Morgunblaðið - 17.06.2022, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 17.06.2022, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ 96% Empire The Playlist BBC The sun Total FilmRogerEbert.com “Top Gun: Maverick is outstanding.” Breathtaking “It’s the BEST MOVIE OF THE YEAR!” “Might be the best movie in 10 years.” “Top Gun: Maverick is fantastic.” “Best Action Sequel Of All Time” “What going to the movies is all about” “You must see this one in the theater.” “a must see!” 82% Empire Rolling StoneLA Times BENEDICT CUMBERBATCH ELIZABETH OLSEN chiwetel ejiofor BENEDICT WONG xochitl gomez MICHAEL STÜHLBARG RACHEL MCadams HJÖRTUR JÓHANN JÓNSSON ALDÍS AMAH HAMILTON AHD TAMIMI GUÐJÓN DAVÍÐ KARLSSON LÍSA PÁLSDÓTTIR HARALD G. HARALDS KATRÍN HALLDÓRA SIGURÐARDÓTTIR “THE BEST MOVIE OF THE YEAR” “AN EPIC ADVENTURE” “A CROWD-PLEASEING BLAST” “THE MOVIE EVENT OF THE YEAR” “A MOVIE LIGHT YEARS AHEAD OF IT´S TIME” Þrír tónlistarmenn og það allir gít- arleikarar hlutu í gær verðlaun úr Minningarsjóði Kristjáns Eldjárns gítarleikara sem er ætlað að verð- launa efnilega tónlistarmenn og af- reksfólk í tónlist. Gítarleikararnir eru þau Daníel Friðrik Böðvarsson, Hafdís Bjarnadóttir og Reynir Hauksson. Voru verðlaunin afhent við hátíðlega athöfn í Björtuloftum í Hörpu síðdegis og var að sjálfsögðu flutt tónlist við það tækifæri. Hvert þeirra hlýtur eina milljón króna. Yfirleitt eru ein verðlaun veitt en þar sem Kristján hefði orðið fimm- tugur í gær voru þau sérstaklega vegleg að þessu sinni. Kristján lést 22. apríl árið 2002, tæplega þrítug- ur. Einn stofnenda Moses Hightower Daníel Friðrik fæddist í Reykja- vík 1989 og lauk námi í djassgítar- leik frá Jazz Institut Berlin árið 2014 undir handleiðslu Kurts Ros- enwinkels, Gregs Cohens og Johns Hollenbecks. Áður hafði hann lært í Tónskóla Do-Re-Mí og Tónlistar- skóla FÍH þaðan sem hann lauk burtfararprófi af djassbraut 2010. Daníel starfar sem gítarleikari og upptökustjóri og hefur leikið með hljómsveitunum Moses Hightower, Pranke og Okuma. Með þeim hefur hann samið tónlist fyrir leikrit í Þjóðleikhúsinu, Volksbühne og út- varpsleikrit hjá Deutschlandradio. Hann hefur í tvígang hlotið Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir lagasmíðar með Moses Hightower og starfað með fjölda ólíkra tónlist- armanna. Þá hefur hann komið fram sem gítarleikari með Sinfóníu- hljómsveit Íslands og Schola Cant- orum. Verk upp úr prjónauppskrift Hafdís Bjarnadóttir fæddist í Reykjavík árið 1977. Hún lauk námi frá kennaradeild Tónlistarskóla FÍH 2001 og burtfararprófi á djass- gítar frá sama skóla 2002. Hún lauk BA-prófi í tónsmíðum frá Lista- háskóla Íslands árið 2007 og MA- prófi í tónsmíðum frá Konunglega tónlistarháskólanum í Kaupmanna- höfn 2009. Hafdís starfar sem gítar- leikari, tónskáld og tónlistarkennari í Reykjavík og hefur lagt áherslu á að brjóta niður múra milli mismun- andi tónlistarstíla, eins og fram kemur í tilkynningu. Hún hefur samið verk fyrir sinfóníusveit, unn- ið upp úr prjónauppskrift, gert þrjár sólóplötur þar sem tónlist- arstílum og hljóðfærum er blandað saman á óvenjulegan hátt og samið kammersveitarverk upp úr línurit- um og tölum frá íslensku bönk- unum á árunum 2007-2009, svo nokkur verk séu nefnd. Þá hefur hún komið víða fram sem rafgítar- leikari og tónhöfundur, innanlands sem utan, m.a. á hátíðum. Hún hef- ur hlotið ýmsar tilnefningar til Ís- lensku tónlistarverðlaunanna og hlaut Kraumsverðlaunin árið 2017. Kynnir Íslendingum flamenco Reynir fæddist árið 1989 og hóf nám í Tónlistarskóla FÍH eftir að hafa spilað á hljóðfæri frá barns- aldri. Þaðan lauk hann burtfarar- prófi í klassískum gítarleik árið 2015 og lagði einnig stund á rafgít- arleik og kennaranám. Hann stund- aði hljóðfæra- og kennaranám í Noregi 2015-2016 og nám í tónvís- indum 2016. Einkanám í flamenco- gítarleik stundaði hann í Granada á árunum 2016-2019 og í Madrid 2019-2020. Út frá þeim grunni hef- ur hann unnið að margbreytilegum tónlistarverkefnum, eins og segir í tilkynningu, og hefur Reynir einnig fengist við hljóðversvinnslu, gefið út þrjár plötur með hljómsveit- unum Þoku og Eldberg og leikið með á plötum annarra. Hann hefur haldið gítareinleikstónleika með áherslu á flamenco-, klassíska og frjálsa spunatónlist og leikið á stórum tónleikum með eigin tón- smíðum með fjölmennum hljóm- sveitum. Reynir hefur frá árinu 2016 verið búsettur í Granada á Spáni og unnið þar sem flamenco- gítarleikari og komið reglulega hingað til lands með spænskum listamönnum til að kynna Íslend- ingum flamencotónlist og -dans. helgisnaer@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Heiður Þrír tónlistarmenn hlutu verðlaun úr Minningarsjóði Kristjáns Eldjárns í gær í Björtuloftum í Hörpu. Þrír gítarleikarar verðlaunaðir - Þrenn verðlaun voru veitt úr Minningarsjóði Kristjáns Eldjárns í gær. Þau hlutu Daníel Friðrik Böðvarsson, Hafdís Bjarnadóttir og Reynir Hauksson Hin sænsk-serbneska Dalija Acin Thelander og hin austurríska Doris Ulrich sýna verk sín dAzzleMAZE og Every Body Electric á Listahátíð í Reykjavík núna um helgina. Fyrr- nefnda sýningin, dAzzleMAZE eða Heillaheimur á íslensku, er í til- kynningu sögð upplifunarsýning fyrir allra yngstu áhorfendur og henta einnig skynsegin börnum. „Í sýningunni, sem er í senn dansverk og innsetning, fögnum við veru okkar í heiminum og göngum inn í rými þar sem við tökum glöð á móti því óþekkta,“ segir í tilkynningu og að Heillaheimur bjóði upp á fjöl- þætta skynjunarupplifun og hvatt sé til forvitni, könnunar, slökunar og íhugunar. Every Body Electric er lýst sem rafmögnuðu dansverki eftir dansarann og danshöfundinn Doris Uhlich sem hlotið hefur fjölda verðlauna. Mun það ögra við- teknum hugmyndum um möguleika líkamans og orkuna sem býr í okk- ur öllum. „Með sprengikrafti í bland við ljóðræna mýkt fer hópur fatlaðra dansara með áhorfendur í taktfast og ófyrirsjáanlegt ferðalag inn í kjarna hins mannlega. Jafnvel smæsta hreyfing getur leyst ótrú- lega orku úr læðingi,“ segir í til- kynningu og að hver einasti líkami búi yfir sínu einstaka, lífræna afli. Í verkinu rannsaki hópurinn einnig þá möguleika sem skapist þegar vélin, hvort sem það er rafknúinn hjólastóll, gervilimur eða stoðtæki, taki við sem framlenging á líkam- anum. Uhlich er austurrísk, hefur sett upp fjölda dansverka en hefur hin síðustu ár ekki síst einbeitt sér að samvinnu við listafólk með lík- amlega fötlun. Sýningartíma og frekari upplýs- ingar um aðra viðburði helgarinnar má finna á vef Listahátíðar í Reykjavík, listahatid.is. Heillaheimur og fatlaðir dansarar Heillaheimur Úr dAzzleMAZE. Ljósmynd/Fernando Molina

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.