Morgunblaðið - 17.06.2022, Page 22

Morgunblaðið - 17.06.2022, Page 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 2022 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bílar Glæsilegur og vel búinn bíll. LEXUS RX450h. Árgerð 2020, ekinn 30 þ.km, bensín/hybrid, sjálfskiptur. Verð 11.490.000. Rnr.140029. Webasto og mjög vel búinn. SUBARU Forester Lux E-boxer Harman/Kardon. Árgerð 2020, ekinn 28 þ.km, bensín/rafmagn, sjálfskiptur. Verð 6.450.000. Rnr.135679. 7 manna TOYOTA Land Cruiser 200 VX. Árgerð 2007, ekinn 253 þ.km, bensín, sjálfskiptur, 5 gírar. Verð 5.490.000. Rnr.227522. 7 manna umboðsbíll með krók. VOLVO XC90 T8 R-Design Plug In Hybrid. Árgerð 2019, ekinn 43 þ.km, bensín/rafmagn, sjálfskiptur 8 gírar. Verð 10.490.000. Rnr.227537. Nánari upplýsingar veita Höfðabílar ehf. í síma 577-4747 Vantar þig pípara? FINNA.is Raðauglýsingar Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri, sem hér segir: Breiðhella 12, Hafnarfjörður, fnr. 231-8825, þingl. eig. Esja Detail ehf., gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., fimmtudaginn 23. júní nk. kl. 10:30. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu 16. júní 2022 Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri, sem hér segir: Seljabraut 74, Reykjavík, fnr. 205-6526, þingl. eig. Jón M Bergsson, gerðarbeiðendur Sjóvá-Almennar tryggingar hf. og Orkuveita Reykjavíkur-vatns sf., miðvikudaginn 22. júní nk. kl. 10:00. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu 16. júní 2022 intellecta.is Elsku mamma, ég á erfitt með að sætta mig við að þú skulir vera farin frá mér og fjölskyldu okkar svona fljótt. Ég veit að englarnir á himnum hafa tekið vel á móti þér enda svo hlý og góð manneskja. Held reyndar að pabbi hafi komið líka að sækja þig. Takk fyrir að gefa mér líf, takk fyrir að hugsa svona vel um mig, takk fyrir að gera mig að svona góðum manni, takk fyrir allar stundirnar okkar saman, takk fyrir umhyggjuna, takk fyrir að fá mig til að hlæja, takk fyrir að syngja mig í svefn þegar ég var lítill, takk fyrir að vera góð amma, takk fyrir að vera góð tengdamamma en umfram allt takk fyrir að vera mamma mín. Mamma mín átti mig þegar hún var 18 ára gömul. Fyrir unga konu að fá barn í hend- urnar hlýtur að hafa verið erfitt en ekki fyrir mömmu. Mamma var nefnilega mikill kvenskör- ungur enda byrjaði hún að vinna í fiski aðeins 12 ára gömul og byrjaði alfarið að sjá um sig 15 ára gömul og byrjaði að búa með pabba 18 ára. Mamma setti börnin sín alltaf í fyrsta sæti, sama hvað gekk á. Hún vafði mann í bómull svo ekkert kæmi fyrir mann. Mamma vildi alltaf hafa allt fullkomið og hún mátti ekki sjá rykkorn þá var eitt- hvert hreinsitæki mundað og óhreinindin burt. Það sást aldrei drasl heima hjá henni. Hún var líka eldsnögg að henda upp veisluborði ef þess þurfti enda var alltaf mikill gestagangur heima hjá henni. Síðustu tvö ár mömmu voru erfið eftir að pabbi dó og barðist hún við mikil veik- indi og einmanaleika. Enda höfðu þau pabbi verið saman í 55 ár. Hún var svo mikil hetja og svo sterk alveg fram að síðasta andardrætti. Ég á svo margar minningar um hana mömmu mína, öll ferðalögin utan- sem innanlands og hvað var gaman hjá okkur að spila kana með pabba og Söndru konunni minni. Ekki gleyma öll- um stundum sem við spiluðum á Anna Sveindís Margeirsdóttir ✝ Anna Sveindís Margeirsdóttir fæddist 10. nóv- ember 1950. Hún lést 2. júní 2022. Út- för hennar fór fram 15. júní 2022. gítar og sungum saman. Á jólunum skreytti hún allt sem hægt var að skreyta og ef pabbi sofnaði í stofustóln- um á þessum tíma ársins þá vaknaði hann alskreyttur enda hætti pabbi að leggja sig í stof- ustólnum í desem- ber. Ásamt öllu öðru sem ég mun sakna en geyma minninguna í hjarta mínu. Ég mun sakna þess að heyra ekki í þér á hverjum degi til að tala um öll heimsins mál. Minn- ing þín mun lifa í gegnum mig og alla fjölskyldu þína. Það er gott að vita að þú og pabbi séuð sameinuð aftur. Megi alheimur- inn umvefja þig ást og alúð um alla eilífð. Við munum alltaf elska þig. Niður kinnar renna tár mamma mín hún farin er. Út í lífið er ég svaka sár að taka hana frá mér. Svo góð og hjartahlý hún mamma mín var. Augun mín horfa upp í ský en ég fæ ekkert svar. Vildi ég gæti sagt þér hversu sárt ég sakna þín. Hjarta mitt svo brotið er, elsku mamma mín. Þú varst það fyrsta sem ég sá þegar ég opnaði augu mín. Í örmum þínum lá, svo falleg var sú sýn. Kveðja ég verð nú þig þar sem Guð vill þig geyma. Á himnum þú verndar mig og ég mun þér aldrei gleyma. (Lúðvík V. Þórisson) Þinn sonur og tengdadóttir, Lúðvík (Lúlli) og Sandra. Elsku mamma mín, ég trúi því ekki að ég sé að fara að skrifa um þig núna strax. Það er svo sárt að reyna að trúa því að þú sért farin frá okkur svona snemma. Ég elska þig svo mikið og vildi óska þess að við hefðum fengið lengri tíma saman. Ég vil þakka þér fyrir allt sem þú hef- ur gert fyrir mig öll árin. Ég veit að ég var mjög erfið en þú elskaðir mig í blíðu og stríðu eins og sönn mamma, takk fyrir það elsku mamma. Takk fyrir að hafa látið mig brosa, gráta og hlæja. Takk fyrir að hafa kennt mér og leiðbeint mér, takk fyrir að hafa staðið með mér í gegn- um súrt og sætt, takk fyrir að hafa verið þú. Ég sakna þess að tala við þig og fá ráðleggingar, sakna þess að fá koss frá þér á kinn, sakna þess að faðma þig, sakna alls við þig. Ég veit að núna ertu verkjalaus, loksins verkjalaus eftir öll þessi ár, og ég veit líka að pabbi er glaður að hafa fengið konuna sína til sín. Elsku mamma mín, ég á eftir að sakna þín og mun aldrei gleyma þér, þú átt alltaf stóran stað í hjarta mínu og ég mun halda minningunni um þig lif- andi. Mamma, elsku mamma, man ég augun þín. Í þeim las ég alla, elskuna til mín. Mamma, elsku mamma, man ég þína hönd. Bar hún mig og benti, björt á dýrðarlönd. Mamma, elsku mamma, man ég brosið þitt. Gengu hlýir geislar, gegnum hjarta mitt. Mamma, elsku mamma, mér í huga skín. Bjarmi þinna bæna, blessuð versin þín. Mamma, elsku mamma, man ég lengst og best. Hjartað blíða, heita, hjarta er ég sakna mest. (Sumarliði Halldórsson) Þín dóttir, Birna Ósk. Amma mín var með hjarta úr gulli og fallega sál og nærveru. Ég á svo margar fallegar minn- ingar um hana, enda gerðum við mikið saman. Ég var mikil ömmustelpa og heimtaði að fá að gista hjá ömmu eins oft og ég gat. Oft beið ég líka fyrir utan útidyrahurðina hjá henni eftir skóla. Svo hljóp ég á móti henni þegar hún kom loksins heim úr vinnunni. Við hringdum hvor í aðra á hverju kvöldi. Áður en við viss- um af vorum við búnar að tala saman í tvo tíma og fórum að reka hvor aðra í háttinn. Ég gat sagt henni öll mín leyndarmál, enda gátum við talað um allt milli himins og jarðar. Amma var full af reynslu og sögum. Svo hélt hún alveg frá- bærar veislur. Hún lagði mikla vinnu í útskriftarveisluna mína í maí 2021. Ég er henni ævinlega þakklát því hún gerði allt til þess að gera daginn eftirminni- legan. Við skreyttum allt saman og hjálpuðumst að að elda og græja smárétti. Ég mun geyma þennan dag í hjartanu alla ævi. Ég sakna hennar svo innilega mikið. Ég veit að það eru margir sem sakna hennar líka, enda frá- bær kona. Hún gaf svo mikið af sér. Gaf bestu ráðin og bestu knúsin. Það sem ég myndi gera til að geta knúsað hana einu sinni enn og sagt hversu mikið ég elska hana. Ég er svo þakklát að hafa fengið hana sem ömmu mína. Ég elska þig amma mín. Þín Veronika. Elsku amma mín, fyrst og fremst verð ég að segja þér hversu sárt ég mun sakna þín. Þú hefur verið svo stór partur af lífi mínu og ég á erfitt með að hugsa mér að geta ekki séð þig. Ég vildi að þú gætir verið hjá mér og stutt mig í stóru áföng- unum í lífi mínu. Að missa þig var eins og að fá hníf í hjartað og ég er reið að þú hafir þurft að kveljast svona mikið og lengi. Lífið getur svo oft verið ósann- gjarnt og sýnir ekki miskunn fyrir góðsemi. Það er erfitt að taka saman líf og flokka það eft- ir því hvort aðilinn hafi verið góður eða slæmur og hvort hann átti skilið að fá eitt eða annað. Gjörðir manna eru ekki svartar og hvítar en þegar ævi þín er tekin saman get ég sagt með fullri vissu að þú varst ekki bara góð heldur algjör fyrirmyndar- manneskja. Ég hef ekki einu sinni orðið vitni að öðru en góð- vild og óeigingirni hjá þér. Það er ekki hægt að komast fram hjá því að finna fyrir sárs- auka og sumir dagar verða erf- iðari en aðrir en það eina sem mun hjálpa er tíminn. Hann mun deyfa sársaukann og láta í ljós allar minningarnar sem týndust í öllum hinum minning- unum og þær verða skýrari en áður. Þó að þú sért ekki lengur hjá mér í eigin persónu veit ég samt að þú munt halda áfram að fylgjast með mér og veita mér stuðning á erfiðum tímum eins og þú gerðir alltaf. Þú snertir hjörtu svo margra og dróst fram það besta í öllum. Ég elska þig óendanlega mikið og ég á mikið af hamingjunni í lífi mínu þér að launa. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama. Eg veit einn að aldrei deyr: dómur um dauðan hvern. (Úr Hávamálum) Ísabella Sól Lúðvíksdóttir. Elsku pabbi. Þú ert auðvitað besti pabbi í öllum heim- inum, eins og flestir myndu segja um sinn eigin pabba. Ég sakna þín alla daga og reyni að venjast því að þurfa að lifa lífinu án þín. Ég reyni að finna allt það jákvæða til að styrkja þá hugsun að það sé í lagi að þú sért farinn. Mér finnst ekkert í lagi að þessi krabbaskítur sé að taka þig og svona margt annað fólk, sama á hvaða aldri það er. Ég sakna stundanna þar sem ég kom að skipta um stóma hjá Kristján Hermann Sigurgeirsson ✝ Kristján Her- mann Sigur- geirsson fæddist 21. nóvember 1956. Hann lést 1. maí 2022. Kristján var jarðsunginn 13. maí 2022. þér og við vorum bara tvö að njóta þess að bara „vera“. Þú sýndir öllum svo mikið þakklæti sem hlúðu að þér í veik- indunum og lést vita af því. Ég hringdi í þig nokkur stutt símtöl daglega til að segja þér strax frá gullmolum frá barnabörnunum svo ég gleymdi þeim ekki. Þú hafðir auðvitað gaman af því og hlóst dátt þegar ég endaði svo símtölin með: „Jæja, það var ekkert annað. Ég bara varð að segja þér þetta áður en ég gleymdi því.“ Nokkrar setningar munu fylgja manni alla tíð, setningar sem þú hefur látið út úr þér hér og þar: „Lífið er hart í bak og fyrir“ og „jallabaddarí fransí“, hvað sem það nú þýddi, en sú setning yljar manni alltaf um hjartarætur. Við áttum góðar stundir saman á síðustu metrum þínum. Ég leyfði þér að skynja að ég væri að bíða með þér og fara með þér í nýtt ferðalag svo þér fyndist þú ekki einn. Ég man að okkur var tilkynnt stað- an og hvert stefndi og læknirinn nefndi eitthvað með hvort við hefðum rætt hluti tengda and- láti. Þú sagðir „það er bara eins og maður sé að bíða eftir strætó“ og svo kom stuttu seinna „jæja, þá bara bíð ég“. Ég spyr þig hverju þú sért að bíða eftir og þú svarar „nú, þessu andláti“. Ég gat nú hlegið dátt að þessu þrátt fyrir alvöru stundarinnar. Ég er bara svo ánægð með tímann sem við fengum saman í lífinu og allar stundirnar sem þú sýndir mér skilyrðislausa ást í formi ferðalaga og alls tímans sem þú gafst þér í að láta mér líða eins og merkilegasta barni í heimi. Þú barst mig á háhesti langar vegalengdir þegar ég nennti ekki að labba. Þú hjálp- aðir mér að læra að hjóla án hjálpardekkja og ég man þann dag eins og hann hefði verið í gær. Það voru nammidagar og sjónvarpsgláp á föstudögum. Að fara og hitta alla á Tjarnarflöt- inni þar sem börn léku sér sam- an og fullorðnir þrömmuðu um gólf og töluðu hver ofan í annan. Það voru yndislegar stundir að geta notið æskuslóða þinna; að traðka í hrauninu og leika með túttubyssur úti í garði hjá ömmu og afa eða í leikjum með krökk- um úr hverfinu. Ég og þú erum svo svipuð með það að vera nægjusöm og okkur finnst einhvern veginn sjálfsagðara að eyða okkar í aðra en okkur sjálf. Ég geng líka í fötum þar til þau eru orðin svo götótt að það telst ósiðlegt að nota þau lengur. Við elskum bæði að komast heim og fara úr sokkunum. Þú talaðir einhvern tíma um að vilja ganga um ber- fættur í kufli úti um grænar grundir. Ég vona að þú sért bara akkúrat í þeim sporum núna og takir svo á móti mér þar þegar minn tími kemur. Elska þig og sakna þín alveg rosalega mikið pabbi minn og barnabörnin sakna afa síns, bestu hetjunnar. Þín dóttir, Hrafnhildur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.