Skólavarðan - 2021, Síða 34
34 SKÓLAVARÐAN VOR 2021
KENNARASAMBANDIÐ / Orlofssjóður
F ram undan er betri tíð með blóm í
haga. Eftir einstakt tímabil í sögu
þjóðarinnar og umheimsins alls beinist
athyglin meira en nokkru sinni fyrr að
orlofskostum innanlands. Orlofssjóður
Kennarasambands Íslands (OKÍ) kynnir
nú kosti sína fyrir sumarið, en þeir eru fjölmargir um allt
land; orlofshús, hótel og afþreying af ýmsu tagi.
Stjórn Orlofssjóðs hefur markað sér ákveðna stefnu síð-
astliðin tvö ár og árangur hennar er smám saman að koma í
ljós. Félagsmenn fagna nýjum eignum; tíu íbúða fjölbýlishúsi
í Reykjavík, tveimur íbúðum í miðbæ Akureyrar, nýrri íbúð
á Siglufirði og vonandi á næstunni tveimur nýjum íbúðum
við suðurströndina. Ég hvet félagsmenn til að fara inn á vef
Orlofssjóðsins og sjá hina fjölbreyttu kosti sem þar eru í boði.
En hvað gerir Orlofssjóður Kennarasambands Íslands,
í stuttu máli? Jú, OKÍ á og leigir út (eftir punktakerfi) eignir
til félagsmanna á afmörkuðum svæðum á landinu. Íbúðir
í Reykjavík, á Akureyri, á Siglufirði og í tveimur stórum
hverfum orlofshúsa við Flúðir og mögulega koma til sögunn-
ar íbúðir á fleiri stöðum áður en sumarleyfið hefst í ár. OKÍ
leigir út í framleigu eða skiptileigu og niðurgreiðir (eftir
punktakerfi) gistingu á ýmsum öðrum stöðum um allt land,
einkum á sumrin. OKÍ niðurgreiðir gistingu félagsmanna,
flugferðir innan- og utanlands og ýmsa orlofskosti eftir hefð
og ákvörðun stjórnar hverju sinni.
OKÍ stefnir að því að meirihluti eigna sjóðsins séu nýjar
og nýlegar íbúðir og hús, byggð og búin þannig að viðhald sé
í lágmarki. OKÍ stefnir að kerfisbundinni endurnýjun eigna
með þetta að markmiði. Þannig nemi fullnægjandi viðhald
eigna sífellt minni hluta ráðstöfunarfjár og sjóðurinn hafi
meira fé til fjárfestinga og fjölbreyttra orlofskosta. Sjóðurinn
hefur að markmiði að framleigja aðeins eignir sem uppfylla
staðla félagsmanna. Þannig hefur framleigukostum heldur
fækkað, en eignum fjölgað.
OKÍ stefnir nú á að fjárfesta í íbúðum í þéttbýliskjörnum
í sem flestum landshlutum og sækist eftir skiptileigu og
samvinnu við aðra sjóði til að auka fjölbreytni. Þá er hafin
markviss vinna við að undirbúa byggingu nýrra húsa á lóðum
sjóðsins á orlofssvæðunum við Flúðir, þar sem þrjú ný hús
voru tekin í notkun fyrir hálfu öðru ári.
Í framhaldi af þessu hefur Orlofssjóður selt hús sín
við Sóleyjargötu. Í stað þeirra á sjóðurinn nú nýtt 10 íbúða
fjölbýlishús við Vörðuleiti í Reykjavík, sem félagsmenn
hafa notað í rúmt ár og líkað vel. Sjóðurinn keypti íbúð í
Hafnarstræti á Akureyri fyrir rúmu ári og festi mjög nýlega
kaup á annarri sem sjóðurinn byrjar að leigja út í maí. Fyrir
nokkrum vikum keypti sjóðurinn nýja rúmgóða íbúð í gamla
gagnfræðaskólanum á Siglufirði og á nú í viðræðum um kaup
á fleiri íbúðum.
Það er mikill kraftur í starfsemi Orlofssjóðs
Kennarasambands Íslands. Sjóðurinn hefur vissulega fengist
við útgjöld og úrlausnarefni í tengslum við pestarfárið sem
nú sér vonandi fyrir endann á. En í nýjum aðstæðum felast
líka ný tækifæri. Stjórn sjóðsins óskar félagsmönnum OKÍ
gleðilegs orlofs á árinu sem nú er hafið.
Orlofshús
Kraftur í starfi
Orlofssjóðs KÍ
Samúel Örn Erlingsson, formaður OKÍ, skrifar