Skólavarðan - 2021, Blaðsíða 40
40 SKÓLAVARÐAN VOR 2021
NEMANDINN / Smásögur
S másagnasamkeppni KÍ var
á sínum stað á liðnu hausti
og var þetta í sjötta sinn
sem efnt er til keppninnar.
Venja hefur verið að tengja
smásagnasamkeppnina við
Alþjóðadag kennara, 5. október, en að þessu
sinni var skilafrestur framlengdur ofurlítið
enda skólastarf ekki með eðlilegum hætti eins
og flestir vita.
Þátttaka var góð eins og jafnan, hátt í tvö
hundruð sögur voru sendar inn. Krakkar í 5. til
7. bekk voru duglegastir við söguskrifin, sendu
flestar sögur inn og hefur svo verið frá upphafi.
Að venju kenndi ýmissa grasa í smá-
sögunum en athygli vakti hversu lítið bar á
COVID-19. Efnistök í verðlaunasögunum eru
afar fjölbreytt.
Dómnefnd hafði ærinn starfa við að
velja bestu sögurnar úr mörgum góðum.
Dómnefndina skipuðu Þórdís Gísladóttir
rithöfundur, Kristján Jóhann Jónsson, fyrrum
dósent á Menntavísindasviði HÍ, og Bryndís
Jónsdóttir frá Heimili og skóla.
Því miður reyndist ekki unnt að halda
verðlaunaathöfn vegna samkomutakmarkana
en verðlaunahafarnir fengu sent viðurkenn-
ingarskjal ásamt spjaldtölvu.
Ritstjórn Skólavörðunnar hvetur alla til að
lesa þessar frábæru sögur. Njótið vel.
Staðalmyndir, tímaflakk,
uppvakningar og vinátta
„Hvað er það
sem við erum að
snæða?“ „Hvað,
hefur þú aldrei
borðað pitsu áður,
Þórsi?“ spurði Eld-
ur hlæjandi.
Ég
e
r
m
eð
kú
rd
ís
kt
n
af
n
og
ég
e
r
m
eð
ís
le
ns
kt
na
fn
. É
g
á
tv
ö
nö
fn
þv
í é
g
á
tv
ö
lö
nd
.
Ó nei, Ís
ey, þau eru
ekki uppvakningar,
heldur fólk eins og
við
Hvað m
eð það að
ég sé ekki m
esta
gella í heim
i, ég er
svo skem
m
tileg og
klár að það jafnar
það bara út.
Gangavörðurinn
sagði að hún æ
tti
að setja skóna í
skóhilluna eins og
allir aðrir en ekki
skilja þá eftir ein-
hvers staðar.