Morgunblaðið - 17.06.2022, Page 32
STILLANLEG
HJÓNARÚM
MEÐ BODYPRINT DÝNU
WWW.SVEFNOGHEILSA.IS
Svefn heilsa&
PANDORA
STILLANLEGUR
HÆGINDASTÓLL
VANDAÐAR
SÆNGUROG
KODDAR Í
ÚRVALI
EITT MESTA
ÚRVAL AF
HEILSUDÝNUM
Á LANDINU
ÚRVALAF
VÖNDUÐUM
HEILSURÚMUM
GERIÐ GÆÐA- OG
VERÐSAMANBURÐ
Emilíana Torrini kemur fram með belgísku hljómsveit-
inni The Colorist Orchestra á sunnudag, 19. júní, á loka-
viðburði Listahátíðar í Eldborg í Hörpu. The Colorist
Orchestra hefur vakið athygli fyrir frumlega og lifandi
nálgun við flutning og útsetningar á tónlist úr ólíkum
áttum, eins og segir í tilkynningu, og á síðustu árum
hefur tónlistarkonan Emilíana Torrini átt í samstarfi við
sveitina og vinnur nú með henni að plötunni Riding the
Storm. Hefur Emilíana gefið út eina plötu áður með
sveitinni og hlaut sú glimrandi dóma.
Emilíana Torrini og The Colorist
Orchestra á lokadegi Listahátíðar
FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 168. DAGUR ÁRSINS 2022
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 776 kr.
Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
Valsmenn stöðvuðu sigurgöngu Breiðabliks í Bestu
deild karla í knattspyrnu í gærkvöld með því að vinna
leik liðanna í níundu umferð deildarinnar á Hlíðarenda,
3:2. Breiðablik hafði unnið fyrstu átta leiki sína í deild-
inni. Patrick Pedersen kom inn á sem varamaður og
skoraði sigurmark Vals í uppbótartíma leiksins. Þrír
aðrir leikir fóru fram í deildinni í gærkvöld og enduðu
allir 2:2. » 27
Valur stöðvaði sigurgöngu Blika
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Tveimur þriggja daga námskeiðum í
torfhleðslu er nýlokið á Tyrfings-
stöðum í Skagafirði og voru þátttak-
endur ánægðir sem fyrr, að sögn
Bryndísar Zoëga, verkefnisstjóra
Fornverkaskólans. Á fyrra nám-
skeiðinu voru átta Skotar, en átta Ís-
lendingar og einn Þjóðverji – fjórar
konur og fimm karlar – á því síðara.
Fornverkaskólinn er samstarfs-
verkefni Byggðasafns Skagfirðinga,
Háskólans á Hólum og Fjölbrauta-
skóla Norðurlands vestra. Frá 2007
hefur verið boðið upp á eitt eða fleiri
námskeið á hverju vori, fyrir utan
2015 og 2020, með áherslu á torf- og
grjóthleðslu, grindarsmíði og timb-
urviðgerðir.
Samfara því að kenna handverkið
og viðhalda þannig þekkingunni hef-
ur verið unnið að því að gera upp
torfbæinn og útihús á Tyrfings-
stöðum, en þar var búið til 1969.
„Vinnu við torfhús lýkur aldrei en við
erum langt komin,“ segir Bryndís.
„Ekki er lengur byggt mikið úr torfi
og þekking á handverkinu fer hverf-
andi.“
Frá 2012 hefur Fornverkaskólinn
verið í samstarfi við skoskt fyrirtæki,
sem hefur fengið Erasmus-styrki frá
Evrópusambandinu til þess að senda
Skota á námskeiðin og hafa þeir
komið árlega síðan, nema 2015, 2020
og 2021. „Eftir Brexit fá þeir vænt-
anlega ekki fleiri styrki frá Evrópu-
sambandinu,“ segir Bryndís og telur
að þátttöku þeirra sé þar með lokið.
Fjöldi útlendinga hafi komið á eigin
vegum og haldi því væntanlega
áfram.
Torfið kemur sér víða vel
„Það sem er svo skemmtilegt við
námskeiðin er að við fáum alls konar
fólk, úr mörgum stéttum og fag-
greinum,“ heldur hún áfram. Fyrstu
árin hafi verið þrjú til fjögur nám-
skeið á hverju vori og á einu nám-
skeiði hafi konur verið í meirihluta
en annars hafi skipting karla og
kvenna almennt verið nokkuð jöfn.
Bryndís segir að margir þátttak-
endur komi vegna þess að þeir vilji til
dæmis læra að hlaða torfvegg í garð-
inum sínum eða hafi aðgang að göml-
um torfbyggingum, sem þeir vilja
laga. Sumir kennarar vilji vekja at-
hygli nemenda á torfhleðslu og komi
því til þess að fræðast um málið.
Fornleifafræðingar vilji vita hvernig
veggirnir séu byggðir upp til þess að
vera betur undirbúnir fyrir uppgröft.
„Við leggum áherslu á að fólk læri að
stinga torf, þekkja torfið sem bygg-
ingarefni og hlaða veggi úr mismun-
andi tegundum af torfi.“
Helgi Sigurðsson frá Ökrum í
Skagafirði hefur kennt réttu hand-
tökin við torfhleðsluna frá upphafi og
Bragi Skúlason, húsasmíðameistari á
Sauðárkróki, sá lengst af um kennslu
í grindarsmíðinni. „Hann hefur unn-
ið við viðgerð gamalla húsa, meðal
annars fyrir Þjóðminjasafnið, en eft-
ir að hann fór á eftirlaun hafa nokkr-
ir tekið að sér kennsluna sem hann
sinnti.“
Bryndís áréttar að upphaflega
hugmyndin með skólanum hafi verið
að búa til svonefnda „arfbera“ til að
bera áfram þekkinguna. „Vanda-
málið er að vegna þess hve lítið er
byggt úr torfi hefur enginn fulla at-
vinnu af því. Því miður er ekki
grundvöllur til þess að halda úti
mörgum torfhleðslumönnum og því
erum við hrædd um að handverks-
þekkingin sé hverfandi. En fólk, sem
hefur komið á námskeiðin, kemur oft
með vinum og vandamönnum á Tyrf-
ingsstaði til þess að skoða hand-
verkið. Það er stolt af verkum sín-
um.“
Viðhalda þekkingunni
- Námskeið í torfhleðslu á Tyrfingsstöðum í Skagafirði
Ljósmyndir/Bryndís Zoëga
Viðhald og vinna Bryndís Zoëga verkefnisstjóri og Ceecee Cesario, forn-
leifafræðingur og nemi, snyrta torfvegg á fjóshlöðunni á Tyrfingsstöðum.
Tyrfingsstaðir Bærinn og fjóshlaðan hafa tekið miklum breytingum.