Morgunblaðið - 17.06.2022, Side 25

Morgunblaðið - 17.06.2022, Side 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 2022 FORNUBÚÐIR 12, HAFNARFIRÐI | S: 555 0800 | SIGN@SIGN.IS | SIGN.IS „SEGÐU MÉR HVENÆR ÉG Á AÐ HÆTTA.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ... að afplána flensuna saman. HÆTTU AÐ STARA Á PEYSUNA MÍNA MAMMA? ÞAÐ ERU LIÐIN TVÖ ÁR FRÁ ÞVÍ ÉG RÉÐST SÍÐAST Á KASTALANN! HAFIÐ ÞIÐ SAKNAÐ MÍN? HUNDURINN YKKAR HEFUR SAKNAÐ MÍN! NEI! SPORHUNDAR HAFA SÍNA EIGIN TÓNLISTARSTEFNU. hitta synina og fjölskyldur þeirra. „Barnabörnin eiga stóran sess hjá mér og ekki síst það nýjasta, sem er fárra daga gamalt. Annars nota ég frítíma hér heima við til að fara í göngutúra hér í nágrenninu og finnst yndislegt að rölta hér fram í landið. Þar er mikið útsýni yfir sveitina og út á Húnaflóa og sól- setrið við Húnaflóann er það falleg- asta á landinu.“ Fjölskylda Eiginmaður Sigrúnar er Sigfús Óli Moritz Sigurðsson, f. 30.11. 1962, bóndi og húsasmiður. For- eldrar hans eru hjónin Karl Sig- urður Sigfússon, f. 13.8. 1923, d. 16.5. 1987, smiður og kaupmaður, og Ingibjörg Guðmundsdóttir, f. 9.8. 1927, d. 27.1. 1985, kaupmaður og húsmóðir. Þau bjuggu á Höfn í Hornafirði. Börn Sigrúnar og Sigfúsar eru: 1) Karl Sigurður, f. 9.1. 1987, býr í Kópavogi, MS í verkfræði, verk- fræðingur, forritari hjá Marel. Maki hans er Hrefna Rós Matthíasdóttir, stjórnmálafræðingur, markaðs- og fjáröflunarstjóri Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra. 2) Haukur Elís, f. 30.1. 1991, verkamaður hjá Þús- und fjölum, býr í Garðabæ. Maki hans er Eyrún Viktorsdóttir, lög- fræðingur hjá HMS og leiðsögu- maður hjá FÍ. Barnabörn Sigrúnar og Sigfúsar eru þrjú: Sigfús Óli Karlsson, f. 5.11. 2015, Guðrún Lilja Karlsdóttir, f. 6.6. 2018, og nýfædd- ur Hauksson, f. 3.6. 2022. Systkini Sigrúnar eru Magnús, f. 9.2. 1959, lektor í Kiel í Þýskalandi, Sigurlína Björg, f. 18.8. 1960, leik- skólakennari í Kópavogi, Guðrún, f. 21.10. 1964, lögreglufulltrúi í Stykk- ishólmi og Guðmundur Ellert, f. 31.5. 1969, bifreiðastjóri í Kópavogi. Foreldrar Sigrúnar voru Elín Ellertsdóttir, f. 27.2. 1927, d. 3.8. 2016, húsmóðir, og Haukur Magn- ússon, f. 1.9. 1926, d. 15.6. 2013, bóndi og kennari. Þau hófu sinn bú- skap í Reykjavík en fluttu að Brekku í Þingi 1962 og voru búsett þar til 2010 er þau fluttu á Blöndu- ós. Sigrún Hauksdóttir Jón Sigurður Jóhannsson bóndi í Brekku Þórkatla Júlíana Guðmundsdóttir húsfreyja í Brekku Magnús Bjarni Jónsson bóndi í Brekku Sigrún Sigurðardóttir húsmóðir í Brekku Haukur Magnússon bóndi og kennari í Brekku Sigurður Jónsson prestur á Lundi Guðrún Metta Sveinsdóttir húsfreyja á Lundi í Lundarreykjadal Eggert Finnsson bóndi á Meðalfelli Elín Gísladóttir húsfreyja á Meðalfelli Jóhannes Ellert Eggertsson bóndi á Meðalfelli Karitas Sigurlína Björg Einarsdóttir húsmóðir á Meðalfelli í Kjós Einar Gottsveinsson bóndi í Hjarðarnesi og á Melum Gróa Ingimundardóttir húsfreyja í Hjarðarnesi og á Melum á Kjalarnesi Ætt Sigrúnar Hauksdóttur Elín Ellertsdóttir húsmóðir í Brekku í Þingi Á Boðnarmiði yrkir Ólafur Stef- ánsson „Út í rosann“: Mér er ekki glatt í geði, ganga skúrir yfir land. Rignir niður blóm í beði bíður þeirra hel og grand. Guðmundur Arnfinnsson yrkir Morgunvísu (oddhent): Árla vísur yrkja kýs, upp þá rís á fætur, lofa’ og prísa ljóðadís laus úr krísu nætur. Sævar Sigurgeirsson yrkir „Minnisvísu dagsins“: Apabólunafnið nú neyðum við í straff. Heiti nýtt því hugsar þú: hMPXV. Út af nýjustu tíðindum yrkir Friðrik Steingrímsson: Blöskri ykkur búvöru- og bensínverðið, ykkar sultarólar herðið. Pétur Bjarnason bætti við: Ólin sú er allvel hert að innsta gati. Alveg nóg að mínu mati. Og Guðrún Bjarnadóttir: Sæt er gjarnan sultaról og mikil megr- un, en deila má hvort föst sé fegrun. Jón Jens Kristjánsson skrifar: „Í Mbl. sá ég stórfrétt um að Kim Kar- dashian hefði troðið sér í kjól sem Marilyn Monroe skartaði fyrrum og saumar gefið eftir á kjólnum“: Þykir hún ekki í fötum fim því firna þétt eru útskotin skemmdir urðu er klæddist Kim kjólnum góða af Marilyn. Gunnar J. Straumland yrkir þessa fallegu hringhendu: Þegar hauður hafið sér hjartans nauðar vandi hopar. Auðna yfir mér er á Rauðasandi. Jón Ingvar Jónsson orti um sjó- mannadaginn: Aldrei ég úr ægi dró eitthvað grand. Meig þó oft í saltan sjó og sigldi í strand. Stefán B. Heiðarsson orti á sunnudag: Sláttuvélin hefur hátt, hér er enginn friður. Eyrun á mér ekki sátt, enn þá vélin skríður. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Apabóla og búvöruverð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.