Skólavarðan - 2021, Blaðsíða 29

Skólavarðan - 2021, Blaðsíða 29
VOR 2021 SKÓLAVARÐAN 29 Helga Sighvatsdóttir / VIÐTAL Tónlistarskóli Árnesinga í hnotskurn Stofnaður 1955 Nemendur 500 Forskólabörn í 2. bekk 260 Nemendur koma úr 8 sveitarfélögum Kennt er á 14 stöðum Kennarar eru 37 Áratuga störf fyrir KÍ Helga hefur einnig helgað krafta sína Kennarasambandinu og hefur átt sæti í kjörstjórn síðan árið 1996 og gegnir nú formennsku í stjórninni. „Ég er hálf- gerður forngripur innan KÍ en ég hef alltaf haft áhuga á starfsemi sambands- ins, byrjaði sem trúnaðarmaður fyrir margt löngu, komst þá að því hvað ég vissi lítið og fór að afla mér upplýsinga. Þetta var á þeim tíma sem Sigríður Sveinsdóttir var formaður Félags tónlistarskólakennara en við vorum samstarfskonur og þannig leiddist ég fyrst í félagsmálin,“ segir Helga. Kjörstjórn KÍ ber ábyrgð á öllum atkvæðagreiðslum sambandsins, svo sem formannskjöri og þegar félags- menn kjósa um nýja kjarasamninga eða um hvort fara eigi í verkfall. Verkefni kjörstjórnar eru mismikil eftir árum, en sem dæmi þá fundaði kjörstjórn átta sinnum á síðasta ári og hélt 12 atkvæða- greiðslur. „Þessi vinna hefur verið ánægjuleg og óhætt að segja að maður hafi lifað tímana tvenna í þessu. Fyrstu minningar mínar eru hlaðin borð með umslögum og kjörskrár sem þurfti að stemma af. Nú eru kosningarnar rafrænar en ábyrgðin er sú sama, það má ekkert klikka og ævinlega þarf að vanda til verka.“ búa að. Þá vil ég nefna að lykilmaður í að koma þessu öllu af stað er Sigurgeir Skafti Flosason rafbassakennari, en hann hefur leitt okkur áfram,“ segir Helga og bætir við að kennarahópurinn hafi þegar sótt upptökunámskeið og fram undan sé námskeið í eftirvinnslu. „Þessi þekking á án vafa eftir að glæða starfið hjá okkur og mun nýtast við tónleikahald og fleira. Við segjum að tæknibyltingin sé hafin og gangi hægt en bítandi.“ Þótt áhrifa COVID-19 hafi gætt í starfi tónlistarskólans segir Helga að sem betur fer hafi ekki þurft að loka skólanum. „Það var auðvitað mikilvægt að halda úti kennslu allan tímann, þótt með öðrum hætti hafi verið. Við slupp- um líka vel þegar kemur að starfsfólk- inu, aðeins einn starfsmaður veiktist. Að því leyti hefur þetta ekki lagst þungt á okkur. Við erum auðvitað reiðubúin ef fleiri bylgjur koma – tökum því sem að höndum ber eins og aðrir.“ Blómlegt tónlistarlíf Yfir fimm hundruð nemendur stunda nám í Tónlistarskóla Árnesinga og segir Helga tónlistarlíf á Suðurlandi blómlegt og gott. Margir kórar eru starfandi og þá hefur Sinfóníuhljómsveit Suður- lands, sem var stofnuð í haust, hleypt lífi í menningarlífið. Stofnandi sveitar- innar er Guðmundur Óli Gunnarsson, en hann vann einnig að uppbyggingu Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands fyrir um aldarfjórðungi. „Sinfóníuhljómsveitin er góð við- bót í tónlistarlífið hér og gaman að segja frá því að fyrsta verkefni hennar var að leika fyrir grunnskólabörn á svæðinu. Það náðist að halda tónleika í Þorláks- höfn, Hveragerði og uppsveitum, en Árborg varð að bíða vegna COVID,“ segir Helga. Mikilvægi tónlistarnáms er Helgu hugleikið enda þekkir hún af eigin raun hversu þroskandi og gott er fyrir börn og ungmenni að stunda slíkt nám. „Það gefur börnum mikið að ná færni í hljóðfæraleik og kannski ekki síður að læra að njóta tónlistar. Þetta sjáum við í okkar daglega starfi en við vitum líka að rannsóknir sýna ótvírætt hversu tónlist og tónlistariðkun hefur almennt góð áhrif.“ „Nýjar rannsóknir styðja þessa kenningu og nægir að nefna niðurstöð- ur sem dr. Helga Rut Guðmundsdóttir, prófessor á Menntavísindasviði HÍ, hefur kynnt. Í þeim kemur fram að tónlistarnám hjálpi börnum að læra að einbeita sér og það hefur auk þess varanleg góð áhrif á heilastarfsemina. Þetta eru áhugaverð vísindi sem mætti tala miklu meira um.“ Sigurgeir Skafti Flosason fræðir kennara á námskeiði um upptökutækni. Eyrún Huld Ingvarsdóttir ásamt meðleikara sínum, Einari Bjarti Egilssyni, á upptökudegi fyrir F. Janiewicz-fiðlukeppnina sem haldin var í haust. Eyrún Huld vann í sínum aldursflokki. Frá æfingu blásarasveitar á Selfossi. Helga Sighvatsdóttir hefur starfað í Tónlistarskóla Árnesinga síðan 2000 og verið skólastjóri síðan 2018.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.