Morgunblaðið - 17.06.2022, Qupperneq 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 2022
Litirnir eru fjölmargir
og hægt að fá
sérblandaða hjá okkur.
HÁGÆÐA
VIÐARVÖRN FRÁ
SLIPPFÉLAGINU
Opið:
8-18 virka daga
10-14 laugardaga
Sími 588 8000
slippfelagid.is
50 ÁRA Einar ólst upp á Akranesi
en býr í Borgarnesi. Hann er sjó-
maður og er í mánuð til skiptis á
Grænlandi og í Borgarnesi. Áhuga-
mál hans eru útivist og góðar sam-
verustundir með fjölskyldunni. „Ég
fer eins oft og ég get í utanlands-
ferðir þar sem ég vinn í mánuð og er
í fríi í mánuð.“
FJÖLSKYLDA Maki Einars er
Sigrún Sveinsdóttir, f. 1972, kennari
í grunnskólanum í Borgarnesi. Syn-
ir Einars eru Páll Sindri, f. 1992, og
Hákon Ingi, f. 1995, og synir hans og
Sigrúnar eru Bjartur Daði, f. 2003,
og Jóhann Orri, f. 2008. Dóttir Sig-
rúnar úr fyrra sambandi er Heiðrún Una Unnsteinsdóttir, f. 1996. Foreldrar
Einars eru Páll Skúlason, f. 1945, pípulagningamaður, og Jóhanna Einars-
dóttir, f. 1949, húsmóðir.
Einar Árni Pálsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Einhver þér nákominn þarf nú á
ráðum þínum að halda. Hugsaðu þig vel
um áður en þú hellir þér út í nýtt ástar-
samband.
20. apríl - 20. maí +
Naut Eitthvað óvænt mun sennilega
koma upp hjá þér í dag. Einhver ókunnug-
ur kemur með spurningu sem þú hefur
ekki svar við.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Þér hentar best að vinna ein/-n
í dag. Hagaðu seglum eftir vindi og þér
mun takast það sem þú ætlaðir þér.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þú þarft að gefa þér betri tíma til
að sinna því sem raunverulega skiptir
máli. Reyndu að missa ekki stjórn á þér í
hita leiksins. Teldu frekar upp að tíu.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Gleymdu ekki smáatriðunum þegar
þú gengur frá málum til undirskriftar. Þú
ert í náðinni hjá mörgum.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Það er engin ástæða til að hengja
haus þótt smá mótbyr sé. Reyndu að
draga lærdóm af því sem þú hefur gengið
í gegnum síðustu mánuði.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Það er ósiður að svara ekki skila-
boðum. Það þýðir ekki að stinga höfðinu í
sandinn og vona að óþægilegir hlutir
hverfi. Horfstu í augu við þá.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þótt rétt sé að gefa sér tíma
til að kanna hlutina kemur alltaf að því að
það verður að taka ákvörðun. Ekki líta til
baka, það breytir engu.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Sumir eru eitthvað mildari í
dómum þessa dagana en það þarf ekki
endilega að vera ellimerki. Þú fetar í fót-
spor ættingja.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Nú væri upplagt að kalla fólk
saman og eiga með því skemmtilega
stund. Þú kemur óvart við snöggan blett
á einhverjum, en ekki taka því of alvar-
lega.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Láttu ekki aðra hrifsa til sín
það sem í raun er þitt. Þú kallar ekki allt
ömmu þína í vissu máli og færð klapp á
bakið frá ókunnugum.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Ef þú átt lausa stund aflögu máttu
vita að þeir eru margir sem þurfa á að-
stoð að halda. Samband hangir á blá-
þræði.
ustu árin höfum við ferðast meira
akandi um landið og eigum núna
ferðabíl sem við stefndum á að nota
drjúgt í sumar en sjáum fram á að
fara aftur að stunda hestaferðalög,
unar. „Við vorum í hestamennsku
þegar við bjuggum fyrir sunnan og
notuðum þá sumrin til hestaferða-
laga. Það hefur að mestu lagst af
eftir að við fluttum í sveitina. Síð-
S
igrún Hauksdóttir fædd-
ist 17. júní 1962 í Reykja-
vík en fjölskyldan flutti
að Brekku í Þingi það
sumar.
Uppvaxtarárin voru í sveitinni en
hún tók þátt í sveitastörfunum allt
þar til hún fór suður í framhalds-
skóla. „Fyrsti skólinn var í skóla-
húsinu, fyrir skólaskyldu, en pabbi
kenndi þar og við systkinin fórum
stundum með honum. Ég var í
Húnavallaskóla í barna- og ung-
lingaskóla en ég tók 9. bekk, nú 10.
bekk, á Reykjum í Hrútafirði. Þá lá
leiðin í Menntaskólann í Kópavogi
þar sem ég lauk tveimur árum.“
Seinna náði Sigrún sér í menntun á
sviði skrifstofutækni og bókhalds og
tók síðan nám í viðurkenndum bók-
ara eftir að hafa unnið við bókhald í
drjúgan tíma. Hún lærði Davis-les-
blinduráðgjöf og starfaði við það í
nokkurn tíma. Á þeim tíma átti Sig-
rún hlut í fyrirtækinu Lesblind.com.
Vorið 2021 lauk hún stjórnenda-
námi hjá Stjórnendafræðslunni.
Stjórnsemin hefur lengi loðað við
mig og því var eðlilegast að ná sér í
menntun á því sviði.
Árið 1983 notaði ég sumarfríið
mitt til að fara í fiskvinnu á Höfn í
Hornafirði og kynntist þar eigin-
manninum. Við bjuggum í nokkur
misseri á Höfn en lengst af bjugg-
um við í Kópavogi og þar eru æsku-
stöðvar sonanna.“ Framan af starfs-
ævinni vann Sigrún ýmiss konar
störf, til að mynda við afgreiðslu, í
fiski, við ræstingar og miðasölu í
Borgarleikhúsinu. „Skemmtilegasta
starfið held ég að hafi verið að
keyra hótelbíl hringinn umhverfis
landið en hann var útbúinn með eins
konar káetum á pallinum. Haustið
2010 fluttum við síðan hingað að
Brekku og tókum við búi af for-
eldrum mínum. Ég er fjórði ættlið-
urinn sem býr í Brekku en langafi
minn og langamma hófu hér búskap
upp úr 1890, afi og amma tóku við
1917 og eins og áður segir hófu for-
eldrar mínir búskap hér 1962.“
Fjölskyldan rekur fjárbú í minni
kantinum auk þess að vera með
nokkuð af hrossum og eru í lítils-
háttar hrossarækt sér til skemmt-
olíuverðið er orðið svo hátt.“
Starfsvettvangurinn hefur verið á
sviði bókhalds og fjármála í seinni
tíð. Síðustu árin hefur Sigrún verið
skrifstofu- og fjármálastjóri hjá
Blönduósbæ þar til fyrir skömmu að
hún fór í starf aðalbókara hjá Húna-
vatnshreppi en nú hafa þessi sveit-
arfélög sameinast í Húnabyggð.
Sigrún sat í sveitarstjórn Húna-
vatnshrepps á árunum 2014 til 2018
og var þá varaoddviti. Auk þess sat
hún í stjórnum Byggðasamlags um
menningar- og atvinnumál, Orku-
sveitarfélaga og Textílseturs Ís-
lands. Einnig var hún í fjallskila-
stjórn Grímstungu- og Haukagils-
heiða á þessum tíma og í skamman
tíma fjallskilastjóri.
Áhugamál Sigrúnar eru meðal
annars fjallganga og önnur útivist,
kórsöngur og prjónaskapur. „Ég
var ein af stofnendum Kvennakórs
Kópavogs og starfaði með honum
þar til ég flutti að Brekku. Ég syng
með Kirkjukór Þingeyra- og Undir-
fellskirkju og hef sungið með fleiri
kórum í skemmri tíma.“
Frítímann notar Sigrún oft til að
Sigrún Hauksdóttir bóndi og fjármálastjóri – 60 ára
Hjónin Sigrún og Sigfús sjá fram á að fara frekar í hestaferðir í sumar en ferðir á bíl í ljósi hækkandi olíuverðs.
Sólsetrið fallegast við Húnaflóa
Barnabörnin Guðrún Lilja og Sigfús
Óli Karlsbörn með ömmu sinni.
Nýr erfingi Sigrún er rík af barna-
börnum og heldur hér á Haukssyni.
Til hamingju með daginn
Reykjavík Burkni Leó Vattnes Ægis-
son fæddist 26. janúar 2022 kl. 14.39
á Landspítalanum. Hann vó 3.400 g og
var 50 cm langur. Foreldrar hans eru
Ægir Már Burknason og Halldóra
Vattnes Kristjánsdóttir.
Nýr borgari