Morgunblaðið - 17.06.2022, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 17.06.2022, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 2022 Ég minnist elsku Maríu með þakklæti og hlýju í huga. Ég er þakk- lát fyrir örlæti hennar, vináttu og fyrir allt sem hún kenndi mér, stundum hvöss við mig þegar þess þurfti en alltaf réttsýn. Ég kynntist Maríu þegar hún hóf starfstengt diplóm- anám við Háskóla Íslands árið 2011 en þar starfa ég. Dýrmæt reynsla Maríu nýttist vel í náminu og það var mikils virði að hún skyldi koma í diplóm- anámið fyrir samnemendur hennar og kennara. Ég veit að María var stolt af námi sínu í Háskóla Íslands og þátttöku sinni í GÆS, sem var kaffihús sem nemendur stofnuðu. Get- ætla- skal voru einkunnarorð GÆSar og þau orð einkenndu líka Maríu alla tíð, því hún var baráttukona af lífi og sál. María María Þorleif Hreiðarsdóttir ✝ María fæddist 17. nóvember 1970. Hún lést 7. maí 2022. Útför hennar fór fram 8. júní 2022. hafði mikil áhrif á GÆSar-verkefnið og má þar nefna áherslu hennar á að þau sem að GÆS stóðu fengju laun til jafns við aðra án vinnu- samninga. Hún út- skýrði það þannig að þau ættu rétt á sömu launum fyrir sömu vinnu og að niðurgreiðsla frá Trygginga- stofnun kæmi alls ekki til greina. Og þannig varð það auðvitað, því þannig á það að vera. María var ein af sendiherr- um samnings Sameinuðu þjóð- anna um réttindi fatlaðs fólks og á þeim vettvangi störfuðum við líka saman. Hún náði svo vel að kjarna samninginn þegar hún sagði sögur úr eigin lífi. Þannig sýndi hún hversu gríð- arlega mikilvægt starf sendi- herranna er og þá fyrst og fremst með því að vekja fólk til umhugsunar um hversu mikil- vægt það er að virða mannrétt- indi allra. Þegar María auglýsti eftir konum í saumaklúbb með blöndun fatlaðra og ófatlaðra kvenna í huga, var ég fljót að senda inn ósk um þátttöku sem var samþykkt. Í klúbbnum átt- um við góðar stundir og ég kynntist vinkonum Maríu úr öllum áttum. María sýndi þá hvers konar fyrirmyndargest- gjafi hún var. Þvílíkar kræs- ingar sem voru bornar á borð í Safamýrinni og hugsað út í öll smáatriði. María var mér mikil fyrir- mynd og ekki síst í móðurhlut- verkinu, því hún var fyrst og fremst stolt mamma Ottós Bjarka. Hún setti hans velferð og hamingju ofar öllu öðru. Hún var mér og mínum ávallt góð, vildi fylgjast með stelp- unum mínum, prjónaði á þær og sendi alltaf jólakort. Þannig sýndi hún umhyggju sína. Það er komið er leiðarlokum allt of snemma. Hugur minn er hjá Ottó Bjarka, fjölskyldunni allri og vinum Maríu og sendi ég þeim mínar innilegustu sam- úðarkveðjur. Með kærri þökk fyrir allt það góða sem María kenndi mér tek ég það með mér áfram út í lífið. Ágústa Björnsdóttir. María Þ. Hreiðarsdóttir, fyrrverandi formaður og heið- ursfélagi Átaks, er látin. María var einn stofnfélaga Átaks og sat í fyrstu stjórn fé- lagsins sem ritari og síðar sem formaður. María var leiðtogi og mikil baráttukona. Baráttumál henn- ar sem formaður Átaks voru margvísleg. Hún var brautryðj- andi í baráttu fyrir réttindum fólks með þroskahömlun til að halda frjósemi sinni og stofna fjölskyldu. Einnig barðist hún fyrir að laun fatlaðs fólks væru sambærileg launum annarra. María hélt marga fyrirlestra bæði á Íslandi og erlendis sem vöktu mikla athygli. Hún lét einnig til sín taka með greina- skrifum um baráttumál fólks með þroskahömlun og var einn af sendiherrum samnings Sam- einuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þegar María eignaðist son sinn Ottó Bjarka hófst nýtt tímabil í lífi hennar. Hún rækti móðurhlutverkið af mikilli alúð og má segja að velferð Ottós hafi átt hug hennar allan. Samt sem áður hélt hún ávallt tryggð við Átak, mætti þar á fundi og hvatti fólk til að halda barátt- unni áfram. Fyrir hönd Átaks, félags fólks með þroskahömlun, votta ég Ottó Bjarka, foreldrum Maríu svo og öðrum aðstand- endum og vinum samúð mína. Haukur Guðmundsson, formaður. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANNES P. KRISTINSSON byggingameistari, Sundlaugavegi 14, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnudaginn 5. júní. Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 21. júní klukkan 15. Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 14EG á Landspítala fyrir umhyggju og góða umönnun. Margrét Jóhannesdóttir Eyjólfur Guðmundsson Hörður Jóhannesson Sigríður Hjaltadóttir Daði Jóhannesson Erna Guðmundsdóttir Valur Jóhannesson Sólrún Jónsdóttir Elsa Jóhannesdóttir Clemens Van der Zwet Gauti Jóhannesson Berglind Einarsdóttir barnabörn og langafabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐLAUG JÓNA SIGURÐARDÓTTIR, Lilla í Mellandi, Kirkjuvegi 6, Hvammstanga, lést á HSV Hvammstanga föstudaginn 10. júní. Útförin fer fram frá Hvammstangakirkju þriðjudaginn 21. júní klukkan 14. Baldur Ingvarsson Sigurður Kr. Baldursson Sigríður Sigurðardóttir Inga S. Baldursdóttir Stefán L. Haraldsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HJÁLMAR MAGNÚSSON, fv. framkvæmdastjóri, frá Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð aðfaranótt þriðjudags 14. júní. Útförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, María H. Hjálmarsd. Ringdal Nils Andreas Ringdal Guðbjartur Hjálmarsson Anna Karla Björnsdóttir Margrét S. Hjálmarsdóttir Hafsteinn Hjálmarsson Ann-Charlotte Fernholm Magnús Þór Hjálmarsson Ásgerður Þráinsdóttir Ingþór Hjálmar Hjálmarsson barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, eiginkona, systir og dóttir, ÍRUNN VIÐARSDÓTTIR, Austurkór 95, Kópavogi, lést fimmtudaginn 9. júní á Landspítalanum. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Minningarstund verður haldin í Lindakirkju þriðjudaginn 21. júní klukkan 21. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Kraft, stuðningsfélag fyrir ungt fólk með krabbamein. Hrímnir Smárason Draupnir Smárason Gnádís Smáradóttir Smári Guðfinnsson Þorsteinn Viðarsson Almar Viðarsson Sigríður S. Þorsteinsdóttir Viðar Þorkelsson Elskulegur frændi okkar, EINAR GUÐMUNDUR ÁRSÆLSSON, Sóltúni 3, áður til heimilis í Sigtúni 33, Reykjavík, lést 30. maí. Útförin fer fram frá Laugarneskirkju miðvikudaginn 22. júní klukkan 11. Fjölskyldan Með nokkrum fá- tæklegum orðum vil ég minnast elskulegrar frænku minnar, Ingibjarg- ar Hafberg. Inga var „sveita- mamman“ mín, fósturmamma í sveitinni fallegu sem hún gerði að heimili mínu á sumrin. Inga opnaði faðm sinn og kærleik, heimili og fjölskyldu í Bren- nubæ og lét mér ávallt líða eins og ég væri ein af ungunum hennar. Ég hélt svo mikið upp á Ingu og Tryggva að ég spurði þau eitt sinn hvort þau mundu taka mig að sér ef mín eigin mamma og pabbi mundu deyja. Mér fannst Inga í einu orði sagt Ingibjörg Hafberg ✝ Ingibjörg Haf- berg fæddist 14. ágúst. Hún lést 10. desember 2021. Útför hennar fór fram 21. desember 2021. stórkostleg. Hún var hlý og góð, um- hyggjusöm og kær- leiksrík, og svo hló hún svo skemmti- lega og dekraði við mig. Í mínum huga kunni Inga allt og gat allt. Hún prjón- aði meðan hún horfði á sjónvarpið og gerði tíu hluti í einu, gat talað og hlegið meðan á öllu stóð, og svo kunni hún líka að setja alla símaþræðina á rétta staði í gamla síma- og pósthúsinu. Ég horfði full aðdáunar á Ingu þar sem hún sat með heyrnartólin og skutlaði inn þráðunum til að tengja fólk saman. Ég vissi sem var að svona nokkuð flókið gæti ég aldrei gert. Á kvöldin sofnaði ég með dúkkurnar mínar þrjár prúðbúnar í forkunnarfögrum fötum sem Inga hafði búið til handa mér. Löngu síðar naut dóttir mín þessa listfengis Ingu með dúkkurnar sínar í Frakk- landi ennþá klæddar sparifötun- um frá Ingu frænku. Inga og Tryggvi létu mér allt- af líða eins og ég væri órofa hluti af fjölskyldunni og börnin þeirra þrjú voru mér gjöful í anda foreldranna. Ég man ennþá þegar ég uppgötvaði að Anna Dóra ætti alvöru kærasta, engan annan en hann Gísla, og ég ætlaði að kafna úr forvitni og eftirvæntingu. Ég varð síðar svo spennt yfir brúðkaupinu þeirra að ég gat varla sofið. Upp í hug- ann koma líka brosmildar minn- ingar um hvernig Villa náði stöðugt að láta mig gleypa við ótrúlegustu sögum og upp- spuna. Prakkarinn í henni fékk endalaus tækifæri til að njóta sín þar sem ég trúði stóreyg öllu sniðugu sem hún bjó til. Og elsku blíði Marteinn kynnti mig fyrir Kate Bush og danssporum og alls kyns öðru flottu. Mér fannst hann óheyrilega fallegur og góður og ég held að það finn- ist öllum í heiminum enda á hann ekki langt að sækja það. Inga var sumsé ekki bara um- hyggjusöm sveitamamma held- ur leyfði hún mér að eignast alla fjölskylduna sína og gera að fólkinu mínu líka. Í gegnum þau kynntist ég svo samfélaginu í sveitinni og allar dyr opnuðust af rausnarskap og hlýju löngu eftir að Inga og Tryggvi voru flutt burt. Það gáfu þau mér líka. Ég efast ekki um að nú leiðir Inga hann Tryggva sinn um græna haga með blóm í hári og bros á vör, hvíldinni fegin og umvafin ástvinum sem hafa beð- ið hennar lengi. Ég þakka elsku frænku minni og hennar fjöl- skyldu fyrir allt það sem mér var gefið af hjartahlýju, gjaf- mildi og gæsku. Það mun aldrei gleymast. Við Steinunn og börn vottum aðstandendum innilega samúð en um leið samgleði því að nú er Inga frjáls á fögrum heiðum með fólkinu sínu liðna. Blessuð sé minning Ingibjargar Haf- berg. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir. Ætla alltaf að fara að taka upp símann, hittast í kaffibolla, skreppa í leikhús, spjalla aðeins. Man þá að hún er farin. Fór sínar eigin leiðir, Margrét. Oftast að vel ígrunduðu máli og þá varð henni ekki haggað, hvorki hvað varðar skoðanir né aðrar ákvarð- anir. Klettur. Margrét Sigurðardóttir ✝ Margrét Sig- urðardóttir fæddist í Reykjavík 19. ágúst 1953. Hún varð bráðkvödd á heimili sínu 15. maí 2022. Foreldrar henn- ar voru Guðbjörg Sigurðardóttir og Sigurður Júlíusson. Eftirlifandi syst- ur Margrétar eru þær Elísabet Sigurðardóttir og Sara Júlíusson. Börn Margrétar eru Íris Egg- ertsdóttir og Hildur Rúnars- dóttir. Minningarathöfn var haldin í Fossvogskirkju 1. júní 2022. Hún var lista- maður í fingurgóm- unum. Þreifaði fyrir sér í ýmsu eftir stúdentspróf, m.a. leiklist, en fór og lærði fatahönnun og sníðagerð í Noregi til að geta staðið á eigin fótum, alltaf. Sjálfstæð móðir ungrar Írisar og síð- ar Hildar. Að sjá um sig og yngri systur sína hafði hún vanist frá unga aldri þegar for- eldrarnir kannski brugðust. Kletturinn í lífi hennar var þá amman í Hafnarfirði, leikvöllur- inn skrúðgarðurinn Hellisgerði. Ég kynntist Margréti fyrst þegar Stefán Baldursson, þáver- andi Þjóðleikhússtjóri, réð hana til að stjórna saumastofu hússins 1993. Áður hafði hún lengst af verið aðalhönnuður og forstöðu- maður saumastofu Karnabæjar. Ég var þá fastráðinn leikmynda- og búningahöfundur við húsið og náðum við strax vel saman, bæði í vinnu og kaffipásum. Hún var í senn alvarleg og léttlynd, uppá- tækjasöm en lausnamiðuð og sníðagerð lék í höndunum á henni. Hún naut þess að vinna í leikhúsi, kynna sér verkin og við- fangsefnin en skemmtilegast fannst henni held ég þó að vinna flókin snið sögulegra kjóla með vísun til tveggja tíma. Ráðleggja með val á efnum, spá í mjög óljós- ar teikningar okkar hinna bún- ingahöfundanna, sjá til að allt félli vel, virtist létt eða leikandi, þungt eða dramatískt, eftir því sem við átti. Í því fólst list hennar á þessu sviði ekki síst. Margrét var einnig búninga- höfundur sjálf í þó nokkrum verkum en sem forstöðumaður stjórnaði hún öllum rekstri saumastofunnar. Það fylgir því starfi mikil ábyrgð og viðvera. Að halda góðum starfsanda, skipu- leggja og eiga oft flókin mannleg samskipti við fjölda fólks. Öll sín störf leysti hún með prýði. En það fylgir því jafnframt álag til lengri tíma að þurfa að leggja mikla vinnu á fáar nánustu sam- starfskonurnar með sívaxandi kröfum um meiri framleiðni. Stærri og fleiri sýningar, miklu fleiri búninga og miklu meira „show“ unnið á sama tíma og fyr- ir sömu lágu launin. Það er ekki bara á sjúkrahúsum og umönn- unarstofnunum að sjálfsagt þykir að konur vinni með hámarksaf- köstum fyrir lágmarkslaun. Margrét hætti eftir um átján ára óeigingjarnt starf í Þjóðleik- húsinu. Hún ákvað að fara að njóta lífsins. Hvíla sig, ná sér og sinna sínu. Við Stefán fengum hana þó til að vinna að búningum einu sinni enn, í óperunni Ragn- heiði hjá Íslensku óperunni. Þar gerði hún undurfalleg, frumleg og klæðileg snið sem vísuðu listi- lega til fortíðar 17. aldar um leið og nútímans. Margrét var flutt úr miðbæn- um og búin að koma sér fallega fyrir inni í Vogum, glöð og ánægð með að rækta garðinn sinn, í dag- legu sambandi við dótturdæturn- ar á neðri hæðinni og hitti reglu- lega og fylgdist með eldri dótturdætrum fyrir norðan. Fjöl- skyldan skipti hana öllu máli, hún naut lífsins með þeim og hún var þeirra klettur. Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir. Morgunblaðið birtir minningargreinar end- urgjaldslaust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargrein- um til birtingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðs- ins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minning- argrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.