Morgunblaðið - 17.06.2022, Qupperneq 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 2022
Besta deild karla
KA – Fram ................................................ 2:2
Keflavík – Stjarnan .................................. 2:2
FH – Leiknir R......................................... 2:2
Valur – Breiðablik .................................... 3:2
Staðan:
Breiðablik 9 8 0 1 27:11 24
Víkingur R. 10 6 1 3 22:16 19
Stjarnan 9 5 3 1 19:12 18
KA 9 5 2 2 14:8 17
Valur 9 5 1 3 17:13 16
KR 9 4 3 2 15:11 15
Keflavík 10 3 2 5 16:19 11
Fram 9 2 3 4 16:23 9
FH 9 2 2 5 14:17 8
ÍA 9 1 4 4 10:20 7
Leiknir R. 9 0 4 5 6:15 4
ÍBV 9 0 3 6 6:17 3
Lengjudeild karla
Fylkir – HK............................................... 0:1
Þór – Grótta .............................................. 0:1
Þróttur V. – Afturelding .......................... 0:1
Grindavík – KV......................................... 2:1
Kórdrengir – Selfoss................................ 4:3
Staðan:
Selfoss 7 4 2 1 17:10 14
Grótta 6 4 1 1 16:5 13
Grindavík 7 3 4 0 11:6 13
HK 6 4 0 2 11:7 12
Fylkir 7 3 2 2 16:8 11
Fjölnir 6 3 2 1 15:10 11
Kórdrengir 7 2 4 1 11:9 10
Afturelding 7 1 3 3 6:10 6
Vestri 6 1 3 2 8:16 6
Þór 7 1 2 4 7:14 5
KV 7 1 0 6 7:19 3
Þróttur V. 5 0 1 4 1:12 1
2. deild karla
Reynir S. – Þróttur R............................... 0:1
Staðan:
Njarðvík 6 5 1 0 20:5 16
Ægir 6 5 1 0 9:1 16
Þróttur R. 7 5 1 1 13:6 16
Völsungur 6 4 1 1 14:8 13
ÍR 6 3 2 1 9:5 11
Haukar 6 2 2 2 7:8 8
KF 6 1 4 1 11:8 7
Höttur/Huginn 6 1 2 3 8:13 5
Magni 6 1 1 4 4:17 4
KFA 6 0 3 3 7:12 3
Víkingur Ó. 6 0 2 4 3:11 2
Reynir S. 7 0 0 7 5:16 0
3. deild karla
Augnablik – Kári ...................................... 2:4
Dalvík/Reynir – Kormákur/Hvöt ........... 4:2
Vængir Júpíters – Víðir ........................... 1:1
Staðan:
Dalvík/Reynir 7 5 0 2 17:10 15
Víðir 7 4 1 2 17:9 13
Sindri 6 4 1 1 14:9 13
KFG 6 4 0 2 12:8 12
Elliði 6 3 1 2 9:7 10
Kári 7 3 1 3 10:10 10
Vængir Júpiters 7 3 1 3 10:10 10
Augnablik 7 3 1 3 10:14 10
KFS 6 3 0 3 10:14 9
ÍH 7 2 0 5 17:18 6
Kormákur/Hvöt 7 2 0 5 12:17 6
KH 7 1 0 6 5:17 3
2. deild kvenna
Hamar – ÍR............................................... 4:2
Staðan:
Grótta 4 3 1 0 20:2 10
Fram 3 3 0 0 9:0 9
KH 3 2 1 0 11:5 7
ÍR 4 2 1 1 9:8 7
Sindri 4 2 0 2 7:12 6
Völsungur 2 1 1 0 3:2 4
ÍH 4 1 1 2 10:12 4
Hamar 4 1 1 2 6:8 4
ÍA 2 1 0 1 2:3 3
Álftanes 4 1 0 3 8:11 3
Einherji 3 0 0 3 2:9 0
KÁ 3 0 0 3 3:18 0
Bandaríkin
New England – Orlando City................. 1:1
- Arnór Ingvi Traustason kom inn á hjá
New England á 81. mínútu.
B-deild:
Oakland Roots – New Mexico ................ 1:2
- Óttar Magnús Karlsson lék allan leikinn
með Oakland Roots.
Vináttulandsleikur kvenna
England – Belgía...................................... 3:0
4.$--3795.$
Belgar, fyrstu mótherjar Íslands í
lokakeppni Evrópumótsins á Eng-
landi í næsta mánuði, biðu lægri
hlut fyrir Englendingum í vináttu-
landsleik í gærkvöld, 3:0. Leikið
var á Molineux-leikvanginum í
Wolverhampton.
Chloe Kelly og Rachel Daly
skoruðu tvö fyrstu mörkin og það
þriðja skoraði Leah Williamson
með hörkuskoti í þverslá, í mark-
vörð Belganna og þaðan í netið.
Sjálfsmark. Ísland mætir Belgíu
10. júlí.
Þriggja marka
tap Belga
Sundkonan Thelma Björg Björns-
dóttir náði þeim glæsilega árangri í
gær að vinna silfurverðlaun í 100
metra bringusundi í flokki hreyfi-
hamlaðra S5 á heimsmeistaramóti
fatlaðra í Funchal á portúgölsku
eyjunni Madeira.
Thelma synti úrslitasundið á
1:58,23 mínútum en sigurvegarinn
Grace Harvey frá Bretlandi vann
yfirburðasigur á 1:41,19 mínútum.
Þetta var önnur grein Thelmu á
mótinu en hún varð í sjötta sæti í
200 metra fjórsundi á miðvikudag-
inn.
Thelma fékk
silfrið á HM
Ljósmynd/ÍF
Silfur Thelma Björg Björnsdóttir
með verðlaunin á Madeira í gær.
Handknattleiksmaðurinn Arnar
Birkir Hálfdánsson er kominn í
dönsku úrvalsdeildina á ný eftir að
hafa leikið undanfarin tvö ár með
Aue í þýsku B-deildinni. Hann hef-
ur samið við Ribe-Esbjerg um að
leika með liðinu næstu tvö árin en
hann lék áður með SönderjyskE.
Þar með eru þrír Íslendingar
komnir til Ribe-Esbjerg fyrir næsta
tímabil en félagið fékk einnig
markvörðinn Ágúst Elí Björg-
vinsson frá Kolding og rétthentu
skyttuna Elvar Ásgeirsson frá
Nancy í Frakklandi.
Morgunblaðið/Hari
Danmörk Arnar Birkir Hálfdánsson
samdi við Ribe-Esbjerg.
Arnar aftur til
Danmerkur
KA – FRAM 2:2
0:1 Tiago Fernandes 24.
0:2 Fred Saraiva 35.
1:2 Hallgrímur Mar Steingrímss. 81.(v)
2:2 Daníel Hafsteinsson 87.
M
Steinþór Freyr Þorsteinsson (KA)
Ívar Örn Árnason (KA)
Dusan Brkovic (KA)
Daníel Hafsteinsson (KA)
Hlynur Atli Magnússon (Fram)
Alex Freyr Elísson (Fram)
Tiago Fernandes (Fram)
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson – 8.
Áhorfendur: 595.
FH – LEIKNIR R. 2:2
0:1 Emil Berger 3. (v)
1:1 Baldur Logi Guðlaugsson 7.
2:1 Kristinn Freyr Sigurðsson 22.
2:2 Maciej Makuszewski 90.
M
Ólafur Guðmundsson (FH)
Guðmundur Kristjánsson (FH)
Máni Austmann Hilmarsson (FH)
Kristinn Freyr Sigurðsson (FH)
Bjarki Aðalsteinsson (Leikni)
Róbert Hauksson (Leikni)
Mikkel Dahl (Leikni)
Viktor Freyr Sigurðsson (Leikni)
Dómari: Erlendur Eiríksson – 8.
Áhorfendur: 367.
KEFLAVÍK – STJARNAN 2:2
0:1 Jóhann Árni Gunnarsson 27.
1:1 Adam Ægir Pálsson 35.
1:2 Ísak Andri Sigurgeirsson 40.
2:2 Dani Hatakka 68.
M
Adam Ægir Pálsson (Keflavík)
Dani Hatakka (Keflavík)
Joey Gibbs (Keflavík)
Sindri Kristinn Ólafsson (Keflavík)
Sindri Þór Guðmundsson (Keflavík)
Eggert Aron Guðmundsson (Stjörn.)
Haraldur Björnsson (Stjörnunni)
Ísak Andri Sigurgeirsson (Stjörnunni)
Jóhann Árni Gunnarsson (Stjörnunni)
Óli Valur Ómarsson (Stjörnunni)
Rautt spjald: Ivan Kaliuzhnyi (Kef) 89.
Dómari: Vilhjálmur A. Þórarinss. – 8.
Áhorfendur: 354.
VALUR – BREIÐABLIK 3:2
1:0 Aron Jóhannsson 35.
2:0 Orri Hrafn Kjartansson 45.
2:1 Dagur Dan Þórhallsson 63.
2:2 Anton Logi Lúðvíksson 84.
3:2 Patrick Pedersen 90.
M
Haukur Páll Sigurðsson (Val)
Arnór Smárason (Val)
Aron Jóhannsson (Val)
Orri Hrafn Kjartansson (Val)
Patrick Pedersen (Val)
Oliver Sigurjónsson (Breiðabliki)
Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðabliki)
Jason Daði Svanþórsson (Breiðabliki)
Dagur Dan Þórhallsson (Breiðabliki)
Anton Logi Lúðvíksson (Breiðabliki)
Dómari: Þorvaldur Árnason – 7.
Áhorfendur: Um 1.000.
_ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og
greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fot-
bolti.
BESTA DEILDIN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Valsmenn galopnuðu í gærkvöld
Bestu deild karla, fyrir sjálfa sig og
öll önnur lið sem telja sig geta fylgt
Breiðabliki eftir í baráttunni um Ís-
landsmeistaratitilinn. Valsmenn
unnu 3:2 sigur á Blikum í drama-
tískum leik á Hlíðarenda, þar sem
Patrick Pedersen skoraði sigur-
markið í uppbótartíma eftir að Blik-
ar höfðu unnið upp tveggja marka
forskot Vals í síðari hálfleiknum.
Breiðablik er eftir sem áður með
fimm stiga forystu á toppi deildar-
innar en átta leikja sigurganga
Kópavogsliðsins var rofin á Hlíðar-
enda.
_ Aron Jóhannsson kom Val yfir
með sínu fyrsta marki í efstu deild
hér á landi í 13 ár, með skoti langt
utan af velli. Hann skoraði eitt
mark í deildinni fyrir Fjölni árið
2009.
_ Orri Hrafn Kjartansson skor-
aði líka sitt fyrsta deildarmark fyrir
Valsmenn þegar hann kom þeim í
2:0.
_ Dagur Dan Þórhallsson og
Anton Logi Lúðvíksson jöfnuðu
metin með tveimur mörkum fyrir
Blika í síðari hálfleik.
_ Patrick Pedersen lék með Val
á ný eftir að hafa misst af þremur
leikjum vegna meiðsla. Hann er
með marki sínu orðinn næstmarka-
hæstur í deildinni í sögu Vals.
Hann fór upp fyrir Hermann
Gunnarsson og er kominn með 82
mörk fyrir félagið í deildinni. Að-
eins Ingi Björn Albertsson hefur
gert betur en hann skoraði 109
mörk fyrir Val.
Ólafi sagt upp eftir jafntefli
Ólafi Jóhannessyni þjálfara FH
sagt upp störfum eftir jafntefli
gegn Leikni, 2:2, í Kaplakrika. FH-
ingar staðfestu brottreksturinn
laust fyrir klukkan ellefu í gær-
kvöld.
Pólverjinn Maciej Makuszewski
skoraði sitt fyrsta mark fyrir
Leikni þegar hann jafnaði fyrir
Breiðholtsliðið í uppbótartíma.
Dýrmætt stig fyrir Leikn-
ismenn sem eru enn án sigurs en
eru komnir upp fyrir ÍBV á botn-
inum og eru nú þremur stigum á
eftir Skagamönnum.
FH-ingar hafa aðeins unnið tvo
af fyrstu níu leikjum sínum en
þeir höfðu verið yfir í 70 mínútur
eftir að Kristinn Freyr Sigurðs-
son kom þeim í 2:1 í fyrri hálf-
leiknum.
Enn skorar finnski
miðvörðurinn
Keflvíkingar halda áfram að
tína inn stig og gerðu 2:2 jafntefli
við Stjörnumenn sem höfðu unnið
þrjá síðustu leiki sína og voru
komnir í annað sætið fyrir um-
ferðina.
Málin hafa snúist við hjá Sig-
urði Ragnari Eyjólfssyni og hans
mönnum í Keflavík, sem fengu eitt
stig í fyrstu fimm leikjunum en
hafa nú náð í ellefu stig í síðustu
sex.
_ Finnski miðvörðurinn Dani
Hatakka hefur heldur betur verið
Keflvíkingum drjúgur að und-
anförnu því hann skoraði í þriðja
leiknum í röð og jafnaði, 2:2.
Endasprettur KA í fyrsta leik
KA-menn léku í fyrsta skipti í
deildinni á nýja gervigrasinu og
með nýju stúkunni á félagssvæði
þeirra á Akureyri. Þar þurftu þeir
góðan endasprett til að ná jafntefli,
2:2, gegn Frömurum.
Á lokakafla leiksins skoruðu Hall-
grímur Mar Steingrímsson og
Daníel Hafsteinsson og jöfnuðu
metin fyrir KA.
Framarar sáu um að skora fyrstu
mörkin á nýja KA-vellinum. Þeir
Tiago Fernandes frá Portúgal og
Fred Saraiva frá Brasilíu skoruðu
með hörkuskotum utan vítateigs
með stuttu millibili í fyrri hálf-
leiknum. Fram hefur enn ekki hald-
ið hreinu í leik í deildinni og það
dugði ekki að halda KA frá markinu
fyrstu 80 mínúturnar í gærkvöld.
_ Ásgeir Sigurgeirsson, fyrirliði
KA, lék sinn 100. leik í efstu deild.
Hann er sjöundi KA-maðurinn frá
upphafi sem nær þeim áfanga fyrir
félagið.
Pedersen stöðvaði Blikana
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Kaplakriki Bjarki Aðalsteinsson fyrirliði Leiknismanna bjargar á síðustu
stundu í leiknum gegn FH-ingum í gærkvöld.
- Skoraði sigurmark Vals í uppbótartíma - Ólafi sagt upp störfum hjá FH
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Hlíðarendi Arnór Smárason Valsmaður og Gísli Eyjólfsson Bliki í návígi á
miðjum vellinum. Arnór lagði upp mark og fagnaði sætum sigri.