Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2019, Page 4

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2019, Page 4
Nafn og hvenær fæddur og hvar? Ásgrímur L. Ásgrímsson, Reykja- vík 17. september 1963. Hversu gamall varstu þegar þú byrjað- ir á sjó? Var frá unga aldri með pabba mínum að þvælast á björgunarbátnum Gísla J. Johnsen í Reykjavík en lögskráðist fyrst á skip vorið 1982 á milli bekkja í mennta- skóla. Hvaða ár laukstu varðskipadeild? Fór ekki hefðbundnar leiðir. Útskrif- aðist úr menntaskóla 1983 en var í fram- haldinu samþykktur sem „cadet“ í sjó- liðsforingjaskóla US Coast Guard. Út- skrifaðist þaðan vorið 1987 með há- skólagráðu í „stjórnun“ og skipstjórnar- réttindi á bandarísk varðskip. Hvenær gekkstu til liðs við Landhelgis- gæsluna og hvað varð til þess? Ég fór í nám hjá US Coast Guard Academy sumarið 1983 fyrir tilstilli Gunnars Bergsteinssonar fyrrverandi for- stjóra Landhelgisgæslunnar. Ávallt ljóst að ég kæmi til baka og starfaði hjá stofn- uninni. Var þó boðið að gerast banda- rískur þegn og hljóta skipunarbréf frá forseta Bandaríkjanna sem foringi í US Coast Guard. Var freistandi en þakkaði fyrir gott boð og kom heim undir lok níunda áratugarins. Á hvaða skipum hefur þú verið og hvert þeirra er eftirminnilegast? Hef verið á ýmsum skipum, togara, gámaflutningaskipinu Helgafelli, varð- skipunum Árvak, Óðni, Tý og Ægi og mælinga- og eftirlitsskipinu Baldri. Var þar skipstjóri í mörg ár en ég fór í sér- hæft 10 mánaða nám hjá US Naval Oceangraphic Office árið 1989 til að læra sjómælingar og sjókortagerð. Einnig skipstjóri á björgunarskipunum Henrý A. Hálfdánarsyni og Ásgrími S. Björnssyni í sjálfboðaliðsstarfi fyrir Slysavarnafélagið Landsbjörg. Var sjóliðsforingjaefni um borð í USCG skipunum Eagle, Unimak, og Point Turner og síðan sjóliðsforingi og vakthafandi í brú um borð í USCGC Chilula WMEC 153. Eftirminnilegast er þjálfun mín um borð í skólaskipinu USCGC Eagle sem er þrímastra barkur sem US Coast Guard Academy gerir út og sendir nemendur sína um borð í árlega til að þjálfa í sjó- mennsku og skipstjórn. Skipið var smíð- að 1936 fyrir þýska sjóherinn sem þjálf- unarskip en bandaríska Strandgæslan tók það yfir í lok heimsstyrjaldarinnar síðari og gerði að skólaskipi. Sigldi á því fjögur sumur, fyrstu tvö sumrin sem sjóliði sem þurfti að klifra upp í rá og reiða hvenær sem á þurfti að halda en næstu tvö sem yfirmaður sem stýrði slíkum aðgerðum og skipinu sjálfu. Eftirminnilegasti skipstjóri sem þú hefur siglt með? Þeir eru margir en mig langar til að minnast á skipherra hjá Landhelgis- gæslunni sem ef til vill lítið hefur verið minnst á í gegnum tíðina en reyndist mér góður skipsfélagi og vinur. Þetta er Frið- geir Olgeirsson sem síðar bar beinin í Suður-Afríku og hvílir þar nú. Mér fannst gott að umgangast þennan mann og kunni virkilega vel við hann. En svo hafi allir þessir menn sem ég hef borið þá gæfu að fá að sigla með haft sinn sjarma. Hver er skemmtilegasti maður sem þú hefur verið með til sjós? Hann heitir Haukur Sigurðsson og var stýrimaður hjá Landhelgisgæslunni, á Herjólfi I, sjómælingamaður og margt fleira. Hann er hafsjór af fróðleik um sjó- mennsku frá síðustu öld. Það þarf að taka Kallinn í brúnni 4 – Sjómannablaðið Víkingur Ásgrímur L. Ásgrímsson Ásgrímur L. Ásgrímsson í brúnni á varðskipinu Tý – eða Ægi.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.