Morgunblaðið - 17.06.2022, Page 12
12 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 2022
Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is
Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta
Sérhæfð þjónusta fyrir
Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992
544 5151
tímapantanir
Verið velkomin
í sjónmælingu
Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200
Opið: Virka daga 9.30–18, laugardaga 11-14
Logi Sigurðarson
logis@mbl.is
Hlutabréf Alvotech voru tekin til
viðskipta í Nasdaq-kauphöllinni í
New York í gær. Bréfin, sem eru
skráð undir auðkenninu ALVO,
ruku upp um leið og höfðu hækkað
um 30% þegar viðskiptadagurinn
var hálfnaður.
Róbert Wessman, stjórnarfor-
maður og stofnandi Alvotech, segir
í samtali við Morgunblaðið að þetta
hafi klárlega verið hans stærsta
stund á 25 ára ferli í bransanum.
„Ég held að þetta hafi verið hátind-
urinn í morgun þegar við hringdum
inn bjöllunni.“
Þrátt fyrir að markaðsaðstæður
vestanhafs séu krefjandi um þess-
ar mundir, telur Róbert að undir-
liggjandi rekstur fyrirtækisins sé
sterkur. Fyrirtækið sótti 175 millj-
óna dollara fjárfestingu frá nýjum
aðilum fyrir áramót og eftir það
var fyrirtækið metið á um 2,25
milljarða dollara.
„Við fórum í gegnum miklar
verðmatsviðræður þegar menn
komu inn með nýtt hlutafé. Til
lengri tíma litið er undirliggjandi
rekstur félagsins mjög sterkur. Við
reiknum með að skila félaginu í
hagnað eftir mitt ár 2023. Við erum
ekki félag sem er tekjulaust í ein-
hver ár, sem hafa kannski orðið
verst úti í verðlækkunum,“ segir
Róbert.
Í fjárfestakynningu félagsins má
sjá að fyrirtækið gerir ráð fyrir því
að fimm- til nífalda tekjurnar á
næstu fjórum árum. Fyrirtækið
velti 40 milljónum dollara í fyrra
og býst við því að velta á bilinu 85-
155 milljónum dollara í ár, að því
segir í kynningunni.
Hvað mun leiða þennan tekju-
vöxt?
„Árið 2025 reiknum við með að
tekjur félagsins verði orðnar rúm-
lega 800 milljónir dollara. Það
ræðst fyrst og fremst af því að við
verðum komin með fimm lyf á
markað árið 2025. Það tekur um
sex til níu ár að þróa eitt hlið-
stæðulíftæknilyf. Við erum með
átta lyf í þróun núna og bætum
einu nýju lyfi í þróun á hverju ári.
Þannig að vöxturinn fylgir því að
við setjum lyfin okkar á markað.“
Líka skráð á Íslandi
Inntur eftir því hvers vegna
skráning í Bandaríkjunum varð
fyrir valinu, svaraði Róbert því að
einfaldlega væri langstærsti hluti
lyfjaveltu í heiminum þar, eða yfir
50%. Alvotech verður einnig skráð
á First North markaðinn hérlendis
23. júní.
„Við reiknuðum með að það yrði
áhugi á Íslandi og vildum auðvelda
fjárfestum að eignast hluti í félag-
inu til lengri tíma,“ segir hann og
bætir því við að félagið sé íslenskt,
með höfuðstöðvar hér og borgi
skatta á Íslandi. Því hafi það legið
fyrir að skrá félagið á markað á Ís-
landi.
Alvotech fór á markað í gær í
gegnum sérhæft yfirtökufélag eða
svokallað SPAC-félag. Róbert seg-
ir að þessi leið hafi hentað fyrir-
tækinu mun betur en frumskrán-
ing. „Þessi SPAC leið gefur aðeins
meiri sveigjanleika. Þeir sem koma
inn sem nýir fjárfestar, ákveða á
endanum verðmatið á félaginu,“
segir Róbert og bætir því við að í
raun skipti leiðin á markað ekki
máli þegar menn eru farnir að
versla með bréfin.
Alvotech er líftæknifyrirtæki
sem einbeitir sér að þróun og
framleiðslu á líftæknihliðstæðulyfj-
um fyrir sjúklinga um allan heim.
Félagið stefnir að því að verða leið-
andi fyrirtæki á þeim markaði.
Stærsta stundin á ferlinum
Líftækni Alvotech var skráð á markað í Nasdaq-kauphöllinni í New York.
- Alvotech skráð á markað í Bandaríkjunum - Bréfin ruku upp þrátt fyrir að
markaðurinn lækkaði - Félagið verðmetið á 2,25 milljarða dollara fyrir skráningu
Alvotech
» Eina íslenska fyrirtækið
skráð í Bandaríkjunum.
» Bréf félagsins verða einnig
skráð á Íslandi, 23. júní.
» Ráðgera gríðarlegan tekju-
vöxt á næstu árum.
» Átta lyf í þróun og eitt á
markað.
» Sóttu 175 milljónir dollara
um morguninn á
meðan athöfn-
inni stóð og
mágkona henn-
ar, sem er lækn-
ir, kláraði vakt-
ina, svo Sóley
gæti fagnað
þessum merka
áfanga.
Upphaflega
hafði Sóley gert
ráð fyrir því að mæta beint til
vinnu eftir útskriftarathöfnina og
ráðgert var að veislunni myndi
seinka um klukkustund. „Það má
eiginlega segja að lögfræðingur
og læknir hafi bjargað deginum,“
segir Sóley og hlær. Aðspurð seg-
ist Sóley alltaf vera að vinna og
sjái, í auknum mæli, um rekstur
búðarinnar.
„Þegar maður er að reka fyrir-
tæki, þá bara vinnur maður alla
daga og tekur svo sumarfríið á
veturna,“ segir hún og bætir því
við að það gangi rosalega vel hjá
þeim um þessar mundir. „Það er
allt á blússandi siglingu.“
Spurð hvert hún stefni næst,
hlær Sóley og segist ætla að
sökkva sér enn dýpra í reksturinn.
Fyrirtækið fór af stað með net-
verslun í kófinu, sem hún sér al-
gjörlega um.
„Ég er alltaf að stíga meira og
meira inn í reksturinn. Ég sé al-
farið um netverslunina og stend á
búðargólfinu alla daga — maður
er í rauninni í öllu,“ segir Sóley.
Aðspurð segir hún ferðamenn-
ina vera lenta á Akureyri, en síð-
ustu tvö sumur hafi fjölmargir Ís-
lendingar sótt búðina. „Þetta var
bara algjör klikkun.“
Logi Sigurðarson
logis@mbl.is
Læknir og lögfræðingur björguðu
óvænt útskriftardegi Sóleyjar Úlf-
arsdóttur, þar sem enginn gat
leyst hana af í vinnunni, en hún og
foreldrar hennar reka fataversl-
unina Centro í miðbæ Akureyrar.
Sóley útskrifaðist með B.Sc. gráðu
í viðskiptafræði frá Háskólanum á
Akureyri á laugardag.
Systir Sóleyjar, sem er við-
skiptalögfræðingur hjá Seðla-
banka Íslands, hljóp undir bagga
Læknir og lögfræðingur bjargvættir
Sóley
Úlfarsdóttir
- Rekur fataverslun með foreldrum sínum - „Reksturinn á blússandi siglingu“
« Bæði Greining Íslandsbanka og
Hagsjá Landsbankans spá því að
peningastefnunefnd Seðlabanka Ís-
lands hækki vexti bankans um 0,75
prósentustig í næstu viku. Gangi
spárnar eftir, fara stýrivextir úr 3,75%
upp í 4,5%, og verða jafnháir og þeir
voru áður en peningastefnunefnd hóf
að lækka vexti 2019. Greining Íslands-
banka segir þó í sinni spá að íslenska
hagkerfið sé komið á á gott skrið eftir
þann skell sem dundi yfir þegar kórónu-
veirufaraldurinn tók að geisa á heims-
vísu. Þá bendi bráðabirgðatölur Hag-
stofunnar, um 8,6% vöxt landsfram-
leiðslu, til þess að mikill gangur sé í
hagkerfinu og að áhrif þess, sem bank-
inn kallar kórónukreppuna, fari dvín-
andi.
Spá því að stýrivextir
hækki um 0,75 punkta
17. júní 2022
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 131.82
Sterlingspund 159.28
Kanadadalur 101.87
Dönsk króna 18.483
Norsk króna 13.238
Sænsk króna 12.938
Svissn. franki 131.77
Japanskt jen 0.9787
SDR 175.28
Evra 137.5
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 169.582
Bandaríski
snyrtivörufram-
leiðandinn Rev-
lon hefur óskað
eftir gjaldþrota-
skiptum. Revlon,
sem á að baki 90
ára sögu, hefur á
liðnum árum tap-
að markaðshlut-
deild og orðið
undir í netverslun
á snyrtivörum, á meðan vinsælar lín-
ur ýmissa áhrifavalda hafa vaxið. Í
frétt Reuters um málið kemur fram
að helstu keppinautar Revlon séu
meðal annars Kylie Cosmetics, sem
er í eigu Kylie Jenner, og Rihanna’s
Fenty Beauty. Þá er félagið mjög
skuldsett eftir að hafa ráðist í yfir-
tökur á öðrum keppinautum á
undanförnum árum.
Revlon
gjaldþrota
Revlon hefur orðið
undir í samkeppni.
« Íslensk hlutabréf
héldu áfram að
lækka í vikunni en
mesta lækkunin átti
sér þó stað í gær,
fimmtudag. Ice-
landair lækkaði um
5,4% í gær, um
10,9% yfir vikuna
og hefur nú lækkað
um 23,6% á árinu.
Gengi bréfa í félag-
inu er nú 1,39 kr. á
hlut og hefur ekki verið lægra í tvö ár,
eða frá því um miðjan júní 2021. Hluta-
bréfaverð í Icelandair tók skarpa dýfu
niður á við eftir innrás Rússa inn í Úkra-
ínu í lok febrúar sl., en hækkaði þó á ný
seinni hlutann í mars og út apríl. Frá byrj-
un maí hefur gengið leitað niður á við á
ný og má að mestu rekja þá lækkun til
hækkandi eldsneytisverðs á heimsvísu.
Gengi bréfa í flugfélaginu Play lækkaði
einnig í gær, um 2,7% í aðeins rúmlega
13 milljóna króna viðskiptum. Gengið
lækkaði um 7,9% yfir vikuna, stendur nú
í 16,3 kr. á hlut og hefur aldrei verið
lægra. Þá hefur gengi félagsins lækkað
um 33,7% frá því að það var skráð á
markað í júlí í fyrra.
Flugfélögin lækka
flugið í Kauphöllinni
Eldsneytisverð hef-
ur áhrif á gengi
flugfélaga.
STUTT