Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2019, Qupperneq 22
22 – Sjómannablaðið Víkingur
Etna tilbúin að gjósa
Einstaka sinnum er ferðinni heitið inn í
Miðjarðarhafið og hef ég nokkrum sinn-
um siglt inn í Svartahaf til Samsun í
Tyrklandi og Balchik í Búlgaríu og er þá
siglt hið fræga Bosporussund við Istanbul
og áhugavert að sjá Asíu á aðra hönd en
Evrópuhluta borgarinnar á hina. Það ger-
ist ekki oft að við siglum á svo framandi
slóðir en kemur þó fyrir.
Ég man líka eftir einni ferð norður
Adríahafið til Ravenna á Ítalíu en sú borg
er skammt frá Feneyjum. Sigldum við þá
norðan og austan við Sikiley í gegnum
Messina sundið þar sem eldfjallið Etna
blasti við, en stöðugur reykjarmökkur
eða gufustrókur streymir upp úr fjallinu
sem virðist ætíð tilbúið að gjósa.
Enn önnur sigling og þá í gegnum
Korinthu kanalinn eða skurðinn á leið frá
Astakos í Grikklandi til Kalamaki er mér
í fersku minni. Sá handgerði skipaskurð-
ur er aðeins fjórar sjómílur á lengd og
ekki nema um 20 metra breiður, með
rúmlega 100 metra háa veggi til beggja
handa, nokkuð yfirþyrmandi, það var
eftirminnilegt.
Ekki skal gleyma Íslandssiglingum en
við komum heim af og til og lestum lýsi
á íslensku ströndinni. Það má því með
sanni segja að siglingasvæðið sé fjölbreytt
og hafnirnar margar.
Sé ekki eftir að hafa valið
tankskipabransann
Á skipum mínum hafa undanfarin átta ár
verið áhafnir frá Myanmar (Burma) en
áður fyrr sigldi ég með áhöfnum frá
austur Evrópu, aðallega Rússlandi og
Úkraínu.
Við erum sex íslenskir skipstjórar sem
siglum fyrir Sea Tank Chartering um
þessar mundir. Nokkuð samstarf og sam-
neyti er á milli okkar skipstjóranna en
flestir deilum við skipum með Norð-
mönnum og er siglingatími um borð oft-
ast fimm eða sex vikur og þá annað eins í
fríi.
Það er oftast fjölbreytt og skemmtileg
vinna að sigla tankskipi hvort heldur það
er olíu- eða efnaflutningaskip en auknar
kröfur til skipa og áhafna undanfarin ár
hafa gert starfið umfangsmeira og því
miður er ekkert lát á pappírsvinnunni
þrátt fyrir alla nútíma tækni, þvert á móti
eykst hún stöðugt. Strangar skoðanir eru
gerðar nokkrum sinnum á ári þar sem
farið er í gegnum rekstur skipsins, ástand
þess, öryggisstjórnunarkerfið og kunnáttu
og hæfni áhafnar. Þessar skoðanir eru
það tíðar að skipin þurfa á hverjum tíma
að vera tilbúin fyrir næstu skoðun sem
getur komið óvænt en oftast nær fáum
við einhvern tíma til undirbúnings.
Ef ég væri að byrja í dag sem ungur
yfirmaður myndi ég hiklaust feta sömu
braut og velja tankskipabransann sem
eins og áður sagði er fjölbreyttur, kröf-
uharður en oftast nær áhugaverður, ekki
síst vegna hinna mörgu hafna sem við
siglum til. Undanfarin 10 ár telst mér
til að ég hafi siglt til um 130 hafna á
skipum Sea Tank Chartering og eru
þá meðtaldar hafnirnar á norsku
ströndinni.
Þyrluæfing með norsku strandgæslunni.
Key South við bryggju í Haugasundi.
Hvaleyrarbraut 27
220 Hafnarfirði
Sími: 564 3338