðaði sig um, gaf sig að barnabarnabörn- unum og teiknaði sögurnar sem hann sagði þeim. Með þakklæti og fallegar minningar í huga kveð ég Davíð tengdapabba. Gunnar (Gunni). Afi var alla tíð kallaður afi Davíð á mínu heimili og ég fékk þann heiður að heita í höfuðið á honum. Ég fékk líka að njóta þess að fylgja honum í rúmlega fjörutíu ár. Við afi vorum góðir félagar og gerðum ýmislegt sam- an í gegnum árin. Hann tók alltaf vel á móti manni, var glaður að sjá mann og hafði einstakt lag á því að vekja áhuga ungs manns á ýmsum hlutum eins og stang- veiði, bókalestri, kvikmyndum, tónlist, fyrirtækjarekstri og góðu lífi. Afi kunni sannarlega að lifa vel, hann naut lífsins og fékk mann til þess að langa að gera slíkt hið sama. Afi bauð mér í rótarý á hverju ári milli jóla og nýárs og í kjöl- farið fórum við félagarnir saman og keyptum flugelda til að sprengja í Mávanesinu á áramót- um. Úr Mávanesinu á ég ýmsar góðar minningar af því að gramsa í bókum í kjallaranum eða horfa, frekar ungur drengur, á hugljúfar kvikmyndir á borð við Jaws og Indiana Jones, með popp og töluvert magn af sæl- gæti. Ég átti sömuleiðis fjöl- margar góðar stundir með afa í bústaðnum á Þingvöllum þar sem við veiddum af bryggju eða fór- um út á bát. Mér þótti alltaf sérstaklega gaman og tilkomumikið að fá að koma upp í Sól, hitta afa á skrif- stofunni þar sem mér var tekið opnum örmum og fá að kíkja inn í verksmiðju. Hann var glaður í vinnunni eins og annars staðar og það var annað starfsfólk líka. Löngu síðar vann ég í Sól að sumri til sem ungur maður og kynntist þá mörgum sem þekktu afa. Það kom í ljós eins og við var að búast að allir sem höfðu unnið fyrir hann höfðu á honum miklar mætur. Ein skemmtilegasta minningin okkar er frá því þegar afi og amma Steffí komu ásamt foreldr- um mínum að heimsækja okkur fjölskylduna þegar við bjuggum í Windsor á Englandi. Það var vorið 2019 og börnin mín fengu þá tækifæri til þess að kynnast afa betur, hlusta á sögurnar hans og auðvitað horfa á bannaðar bíó- myndir. Afi hafði einstaka frásagnar- gáfu, hann hafði unun af bókum, veiði, jazz, klassískri tónlist, góð- um mat og ostum og í raun öllu þessu litla og stóra sem gefur líf- inu lit og gildi. Hann kenndi mér að allt getur verið áhugavert ef maður leggur sig eftir því og að lífið er til þess að lifa því. Takk fyrir allt saman afi minn. Davíð Gunnarsson. Það er erfitt og sárt að kveðja afa Deux Voff. Við söknum hans mikið og minnumst hans með þakklæti og ást. Afi var einstak- ur. Hann var skemmtilegastur og fróðastur allra manna. Í okkar augum var hann risastór að inn- an sem utan og lýsti upp um- hverfi sitt hvert sem hann fór. Hann hafði hlýja nærveru og það var ekki annað hægt en að líða vel í kringum hann. Hann hafði ávallt glaðlegt blik í auga og stutt var í brosið hans einstaka. Afi sá alltaf það besta í öllum og öllu. Skemmtilegar og ómetanlegar minningar streyma fram þegar við hugsum til hans. Við minn- umst ótal góðra samverustunda með afa og ömmu í Ásbúð og Hreiðrinu. Við lögðum kapal með afa og spiluðum rommí með ömmu. Að kúra hjá afa og „passa bakið hans“ var best. Afi var hinn mesti grillmeistari og ófáar voru veislumáltíðirnar sem hann grill- aði handa okkur. Afi átti enda- laust af bókum, var sílesandi og naut þess að sýna okkur bæk- urnar og segja okkur frá þeim. Hann var frábær sögumaður og sagði ótrúlega skemmtilega frá. Hann kunni óteljandi margar sögur; þjóðsögur, draugasögur og skemmtisögur. Þegar hann sagði sögur voru lýsingarnar svo líflegar að okkur fannst við stödd inn í þeim. Afi hafði einnig gam- an af kvikmyndum og góðu sjón- varpsefni. Við gátum setið í sóf- anum og horft á mynd eftir mynd með afa. Svo gaman var að stundum þótti foreldrum okkar nóg um þegar við, á unga aldri, höfðum horft á bæði Jaws og Pulp Fiction með afa. Eftirminnilegar eru líka heim- sóknir hans og ömmu til Parísar þegar við bjuggum þar. Afi hafði brennandi áhuga á sögu, menn- ingu og öllu sem á vegi hans varð. Við fórum í fjölmarga göngutúra um götur Parísar og oftar en ekki gekk hann langt á undan okkur, svo ákafur var hann. Stundum týndum við honum í þessum göngutúrum því hann var kominn inn í áhugaverða búð eða kominn með súkkulaði eða lakkrís í hönd. Eins ferðalögin okkar á seinni árum til Suður- Frakklands og Korsíku. Þá var afi kominn á níræðisaldur en var síkátur, jákvæður og afar áhuga- samur um nýja staði og hluti. Hann veigraði sér ekki við að ganga langa vegu til að fá gott að borða enda var hann einstakur matmaður og elskaði góðan mat. Hann elskaði góða osta og gott súkkulaði. Hann hafði þó mest gaman af því að gefa með sér og allir urðu að smakka myglaða ostinn, nýja súkkulaðið, besta lakkrísinn eða annað góðgæti. Við vissum alltaf hvað afa þótti vænt um okkur. Hann var okkur einstaklega góður og bar hag okkar fyrir brjósti á allan hátt. Okkur þykir óendanlega vænt um afa. Við munum geyma hann í hjarta okkar alla tíð og kveðjum hann full saknaðar og þakklætis. Takk fyrir allt, elsku afi okkar. Davíð, Hekla og Þór. Elsku afi. Það er sárt að kveðja mann með svona bjart bros, gefandi nærveru og ein- staka hlýju. Afa okkar á Land Cruiser-jeppanum, sem táknaði í huga okkar spennandi ævintýri enda var ferðinni yfirleitt heitið á Lyngbrekku, með nauðsynlegu stoppi í ísbúðinni í Mosfellsbæ. Ekki var verra að fara í ævin- týraheiminn í Mávanesinu, velja mynd úr risastóru Disney-safn- inu, tína rifsber í garðinum og fara svo í billjard í kjallaranum. Eitt af því sem alltaf var hægt að ganga að vísu var hve glað- lega og hlýlega þú tókst á móti okkur við öll tilefni. „Hæ elsk- an,“ var kveðjan þín til okkar og það fór ekki á milli mála hvað þú varst glaður að sjá okkur. Tilbú- inn með hlýjan faðminn, nýjar sögur og fullkomlega orðaða viskumola til að miðla til okkar. Til dæmis þegar þú útskýrðir fyrir okkur að viðkvæmni væri styrkleiki. Þú varst fróðleiksfús sögumaður af guðs náð sem skildir bæði hið stóra og smáa. Svo varstu líka gæddur þeim fá- gæta eiginleika að geta hent fram frábærri sögu sem hæfði hvaða tilefni sem er. Stundum sagðirðu okkur af litríkum Róm- arkeisurum til forna, sem við gátum dregið lærdóm af, en við önnur tilefni fórstu vandlega yfir örlög Garúnar og djáknans á Myrká með miklum tilþrifum þannig að hrollur fór um okkur. Einna skemmtilegast var samt að hlusta á þig tala um okkar samfélag, uppvöxt þinn í Reykja- vík á umbrotatímum, heyra þig skamma pólitíkusana fyrir kol- rangar ákvarðanir og veltast svo um af hlátri yfir kómísku sam- ferðafólki. Ætli þú hafir ekki kunnað einna best við þig sitj- andi í hægindastólnum, með hálsklút úr silki, umvafinn fjöl- skyldunni að segja góða sögu? Elsku afi. Takk fyrir allar stundirnar, takk fyrir að kynna okkur menningarsöguna og gefa okkur allar bækurnar. Takk fyr- ir að hvetja okkur til að ferðast, læra meira, hlusta oftar á Moz- art og Beethoven. Þú ert fyr- irmynd hjá okkur öllum, jákvæð- ur, sanngjarn, drífandi, hugmyndaríkur, brautryðjandi – en alltaf hlýr og fyndinn. Þú auðgaðir tilveru okkar og fyrir það verðum við ávallt þakklátar. Blessuð sólin elskar allt, allt með kossi vekur; haginn grænn og hjarnið kalt hennar ástum tekur. Geislar hennar út um allt eitt og sama skrifa á hagann grænan, hjarnið kalt: himneskt er að lifa! (Hannes Hafstein) Hvíl í friði elsku afi Davíð. Soffía, Björg og Perla. Davíð, elskulegi bróðir minn, er látinn. Ég var bara fimm ára gamall þegar ég var með mömmu og pabba við Gullfoss og vildi vita hvort ég gæti hoppað yfir foss- inn. Þau sögðu að það gæti ég ekki, fossinn væri allt of stór en þá sagði ég að Davíð bróðir gæti það alveg. Já, allt frá fyrstu tíð leit ég upp til stóra bróður og gerði það alla tíð í þau 77 ár sem við áttum saman. Davíð bróðir sagði við mig fyr- ir nokkrum árum að það væri merkilegt að hann myndi ekki eftir einu einasta tilfelli þar sem við hefðum rifist og sýnir það betur en nokkuð annað það traust og þá vináttu sem batt okkur saman frá fyrstu tíð. Davíð bróðir var sannkallaður gleðigjafi hvar sem hann var og hvert sem hann fór og alltaf var hann reiðubúinn að rétta þeim hjálparhönd er þess þurftu með. Í návist hans leið öllum svo vel að jafnvel þungbrýnustu menn urðu fyrir því að í sálu þeirra og andliti tóku sig upp gömul bros. Davíð bróðir kom víða við í störfum sínum fyrir íslenskan iðnað og landið okkar og fór þar ekki troðnar slóðir enda kom hann ótal mörgu góðu til leiðar og því er til framfara horfði en um það allt munu þeir minnast sem eftir lifa og með honum stóðu í þeim orrustum. Ég kveð þig elsku bróðir með einlægri þökk fyrir árin 77, það voru forréttindi að eiga þig að sem bróður og vin. Ég á eftir að sakna þín svo mikið. Ég bið góðan Guð að vernda og hughreysta Steffí og öll börn- in ykkar, barnabörnin og barna- barnabörnin. Gunnar Magnús. Elsku Davíð frændi. Það var gaman að rekast á þig fyrr á árinu fyrir utan heimili foreldra minna í Sjálandi í Garðabæ, er þú varst úti í heilsu- göngu enda búsettur rétt hjá þeim. Sem fyrr varstu ljúfur og hress og brostir þínu blíðasta sem fyrr. Það rifjast upp ótrúlega fal- legar og góðar minningar frá okkar kynnum enda áttirðu rík- an þátt í að koma mér til manns er ég vann öll mín táningsár í fjölskyldufyrirtækinu Sól hf. sem þú veittir forstöðu á sinum tíma. Þegar þú réðst átrúnaðargoð mín á þessum tíma, Jón Pál Sig- marsson, sterkasta mann í heimi, og Lindu Pétursdóttur, fegurstu konu í heimi, sem talsmenn Svala-drykkjarins þá fannst mér þú svalasti gaur í heimi. Þegar þú svo neitaðir að virða bjórbannið fræga og tókst með þér bjórkippu gegnum tollinn og komst af stað lagabreytingu, þá var ljóst í mínum huga að þú varst algjör snillingur. Ekki hef ég tölu hversu oft ég gisti hjá ykkur í Mávanesinu um helgar á mínum uppvaxtarárum enda við Magnús sonur þinn allt- af eitthvað að bralla saman. Mik- ið rosalega var alltaf gaman hjá okkur. Þú varst eflaust með eitt stærsta VHS-vídeóspólusafn Ís- lands á þessum tíma og Clint Eastwood-kúrekamyndirnar, Dirty Harry og James Bond, við gátum endalaust legið yfir þessu. Ekki má gleyma lærdómnum þegar þú heyrðir að ég væri að fara með fjölskyldu minni til Flórída, en þá kenndir þú mér að fara varlega að busla í sjónum með því að láta mig horfa á nýút- komna „fiski-mynd“ eins og þú kallaðir hana sem hét Jaws. Ég sýndi ábyrgð, einbeitti mér að því að busla bara í hótellauginni á Flórída í þessari ferð og skildi lítið í fólki að busla þarna í stór- hættulegum sjónum. Vinátta ykkar pabba er svo al- veg sérkapítuli en fallegri „bræðravináttu“ hef ég ekki séð. Ég ætla að kveðja þig með fal- legri sannri sögu, Davíð minn, en ég þurfti að fara á sjúkrahús í Covid-faraldrinum enda VIP- sjúklingur eins og pabbi og stefnum við báðir á Platinum-að- ild enda fastagestir þar vegna ýmissa hrakfalla eins og við feðg- ar erum þekktir fyrir. Ég þurfti að fara í röntgen og skoðanir í bak og fyrir og hjúkr- unarkonan horfði mikið á mig og spurði svo: „Tengdist þú Sól hf. í Davíð Scheving Thorsteinsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.