Skólavarðan - 2021, Síða 22
22 SKÓLAVARÐAN VOR 2021
KENNARINN / Tungumálanám
Spænskan nýtur enn mikilla
vinsælda sem þriðja mál á framhalds-
skólastigi, ásamt frönsku og þýsku, en
ögn hefur dregið úr aðsókn í spænsku á
háskólastigi þessi síðustu ár – ef til vill
vegna styttingar framhaldsskólans.“
Sameiginlegur vettvangur
fagmennsku
Talið berst að STÍL, samtökunum sem
Hólmfríður leiðir um þessar mundir.
Í STÍL koma saman fagfélög tungu-
málakennara og þar er unnið margs
konar faglegt starf en félagið stendur
m.a. fyrir námskeiðum, vinnustofum og
ráðstefnum auk þess að sinna alþjóðlegu
samstarfi. „Strax á fyrstu árum mínum
við spænskukennslu varð mér ljóst
hve mikilvæg fagfélög kennara eru. Á
upphafsárunum var t.d. ekki mikið til af
námsefni sem hentaði íslenskum nem-
endum og þess vegna var svo mikilvægt
að kennarar skiptust á efni og deildu
sérþekkingu, hugmyndum og reynslu.
Sama á við enn þann dag í dag að þegar
nýr kennari hefur störf þá bendum við
honum/henni á heima- og Facebook-síð-
ur félaganna þar sem hann/hún getur
nálgast umræður um fagið og þannig
verður vinnuumhverfi viðkomandi
fjölbreyttara og skilar sér í meiri gæðum
fyrir nemendur. Sumir kennarar eru
kannski góðir í málvísindum og aðrir í
bókmenntum eða menningarlæsi en á
síðum fagfélaganna þá leggst þetta allt
saman,“ segir Hólmfríður.
Talið er að á landinu starfi á
milli 600 og 700 tungumálakennarar,
flestir í ensku og dönsku, en um fjörutíu
spænskukennarar eru starfandi víða um
land og flestir eru þeir í Félagi spænsku-
kennara og þar með STÍL.
Aldrei of seint að læra
Hólmfríður er sem fyrr segir prófessor
við HÍ og segir hún að á bilinu 700 til
900 manns stundi tungumálanám á
hverjum tíma. Aldursbil nemenda sem
stunda háskólanám í tungumálum er
mjög breitt og alltaf eru þó nokkrir
erlendir nemendur og eldri borgarar í
hópnum. „Það er mjög skemmtilegt að
hafa þessa breidd því sá sem er sjötugur
hefur aðra nálgun en nemandi um
tvítugt. Það er aldrei of seint að hefja
Verum stolt af því lykilhlutverki
sem við gegnum
„Málabrautir hafa verið á stöðugu
undanhaldi lengi og þetta er afleit þróun.
Ég tel að tungumálanám sé lykilatriði í
því að byggja upp þekkingu á menningu
og samfélagi og framhaldsskólinn gegni
mikilvægu hlutverki í þessu. Mér finnst
líka afskaplega neikvætt að það sé þannig
að allir svokallaðir „sterkir“ nemendur
leiti undantekningalítið á náttúrufræði-
brautir, og ég held að sú tilhneiging sé
bæði menningarlegt og andlegt slys, sem
sagt bæði fyrir samfélagið í heild og líka
fyrir marga einstaklinga,“ segir Ármann
Halldórsson, enskukennari við Verzlun-
arskóla Íslands.
Spurður hvort þróun tungu-
málakennslu síðustu ár hafi verið í
rétta átt segir Ármann: „Ég held að
tungumálakennarar séu mjög öflugir
fagmenn, t.d. í nýtingu á tækni og
nýstárlegum kennsluaðferðum. Ég hef
vissar áhyggjur af ákveðinni stöðnun í
minni grein, enskunni, og gæti þá enska
orðið „complacency“ mögulega átt
við. Svo held ég að viðvarandi flótti frá
málabrautum og mikil áhersla á vísindi
og tækni virki demóralíserandi og dragi
þrótt úr stétt tungumálakennara. Sú
staðreynd að kennarar þriðja máls eru
oft einyrkjar er heldur ekki jákvæð fyrir
starfsþróun,“ segir Ármann og bætir
við: „Ég vil þó leggja áherslu á að við öll,
sem sinnum því mikilvæga hlutverki að
kenna og fræða um erlend tungumál og
menningu, berum höfuðið hátt og séum
stolt af því lykilhlutverki sem við gegnum
í samfélaginu.“
Ýmsar áskoranir hafa mætt kennur-
um á tímum COVID-19. Ármann segir
sína upplifun á þann veg að tungumála-
kennarar hafi verið vel í stakk búnir að
mæta þessari áskorun.
„Ég held að það sé alveg óhætt að
segja að nýting rafrænna miðla hafi verið
mikill styrkleiki tungumálakennara.
Ég hef til dæmis fylgst með og kynnt
mér starf kennara þriðja máls í þróun
á fjarnámi hjá okkur í Versló og mín
upplifun er að þar hafi verið mjög frjó
og öflug þróun í gangi – mæli eindregið
með að kynna sér það. Ég hef reyndar þá
skoðun að þróun fjölbreyttra rafrænna
kennslugagna í anda fjarnáms sé mun
mikilvægari en að eyða tíma í endalausa
tíma á Teams og Zoom, og held að á
vissan hátt hafi verið farin skökk leið í
þessu í skólunum haustið 2020,“ segir
Ármann Halldórsson.
Ármann Halldórsson, kennir 1-A ensku í Verzlunarskóla Íslands.
Ef nemandi er fljótur
að ná góðum tökum
á framburði þá vex
honum ásmegin í
náminu