Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.11.2021, Síða 22

Læknablaðið - 01.11.2021, Síða 22
526 L ÆKNABL AÐIÐ 2021/107 R A N N S Ó K N 829 624 616 587 454 448 403 345 296 275 271 0 100 200 300 400 500 600 700 800 900 Annað Bætt samvinna og aðgengi að lyfjafræðingum í apótekum Betri framsetning á upplýsingum til sjúklinga, t.d. í gegnum sérlyfjaskrá eða Heilsuveru Símenntun á sviði klínískrar lyfjafræði Bætt samvinna og aðgengi við sérgreinalækna Aukið aðgengi að klínískum lyfjafræðingum innan heilsugæslunnar til að sinna t.d. fjöllyfjanotendum og aðstoð við leit að gagnrýndum upplýsingum um lyf og meðferðir, sbr. milliverkanir lyfja, jafngildisskammta, niðurtröppun og svo framvegis Gagnreyndar upplýsingar um ný lyf frá stofnunum hérlendis, sbr. Lyfjastofnun og Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu Mismunandi tímalengd viðtala eftir þörfum sjúklings Betra skipulag og upplýsingar um lyfjameðferð sjúklings þegar viðkomandi fer milli þjónustustiga Milliverkanaforrit sem tengist sjúkraskrá sjúklings Innlendir lyfjalistar, sbr. Klokalistan frá Svíþjóð og Rationel Farmakoterapi frá Danmörku Þættir sem gætu auðveldað ákvarðanatöku um lyfjameðferð sjúklings Mynd 3 Myndin sýnir niðurstöður röðunarspurningar um hvaða þættir gætu helst gagnast heimilislæknum við val á lyfjameðferð. Hver svarmöguleiki fékk stig og atriðin sem fengu fæst stig lentu í efstu sætunum (mikilvægust). ættu að hvetja til endurskoðunar á framsetningu hennar. Tími til upplýsingaleitar, skortur á gagnreyndum upplýsingum um ný lyf og betri yfirsýn yfir lyfjameðferð sjúklinga eru atriði sem einnig eru oft nefnd sem hindranir. Fyrirmynd að gagnreyndum upplýsingum um ný lyf má finna hjá sænsku lyfjastofnuninni.20 Niðurstöðurnar ættu að vekja umræðu um leiðir til að kynna fyrir læknum, á hlutlausan hátt, ný lyf sem koma á markað á Íslandi. Ef markmiðin með miðlægu lyfjakorti, sem er í undirbúningi, verða að veruleika, verður yfirsýn lækna yfir þau lyf sem sjúklingur er á hverju sinni mun betri, en 60% svarenda segja að yfirsýn skorti við núverandi aðstæður. Sóknarfæri til framfara er varða ákvarðanir um lyfjameðferð liggja, samkvæmt niðurstöðum okkar, fyrst og fremst í íslenskum lyfjalistum, milliverkanaforriti í sjúkraskrá og betri upplýsingum um lyfjameðferð þegar sjúklingur færist milli þjónustustiga. Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu vinnur nú að gerð lyfjalista í samræmi við nýlega samþykkt lyfjalög sem tóku gildi í ársbyrjun 2021. Fyrirmynd slíkra lista er meðal annars að finna í Svíþjóð.21 Til að koma til móts við sjónarmið lækna er mikilvægt að hraðað verði innleiðingu milliverkanaforrits í sjúkraskrákerfi Sögu. Í verk efninu Lyf án skaða „Medication without harm“ á vegum Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar er verið að vinna að bættu verklagi varðandi upplýsingar og lyfjayfirferð við tilfærslu sjúklinga milli þjónustustiga.22 Nánast engin reynsla er af starfi klínískra lyfjafræðinga í heilsugæslu á Íslandi. Lyfjafræðileg ráðgjöf í heilsugæslu hefur

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.