Morgunblaðið - 17.06.2022, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 17.06.2022, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 2022 295 Vinnuvettlingar PU-Flex Öflugar Volcan malarskóflur á frábæru verði frá 365 Glærir ruslapoka Ruslapokar 120L Ruslapokar 140L Sterkir 10/50stk 1.995 Strákústar mikið úrval Öflug stungu- skófla Garðverkfæri í miklu úrvali Hakar, hrífur, járnkarlar, kínverjar, sköfur, skröpur, fíflajárn, fötur, balar, vatnstengi, úðarar, stauraborar......... Léttar og góðar hjólbörur með 100 kg burðargetu 999Barna- garðverk- færi frá 395 Ruslatínur frá 295 Úðabrúsar í mörgum stærðum frá 995 Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Verkfæralagerinn Mán.-fös. kl. 9-18, lau. kl. 10-17, sun. kl. 12-16 Garðslöngur í miklu úrvali Hrífur Greinaklippur frá 585 Burstar framan á borvél 3 stk. Mikið úrval af garðstömpum Fötur í miklu úrvali frá1.495 Laufhrífur Í þinglok sönnuðust enn orð Bis- marcks um að lög séu eins og pulsur, best sé að vita sem minnst um hvernig þau eru búin til. Hinum reynda Birni Bjarnasyni blöskrar: „Sú áferð sem þarna birtist af þing- störfum er ekki fal- leg. Þingsköpin eru hriplek þegar að því kemur að halda uppi sæmilegum aga. Hrossakaup um málefni stjórnar- andstöðu ráðast meira af hags- munum þingflokks- formanna hennar en hvort unnt sé að tryggja viðunandi málsmeðferð. Þing- mannamál liggja óafgreidd í nefnd- um þangað til kemur að gerð „þing- lokasamkomulags“. Þá er dustað rykið af einhverjum málum og þess krafist að þau fái flýtimeðferð. - - - Þingmenn stjórnarandstöðu sem allan veturinn hafa staðið í ströngu við að kalla eftir áliti sér- fræðinga um stórt og smátt til að tryggja „faglega“ meðferð þing- mála standa nú í ræðustól og minna á sjálfstæði þingmanna og þings, það þurfi sko ekki að fá álit sérfræð- inga ráðuneyta eða hlusta á kerfis- karla og -kerlingar. Þingmenn eigi að ráða!“ - - - Brynjar Níelsson tekur í sama streng: „Ómögulegt virðist að ná samstöðu um að koma einhverri reglu og aga á þingstörfin. Ríkis- stjórn og meirihluti ná engum mál- um í gegn nema stjórnarandstaðan sætti sig við það.“ - - - Fjöldi þingflokka greiðir ekki fyrir þingstörfum, en þá þarf að bregðast við, svo þingið sé starf- hæft og löggjafarstarfið boðlegt. Birgir Ármannsson forseti hlýtur að huga að endurskoðun þingskapa. Björn Bjarnason Vinnubrögð og virðing Alþingis STAKSTEINAR Brynjar Níelsson Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Kanadíski prófessorinn og sálfræðingurinn Jord- an B. Peterson kemur fram í Háskólabíói 25. júní næstkomandi. Þetta er í annað sinn sem hann sækir Ísland heim, en fyrirlestur hans í Hörpu ár- ið 2018 vakti nokkra athygli. Peterson er mjög eft- irsóttur fyrirlesari og hefur birt vel á annað hundrað vísindagreinar. Bók hans, Maps of Meaning, bylti trúarbragða- sálfræði, segir í kynningu um fyrirlesturinn, en miðasala fer fram á tix.is. Bókin Tólf lífsreglur kom út árið 2018 og hefur selst í meira en fjórum milljónum eintaka. Gunnlaugur Jónsson stendur að komu Peter- sons, líkt og fyrir fjórum árum. Hann segir pró- fessorinn ekki hika við að taka slaginn í umræðu nútímans, oftar en ekki gegn pólitískum rétttrún- aði. Þannig komst hann í fréttir vestanhafs er hann gagnrýndi frumvarp á kanadíska þinginu sem gekk út á að skylda fólk m.a. til að nota ný- tilbúin persónufornöfn um alls kyns ný kyn. Mætti málflutningur Petersons mikilli andstöðu. Sjálfur hefur hann sagt sig talsmann tjáningarfrelsis og mótfallinn öllum öfgum og ofstæki. Peterson aftur á leið til Íslands - Umdeildur en eftirsótt- ur fyrirlesari frá Kanada Fyrirlesari Jordan B. Peterson á leið til landsins, öðru sinni. Verður í Háskólabíói 25. júní nk. Í dag, á þjóðhátíð 17. júní, verður myndarleg lægð fyrir sunnan og austan landið og henni fylgir nokk- uð hvöss norðanátt þegar líður á daginn. Áhrifa hennar gætir til morguns, laugardags. Strengurinn nær yfir allt landið og kemur til með að rigna talsvert á Norður- og Austurlandi, þar sem gæti komið slydda og jafnvel rigning upp til fjalla. Þetta segir Einar Svein- björnsson, veðurfræðingur hjá Veð- urvaktinni, í samtali við Morgun- blaðið. Veðrið gengur niður þegar kem- ur fram á laugardag og þá verður fremur hæglátt veður vestantil á landinu. Um tíma mun jafnvel sjást til sólar. Norðanáttin verður lengur viðloðandi austantil, en veður lag- ast mikið þegar líða fer á laugar- daginn og þá um kvöldið. Á sunnudag fer að rigna vestan- og suðvestantil undir hádegi. Aust- an- og norðanlands snýst hins veg- ar í suðvestanátt og gerir þá sum- arhlýindi með allt að 18-20 stiga hita. Rigning og lægð en svo sólskin á Norðurlandi Morgunblaðið/Sigurður Bogi Akureyri Rigning fram á sunndag, en þá snýst í sólskin, blíðviðri og hita.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.