Morgunblaðið - 17.06.2022, Side 14

Morgunblaðið - 17.06.2022, Side 14
F yrir níu dögum skipaði ég þriggja manna spretthóp til þess að fara yfir og gera tillögur að aðgerðum til þess að mæta alvarlegri stöðu í landbúnaði. Ljóst var orðið að grípa þurfti til ráðstafana til þess að treysta fæðuöryggi. Ástæðan er fyrst og fremst sú að innrás Rússa í Úkraínu hefur haft afar alvar- legar afleiðingar fyrir aðfangakeðju landbún- aðar á heimsvísu og þar með hér á landi. Þetta er vel dregið saman í skýrslu spretthópsins. Hópurinn vann afar hratt og vel og á heiður skilinn fyrir að geta tekist á við verkefni af þessari stærðargráðu innan þessa þrönga tímaramma. Þá fjallar hópurinn vel um þá ólíku stöðu sem er uppi í landbúnaði, þar sem sérstaklega sauðfjárræktin er í veikri stöðu, vegna viðvarandi lágs afurðaverðs í kjölfar verðhruns áranna 2016 og 2017. Tillögurnar voru að styðja bæri landbúnað sérstaklega með 2,5 milljarða framlagi en einnig er fjallað um umbætur til lengri tíma. Langtímamarkmiðið er að treysta fæðuöryggi á Íslandi og að stuðla að hagræðingu. Ég gerði tillögur hópsins að mínum en þær voru svo samþykktar í ríkisstjórn. Ég stend með bændum í þeim þrengingum sem nú ber að garði. Berskjaldaður landbúnaður Það er ærið umhugsunarefni að íslenskur landbúnaður sé eins útsettur og raun ber vitni fyrir sviptivindum á al- þjóðavísu. Við erum ekki ein um það að hugsa fæðuöryggismál í nýju samhengi, það gera allar þjóðir nú. Innrás Rússlands hefur haft þau áhrif að verð á ýmsum aðföngum hefur hækkað mikið og ólíklegt þykir að þær hækk- anir gangi til baka á næstu mánuðum. Þar er um að ræða kornvöru, orkuverð og líklegt má telja að áburðarverð haldist áfram hátt. Þá verður líklegabið á því að landbúnaðarfram- leiðsla í Úkraínu verði með eðlilegum hætti. Því þurfum við núna að byrja að hugsa um næsta ár og hvernig við getum eflt innlenda framleiðslu á korni, hvernig við getum nýtt lífrænan áburð betur og bætt fæðuöryggi með öllum ráðum. Markmið og leiðir Oft er talað um að gott sé að ljúka spretti á feti en margt þarf að hugleiða þegar farið er niður á fet- ið. Það var ákvörðun í sjálfu sér að byggja upp innlendan landbúnað á þann hátt að við gerðum ráð fyrir hnökra- lausu aðgengi að kornvöru. Auðvelt er að vera vitur eftir á en það má með sanni segja að við hefðum betur byrjað fyrr á að ræða, af fullri alvöru, fæðuöryggi og hvernig við treystum það. En við þekkjum það úr íslenskri sögu að stundum þarf krísur til þess að hrinda af stað umbótum. Að þessu verður unnið í matvælaráðuneytinu. svandis.svavarsdottir@mar.is Svandís Svavarsdóttir Pistill Sprett úr spori Höfundur er matvælaráðherra 14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 2022 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Það er bjart yfir þjóðhá- tíðardeg- inum okkar, hvað sem á gengur. Því ræður lögmál almanaksins mestu um. Við getum viðurkennt að það rignir stundum þann dag. En það breytir ekki öllu, og næstum engu. Það er svo margt sem bregður birtu á daginn þann. Hann kallar fram atburði sem mega aldrei gleymast og stundum er hann aðallega með gleðibrag, en einatt líka dálítil vísbending eða upprifjun um hvers konar leiðsögn hefur verið einna happadrýgst að fylgja. Þjóðhátíðardagurinn gæti einnig beint huganum örskots- stund inn í kjarna þjóðarsál- arinnar. Sú hefur raunar ein- staka eiginleika eins og önnur sálartetur. Næst helst aldrei á mynd og fjarri því að vera í fókus þegar það gerist. En hvernig sem slagviðrið hamast, þá nær rigningin ekki inn nema í mýflugumynd og svo er eins að þar hafi hún aldrei verið. Nýfætt íslenskt barn, sem grætur í fyrsta sinni af fögnuði er það finnur til lífsins með nýjum hætti, er samstundis skráð í þetta sálufélag. Hið sama gildir um þann sem fæð- ist til þessarar þjóðar dögum, misserum eða árunum síðar. Allir verða fyrr eða síðar hand- hafar hlutabréfs í hinni ís- lensku þjóðarsál, sem hvorki gengur kaupum né sölum en getur skilað góðum arði sem fátt ef nokkuð fær grandað. Sautjándi júní er okkar eig- in, sérstaki dagur, sigurdagur, þótt sjálfstæðið hafi ekki verið knúið fram með vopnavaldi. Eins gott, því að hefði það þurft til er alls ekki víst að markinu hefði nokkru sinni verið náð. Af mörgum öðrum ástæðum var fjarri því að vera sjálfsagt að 40-70 þúsund sálna þjóð í stóru og harðbýlu landi réði við slíkt verkefni eða yrði fyrir því treyst. Það er óþarft að telja upp stóru áfangana að loka- markinu, en af hálfu viðsemj- endanna voru þeir frekar hugs- aðir sem endapunktar. Í þeirra augum var þetta fjarlæga land, hrjóstrugt og vanþróað um flest, ekki efnilegt til að ráða sínum málum sjálft, eða verj- ast yfirgangi annarra. Sjálfsagt hefði mátt halda því fram, að þjóðhátíðardag- urinn góði, 17. júní, væri ekki sjálfgefinn afmælisdagur sjálf- stæðrar þjóðar um alla fram- tíð. Og ekkert sérstakt gerst þann dag, sem gerði hann að einstæðum bautasteini barátt- unnar fyrir sjálfstæði. En hann var sérlega vel til fundinn. Það er næsta óumdeilt að án Jóns Sigurðssonar hefði baráttumálinu ekki farnast vel. Hann lagði línurnar og lengst af var góður einhugur um leið- sögn Jóns Sigurðssonar í mik- ilvægasta máli sem þjóðin glímdi við. Alþekkt er að for- ysta um slíkt kallar á andstöðu, vantraust og efasemdir. Jón stóð það af sér, fjarri ströndum síns elskaða lands, en stóð í yf- irgengilegum bréfaskiptum og erindisreksti fyrir landa sína um stór mál og ofan í agnar smá. Vakinn og sofinn var hann og þegar þau Ingibjörg Einars- dóttir létust, því sem næst í sömu andrá, var það hafið yfir allar efasemdir langflestra Ís- lendinga að betur hefði Jón og þau hjón bæði ekki getað staðið að verki og betri sendingu hefði almættið ekki sent þjóð- inni í þúsund ára sögu hennar. Fæðingardagur Jóns Sig- urðssonar var því augljós heilladagur í huga landa hans, og enginn dagur betur fallinn til þess að verða um aldir heið- ursdagur þjóðarinnar, sam- heldnisdagur hennar og áminn- ing – dagur þakklætis fá- mennrar þjóðar, í hennar sjálfrar garð að fornu og nýju, fyrir að hafa borið gæfu til þess að þiggja forystu hans og leið- sögn um langa framtíð. Þær sjálfstæðishetjur eru til um heiminn víðan, sem voru í forystu eða nærri henni þegar að stálin stinn mættust og njóta þakklætis og virðingar eigin þjóða um ókomna tíma. Á Íslandi hélt Jón púðrinu þurru og lagaði kúlurnar í hendi sér, þótt sá hluti vopnasafns hans hafi verið í söfnun þekkingar, skýringar og sundurgreiningar á henni, túlkun sem var bar- áttumálinu hagfelld. Lögin voru lesin með nýjum hætti og réttlætinu skipað í öndvegi. Sumum viðmælanda hans og „andstæðinga“ þóttu rökin framandi en gátu ekki neitað að dæmið gekk upp. Jóns Sigurðssonar er því minnst með stóru og smáu. Standmynd hans var reist við Stjórnarráðshúsið og síðar færð á Austurvöll, andspænis Alþingishúsinu. Fjöldi mynd- verka og brjóstmynda skipa heiðursstað á Íslandi og raunar víðar. Líkneski hans stendur hnarreist nærri þinghúsinu í Ottawa í Kanada fyrir atbeina landa hans vestra. Mynd hans er á einum seðli íslenska gjald- miðilsins og andlitsmynd hans er vatnsmerki í öllum seðlum hans. Hvaða hlutverk hefur vatnsmerkið? Það er örygg- ismerki seðilisins. Þar er Jón okkar Sigurðsson til öryggis, eins og hann hefur löngum ver- ið löndum sínum, frá því að hann lét fyrst til sín taka. Jón Sigurðsson ruddi brautina og vísar veginn} 17. júní STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is L agt er til að matvælaráð- herra verði falið að láta án tafar meta burðarþol Jök- ulfjarða og Eyjafjarðar gagnvart sjóeldi og birta burðarþol fyrir Mjóafjörð þegar þær upplýs- ingar eru tilbúnar hjá Hafrann- sóknastofnun. Þetta er efni þings- ályktunartillögu sem Teitur Björn Einarsson, varaþingmaður Sjálf- stæðisflokksins í Norðvesturkjör- dæmi, hefur lagt fram á Alþingi. Hann segir mikilvægt að þetta verði gert áður en vinnu við strandsvæða- skipulag fyrir Vestfirði og Austfirði lýkur. Hafrannsóknastofnun hefur gef- ið út bráðabirgðamat á burðarþoli flestra fjarða á þeim strandsvæðum sem sjóeldi er ekki fyrir fram úti- lokað. Þó eru nokkrir firðir eftir, að- allega þeir sem nefndir eru í þings- ályktunartillögunni. Fyrir gildistöku núverandi fiskeldislaga ákvað Haf- rannsóknastofnun í hvaða röð rétt væri að meta burðarþol fjarða og var í því efni aðallega tekið mið af um- sóknum um eldisleyfi. Með lögunum frá 2019 var valdið fært til matvæl- aráðherra. Þarf ráðherra því að biðja Hafrannsóknastofnun að framkvæma slíkt mat. Reynslan er sú að ekki hef- ur verið birt neitt burðarþolsmat frá því lögin tóku gildi. Fram kom á vef BB á Ísafirði fyrir tveimur árum að vinna við mælingar og annan und- irbúning fyrir mat á burðarþoli fyrir Eyjafjörð og Mjóafjörð væri langt komin en matinu sjálfu ekki lokið. Ekki hægt að skipuleggja Teitur Björn segir brýnt að meta burðarþol Jökulfjarða og Eyjafjarðar og birta matið fyrir Mjóafjörð vegna þess að vinna standi yfir við gerð strandsvæðaskipulags á Vestfjörðum og Austfjörðum. Í því skipulagi þurfi að taka fiskeldi til meðferðar, eins og aðra starfsemi. Bendir hann á að markmið laga um fiskeldi og stefna stjórnvalda sé að allar ákvarðanir um fiskeldi byggist á niðurstöðum vís- indalegra rannsókna. Með burðar- þolsmati sé þol vistkerfisins fyrir fiskeldi metið. „Ég tel það algert grundvallaratriði að þessar upplýs- ingar liggi fyrir áður en ákvörðun verður tekin um skipulag svæðanna,“ segir Teitur Björn. Hann hefur óskað eftir skriflegu svari frá innviðaráð- herra, sem fer með skipulagsmál, hvort hann muni beita sér fyrir því að strandsvæðaskipulagið verði ekki staðfest fyrr en burðarþolið liggi fyr- ir. Sjálfur telur Teitur að ráðherra sé ekki stætt á því að staðfesta skipulag- ið áður en niðurstöður þessara rann- sókna hafa birst. Allt byggist á burðarþoli Telur Teitur Björn að matvæla- ráðherra beri að láta kanna burðarþol á þeim fjörðum sem koma til greina fyrir fiskeldi. Vekur í því sambandi athygli á því að rekstrarleyfishöfum er gert að greiða gjald í umhverfis- sjóð sjókvíaeldis og eitt helsta verk- efni hans sé að standa straum af vinnu við gerð burðarþols. „Burðar- þolsmatið er grundvallarrannsókn sem allrar aðrar ákvarðanir um fisk- eldi byggjast á. Það er augljóst að lögin ná ekki tilgangi sínum ef ráð- herra lætur hjá líða að óska eftir mati. Ef matið er ekki gert er gjaldið sem lagt er á rekstrarleyfishafa ólög- mætt,“ segir Teitur. Hann vekur athygli á að fiskeldi sé vaxandi atvinnugrein og áhrif þess á byggðarlög og efnahag alls landsins alltaf að aukast. „Það er mikilvægt að greininni verði gert kleift að nýta þá sóknarmöguleika sem eru fyrir hendi, í það minnsta að stjórnvöld standi ekki í vegi fyrir því að möguleikarnir verði rannsakaðir á vísindalegan hátt.“ Ráðherra beri að láta meta burðarþol Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Mjóifjörður Samherji var með sjóeldi í firðinum í byrjun aldarinnar. Mik- ið tjón varð þegar marglyttur herjuðu á kvíarnar og var eldi síðar hætt. Ekki fæst uppgefið í stjórnar- ráðinu hvernig til standi að auka skattheimtu á fiskeldi, sem boðið er í fjármálaáætlun. Líklegast er talið að flýta eigi hækkun fiskeldisgjalds. „Ég trúi því ekki að það eigi að auka álögur á greinina. Fisk- eldi á Íslandi er ennþá að slíta barnsskónum, er í miklum fjár- festingum, atvinnusköpun, ekki er séð fyrir um leyfisveitingar og svo höfum við lent í áföllum. Mér finnst mjög skrítið að ofan á það fari ríkisstjórnin að auka álögur á greinina. Hún er alveg næg fyrir,“ segir Jens Garðar Helgason, aðstoðarforstjóri Ice Fish Farm á Austfjörðum. Daníel Jakobsson hjá Arctic Fish bend- ir á að fyrirtækið sé í miklum fjárfestingum sem byggist að hluta til á leyfum sem ekki fást gefin út. Hann spyr hvort ekki sé skynsamlegra að stækka kökuna, með veitingu leyfa, áður en farið er að borða hana. Frekar auka verðmætin HÆKKUN SKATTS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.