Skólavarðan - 2021, Blaðsíða 9

Skólavarðan - 2021, Blaðsíða 9
VOR 2021 SKÓLAVARÐAN 9 Fréttir / KENNARASAMBANDIÐ Kjaramál Stytt vinnuvika í leikskólum Formlega vinna við styttingu vinnuvik- unnar stendur yfir í flestum stéttarfé- lögum en í núgildandi kjarasamningi Félags leikskólakennara er kveðið á um sama ramma og önnur stéttarfélög á opinberum markaði hafa hvað varðar styttingu vinnuvikunnar. Fyrsta skref á hverjum vinnustað var að stofna vinnutímanefnd sem annaðist undirbúning breytinga og leiddi samtalið á vinnustaðnum. Annað skrefið í að innleiða styttingu vinnuvikunnar í dagvinnu er að vinnutímanefnd á hverjum vinnu- stað hefji undirbúninginn, kynni sér fræðsluefni um styttingu vinnuvikunnar og greini stöðuna á vinnustaðnum til að draga fram gagnkvæman ávinning starfsfólks og stjórnenda. Dæmi um þetta er greining á þjónustu og helstu álagspunktum, hversu staðbundið starfsfólk er við störf sín og sóknarfæri í vinnufyrirkomulagi, verklagi, samvinnu og tímastjórnun. Sömuleiðis verður að kanna hvaða breytingar þurfi að gera til að nýta megi tímann betur til að ná hámarks- styttingu. Afrakstur vinnunnar nýtist sem fóður fyrir samtal á vinnustaðnum sem allt starfsfólk tekur þátt í. Mikilvægt er að hafa í huga að þetta er samvinnuverkefni stjórnenda og starfsmanna. Hvorki einstaka sveitarfélög, starfsfólk eða stjórnendur hafa meira vald en aðrir í vinnunni. Ná- ist ekki samkomulag um breytt skipulag vinnutíma styttist vinnutími starfsfólks sem nemur 13 mínútum á dag eða 65 mínútum á viku miðað við 40 stunda vinnuviku. Áhugavert verður að fylgjast með framvindu þessa verkefnis en of stutt er liðið síðan breytingar tóku gildi til að hægt sé að fjalla um áhrif styttingar vinnuviku á starfsfólk. Menntamiðja hefur verið starfrækt frá árinu 2012 og hefur nú verið skrifað undir samkomu- lag um áframhaldandi rekstur hennar til ársins 2024. Þeir sem standa að Menntamiðju eru, auk Kennarasambands Íslands, Menntavísindasvið Háskóla Íslands, Mennta- og menningarmála- ráðuneyti, Skóla- og frístundasvið Reykja- víkurborgar, Háskólinn á Akureyri, Háskólinn í Reykjavík, Listaháskóli Íslands, Menntamála- stofnun og Samband íslenskra sveitarfélaga. Í fréttatilkynningu segir að markmið Menntamiðju sé að vera gátt að starfsþróun kennara, stjórnenda og annars fagfólks í menntakerfinu. Á vefsvæði Menntamiðju verður miðlað óformlegri starfsþróun sem sprettur upp úr grasrót faghópa í menntakerfinu, sem og formlegri starfsþróun af hálfu eigenda Mennta- miðju. Á Menntamiðju verður hægt að nálgast upplýsingar um styrki og sjóði sem standa til boða. Af Menntamiðju verður einnig miðlað viðburðum og rannsóknum sem eiga erindi við menntakerfið og hagsmunaaðila þess. Mennta- miðja verður vettvangur fyrir samstarf aðila menntakerfisins um þróunarstarf og nýsköpun. Ritstjórn Menntamiðju tekur afstöðu til efnis sem miðlað er á Menntamiðju og mótar verklag þar um. Með Menntamiðju hefur tekist að skapa samráðsvettvang á netinu þar sem fólk kemur saman úr ólíkum áttum þannig að úr verði suðupottur nýrra hugmynda og þekkingar. Ragnar Þór Pétursson, formaður Kennara- sambands Íslands, skrifaði undir samkomu- lagið fyrir hönd KÍ og sagði við það tilefni: „Gagnlegasta viðbragð fagstéttar við örum samfélagsbreytingum er öflug starfsþróun. Með því móti er hægt að takast á við erfiðleika og áskoranir og fjölga um leið þeim tækifærum sem breytingunum geta fylgt. Menntamál eru, og verða áfram, á hverfanda hveli. Skólakerfið þarf því aukna áherslu á starfsþróun og aukinn stuðning við forystuhlutverk kennara í því að móta faglegt skólastarf. Menntamiðja, með víðtæku og virku samstarfi, er stórt skref í rétta átt sem ég fagna innilega.“ Við undirritun fór einnig nýr vefur í loftið, menntamidja.is. MYNDIR/KRISTINN INGVARSSON Gátt að starfsþróun fag- fólks í menntakerfinu Viltu gerast félagi í FKE? Kennari sem fer á eftirlaun verður ekki sjálfkrafa meðlimur í Félagi kennara á eftirlaunum (FKE), heldur þarf hann að sækja sérstaklega um það. Nægilegt er að senda beiðni í tölvupósti þar sem fram kemur nafn, heimilisfang, kennitala, heimasími, farsími og netfang á netfangið fjola@ki.is.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.