Skólavarðan - 2021, Síða 28
28 SKÓLAVARÐAN VOR 2021
VIÐTAL / Helga Sighvatsdóttir
Það gefur börnum
mikið að ná færni
í hljóðfæraleik og
kannski ekki síður
að læra að njóta
tónlistar.
S kólastarfið
er smám
saman að
færast í eðli-
legt horf.
Við héldum
fyrstu tónleikana í gær sem
var afar ánægjulegt. Nemend-
ur máttu bjóða einum gesti og
nöfn allra voru skráð. Þetta
gekk mjög vel,“ segir Helga
Sighvatsdóttir, skólastjóri
Tónlistarskóla Árnesinga.
Helga hefur haft í nógu
að snúast síðasta árið við að endur-
skipuleggja nám og kennslu í samræmi
við sóttvarnareglur og annað sem hefur
fylgt COVID-19 faraldrinum.
„Við fórum yfir í fjarkennslu
síðasta vor og var það mikið stökk fyrir
kennarana sem þurftu að gjörbreyta
kennsluháttum. Þeir stóðu sig mjög vel
í að halda úti gæðakennslu en þetta nýja
fyrirkomulag reyndi bæði á kennara og
nemendur. Margir voru úrvinda þegar
skólaárinu lauk í fyrra en þegar litið
er um öxl er alveg aðdáunarvert hve
kennarar og nemendur stóðu sig vel við
breyttar aðstæður,“ segir Helga.
Fjarkennsla skapar nýja
möguleika í tónlistarnámi en
Helga segir hana ekki koma
í staðinn fyrir hefðbundna
staðkennslu. „Það er alveg
klárt að fjarkennsla opnar
nýja möguleika þótt hún
jafnist aldrei á við einkatíma
í hljóðfæraleik, hvað þá í
söng. Hins vegar má sjá fyrir
sér möguleika t.d. varðandi
tónfræðikennslu – einkum af
því við erum svo dreifð – og
einnig ef ófærð eða óveður
hamla því að nemendur eða
kennarar komist á kennslu-
stað,“ segir Helga.
Jólatónleikarnir teknir upp
Tónlistarskóli Árnesinga er stór skóli,
með yfir 500 nemendur auk á þriðja
hundrað forskólanema. Kennarahópur-
inn er líka fjölmennur, en þeir eru 37 í
dag. Nemendur stunda nám í skólanum
á fjórtán stöðum þannig að yfirferð
sumra kennara er töluverð. Helga hefur
gegnt starfi skólastjóra síðan 2018 en
starfsferill hennar er þó mun lengri, en
hún var aðstoðarskólastjóri frá árinu
2000.
„Skólinn okkar er víðfeðmur og
kennararnir þurfa að ferðast á milli
staða. Kórónuveirufaraldurinn hafði í
för með sér að mjög dró úr akstri hjá
okkur en það hefur verið stór útgjalda-
liður í rekstri skólans. Við ákváðum
að nýta hluta af því fé sem sparaðist
til að fjárfesta í upptökubúnaði. Við
keyptum góða hljóðnema, myndavél
og mixer til að taka upp efni í góðum
gæðum.“
Nýju tækin voru notuð fyrir jólin
en þá voru nemendur hvattir til að spila
á myndbandi. „Þar sem við gátum ekki
haldið hefðbundna jólatónleika ákváð-
um við að fara þessa leið, taka upp
myndbönd og senda heim til nemend-
anna. Flestir nemendur tóku mjög vel í
þetta en auðvitað voru sumir stressaðir,
jafnvel meira en ef þeir hefðu spilað
fyrir fullum sal. En af þessu öðlast
nemendurnir reynslu sem þeir munu
Mikilvægt að læra
að njóta tónlistar
Myndin er tekin á æfingu fyrir fram-
haldspróf Írisar á píanó. Kvintettinn skipa
þær: Íris Beata Dudziak (píanó), Elísabet
Anna Dudziak (fiðla), Ingibjörg Ólafsdóttir
(fiðla), Katrín Birna Sigurðardóttir (selló)
og Arndís Hildur Tyrfingsdóttir (víóla).
Stemningin í vetur hefur frekar lág-
stemmd en allt horfir til betri vegar,“
segir Helga Sighvatsdóttir, skólastjóri
í Tónlistarskóla Árnesinga. COVID-19
hefur haft í för með sér að starfsfólk
og nemendur hafa viðað að sér nýrri
þekkingu í tæknimálum.