Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.11.2021, Page 11

Læknablaðið - 01.11.2021, Page 11
L ÆKNABL AÐIÐ 2021/107 515 Inngangur Útivist og fjallaferðir hafa löngum notið vinsælda meðal landans. Þá hefur erlendum ferðamönnum fjölgað gríðarlega og er náttúra Íslands aðalaðdráttaraflið.1 Þetta leiðir af sér að fólki fjölgar á hálendi Íslands og umferð eykst um þjóðvegi landsins. Allflestir eru vel undirbúnir en óhjákvæmilega verða slys og bráð veikindi utan þéttbýlis og alfaraleiða með auknum fjölda ferðamanna. Allnokkrar erlendar rannsóknir hafa verið gerðar á tíðni, tegund og alvarleika slysa og veikinda utan alfaraleiða. Algengt er að slíkar tölur séu teknar saman innan þjóðgarða í Bandaríkjunum og hafa slys reynst töluvert algengari en veikindi.2,3 Algengt er að fólk misstígi sig eða falli, sem leiðir til áverka á neðri útlim. Í rann­ sókn frá Nýja­Sjálandi var sömuleiðis meirihluti útkalla vegna slysa og áverka á neðri útlim. Þar kemur einnig fram að af útköll­ um vegna veikinda voru hjartavandamál algengust, 9,3% reyndust hafa ofkælst og 5,6% voru látin þegar að var komið.4 Í yfirliti yfir bráðaviðbrögð í þjóðgörðum Bandaríkjanna á tveggja ára tímabili 2012­2013 var meðal annars tekin saman tíðni hjartastoppa. Er þar áhugavert að 65% einstaklinga fengu hjartastuð á vettvangi og 26% lifðu til útskriftar af sjúkrahúsi.5 Slys og veikindi utan alfaraleiða á Íslandi hafa lítið verið rannsökuð. Í meistararitgerð frá árinu 2017, Neyð í óbyggðum Íslands, tók Sigrún Guðný Pétursdóttir hjúkrunarfræðingur saman þau tilfelli þar sem slasaðir og veikir voru fluttir með þyrlu Ragna Sif Árnadóttir1 sérnámslæknir Hjalti Már Björnsson1,2 bráðalæknir 1Bráðadeild Landspítala, 2læknadeild Háskóla Íslands. Fyrirspurnum svarar Hjalti Már Björnsson, hjaltimb@landspitali.is Á G R I P BAKGRUNNUR Slysavarnafélagið Landsbjörg (SL) eru öflug sjálfboðaliðasamtök sem sinna um 1200 útköllum á ári hverju. Hluti þeirra útkalla varðar björgun slasaðra eða veikra einstaklinga. Ekki liggja fyrir rannsóknir á þeirri þjónustu sem SL veitir við þessar aðstæður. MARKMIÐ Markmið rannsóknarinnar var að afla upplýsinga um heilbrigðisþjónustu sem SL veitti á árunum 2017-2018, hvort um slys eða veikindi var að ræða, hvort veitt hafi verið viðeigandi meðferð á vettvangi og hver afdrif einstaklinganna voru. EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Upplýsingar voru fengnar úr rafrænum aðgerðagrunni SL. Skoðuð voru þau tilvik þar sem fólk þurfti flutning og meðferð á heilbrigðisstofnun. Út frá Björgum, skráningarkerfi Neyðarlínu, var hægt að nálgast kennitölur og voru endanlegar greiningar og afdrif viðkomandi fengnar úr SÖGU- kerfi og Heilsugátt. NIÐURSTÖÐUR Alls voru 189 aðgerðir teknar inn í rannsóknina með 239 manns. Flestar aðgerðir voru skráðar á Suðurlandi. Í rúmlega helmingi tilfella var um karlmenn að ræða og meðalaldur var 44,4 ár. Slys voru mun algengari en veikindi, eða 86% tilvika. Algengast var að fólki skrikaði fótur, hrasaði eða félli sem leiddi til áverka á neðri útlim. Af þeim sem veiktust voru hjartatengd vandamál algengust. Í yfir 70% aðgerða var ekki skráð rafrænt hvaða meðferð var beitt á vettvangi eða hvaða búnaður var notaður. ÁLYKTANIR Björgunarsveitir þurfa reglulega að veita heilbrigðisþjónustu. Algengast er að björgunarsveitir sinni einstaklingum eftir slys sem oftast verða á neðri útlim. Veikindi sem sinnt er af björgunarsveitum eru oftast tengd hjartasjúkdómum. Skráning á notkun búnaðar og meðferðar á vettvangi er ónákvæm og má bæta. Útköll Slysavarnafélagsins Landsbjargar vegna slysa og bráðra veikinda á árunum 2017­2018

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.